Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 24.06.1936, Qupperneq 2

Nýja dagblaðið - 24.06.1936, Qupperneq 2
2 N t J A BAGBLAÐIB Smjör og Osfar trá Mjólknrsamlaginu á Akuieyri alltaf fyrirliggjandi í heildsölu hjá Slffis Kristjánssoi frá Eyvík á Tjörnesi. Vinakveðja. Samband ísl. samvinnufélaga Sími 1080. í heíldsölu Frosið kjöt af vænu rosknu íé Kjötið er ágætt og mjög ódýrt samanborið við aðrar matvörur Við krjúpum í lotning á kveðju stund svo klökk, því að margs er að sakna. Nú hugljufar minningar bregða blund svo brosandi hlýjar þær vakna. Þær vefja sig mildar um athöfn og orð sem umliðnu dagarnir geyma. Það lýsir þeim af jafnt í sælu og sorg hjá sumrinu eiga þær heima. Samband isl. samvinnufélaga Símí 1080. Tilkyiiniiig' Þeir eigendur línuveiöagufuskipa, sem ætla sér að ■ækja um lán úr Skuldaskilasjóði vélbátaeigenda. samkv. bráðabirgðalögum um breyting á lögum nr. 99. 3. mai 1935, um Skuldaskilasjóð vélbátaeigenda útgefnum í dag, skulu senda umsóknir sínar til Skuldaskilasjóðs í Reykjavik svo tímanlega að umsóknir séu komnar á skrifstofu sjóðsins fyrir 1. ágúst 1936. Umsóknir er síðar koma fram verða eigi teknar til greina. Allar upplýsingar um skjöl þau er lánbeiðnum skulu fylgja, fást á skrifstofu sjóðsins í Reykjavík. Reykjavík, 23. júní 1986 Stjórn Skuldaskílasjóðs vélbátaeígenda Jón Baldvinsson — formaður — Með drenglyndi og hógværð þú lýstir á leið til lífsins, unz kraftarnir þrutu. Að vinanna hugum þér gata varð greið, þeir gleyma því aldrei, sem nutu. Til síðustu stundar þín samfylgd var góð með sól yfir veginum bjarta, en fegursti bjarminn, sem lýsti þér lengst, var ljómi frá göfugu hjarta. Þín æfisól hafin í hádegisstað er horfin með flughraða sýnum. Nú forlögin snögglega brutu við blað í bjartasta lífskafla þínum. — Við kveðjum þig hljóð og við minnuhst svo margs er máttur hins hverfula hrynur. En minning þín lifir, hún getur ei gleymst. — Guð blessi þig hugljúfi vinur. — Valdimar Hólm Hallstað. Happdrætti Háskóla Islands Endurnýjun til 5. il. heist í dag. 300 vínningar — 63400 krónur. Stærsti vinningur 15000 krónur. í 5.—10. il. eru 4000 vinningar. samtals 861 púsund krónur. Vinningar eru greiddir í skrifstofu Happdrættisins í Vonarstræti 4 kl. 2—3 alladaganema laugard. Vinnings- miðar séu áritaðir af umboðsmönnum. Arður til hluthafa A aðalfundi félagsins þ, 20. þ. m, var samþykkt að greiða 4°/0 (fjóra af hundraði) arð fyrir 1935 til hlut- hafa, Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík, og á afgreiðslum félagsins úti um land. HÁ, EimskípaSélag íslands. X£j ö t tr e z* z 1 a. n £ ir Seljum hreinsaðar kindagarnir. Oarnastöðin, Xteyklavik Sími 4241. Allsherjarmót um 25 ár (Niðurlag). Ég hefi nú lýst leikmóti U. M. F. í. 1911 í fáum dráttum og getið úrslita í íþróttum á því. Geta menn þar séð hvað okkur hefir farið fram í þess- um íþróttum í 25 s. 1. ár. Ann- að leikmót U. F. M. í. var svo haldið 1914. Á því móti náðist betri árangur í sumum grein- um, en það mót var fámenn- ara og þar var það aðallega c-inn maður Guðm. Kr. Guð- raundsson, sem skaraði fram úr; hann vann t. d. sjö 1. verð- laun á því móti. Árið 1914 kom hin mikla styrjöld, sem lamaði svo starfsemi ungmennafélagnna, að það má segja að þau hafi ekki náð sér síðan og aðrir menn, að sumu leyti með ólík sjónarmið hafa tekið við for- ustunni í íþróttamálum þjóðar- innar. Ef við gefum okkur tíma til, að líta nú yfir íþróttastarfsemi síðustu 25 ára og ef við um leið reynum að gera okkur grein fyrir því, sem framund- an er, þá fer varla hjá því, að flestir hljóta að sjá það mjög ljóst, að einmitt nú stöndum við á greinilegum tímamótum. íþróttastarfsemin í síðustu 25 ár hefir verið sjálfboða- 'inna tiltölulega lítils hluta þjóðarinnar, sem hinn stærri hlutinn, hefir litið til með mis- munandi velvilja og skilningi. Barátta íþróttamanna hefir oft verið hörð, þó hún hafi ekki verið hávær, og íþróttirn- ar hafa oft búið við óeðlilega þi'öngan kost, jafnvel íþrótta- mennina sjálfa hefir stundum skort skilning á hlutverki sínu og þó hefir, ef til vill, mest skort á að sá íornarvilji hafi orðið vakinn með þjóðinni, sem einn gat gefið sigur í slíkri baráttu, sem þeirri er hér hef- ir verið háð; í slíkri baráttu má enginn líta um of á sitt eigið ég, heldur málefnið, sem hann hefir tekið að sér að berjast fyrir. Hinni hreinskilnu gagn- rýni er sjaldan beitt við íþróttamenn. í ræðu og riti er þeim oft hælt fyrir það, sem er lítils um vert, en djarf- mannleg áform þeirra eru hins- vegar oft kyrkt í fæðingu, eða þöguð í hel. Þetta hefir mjög dregið úr framförum í íþrótt- um og að við nú stundum langt að baki nágrannaþjóð- anna í flestum greinum, er ef til vill að nokkru leyti fyrir þetta. Það má segja, að þrátt fyrir þetta hafi íþróttahreyfingin unnið þjóðinni mikið gagn. Margir einstaklingar eiga íþróttunum miltið að þakka, þeir hafa orðið hraustari og nýtari menn fyrir það, að hafa iðkað íþróttir, og um saman- burð við aðrar þjóðir hefir ekki verið að ræða. En nú er þetta að breytast. Nú eru ís- lenzkir íþróttamenn farnir að keppa við erlendar þjóðir, og í sumar er áformað að senda menn, til þess að keppa á 01- ympíuleikunum í Þýzkalandi. Að þessu leyti stöndum við því nú á merkilegum tímamótum. Hingað til hefir keppnin verið innbyrðis milli einstaklinga og félaga, en þegar keppnin er komin á alheimsvettvang, þá er það þjóðin sjálf, sem keppir. Þetta verða íþróttamenn og þjóðin öll að skilja til hlýtar. Ilér eftir verða íslenzkir íþróttamenn að mæla sig á al- heimsmælikvarða. Á Olympíu- leikunum koma þeir fram fyrir þjóðarinnar hönd, þar bera þeir vitni um íslenzka líkamsmenn- ingu. Forráðamenn íslenzkra í- þróttamála leggja þennan mæli- kvarða fram. Þeir bera ábyrgð gagnvart þjóðinni á því hvern- ig sá mælikvarði reynist. Þeim hefir verið trúað fyrir þessum málum. Ég þykist þess fullviss, að þessir menn finni til þeirr- ar ábyrgðar, sem á þeim hvílir, og að þeir hafi gert allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess að ís- lenzka þjóðin fái sæmd af þessari för. En hvernig sem á þetta er litið, og hvernig sem fer um þessa för, þá er það víst, að þau tímamót, sem nú eru mörkuð, í íþróttasögu þjóðar- innar, eru athyglisverð, fyrir íþróttamennina sjálfa og fyrir ráðandi menn þjóðarinnar. Það fer varla hjá því, að með þessari breytingu á íþróttamálum, sem hér hefir verið minnst á, hljóti að koma breytt viðhorf til íþróttamál- anna, frá bæjar og sveitafélög- um, og frá þingi og stjórn. Fjárframlög verða að aukast, og um leið verður að ákveða það, hvernig þessu fé geti orð- ið bezt varið til eflingar ís- lenzku íþróttalífi. Og með til- liti til þess að íslenzkir íþrótta- emnn fari að keppa á alheims- leikmótum, fyrir hönd hinnar íslenzku þjóðar, þá verður ekki hjá því komizt, að þing og stjórn ráði því meira hér eftir er. hingað til, hvernig því fé er varið, sem lagt er fram af hálfu þess opinbera í þessu skyni. Það verður að koma nýrri skipun á íþróttamálin nú þeg- ar, og má þó vel vera að það sé helzt um seinan. Síðustu 25 árin hefir okkur farið lítið fram, við stöndum alstaðar langt að baki nágrannaþjóðun- um. Er þetta af því, að við get- um ekki neinstaðar komizt til jafns við aðrar þjóðir, eða er það af því, að illa er unnið og af of litlu viti og framsýni. Úr þessu verður að skera, og það verður ekki gert nema með því að taka upp nýjar starfsað- ferðir, það er það sem nú ligg- ur fyrir. Þegar Þórhallur Bjarnarson biskup setti hið fyrsta leikmót fyrir allt land, fyrir 25 árum, þá var hann nýkominn frá þvi að vera við stofnun Háskóla íslands. Hann sagðist sjá í anda annan háskóla rísa, þar sem væri æskulýðshreyfing sú, er gekkst' fyrir þessu móti. Þessi háskóli hefir nú staðið og starfað 1 25 ár, ein grein þess skóla er líkamsmenningin. Hvernig hefir þessi grein ver- ið rækt? Og hver ráð eru til þess, að hún verði betur rækt, um næsta aldarfjórðung? Magnús Stefánsson.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.