Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Page 2

Nýja dagblaðið - 28.06.1936, Page 2
4 N Y J A DAGBLAÐIÐ Reykjavík - Þrastalundur Laugarvatn IFerðír alla daga kl. 10 og laugardaga kl. 10 og kl. 6 » Brúarloss « BíSreídastöð Islands Sími 1540 (3 línur) í. s. í S. R. R. Sundmeistaramót I. S. I. fer á Þriðjudagskvöld 30. júní til Vestfjarða og Breiða- fjarðar.. Aukahöfn: Hesteyri. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi sama dag. »Goðaioss« rei'ður á Álafossi á morgun. — Keppt verður í 100 m. frjáls aðferð, karlar. 400 m. bringusund karla. 100 m, frjáls aðferð, konur. 4x50 m. boðsund. — 5 sveitir. Að sundinu loknu fer fram sjónleikurinn Fjármála- ræðan. Leikendur Punktur og Komma (P & K). Afar skemmtilegt. Alveg nýtt. — Dans í stóra tjaldinu. — Allír á Álafoss! S. R. R. Grasið grær — bráðum líður að slæiii — Notíð eíngöngu1 stálljáina frá B RUSLETTO - Eylandsljái Handslegnir. — Hertir í viðarkolum. Bíta bezt. — Endast lengst. fer á miðvikudagskvöld 1. júlí um Vestmannaeyjar til Hull og Hamborgar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi sama, K a u p i ö Gula-bandið er bezta og ódýrasta smjörlíkið I heildsölu hjá Samband isl. samvínnufélaga Sixni 1080 HúHniæður, gleymið ekki að heilsufræðingar telja SKYR með hollustu fæðu- tegundum. að flestum ber saman um að ljúffengari og betri mat en SKYR fái þeir varla. að SKYR er íslenzk framleiðsla í þess orðs beztu merkingu, „Kampóla11 heitir raksápan, sem þeir vandlátu nota. Ef þér eruð skeggsár og viljið nota góða raksápu þá reyniö ,,K-a-m-p-ó-l-a“ Sverasta og erfiðasta skeggrót beygir sig í auðmýkt fyrir „Kampóla“. Sápuverksmiðjan „Sjðfn“ iramleiðir »Kampóla« Allt með íslenskum skipum! W Sögueyjan Dagurínn hefir verið bjartur og kyrr. , Þung hitamolla og' mjúkir | kveldskuggar vefjast um ’ Stokkhólmsbæ, en sund og vík- ur biika þýðum vestanbjarma og gulhvítu skini götuljósanna, 1 er renna saman og verpa J draummjúkum blæ um staðinn j allan. Fyrir fáum dögum hefi ég ’ komið til borgarinnar lengst 1 norðan úr landi, þar sem júní- 1 næturnar eru álíka bjartar og i á íslandi. Og svo merkileg var tilviljunin, að í Stokkhólmslest- inni þann dag rakst eg bókstaf- lega á þann eina góðkunningja, sem ég átti í þessum stóra bæ. Fyrir nokkrum árum, er ég kom til borgarinnar fyrsta i sinn, hafði hann varið til þess | miklum hluta dags að sýna mér j bæinn og umhverfið — og rifja | upp íslenzkuna frá dvöl sinni hér heima. Ilann vai' nú líka að koma i Eystrasalti t Eftír HaligTÍm Jónasson i r.orðan úr landi, aðeins miklu Jengra að norðan en ég. Ú>' íyrirlestraferð um Lappland. Og ,hann kunni ótal sögur af háttum og lífi fólksins, sem býr þar og lifir enn við margra alda siðvenjur. Ilann hafði séð miðaldra Lappa gera svo að illkynjuðu handarmeini, er ekki fékkst bót á ráðin, að hann hjó af sjúka íingurinn með skógar- öxinni sinni — og batt fyrir stúfinn. En þessi frásögn átti annars ekki að fjalla um Lappland, heldur annan hluta Svíþjóðar, sérstæðan að vísu og einkenni- lcgan, með þúsund ára gömlum ummerkjum mitt í menningu síðustu tíma. í nótt ætla ég yfir til Got- landseyjar. Löng lest af fólki bíður á aðalbrautarstöðinni og eftir því, að liliðin út að vagnpöll- unum séu opnuð. Málmeyjarlestin er að fara, önnur er að renna inn á stöð- ina norðan úr landi og sú, sem ég sit um fer eftir 10 mín. Eftir tveggja stunda ferð er komið til Nynáshamn, smábæj- ar út við skerjagarðinn, suð- austur af Stokkhólmi. Þar liggur allstórt, hvítt eimskip, sem m. a. heldur uppi samgöngum milli lands og eyj- ar. Og það fyllist á svipstundu, hvert skot þess og afkimi ofan- þilja, í farrúmum og lest. Farþegar eru flestir ungt fólk. Margir skólaflokkar, en annars menn af öllu tæi. Undir miðnætti er lagt úr höfn. Mjúkt fallandi rökkrið hvelfist yfir Austursjóinn og skógi vaxnar strandir Svíþjóð- ar. Blikandi geislastafir vit- anna teygja ljósarma sína langt út um skerjaklasann og drukkna loks í húmhafi nætur- innar. Hér sé ég í fyrsta sinn lest- arlíí í erlendu hafskipi. Undir þiljum, miðskipa, er ailt lestarrúm fyriríram pant- að. Þar búast fyrir ýmsir flokkar skólafólks með teppi sín, hryggpoka, hvílusekki og annan útbúnað. Þeir eru allir á námsferð til Sögueyjarinnar í Eystrasalti, en svo nefna Svíar Gotland alla jafna. Á framþiljum skipsins verð- ur ekki þverfótað fyrir fólki. Það er bókstaflega alstaðar, fremst í stafni, kringum akk- erisvinduna, meðfram borð- stokkunum, standandi, sitjandi og jafnvel liggjandi á berum þiljunum. Á afturþiljum er þó stórum þrengra. Þar er tjaldað segl- dúk milli efra og neðra þilfars til skjóls, og þar er farþega- breiðan þéttust. Fólk situr eða liggur mjög þétt, á hverju er til fellst. Og á beru þilfar- inu liggur röð kvenfólks og barna með kápur einar yfir sér —- og leitast við að sofa, þrátt fyrir næturkyljuna, er alstaðar smeygir sér undir skarir tjald- dúksins. Enn aðrir sitja uppi og snæða úr malpokum sínum eða ræðast við. Og neöan úr lest- inni ymur glaumur ungling- anna, hávær og fagnandi. Ég fer að skima upp í reið- ann. Mun þar ekki líka vera þétt skipað farþegum, líkt því og á hinu mikla Indíafari, er Jón heitinn Thoroddsen lét Bjarna á Leiti lýsa svo gerla í „Manni og konu“. Það er a. m. k. víst, að ekki sér fyrir stýrishjólinu aftur á fyrir fólki. Yfir sumarmánuðina eru daglegar ferðir milli Stokk- hólms og Gotlands, og seinni part viku er ferðamanna- straumurinn stöðugur. Og fólk- ið virðist kunna þessum að- búnaði sæmilega vel. Ferðin er ódýr og hún tekur ekki nema 8 klst. milli landa. Nóttin er þrungin megnum ilmi frá skógunum og strönd- inni. Dauft skrjáfur næturgol- unnar blandast saman við hóg- látan nið hafsins. Hávaxnar furur sást óljóst eins og ein- hver skuggaleg ferlíki á hólm- um og eyjum til beggja handa. Framundan er opið, dularfullt liafið. Frh.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.