Nýja dagblaðið - 16.05.1936, Page 1
NYJADAGBIAÐIÐ
4. ár. Reykjavík, laugardaginn 16. maí 1936. 110. blað
A lagn ing íekj u* og
eignaskatis 1935
Skuldlausar eígnir skafigreiðenda námu 127,4
milj. kr. á síðastl. ári. Ukust á árinu um 7,5
millj. kr. — Tekjur skattgreiðenda voru alls
69,5 millj. kr. eða hálfri millj. kr. meiri en 1934
Japanir svipta Kínverja
priðjung tolltekna sinna
með vörusmyg’lun
Kínverjar, Bretar og Bandaríkjamenn mótmœla
Japinir svara með pví að auka setulið sitt
í seinustu Hagtíðindum
birtist yfirlit yfir álagningu
tekju- og eignarskatts árið
1935. Verða hér rakin nokkur
atriði úr þeirri skýrslu.
Árið 1935 voru 26.270 ein-
staklingar gjaldendur tekju-
skatts eða 8% færri en árið
áður. Tala tekjuskattskyldra
félaga var svipuð bæði árin
(um 230).
Alls námu nettotekjur þess-
ara skattgreiðenda 69.464 þús.
kr. (Árið 1934 68.902 þús. kr.)
Af þessum tekjum voru ekki
nema 38.150 þús. kr. skatt-
skyldar. Skattskyldar tekjur
voru 5 millj. kr. meiri árið áð-
ur. —
Einstaklingar, sem guldu
eignarskatt, voru 6917 eða Vr,
fleiri en næsta ár á undan.
Tala eignarskattskyldra félaga
var svipuð (um 150).
Samtals námu skuldlausar
eignir þessara gjaldenda 127
millj 404 þús. kr. Höfðu þær
aukizt frá því árið áður um 7.5
millj. kr.
Þegar skattaukar eru með-
taldir bæði árin, er samanlögð
upphæð tekju- og eignar-
skattsins 1.861 þús. kr. árið
1934, en 1.978 þús. kr. árið
1935.
Sú breyting var gerð á
skattstiganum haustið 1934, að
hann hækkaði á háum tekjum
og miklum eignum, en frá-
cirátturinn var aukinn og
slcatturinn lækkaði á tekju-
lægri og eignaminni gjaldend-
um.
Fróðlegt er að athuga skipt-
ingu á tölu skattgreiðenda,
Góður aflí
í snyrpinætur
í Vestm.eyjum
Undanfama daga hafa all-
margir vélbátar stundað
snyrpinótaveiðar frá Vest-
mannaeyjum og aflað vel.
Tveir enskir togarar hafa keypt
veiðina góðu verði. Iiafa sumir
bátamir veitt fyrir allt að 800
krónum á sólarhring, en talið
að útgerðin beri sig vel með
veiði sem næmi 250 kr. á sól-
Frh. á 4. síðu.
tekjum og eignum milli kaup-
staða og sveita.
I Reykjavík eru búsettir 48.1
allra tekjuskattsgjaldenda, 1
öðrum kaupstöðum 17.4% og í
sveitum og kauptúnum 34.5%.
Nettotekjur skattskyldra
Reykvíkinga eru 41.7 millj. kr.
eða 61.4% allra teknanna. Aðr-
ir kaupstaðir hafa 17.6% tekn-
anna og sveitir og kauptún
21%.
Skipting eignarskattsgjald-
cnda er nokkuð önnur. Ekki
nema 34.5% eru búsettir í
Rvík, 17.8% í öðrum kaupstöð-
um og 47.7% í kauptúnum
og sveitum.
Reykvíkingar eiga samt nær
helming allra skuldlausra eigna
eða 63.5 millj. kr. Skuldlausar
eignir skattgreiðenda í öðrum
kaupstöðum eru 23.3 millj. kr.
og í sveitum og kauptúnum
40.6 millj. kr.
Flestir Reykvíkingar munu
kannast við Magnús Guð-
björnsson hlaupara og bréf-
bera. Hann hefir nú í þrettán
ár verið tíður vegfarandi á
götum höfuðstaðarins, í hvaða
veðri sem er, jafnt virka, aem
Karfavinnslan
byrjaðí á Sól-
bakka í gær
Tilraunir hafnar
á Austurlandi
Óvíst um karfaveiðar
frá Sigíufírði
Togaramir Þorfinnur og
Sindri komu til Sólbakka í gær
með fyrstu karfafarmana.
Hafði Sindri fengið 80 smál.
af karfa og Þorfinnur 65 smál.
Auk þess seldu þeir Kaupfélagi
önfirðinga um 50 smál. af
þorski.
Karfavinnslan í verksmiðj-
unni hófst strax í gær, eftir
að afli togaranna kom á land.
Auk Sindra og Þorfinns eru
þeir Hávarður Isfirðingur og
Hafsteinn einnig famir á
karfaveiðar og munu leggja á
land á Sólbakka.
Norðfjarðartogarinn „Brimir“
er nú að reyna karfaveiðar
fyrir Austurlandi. Hafa karfa-
vinnslutæki verið sett í fóður-
mjölsverksmiðju Norðfjarðar.
Enn er ekki fastráðið hvort
Framh. á 4. síðu.
óvirka daga. Bréfberastarfið
er, eins og flestum mun kunn-
ugt, lýjandi og lítt eftirsóknar-
\ert fyrir unga menn, en þó
vart við annara hæfi.
Jafnframt þessu aðalstarfi,
Frh. á S. síðu.
London í gær. FtJ.
Stjórnin í Kína hefir sent
japönsku stjóminni mótmæla-
skjal, vegna stórfenglegrar
smyglunarstarfsemi, sem átt
hefir sér stað frá Japan til
Norður Kína undanfarið, eink-
anlega síðustu vikur. Bera Kín-
verjar það á japönsku stjórn-
ina, að hún beinlínis stuðli að
þessari smyglunarstarfsemi, og
mælist til þess, að hún annað-
hvort hætti að skifta sér af
Norður-Kína, eða geri ráðstaf-
anir til þess að koma í veg fyr-
ir þenna ósóma.
Svo mikið er sagt að kveðið
hafi að smyglun á vörum til
Norður-Kína síðustu vikurnar,
að tolltekjumissir Kínverja
myndi nema einum þriðjungi
allra tolltekna ríkisins, ef hann
héldist i sama hlutfalli árlangt.
Sendiherrar Breta og Banda-
ríkjamanna í Tokio hafa þegar
mælst til þess við japönsku
stjórnina, að hún léti þessa
smyglun til sín taka, og beitti
hervaldi sínu í Norður-Kína til
þess að koma í veg fyrir hana.
London í gær. FÚ.
Anthony Eden lagði af stað
loftleiðis í dag síðdegis frá
París til London. Á meðan
hann dvaldi í París átti hann
\iðtal við Flandin utanríkis-
málaráðherra, og við Leon
Blum, sem talið er að verði
næsti forsætisráðherra Frakk-
lands. Hafa þeir aldrei kynnst
áður, Blum og Eden.
í ræðu, sem Leon Blum flutti
Ríki gengur úr
Þjóðabandal.
London í gær. FÚ.
Stjórnin í Guatemale í Mið-
Ameríku hefir í dag tilkynnt
ritara Þjóðabandalagsins í sím-
skeyti, að hún segi sig úr
Þjóðabandalaginu. Um ástæð-
una fyrir þessari ákvörðun ar
ekki getið, en talið sjálfsagt
að skýring muni send skriflega
síðar. Guatemala hefir frá
upphafi verið meðlimur Þjóða-
bandalagsins, og átti sæti í
ráðinu árin 1981—1983.
En japanska stjórnin svarar
því til, að ef um stórfellda
smyglunarstarfsemi sé að
ræða, þá sé það að kenna því,
hve kínverskir tollar séu háir,
og kínverskir tollgæzlumenn
standi lélega í stöðu sinni.
Japanir auka nú setulið sitt
í Tientsin, samkvæmt fregnum
þaðan. Seytján þúsund her-
menn hafa verið sendir þangað
síðustu dagana, og 7000 er
sagt að ráðgert sé að senda á
næstunni. Verður þá herstyrk-
ur Japana í Tientsin 100000
manns. Japanska utanríkis-
málaráðuneytið skýrir þessa
aukningu setuliðsins á þann
hátt, að Japanir verði að vera
við því búnir, að stemma stigu
fyrir útbreiðslu kommúnism-
ans í Norður-Kína. Herinn
muni ekki verða notaður til
þess að brjóta á nokkurn hátt
í bága við hagsmuni erlendra
ríkja á þessu svæði, en aðeins
til þess að koma á jafnvægi
milli japanskra, kínverskra og
manchukuoiskra hagsmuna í
Norður-Kína.
í dag, sagðist hann ekki halda
með stríði, ekki einu sinni
frelsisstríði. Menn þyrftu því
ekki að óttast, að stjórn sú,
sem hann kynni að veita for-
ystu, myndi leggja út í stríð,
hvorki til að hefna sín á öðrum
þjóðum, né kollvarpa einu eða
öðru skipulagi.
Amy MolHson
setur [þriðja metið
í ferðalagi sinu
London í gær. FÚ.
Amy Mollison kom til Eng-
lands kl. 36 mínútur yfir 1 í
dag, eftir brezkum tíma. Mörg
þúsund manns höfðu safnazt
saman við flugvöllinn í Croy-
don til þess að fagna henni.
Hún hafði flogið frá Höfða-
borg á 4 dögum, 16 klukku-
stundum og 15 mínútum, eða
einum degi 14 klukkustundum
og 45 mínútum skemmri tíma
Frh. á 4. síðu.
15 ára íþróttaafmæli
ípróttamaður, sem hefur unnið 170 verðlauna-
peninga og 65 verðlaunabikara
Verður Leon Blum næsti
forsætisráðherra Frakka