Nýja dagblaðið - 13.10.1936, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 13.10.1936, Blaðsíða 4
4 N Y J A DAGBLAÐIS HHIGamla BI6|BHB[ sýnir kl. 9: Útlaginn Stórfengleg talmynd, sem gerist á Lapplandi, og leikin af sænsku leikur- unum: Gull Mai Norin og Sten Lindgren. Börn fá ekki aðgang. IMMIM !■—* III t* IIIII lllll 'III i 'il IIII11 AnnálJ Veðurspá íyrir Reykjavík og ná- grenni: Vaxandi suðaustan átt »g rigning þegar á daginn líður. Næturlæknir er í nótt Kristín Ól- afsdóttir, Ingólfsstræti 6, sími 2101. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki og Ingólfs-Apóteki. Útvarpað í dag: kl. 10,00 Veður- fiegnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur: Sænsk lög. 19,40 Auglýsingar. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Lýðveldið við Silfurfljótið i þórhallur þorgilsson magister). 20,40 Symfóníu-tónleikar: Rúss- neskii' tónsnillingar (Glasounow, Moussorgsky og Tschaikowsky) (til kl. 22). Menntamál. Út er komið apríl— sept. hefti Menntamála, málgagns íslenzkra barnakennara. Er ritið fjölbreytt og frágangur góður. í því eru eftirfarandi greinar eftir ritstjórann, Sigurð Thorlacius, -kólastjóra: Sigurður .Tónsson, skólastjóri, Fræðslulögin nýju og Iramkvæmd þeirra, Góður gestur, Sjálfstjórn skólabama o. fl. þá er ritgerð eftir dr. phil. Matthías Jónsson: Uppeldið og þjóðin. Um stafsetningakennslu eftir Sigurð lljartar. Tillögur um námsdvalir kennara í innlendum skólum eftir Stefán Jónsson. Skriftarkennsla eftir Guðmund Gíslason. Skólinn byrjar eftir Ásgeir Ásgeirsson. Fyrsti nýskólamaður íslands, stutt grein um merkilegan mann, Pál Jóakimsson, eftir A. Sigm. Guð- mundur frá Mosdal eftir A. Sigm. Sjálfstjóm skólabama (framh.). Loks eru fréttir o. fl. Er ritið með þeim hætti, að eigi á það aðeins erindi til kennarastéttarnnar, held- ur er og vel fallið til lesturs ölI- um almenningi. U. M. F. Velvakandl heldur fund i kvöld í Kaupþingssalnum. Er þetta fyrsti fundur félagsins á bessum vetri, og verður m. a. rætt um framtíðarstarfsemina. Merktar dúfur. Merki á þremur dúfum, sem halda sig í Vestmanna- eyjum voru athuguð 8. október s. 1. og eru merkin þessi: M 931 NEHU 34, TBD 414 NURP 33 og JC 637 NURP 36. Dúfan merkt M hefir haldið sig í Eyjum síðan í júlí 1935 og önnur hinna síðan haustið 1935, cn sú þriðja bættist við i sumar. jJorgeir Frímannsson verzlunar- maður hefir gefið dúfum þessum korn daglega og em þær mjög spakar. Seint í s. 1. apríl hurfu dúfurnar, en komu aftur síðari hluta júní illa útlítandi og fiður- litlar, en nú eru þær búnar að ná sér og líta vel út. F. U. F. F. U. F. Félag ungra framsóknarmanna heldur fund í húsnæði Samvinnu- skólans stundvislega' kl. 8V2 ann- að kvöld. — Umræðuefni: Vetrar- starfsemi félagsins o. fL ÁriSandi að íélagar mæti. Kappreiðar utan við Kaupmannahöfn Úti við Dyrehavsbakken í Kaupmannahöfn, er stór og víð áttumikill skeiðvöllur. Þar fara og oft fram kappreiðar. — A myndinni sézt einkennisbúinn flokkur reiðmanna og kvenna, er þeysir fram á gæðingumsínum. Nýja Bió Vesalingarnir Stórfengleg amerísk kvik- mynd frá Uneted Artists félaginu, samkvæmt hinni heimsfrægu skáldsögu Les Miserables eftir franska skáldjöfur- inn Vietor Hugo. — Aðal- hlutverkin leika: Fredric March, Charles Laughton, ltochelle Hudson, John Beal o. fl. Sýnd í kvöld kl. 7 og 9. Börn fá ekki aðgang. Kaup og sala Maður lótbrolnar í gær var komið með fótbrot- inn mann, Halldór Oddsson, Laugaveg 41 A, á Landsspítal- ann. Gat blaðið ekki fengið fregn- ir af því, hvemig slys þetta hefir orðið, en talið sennilegast, að hann hafi hlotið það við vinnu. Halldór er verkamaður um fimmtugt. Jarðarför móður okkar og tengdamóður Jónu Jónsdóttur fer fram á morgun, miðvikudaginn 14. p. m. og hefst með húskveðju á heimtlí hennar Njálsgötu 39 b., kl. 1,30 e. h. Jarðað verður frá fríkirkjunni. Kransar afbeðnir. Börn og tengdabörn. Fasteignastofan Hafnarstr. 15. Annast kaup og sölu fast- eigna í Reykjavík og úti um land. Viðtalstími kl. 11—12 og 5—7 og á öðrum tíma eftir samkomulagi. Sími 3327. Jónas. Úrval af hinum viðurkenndu góðu fataefnum frá Gefjun, fyrirliggjandi. Tek einnig efni til saumaskapar. Fyrsta flokks saumastofa. Klæðaverzl. Guðm. B. Vikar, Laugaveg 17. Sími 3245. Míkill útflutningur. Bniarfoss fór béðan s. I. laugardagskvöld, full- fermdur af frosnu dilkakjöti fyr- ir Samband ísl. samvinnufélaga, samtals 45800 skrokkar, allt til London. — Dettifoss fór i fyrra- kvöld, fullfermdur íslenzkum af- urðum til Bretlands og þýzka- íánds. Farmurinn var um 1200 smá- lestir; þar af 175 smálestir síldar cg karfajnjöl, 410 smál. saltaðar í.ærur, 2450 tn. síld, 294 stórir pok- ar ull, 22 smál. ostur; ennfremur; ísfiskur, harðfiskur o. fl. Alþýðuskólinn tekur lil starfa urii miðjan þennan mánuð, sam- kvæmt auglýsingu i hlaðinu. Er þessi nýi skóii þörf stofnun og ætti að vera vel sóttur. Fræðslu- hringii' þeir, sem þar er ætlað að starfa, gefa nemendum algerí frjálst val um námsefni. Verður þar kennd m. a. ýms félagsfræði, samvinnusaga og fleiri greinar, sem hver uppvaxandi unglingur þari' að vita nokkur deili á. Til Strandarkirkju 15 kr. frá 1. G. Pétur Sigurðsson, sonur Sigurð- ar Péturssonar skipstjóra á Gull- fossi, hefir nýlega lokið burtfarar- prófi af danska sjóliðsforingjaskól- anum með ágætiseinkunn. — FÚ. Háskólafyrirlestrar fyrir almenn- ing. þýzki sendikennarinn, dr. Walter Iwan, flytur næsta fyrir- lestur sinn í lcvöld kl. 8 í háskól- anum. Efni: „Das deutsihe Voik um seine Wirtschaft". Skipafréttir. Gullfoss var í gær á Reykjarfirði. Goðafoss er í Reykjavík. Brúarfoss fór frá Reið- arfirði í gær áleiðis til London. Dettifoss var í Vestmannaeyjum í gær. Lagarfoss var á Reykjarfirði í gær. Selfoss fór frá Siglufirði i gærkvöldi áleiðis til Antwerpen og Rotterdam. Vetrarstarfsemf K. R. hefst í dag og verður hennar nánar getiö i blaðinu á morgun. Alþýðuskólinn tekur ttl starfa 15. þ. m. í húsnæði Stýrimannaskólans. Kennslugreinar: íslenzka, sænska, danska, enska, þýzka, reikningur, bókfærsla. Auk þess starfa við skólann fræðsluhringar í ýms- um greinum. Tekið móti umsóknum í Stýrimannaskólanum kl. 8—9 næstu kvöld. Höfnin. Hekla kom hingað í fyrrakvöld frá Svíþjóð með timb- urfarm ti) H.f. Völundar. — Kola- skipið Greathope fór í gærkvöldi á loið til útianda. Veiðiskip. Togararnir Max Pem- berton og Hannes ráðherra komu frá þýzkalamii í gærmorgun. — Línuveiðarinn Sigríður kom frá þýzkalandi í fyrrinótt. — Andri fói' ú ísfiskveiðar i fyrrinótt. ; Nokkrir bátar liéðan fóru í gær á síldveiðar. 65 ára afmæll átti i gær Sigríður 1 þorláksdóttir í Álfsnesi á Kjalar- | nesi. Vegna mikilla ógæfta öfluðu bát- ai frá verstöðvum við Faxaflóa nær enga síld í síðastliðinni viku. Fóru nokkrir bátar í eina veiðiför og öfluðu 2—3 hundruð tunnur. — í gær munu allmargir bátar hafa farið á síldveiðar. Eru þeir vænt- arlegir af veiðum síðdegis í dag. íþróttablaðið. 9,—10. tölublað er nýkomið út. Er það að mestu helgað Olympsleikunum í Berlín og er 24 blaðsíður að stærð. Hefst ritið á ítarlegri grein um leikana eftir Konráð Gíslason og fylgja margar myndir. þá er upphaf á grein eftir þorstein Einarsson fim- leikakennara í Vestmannaeyjum um Alþjóðamót íþróttakennara í Berlín 1936. Loks er sagt frá úrslit- um meistaramóts í. S. í. og íþrótta- fréttir. Maður slasast Framh. af 1. síðu. jón hafði fengið heilahristing og tvö eða þrjú rif og herða- blað var brotið. Sagði spítalalæknir í gær- kvöldi líðan hans eftir atvikum bærilega. Sjónarvottar segja svo frá slysinu, að hjólreiðamaðurinn hafi farið á eftir bifreið, sem fór niður Skólavörðustíg, ekið fram með henni út á hægri uiluta götunnar fyrir framan fangahúsið, og þá rekizt á bif- reiðina, sem kom neðan göt- una. HIuHeysisnefndin sein í vöfum London kl. 20,55 11./10. FÚ. I Pravda og Isvestia er í dag ritað um fund hlutleysisnefnd- arinnar í London, og farið mörgum hörðum orðum um að- gerðarleysi nefndarinnar, og sagt, að með þeirri starfsað- ferð, sem hún láti sér sæma, sé beinlínis stuðlað að því, að uppreisnarmenn fái vopn á laun, og verði því árangurinn sá, að starf nefndarinnar reyn- ist raunverulega uppreisnar- 1 mönnum í hag. D U Tilkytmíitpu Ungan mann vantar pilt eða stúlku með sér í dönskutíma. Upplýsingar gefur Hólmfríður Árnadóttir, Grundarstíg 19. Sími 3995. Fasteignasala Helga Sveins- sonar er í Aðalstræti 8. Inng. frá Bröttugötu. Sími 4180. Bifireiðarslys Framh. af 1. síðu. meiðsl og 4 ára drengur skarst á andliti. — En ungt barn Soffíu og Siggeirs, og kona frá Vík í Mýrdal voru bæði ómeidd. Eftir að Nordal læknir hafði bundið um sár fólksins, símaði hann til Helga Lárussonar, kaupfélagsstjóra og bað hann að senda bifreið liéðan til að sækja fólkið. Sendi Helgi sjúkrabifreið þegar af stað, og nokkru seinna fór Helgi Bergs, forstjóri, ásamt Gunnlaugi Einarssyni lækni í bifreið aust- ur að Sandhól. Var Soffía flutt hingað í sjúkrabifreiðinni og annaðist hjúkrunarkona hana á leiðinni, en hitt fólkið sem slasaðist flutti Gunnlaugur læknir í sinni bifreið. Var farið með fólkið á Landa- kotsspítala, skipt um sáraum- búðir og sárin athuguð nánar. Sár Bergs og drengsins voru eigi talin svo mikil, að þörf væri á sjúkrahúsvist, en Sig- geir, Soffía og Sigríður liggja nú í sárum á Landakotsspítala. Leið þeim eftir atvikum sæmi- lega í gærkvöldi.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.