Nýja dagblaðið - 16.05.1936, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 16.05.1936, Blaðsíða 2
2 N Y J A DAGBLAÐIÐ Brytastaðan á Stúdentagarðinum er laus til umsóknar 15. sept. þ. á. Allar upplýBÍngar hjá Garðprófasti, sími 4790. Umsóknir séu komnar til prófasts fyrir 10. júní n.k. Heilsan er fyrir öllu Hafið þetta hugfast og hitt, að heilsufræðingar telja MJÓLK, SKYR og OSTA með hollustu fæðutegundum, sem völ er á. Notið því nú þegar Meiri MJÖLK meira SKYR — meiri OSTA. Afgreiðsla Nýja dagblaðsins og Tímans ev i Hafnarsir. 16. Ennfremur ritstjórnarskrífstofur Nýja dagblaðsins. Hitar, ilmar, heillar drótt, hressir, styrkir, kætir. Fegrar/yngir, færir þrétt Freyju kaffibæti. „ - - - VEIT ÉG ÞAÐ, en |>að er pá að mfnnsfa kosti eitf sem má reyna fil að bæfa og blíðka skapið ogf pað er REGLULEGA GOTT KAFFL En ef þú villt búa fil óað- fínnanlegt kaffi pá verðurðu blessuð góða að nota | Bezfu Cigareffurnar í 20 stk. pökkum á kr. 1,25 eru COMMANDER WESTMINSTER Virginia CIGARETTUR Búnar tíl hjá London. Er Reykjjavík fallegur bær? v. Á Alþingri eftir þingrofiö, snmarið 1931 gerði Tryggvi í'órhallsson kaup á húseign og lóðum hér í bænum, sem geta crðið einn hinn þýðingarmesti þáttur í að prýða bæinn. Hann lagði til við Alþingi að kaupa þrjár húseignir milli mennta- skólans og stjórnarráðsins fyr- ir hálfa miljón króna og það var gert. Á þessari eign eru tvö fremur verðlítil timburhús og eitt steinhús, sem þó verður að rífa líka, hvenær, sem ríkið byggir á þessum lóðum. Eins og nú er komið á ríkiö samfellda grunna fyrir margar stórbyggingar við aðaltorg og aðalgötu bæjarins, þannig að húsin standa á hæð með all- myndarlegri grasbrekku niður að götunni. Hér geta komið op- inberar byggingar, á allra bezta stað í bænum fyrir al- menning, og á bezta stað til að þær verði bæjarprýði. Síðar meir getur við Lækjartorg og Lækjargötu orðið röð af bygg- ingum, sem þjóðin vandar meira til en nokkurra annara húsa. Til að átta sig betur á þessum miklu möguleikum, vil ég nefna hússtæðin. Fyrst er menntaskólalóðin. Þá hin nýja lóð, sem er meira en nógu rúm fyrir tvær stórbyggingar. Þá kemur stjómarráðstúnið við Lækjartorg, sem er ef til vill alla bezta hússtæðið í bænum. Og loks mætti koma ein stór- bygging á Arnarhólstúni með því að færa Ingólfsmyndina neðar, og nær Lækjartorgi. Menn munu nú spyrja hvaða þarfir ríkið hafi í þessum efn- um, sem úr þarf að bæta á næsta mannsaldri. Ég kem fyrst að Alþingi. Það vantar hús, því þó að hin nú- verandi bygging sé að mörgu leyti myndarleg og allra þakka verð, þá eru kröfur til slíkra bygginga mjög breyttar frá því, sem var þá. Alþingishúsið getur einkar vel bætt úr ann- arri þörf, að vera dómhöll fyrir landið. Þar gæti verið héraðsdómstóll Reykjavíkur, ef hann kemur síðar og svo hæsti- réttur eða íimmtardómur. Nú er lokadómstóll landsins í mjög ( óviðunandi húsakynnum í : fangahúsinu, og verður úr því að bæta, þegar þjóðin hefir efni á. Núverandi þinghús er vel fallið til að bæta úr þessari þörf og vera dómshús lands- ins. En hvar á Alþingi að vera? Ef til vill þar sem nú er stjórn- arráðshúsið. En eins og allir vita er stjórnarráðshúsið með öllu óviðunandi og sýnist eðli- legt að það yrði byggt á hinni miklu lóð, sem Tr. Þ. lét kaupa. Ef slík bygging væri vel undir- búin mætti byggja hana á nokkuð löngum tíma, þannig að nokkur hluti hússins væi'i íullgerður, og síðan bætt við eftir því sem þjóðin stækkar og þarfirnar vaxa. En eins og að líkindum lætur yrði á þeim grunni að rísa geisistór bygg- ing, sem setti svip á allan mið- bæinn. Ef hallast yrði að þessu ráði myndi fyrst byrjað á stjómarráðsbyggingu, og yrði stjórnarráðið flutt þangað, og þar með byggt yfir Alþingi, þar sem nú er stjómarráðshús, og dómstólamir um leið fluttir að Austurvelli, Enn vantar landið í framtíð- inni bústað fyrir sinn æðsta mann, hvort sem hann heitir forsætisráðherra eða forseti. Um tvo staði er að velja fyrir slíka byggingu. Á Arnarhóls- túni eða menntaskólalóðinni, því að sjálfsögðu verður skól- inn áður langt um líður fluttur á annan stað með meira land- rými. Frh. J. J.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.