Nýja dagblaðið - 25.04.1936, Side 4
4
N Ý J A
DAGB LAÐIÐ
W fíawti Bló WBEm
Þjófur
rænir pjóf
Afai' spennandi og fjör-
ug leynilögreglumynd með
Gei-tude Michaell,
Paul Cavanavgh
og Leon Errol.
í síðasta sinn.
Börn fá ekki aðgang.
Veðurspá fyrir Reykjavík og ná-
grenni: Austan- eða norðaustan
kaldi. Dálítil rigning.
Næturlæknir er í nótt HalJdór
Stefánsson I^akjargötu 4. Sími
2234.
Næturvörður er þessa viku í
Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunn.
Dagskrá útvarpsins:. Kl. 7,45
Morgunleikfimi. 8,00 Ensku-
kennsla. 8,25 Dönskukennsla. 10,00
Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 þingfréttir. 19,40 Aug-
lýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15 Upp-
lestur, söngur og hljóðfæraleikur.
21.15 Utvarpshljómsveitin (pór.
Guðm.): Vorlög. 21,40 Danshljóm-
sveit F. í. H. (Bjarni Böðvarsson).
22.15 Danslög (itl kl. 24).
Eric Ericson frá Vestmannaeyj-
um heldur kristilega samkomu í
Varðarhúsinu á sunnudaginn kl.
'ilA e. h.— Allir velkomnir!
Hiti norðanlands í gær. í gær
var 8 stiga hiti á Akureyri og yfir-
leitt hlýtt veður um allt Norður-
land.
Ragnar Jónasson, Sellandsstíg,
var á sunnudaginn settur í varð-
hald og er grunaður um óleyfi-
lega vínsölu.
Dvöl, aprílheftið, er nýkomið út
Efni þess er: Helen, ég elska þig,
saga eftir ameríska skáldið .Tames
i’. Forrell. Reiðhjólið, kvæði eftir
Nordahl Grieg. Hversvegna eru ís-
lendingar fátækir, eítir V. G. Átta
ilagar á Korsiku, ferðasaga eftir
Björn L. Jónsson. Ástarperlan, saga
eftir H. G. Wells. Lausavísur eftir
þuru i Garði. Yfirlit um síðustu
heimsviðburði eftir K. S. List-
fræðsla, eftir Áma Ólafsson.
Hlaupaæðið, saga eftir Stefan
Zweig og ýmislegt fleira. — petta
hefti virðist ekki síður vera vand-
að og eigulegt en þau sem út eru
komin áður af þessu tímariti.
Siðlaus bifreiðarstjóri. þegar
skrúðganga skólamanna frá Aust-
urbæjarskólanum fór niður Lauga-
veg- á sumardaginn fyrsta kom
í'yrir atvik, sem vakti réttmæta
gremju allra áliorfenda. Bifreiðar-
stjóri á bifreiðinni RE 919 frá
Litlu bilastöðinni ók að rööum
barnanna og gaf merki um, að
Hl
lEULFJEIit KETUirÍPt
Æska og ástir
eSiír C. L. Anthony
sýning á morgun kl. 8
Aðjpn. seldir frá kl. 4—7 í
dag og frá kl. 1 á morjjrun.
Sími 3191.
Vatnajökulsleíðangur
Framh. af 1. slðu.
klst. var verið að fara frá
Skaftáreldahrauni að Kálfafelli,
og selflytja varð flutninginn
milli Merkurfjalls og Foss.
Vegna krapahríðar og veður-
vonzku dvöldust- leiðangurs-
menn í Kálfafelli í fyrradag.
Sennilega hafa þeir, með aðstoð
Fljótshverfinga, sem sjá þeim
fyrir forkosti, lagt af stað í
áttina að jöklinum í gær.
Drauma-Jóí
75 ára
í gær varð 75 ára Jóhannes
Jónsson, sem dvalið hefir á
Þórshöfn undanfarin ár. Venju-
lega er hann kallaður Drauma-
Jói og er þjóðfrægur undir því
nafni fyrir það, að vera búinn
svo merkilegri draumagáfu að
undrum sætir og á eflaust eng-
an sinn líka hér á landi.
Er Drauma-Jói var kominn á
fullorðins ár, bar oft við, að
hann talaði í svefni. Er hann
var spurður, svaraði hann oft
og sagði frá ýmsu, er var að
gerast í fjarska og rakti jafn-
vel atburði, er liðnir voru og
vísaði þannig á tapaða muni, og
á ýmsan hátt annan var
draumagáfa Jóa merkileg. Enda
hefir einn fræðimaður þjóðar-
innar gert það að viðfangsefni
sínu að rannsaka draumagáfu
Jóa og ritað um hann bók.
Nú hefir Jói fyrir nokkru
tapað dulgáfu sinni eða fer svo
dult með, að enginn veit af.
En í dagfari er hann enn
sama hógláta ljúfmennið, er
alltaf hefir mætt erfiðleikunum
með bros á vör.
liann vildi aka í gegnum fylkingar
þeirra. Enda þótt honum væri bent
á, að það væri ósæmilegt að leyfa
börnunum eklci að ganga óáreitt-
um í friðsamri hópgöngu á þeirra
eigin hátíðisdegi, ók hann að röð-
unum og rauf fylkingar barnanna.
þetta verður að teljast mjög víta-
vert og ósiðlegt athæfi, með tilliti
til þess, að sú venja hefir skapazt
að gera ekki leik að því, að rjúfa
fylkingar fullorðinna borgara í
friðsömum hópgöngum um götur
bæjarins. Svona hegðun gagnvart
börnunum er siðlaus og sem bet-
ui fer fullkomið einsdæmi hér i
bænum. Áhorfandi.
Skíðafélag Reykjavíkur sýnir í
kvöld kl. 7y2 í Nýja Bíó fræðslu-
mynd i skíðaíþróttinni. Aðgöngu-
miðar við innganginn. Sænski
skíðakennarinn hr. Tufesson, sem
hefir haft á hendi skíðakennslu á
Isafirði, er nú hér á heimleið og
útskýrir hann myndina.
Ferðarlélag íslands fer göngu-
iör á Skálafell og að Tröllafossi á
sunnudaginn kemur. Ekið í bílum
að Svanastöðum. Gengið þaðan á
Skálafel) og um Haukafjöll og
Tröllafoss að Varmadal. paðan í
hílum til Reykjavikur. Farmiðar
fást í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar til kl. 7 í kvöld.
Frá pórshöfn á Langanesi er
símað, að enn sé mjög lítil sauð-
jörð komin upp þar í nálægum
sveitum og hey mjög á þrotum og
útlit ískyggilegt ura afkomu sat}8-
Abessmiumenn
sprengja vegi
sína í loft upp til
pess að hindra
Framsókn ítala
Tekst þeim að verja
Addis Abeba pangað
til regntiminn byrjar
i næsta mánuði?
Abessiníumönnum hefir tek-
izt að stöðva framsókn Itala til
Addis Abeba eftir þriggja daga
orustu, stóð í opinberri tilkynn-
ingu frá Addis Abeba í gær.
Höfðu Abessiníumenn fyrst
hrakið ítali 20 mílur til baka,
en Italir juku þá liðsafla sinn
og urðu Abessiníumenn þá að
hörfa undan þessa vegalengd.
Mikið mannfall var hjá báð-
um.
Abessiníumenn leggja nú
mikið kapp á að eyðileggja veg-
inn frá Dessie til Addis Abeba
og verður vel ágengt. Sprengja
þeir veginn með dynamiti.
1 Addis Abeba er nú verið að
byggja utan við borgina stór
skýli fyrir flóttamenn úr norð-
urhluta landsins.
Kunnur fréttaritari á víg-
stöðvum segir að enn hafi ekki
1/4 hluti vopnfærra Abessiníu-
manna tekið þátt í stríðinu. Eru
Abessiníumenn að búa sig til
vamar af miklu kappi á veg-
inum frá Dessie til Addis
Abeba og streyma þangað her-
menn hvaðanæfa af landinu til
þess að taka þátt í þeirri vöm.
(FO).
Skídaferdír
í fyrradagf
Allmargt fólk héðan úr bæn-
um fór á skíði í fyrradag. Var
skíðafæri allsæmilegt, en rok
var og skafrenningur sumstað-
ar og skerti það mjög ánægju
skíðafólksins. Um 50 manns
úr K. R. fór á Skálafell og
Esju. — Um 50 manns fór með
Skíðafélaginu á Skálafell og var
sænski skíðakennarinn með í
förinni. Sýndi hann listir sínar
og þótti það vera góð skemmt-
un. — Ármenningar fóru í Blá-
fjöll. Var um 30 manns í för-
inni. Vegna hvassviðris var
varla stætt á bersvæði, en skjól
var milli fjallanna og naut
skíðafólkið ferðarinnar því vel.
Iieim var komið kl. 61/2 síðdeg-
is. — Auk þessa fóru nemend-
ur úr Menntaskólanum og ýms-
ii ófélagsbundnir hópar á skíði
á sumardaginn fyrsta.
fjár, ef ekki kemur skjótur bati.
— FÚ.
Bruni. Aðfaranótt 20. þ. m. brann
að mestu fiskgeymsluhús i Torfu-
nesi við ísafjörð og allt sem inni
var skemmdist eða brann, þar á
meðal nokkuð af fiski.
í fyrradag var tvfróið frá Blöndu-
ósi og aflaðist sæmilega. Fiskur-
inn hefir veiðst inni 6 höfn. —FÚ.
Borgfirðingar
Framh. af 1. síðu.
þeir af stað kl. rúmlega 2 frá
Alþingishúsinu. Er þeir komu
innan Laugaveg, Bankastræti
og um Austurstræti var ótölu-
legur fólksgrúi samansafnaður
umhverfis hlaupabrautina.
Úrslit urðu þau, að í. B. fékk
25 stig og hlaut verðlaunabik-
arinn í þriðja sinn og þar með
ti! eignar, en K. R. fékk 30
stig. Fyrstur var að marki
Sverrir Jóhannesson (K. R.) á
14 mín. 36 sek., annar Hjör-
leifur Vilhjálmsson (í. B.) 14
mín. 42,3 sek., þriðji Óskar A.
Sigurðsson (K. R.) og var 14
mín. 51,5 sek. Síðan komu nær
samsíða fjórir Borgfirðingar og
eínn K.R.-ingur og síðan hver
af öðrum með nokkru millibili,
unz allir hlauparamir höfðu
runnið skeiðið á enda.
Að loknu hlaupi bauð íþrótta-
félag Reykjavíkur hlaupurun-
um 0. fl. til kaffidrykkju í
K.R.húsinu. Afhenti Jón Kald-
dal formaður í. R. Borgfirðing-
um verðlaunabikarinn. Enn-
fremur færði hann Magnúsi
Guðbjömssyni heiðursskjal í
viðurkenningarskyni fyrir það,
að hann hefir 15 sinnum tekið
þátt í víðavangslilaupinu. OgEr-
lendur Pétursson afhenti Magn-
úsi fagran bikar frá K. R. —
Ræður voru fluttar 0g fleira til
gamans gert.
Borgfirðingamir fóru flestir
heimleiðis í fyrradag nema
Gísli Albertsson, sem veiktist
meðan á keppninni stóð og er
um allmikið veikur.
Barnadagurinu
NYJA BIÓ
Endur-
fæding
Mikilfengleg amerísk
talmynd samkv. heims-
frægri skáldsögu eftir
rússneska stórskáldið
Leo Tolstoy.
Aðalhlutverkin leika:
Anna sten og
Freric March.
Börn fá ekki aðgang.
Kanp og sala
0
Pantið í tíma
í sima 3416.
Kjötverzlun
Kjartans Milner,
Beztu poka- og skíðabuxumar
fást hjá
Gefjun, Laugaveg 10.
Tilkynniiigar
er símanúmerið hjá
ódýru fiskbúðinnl á
Klapparstíg 8. —----
Fasteignasala Helga Sveins-
sonar er í Aðalstræti 8. Inng.
frá Bröttugötu. Síml 4180.
Húsneði
Húsnæði í nýbyggðu stórhýsi
í Austurbænum, hentugt fyrir
rakarastofu, hárgreiðslustofu
eða búð, er til leigu frá 14. maí.
Verður innréttað eftir óskum
leigjanda. — Upplýsingar í
síma 3288.
Framh. af 1. síöu.
eftir ágætri ræðu er kennslu-
málaráðherra flutti af svölum
Alþingishússins.
Síðan voru skemmtanir í
báðum kvikmyndahúsunum,
Iðnó og K.R.húsinu. Var hvar-
vetna húsfyllir og urðu margir
frá að hverfa. Og um kvöldið
var „Alt Heidelberg“ sýnt í
Iðnó, en dans stiginn í K.R.-
húsinu.
Bamavinafélagið Sumargjöf
stóð fyrir öllum skemmtunun-
um og seldi merki dagsins á
götum bæjarins.
Á inniskemmtunum söfnuð-
ust 3136 kr. (2473 kr. í fyrra).
Nú er vitað um að inn hafi
komið fyrir merki 2005 kr. og
meira en nokkru sinni fyrr; og
líkur má telja að síðar komi
meira fram. Til samanburðar
má geta þess, að hreinn ágóði
af merkjasölunni í fyrra var
1629 kr.
Fjáröflun Sumargjafar var
því ágæt og á merkjasölunni og
skemmtununum safnaðist á
annað þús. kr. meira en í fyrra.
Um sölu á „Sólskini" er ekki
vitað ennþá, en Bamadags-
blaðið mun gefa töluvert meiri
hagnað en í fyrra, enda seldist
það vel á götunum.
Af öllu þessu má sjá að al-
menningur í bænum veitir mál-
efnum barnanna vaxandi at-
hygli.
Sólríkt forstofuherbergi til
leigu. Aðgangur að síma og baði
gæti fylgt. Uppl. í síma 4603.
Stjórnmálasaga
Framh. af 1. síðu.
ág. 1920, milli Sambandsþjóð-
anna og Tyrkja, um sundurlið-
un Tyrkjaveldis.
4. Bandaríkja-Miðveldasamn-
ingurinn, 18. okt. 1921.
5. Níu-velda-samningurinn,
1921—1922, aðalaðilar Bretland,
Bandaríkin og Japan, um hlut-
fallsstærðir flotanna.
6. Lausanne-samningurinn,
24. júlí 1923, um ófriðar skaða-
bætur Þjóðverja.
7. Locamo-samningurinn,
1925, milli Breta, Frakka,
Belgja, Þjóðverja og ítala, um
samábyrgð friðarins í Vestur-
Evrópu.
8. Kellog-Briand-samningur-
inn, 1929, sem líka var beinn
samningurinn til varðveitingar
friðinum.
Auk allra þessara samninga
var svo Þjóðabandalagið, þar
sem hver meðlimur var samn-
ingsbundinn, eftir lögum þess
og reglum.
Flestir þessir samningar hafa
verið þverbrotnir, auk margra
annara minni, annaðhvort Ijóst
eða í leyni. Eftir 15 ár ráð-
stefna og samninga vinna
vopnasmiðjur þjóðanna nótt og
dag og skuggi eyðileggingar-
innar grúfir yfir Evrópu, dekkri
en nokkru sinni fyr.