Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 28.01.1936, Qupperneq 4

Nýja dagblaðið - 28.01.1936, Qupperneq 4
4 n'H? N Ý J A DAGBLAÐIÐ Gyöingurinn Sliss Ensk talmvnd eftir hinni heimsfræguskáld- sögu Lion Feuchtwanger Hið mikla og erfiða hlutverk sem Joseph Suss Oppenheimer leikur Conrad Veidt af framúrskarandi snilld Börn fá ekki aðgang Anná.11 Næturlæknir er í nótt Bjami Bjamason, Leifsgötu 7, sími 2829. Næturvörður er þessa nótt í Reykjavikur Apóteki og Lyfjabúð- inni Iðunn. VeÖurspá fyrir Reykjavík og ná- grenni: Allhvöss norðaustan átt. Urkomulaust. Norðan og norðaustan átt var um allt land í gær. Veðurhæð 6—8 vindstig. Austanlands var dálítil snjókoma, en úrkomulaust í öðr- um landshlutum. Hiti var 1—3 stig við suðurströndina, en 4—5 stig norðanlands. Dagskrá útvarpsins: Kl. 8,00 Enskukennsla. 8,25 Dönskukennsla. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegis- útvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 19,20 Hljómplötur: Létt lög. 19,40 Auglýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Heilbrigðismál, VIII: Berklaveiki, III (Sigurður Sigurðs son berkayfirlæknir). 20,45 Sym- foníu-hljómleikar: a) Haydn: Sym- fónia. Op. 45; b) Mozart: Konsert fyrir flautu og hörpu (C-dúr); c) Beethoven: Symfónía nr. 3 (Ero- ica). Stjómarkosningin í Dagsbrún. Stjórnarkosningunni í Dagsbrún lauk síðastl. föstudagskvöld og voru úrslit hennar tilkynnt á fundi félagsins í fyrradag. Úrslit- in urðu þessi: 1019 menn tóku þátt i kosningunni, en 17 atkv. urðu ógild. Formaður var kosinn Guð- mundur Ó. Guðmundsson með 726 atkv., varaformaður Kristiníus Arn- dal með 703 atkv., fjármálarltari Sigurður Guðmundsson með 947 atkv., gjaldkeri Sigurbjörn Bjöms- son með 913 atkv. og ritari Árni Ágústsson með 890. í varastjórn voru kosnir: Friðleifur Friðriks son, Eggert Guðmundsson og Sí- mon Bjamason. Endurskoðendur voru kosnir: Kjartan Ólafsson og Agúst Jósefsson. Varaendur- skoðandi var kosinn Guðmundur Pétursson. í styrkveitinganefnd vinnudeilusjóðs vom kosnir: Har- aldur Pétursson (formaður), Sí- mon Bjarnason og Ámi Guð- mundsson. — Samfylkingin (kom- múnistar, íhaldsmenn og nazistar) liöfðu í kjöri formann (Pál þóroddsson) og varaformann (Jón Guðlaugsson) og fengu þeir 211 og 208 atkv. Eru það öll þau atkvæði, sem samfylkingin ræður yfir í Dagsbrún og svarar það til að það sé 1 /ío hluti félagsmanna. Tryggvi gamli kom af veiðum í gærkveldi. Næsta skemmtikvöld Framsókn- armanna verður í Oddfellowhúsinu (niðri) á fimmtudagskvöldið. Aug- lýst nánara síðar. Togaramir Baldur og Kári fóru ú veiðar í gær. Penlngagjafir til Vetrarhjálpar- innar: Starfsfólk í Steindórs- prenti 21 kr., Starfsfólk hjá Ríkis- prentsmiðjunni Gutenberg 55 kr., N. N. 10 kr., E. Sv. 5 kr., H. E. 5 kr., Sig. Á. 5 kr„ K. J. 5 kr„ A. G. 5 kr„ S. E. 2 kr„ Starfsfólk í Fé- lagsprentsmiðjunni og Félagsbók- bandinu 84 kr. Kærar þakkir. F. h. Vetrarhjálparinnar. St. Á. Pálsson. Súðin kom hingað í fyrradag. Fór hún héðan með síld til þýzka- lands snemma í fyrra mánuði og kom við í Noregi og Svíþjóð á lieimleiðinni. Hún kom með efni til Tunnugerðarinnar á Akureyri og ábúrð til S. í. S. Hitler krefst nýlendna. Hitler flutti tveggja klst. ræðu í Munchen á sunnudaginn á fundi Sambands þýzkra stúdenta og hélt þar fram sömu kröfum um vígbúnað þjóð- verja og nýlendur handa þeim. Hann sagði að hver Evrópuþjóð ætti að eiga nýlendur og hagnýta auðlegðir þeirra landa, sem byggð- ar væru fólki á lægri menningar- stigum, en hvíti kynflokkurinn væri öllum mannflokkum fremri. Máttur er sama og réttur, sagði hann einnig. — FÚ. Togarakaup á ísafirði. Fyrir at- beina bæjarstjórnarinnar á ísa- firði er verið að undirbúa stofnun lilutafélags til J»ess að að lcaupa togarann Hávarð ísfirðing. Togar- nn er nú eign Landsbankans og söluverðið er ákveðið 145 þús. kr. Bæjarstjórriin hefir samþykkt að láta hafnarsjóð kaupa hlutabréf fyrir 18 þjús. kr. Veiðarfæri eru innifalin í söluverði skipsins. Laxfoss fór með kol til Borgar- ness í gærmorgun. Lyra var vænt- anleg hingað um tvöleytið í nótt. Aðalfundur i Knattspymufélag- inu Fram var haldinn í gærkveldi. Fundurinn var fjölsóttur og kom fram, mikill áhugi fyrir vexti og liag félagsins. Stjómin var endur- kosin og skipa hana þessir menn: Lúðvík þorgeirsson formaður, þrá- inn Sigurðsson varaformaður, Sig- urður Halldórsson ritari, Harry Frederiksen gjaldkeri, Jón Sigurðs- son bréfritari og meðstjórnendur Sigurgeir Kristjánsson og Sigur- bergur Elíasson. Austurbæjarskólanum verður lok- að í 3 daga, að læknisráði. Er það gert vegna þess að talið hefir ver- ið öruggara að sótthreinsun færi fram sökum skarlatssóttar, er upp kom þar í einum bekk (sem þegar var einangraður) fyrir nokkru. En sótthreinsun eftir skariátssótt verð- ur að gera með því að svæla ræki- lega og er því öllum skólanum Jarðarlörin Framh. af 1. síðu. neitt fækkandi, sem bíða eftir því, að komast að. Verður kirkjunni haldið opinni þar ti} kl. 4 í nótt. « 100 þús. aðkomu- menn í London í Windsor er í dag unnið að því, að skreyta borgina fyrir jarðarförina. Er talið, að þegar séu komnir 100 þúsund aðkomu- menn til borgarinnar, til þess að vera viðstaddir jarðarför- ina. Tveggja mínútna þögn um allt England Þegar kistan verður látin síga ofan • í grafhvelfinguna helfst tveggja mínútna þögnin um allt Bretland, og þvínæst kastar Játvarður konungur VIII. jörð frá Sandringham yf- ir kistu konungs. lokað, þótt ekki sé þörf á að sótt- hreinsa nema einn bekk. ísfisksölur, Max Pemberton seldi í Grimsby 1118 vættir fyrir 1130 sterlingspund og þórólfur í Hull ; 1791 vættir fyrir 592 sterlingspund. Skipafréttir. Gullfoss kemur til Vestmannaeyja í kvöld. Goðafoss kom til Hull í gærmorgun. Fer þaðan í kvöld á leið til Vest- mannaeyja. Dettifoss var á Akur- eyri í gær. Brúarfoss var á Blöndu- ósi í gær. Lagarfoss var á Akur- eyri í gær. Sélfoss 1 Leith í gær. þýzki sendikennarinn dr. Iwrin flytur í kvöld fyrirlestur í Háskól- ann, um Austur-Prússland. Fyrir- lesturinn hefst kl. 8,05. Afmæli Blönduóskauptúns. 60 ára afmælis Blönduósskauptúns var minnst með samkomu á Eiönduósi síðastl. laugardag. Blönduós var fyrsti verzlunarstað- urinn, sem löggiltur var á Alþingi eftir að það fékk löggjafarvald að nýju. Osló-blöðin birta löng viðtöl við Hermann Jónasson forsætisráð- herra íslands, um löggjafarstarf síðasta Alþingis, um þróun ís- lenzks landbúnaðar á síðari árum, og útflutningsverzlun íslendinga. Eldsvoðinn Framh. af 1. síðu. eru litlar líkur til þess, að tek- ist hefði að bjarga Hafnarstræti 16, 20 og 22, sem allt eru stór timburhús eins og Hafnarstr. 16. með mörgum verzlunum, íbúðum og hverskonar verð- mætum. MIKIÐ TJÓN. Eigandi hússins, Jóhann Eyj- ólfsson, skýrði frá því, að hann teldi sig hafa orðið fyrir 2000 kr. skaða, því flest sé ónýtt, sem var í fornsölunni, og allt óvátryggt. Nokkrar skemmdir urðu einnig á húsinu, en það er vátryggt. Þvottur skemmd- ist einnig í þvottahúsinu Mjall- hvít, sem er áfast við fomsöl- una. Á veitingastofunni urðu líka talsverðar skemmdir. Við rannsókn hefir lögregl- komizt að þeirri niðurstöðu, að um íkveikju hafi verið að ræða. Hafi eldurinn verið kveiktur á tveimur stöðum í suðurenda veitingaskálans, við skilrúmið að fomsölunni. Hafði eldurinn etið sig gegnum skilrúmið á l öðrum staðnum og magnast, er ; hann komst í hin eldfimu efni | í fomsölunni. Hefir lögreglan í nú tekið einn mann fastan, sem grunaður er um þetta ó- hæfuverk. Lögreglan skýrði einnig frá því að Hafnarstræti 18 ásamt útbyggingu og geymsluskúr hefði verið vátryggt fyrir 78 þús. kr., allt óvátryggt í fom- sölunni og þvottahúsinu, en húsmunir, veitingaáhöld og vörubirgðir í veitingaskálanum hefði verið vátryggt fyrir 10 þús. kr. Músikklúbburinn heldur konsert annað kvöld (miðvikudag) kl. 9 á Hótel ísland. þetta verður ef til vill seinasti konsertinn á vetrin- um. Félagsmenn eru beðnir að fjöl- menna. Menn panti borð í síma 1450. Lítið erfðafestuland til sölu innan við bæinn. Eignaskipti geta komið til mála. Upplýs- ingar gefur Magnús Stefáns- son, sími 2823 og 2429. I^HNYJA bió wa Fagurt er á fjölluRum Hrífandi fögur og skemti- leg þýýsk tal og tónmynd er fjallar um ástir og í- þróttalíf, og gerist í undra- heimi svissnesku Alpa- fjallanna. Aðalhlutverkin leika : Hella Hartvig, Walter Riml og hinir viðfrægu skopleikarar og skíðagarp- ar Litli Fietje og Stóri Fietje Aukamyod : Forleikurinn að óperunni Orpheus i undírheimum leikin af hljómsveit undir stjórn Eberhard Frowein Odýrt kjöt 1 kg. á kr, 0.85 frarapartuT 1 — á — 1.00 læri Kiötverzl. Herdubreid Kirkjuvegi 7 Sími 4565 Olíulampar vandaðir. Sýnis- horn. Kaupfélag Reykjavíkur. Benedikt á Auðnum níræður Framh. af 1. síðu. Auðnum og Péturs frá Gaut- löndum. Þessir tveir menn áttu lengst starf og mest í félags- menningu sýslunnar, þar sem unnið var að því, að bera inn í líf kynslóðanna nokkuð af orku þeirrar heitu vakningar, sem fór eldi um hugi Þingey- inga á síðasta fjórðungi næst- liðinnar aldar og bar með sér kaupfélagshreyfinguna inn í líf þjóðarinnar. Það hefir verið víðsýnt af sjónarhæðum Benedikts á Auðnum. Enginn alþýðumaður á Islandi mun vera víðlesnari, fjölfróðari né gagnmenntaðri en hann. Kunningjum hans verða minningasamar dvalimar á þeim sjónarhæðum. Minningin um þá leið, sem Benedikt hefir þegar gengið og um starf hans vakir í minni vitund eins og fallegt æfintýri, þar sem vonir æskunnar rísa móti hverri nýrri dagrenningu. Engan mann þekki ég bjartsýnni en nann né betur kominn að þeim eplum Iðunnar, sem lífið hefir rétt honum og sem hafa haldið honum svo ungum og varpað svo óvenjulega mikilli birtu yf- ir líf hans, svipmót hans allt, persónu og þjóðnytjastörf. Þeir verða margir, alúðarvin- ir Benedikts og góðkunningj- ar, sem í dag senda þessum ní- ræða æskumanni Þingeyingja hlýjar kveðjur og þakklæti. Jónas Þorbergsson.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.