Nýja dagblaðið - 08.04.1937, Page 4
REYKJAVlK, 8. APRÍL 1937.
NYIA DAGBLAÐIÐ
5. ÁRGANGUR — 79. BLAÐ
|8aml« BIA|
Morð
í háskólanum
Ófiðjafnanlega spenn-
andi leynilögreglu-
mynd, sem gerist í
amerískum stúdentabæ
Aðalhlutverkin leika:
Arline Judge,
Kent Taylor
og Wendy Barríe.
_______«
UIINELU BTUlfÚlÍ
Maður og kona
Sýning- í kvöld
kl. S
Aðg.m. seldir eftir kl. 1 í dag.
Sími 3191
Lækkað verd!
ENGELS
tapaði báðnm
skákunum
í fyrrakvöld var haldin síðasta
skáksýningin, sem L. Engels tók
■l’átt í áður ,en hann fór utan.
Tefldar voru 2 samráðaskákir og
\oru 3 menn um hvora gegn
Erigels.
Á öðru borðinu tefldu þeir As-
inundur Ásgeirsson, Árni Snævar
og ■ Kristinn .Túlíusson, cn á hinu
Egge.rt Gilfe.r,. Baldur Möller og
Stéingrímur Guðmundsson. Lcikar
loru þannig- að Engels tapaði luíð-
uni skákunum, enda or þetta ein-
hvcr sú mesta raun, sem hægt er
að leggja fyrir nokkurn skák-
mann'.'
AonAll
Veðurútlit í Reykjavík og ná-
grenni: Allhvass á norðaustan.
Úrkomulaúst að mestu.
Næturlæknir í nótt Páll Sigurðs-
son, Hávallagötu 15. Sími 4959.
NæturvörSur er í I.yfjabúðinni
Iðunn og Reykjavíkur apóteki.
Útvarpað í dag: kl. 10.00 Veður-
fregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00
Veðurfregnir. 19,20 þingfréttir.
19.30 Auglýsingar. 19.55 Fréttir.
20.00 Útvarp frá Alþingi.
Afli í net er nú að glæðast aftur.
Var dágóður afli á marga báta í
tyrradag. Sjómenn telja fisk vera
að ganga á Grunnið. — FÚ.
Skipafréttir. Esja er í Reykja-
vík. Lyra fer kl. 7 í kvöld. ísland
og Drottningin eru í Kaupmanna-
höfn. — Gullfoss er á leið til Vest-
mannaeyja frá Leith. Goðafoss var
væntanlegur frá útlöndum i nótt.
Brúarfoss kom að vestan og norð-
an í gær. Dettifoss er á leið til
Hutl frá Vestm.eyjum. Lagarfoss
ei á leið til Leith frá Kaupmanna-
höfn. Selfoss kom frá útlöndum í
íyrrakvöld.
Höfnin. í gær kom kolaskipið
Ingerto, Lyra fór til Keflavíkur og
kom aftur í gærkvöldi. Gyllir kom
af veiðum með 120 föt lifrar.
Gestir í bænum. Magnús Jónsson
bóndi á Sveinsstöðum, Sverrir
Gíslason bóndi í Hvammi og Jón
Konráðsson bóndi í Bæ.
Rangæingafélagið heldui fund í
Oddfellow-húsinu annað kvöld kl.
Sy2. Til skemmtunar verður:
Skuggamyndir frá Spáni, einsöng-
ur og danz til kl. 1.
Háskólaíyrirlestrar á ensku. Mr.
G. Turville-Petre flytur í kvöld kl.
| 8 fyrirlestur i háskólanum um
! ,.the King’s English to-day“.
Stjórn íþróttasambands íslands
hefir falið íþróttafélagi Reykjavík-
ur að sjá um einmenniskeppni i
fimleikum fyrir árið 1937. Keppn-
in mim fara fram í byrjun maí os
vorður þá keppt um bikar þann
er í. S. í. gaf árið 1927 til ein-
menniskeppni i fimleikum. Bikar-
iim þarf að vinnn þrisvar í röð
eða fmm sin'num alls. Jón Jó-
hannesson í. R. er nú handhafi
hikarsins og hefir liann unnið
liann í 2 síðnslu skiptin. Jíiin
Slórkosllegfur
eldsvoði
20 000 manns
heimilisvilltír
LONDON:
I gær varð ógurlegur eldsvoði í
Manila á Filippseyjum og eru 20
þúsund manna hoimilisvilltir af
völdum eldsins, en tjónið er metið
á 200.000 dollara. — FÚ.
Jón leggja allt kapp á að vinna
liann nú og þar með ti) eignar.
þátttökubeiðni sendist til stjórnar
Í.R. fyrir 25. þ. m. — Öllum fé-
lögum innan í. S. í. er heimil
þátttaka.
Itl.-A.-kvartetUnn syngur í Gamla
Bíó kl. 7,15 annað kvöld.
Tímarit iðnaðarmanna, 1. hefti
10. árgangs. Efni ritsins er: Iðn-
aðarmannafélagið 70 ára, Drápa til
Iðnaðarmannaíélagsins í Reykja-
vík, Minni Iðnaðarmannafélags-
ins eftir Einar Erlendsson, Matthí-
as Matthíasson, eftir Ársæl Árna-
son, lielgi Guðmundsson, eftir Á.
Á., Frá Iðnaðarmannafélagi Akra-
ness, eftir Jóhann B. Guðnason,
Frá störfum sambandsstjórnar,
Skinnaverksmiðjan Iðunn á Akur-
evri og fleira.
Ægir, 3. blað 30. árg., ei nýkom-
inn út. Efni ritsins er: Um
þorskalýsi, eftir dr. þórð þor-
hjömsson, Aðalfundur Fiskifélags
íslands, Rækjuverksmiðjan á Isa-
firði, Áhrif flyðruveiðanna á
flyðrustofninn, Eiga íslenzkir sjó-
menn að falla óbættir? Hvert erá-
!ii skipulagsnefndar atvinnuveg-
anna í sjávarútvegsmálum? —
Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda,
Fiskafli á öllu landinu, Útflutn-
ingur sjávarafurða, Niðursoðinn
fiskur, Nóvemberfundurinn í
London, Fiskveiðar Kanadamanna
og 1'leira.
Veðrið kl. 5 í gær: Anstan- og
r.orðaustan átt nm alit land.
Snjókoma á Vestfjörðuin með 2—
í stign l'rosli, en þoka og dálítil
rigniiig á Norðurlandi og Austur-
!: ndi. Sunnanlands sumstaðar 5
(i : 1 igii liiti.
Síldarsala
Norðmanna
EINKASKEYTI:
Norðmenn eru í þann veginn að
selja mestan hluta af Íslandssíld
sinni frá því í sumar, til Svíþjóð-
ar, fyrir 10 kr. tUnnuna. — FÚ.
Ásíglíngf
og skipslrönd
LONDON:
Tvö skip rákust á í niða-þoku í
gærmorgun í sundinu milli Ir-
iands og Bretlands. Annað þeirra,
I.airdmore, var á leiðinm frá Dub-
lin til Glasgow, en hitt skipið hét
Taranaki og var frá Nýja Sjá-
landi. Lairdsmore sökk á 14 mín-
útum og fórst skipstjórinn og I
kyndari, en 33 mönnum af skips- I
höfninni, ásamt farþegum, var
bjargað yfir í Taranaki. í skip-
inu, sem sökk, voru m a. 300
uautgripir. Slys þetta vildi til að-
eins 5 mílur undan landi.
Annað skip, einnig frá Nýja
Sjálandi, strandaði í gænnprgun í
þokunni við Ross of Mull, en er
ekki talið í hættu.
þá strandaði ítalskt skip
snemma í morgun við Isle of
Wight við sunnanvert England. !
Skipshöfnin fór í bátana, og mættu .
björgunarbátar þeim og fylgdu
ti! iands. — FÚ.
Nfja Bié
Dóllir
íippreásnar-
mannsíns
(The Littlest Rebel)
Hrífandi araerlsk kvik-
mynd frá Foxfólaginu
undrabarnið
Shirley Temple
ásamt John Boles og
Karen Morley.
Sýnd í kvöld kl. 6 og 9.
Barnasýning kl. 6
Aðgöngumiðar frá kl. 4.
Blik, 1. tbl., gefið út, af mál-
fundafélagi gagnfræðaskólans í
Vestmannaeyjum, hefir blaðinu
borizt. Efni þess eru ýmsar rit-
gerðii', kvæði og þýdd saga.
Bæjarsijórn Akureyrar sam-
I þykkti á fundi sínum 6. þ. m.
i virkjun Laxár og beindi málinu
• 1 i 1 Alþingis og rikisstjórnar. Gert
I er rnð fyrir að afla þurfi lánsfjár
I i i nemi allt að 1500.000 kr. - FÚ.
| Fyrsta spunavélin, sem fluzt hef-
ir til Vestm.evja er nú tekin til
i siarfa. Vélina smíðaði Jón Gests-
1 snn, Villingaholti í Árnessýslu og
er hún sú 58., sem hann hefir
1 smíðað. Vélina á Haraldur Sig-
niðsson og fleiri. Vélin spinmir
10 kg. af lopa á dag. — FÚ.
Ibkb 9g sala
Lítill sumarbústaður, ódýr, með
cldavél, til sölu og settur Upp
livar sem óskað er, í nágrenni
hæjarins: — Afgr. ldaðsins vísar á.
Nýkomið úrval af vorblússum,
hvítum og mislitum, verð frá 8
til 20 kr. Einnig nokkur stykki af
fallegum vorkjólum. Crepe de cine
hálsklútar á 3.75 stk. Sokkabanda-
helti á fermingartelpu og efni í
fermingarkjóla nýkomið. Sauma-
stofan U ppsölum Aðalstræti 18.
Sími 2744.
Erlendur
logarafloli
á leið tíl íslands
EINKASKEYTI:
Óvenjumikið hefir kveðið að
v.ciðum útlendra togara undan
ströndum Norður-Noregs upp á
siðkastið og hafa þeir aflað mjög
vel, (únkanlega þýzkir togarar.
þossi togárafloti mun nú leggja af
stað til íslands og stunda þar
fiskiveiðar. — FÚ.
UPPREISNARMENN 55
ofan í leðurtösku, lokaði fyrir íitvarpið, kæfði eld-
inn á þann einfalda hátt að kasta yfir hann fullri
vatnsfötu — hann hafði litla trú á brunatrygging-
'á
arfélögum; þau skyldu aldrei fitna á iðgjöldunum
hans — og skröngíaðist af stað út í myrkrið.
Stundarkorn leið og svo heyrðus't stunurnar í
„Lizzie“. Jerry var kominn af stað.
* % * *
— Ég heiti Hartsgill — Gerald Hartsgill, sagði
komumaður. Ég er vinur James Stevensons.
Jimmy-------.
Fallega stúlkan þreif í handlegg hans.
— Eigið þér við Jimmy Stevenson minn? spurðí
hún áköf. Hartsgill tók eftir dökku baugunum undir
augum hennar. Þegar hann leit á hana roðnaði hún.
— Ef þér eruð vinur þess Stevenson, sem venju-
lega bjó í Half Moon Street 299B, þá býð ég yður
velkominn eins og engil í dularklæðum!
— Ég er að vissu leyti dulbúinn, sagði Jerry
Hartsgill, en þegar hann sá, að stúlkan var alveg á
nálum, þá leysti hann frá skjóðunni. Ég á heima
i Northumberland, í hæðunum skammt frá Alnwick.
Fyrir nokkrum dögum kom bezti vinur minn — sá
bezti, sem nokkur getur átt — kom til að dvelja hjá
mér. Það var Jimmy Stevenson — Stevenson yðai,
eins og þér kölluðuð hann, þótt ég vilji halda, að
ég eigi líka dálítið í honum. Ég og þessi James
Stevenson vorum saman í skóla í Repington. Við
vorum í sama rugby-flokknum. Hann þagnaði snögg-
vast áður en líann hélt áfram. Jimmy var mjög dul-
arfullur. Ég býst við, að þér vitið, að bann var í
leyniþjónustunni? spurði hann.
— Auðvi’tað! Það er ég líka. Ó, haldið þér áfram!
IJartsgill reyndi að láta ekki bera á undrun sinni
og hélt á fram.
— Jimmy var mjög dularfullur, endurtók hann.
Hann vai' auðsjáanlega norðurfrá í einhverjum er-
indum — víst heldur viðbjóðslegum erindum. Fyrst
spurði hann mig, hvort ég þekkti nokkurn Rússa þai'
í grenndinni. Það vildi nú svo til, að ég vissi af ein-
um; ég hafði heyrt að einn byggi á stað, sem heitir
Skelt Castle.
— Björninn! kallaði hún æst. Fór Jimmy þangað?
— Já, svaraði Hartsgill seinlega. Hann fór þang-
að og hefir ekki komið aftur. I gærkveldi datt mér
í hug að fara til lögreglunnar. En þá opnaði ég af
tilviljun útvarpið. Ég heyrði skeyfcið yðar og ákvað
að fara til London. Mér virðist, að ég hafi gert hið
rétta.
— Ó, já, það er satt. Þér gerðuð það! Hún neri
saman höndunum í örvæntingu, en þá var hringt á
dyrnar.
Mary Manners lauk upp hurðinni, leit á gestinn
og kallaði upp yfir sig: Hérna er hann! Það er
Jimmy!
Jerry Hartsgill teygði sig fram. En nú hafði gest-
urinn tekið ofan hattinn.
— Ég hei'ti Van Loan, sagði hann. Phih'ps Van
Loan. Mér þykir það leitt ef ég----------.
— Ó, bíðið svolítið — aðeins augnablik.
Báðir mennirnir, sem ekkj vissu sitt rjúkandi ráð,
sáu hana hníga upp að kommóðu og gráta eins og
hjarta hennar væri að bresta. Eftir andartak, eða
svo, þerraði hún augun með vasaklút sinum, stóð
upp og brosti til komumanns.
— Það voru vonbrigðin, sagði hún. Ég er svo að
segja trúlofuð Jimmy Stevenson, sem nú er í mikilli
hæ'ttu, að ég óttast, og- ég hélt að þér væruð hann.
Vilduð þér fyrirgefa mér? Ég heiti Manners —
Mary Manners.
Maðurinn, sem var svo áberandi líkur Stevenson,
að Jerryi togaði í neðri vörina í mestu vandræðum,
hnéygði sig.
Ég kom vegna þess, að hr. Stevenson er ef til vill
i hættu, ungfrú Manners, mælti hann. En það sem
ég æ'tla að segja er mjög áríðandi------------.
— Þetta er hr. Gerald Hartsgill. Hann er bezti
vinur Stevenson, og það má algerlega treysta hon-
um.
Hinn skemmtilegi, ungi Ameríkumaður brosti
yndislega.
— Það gleður mig að kynnas't yður, hr. Hartsgill,
og ég öfunda yður af vináttu yðar við Stevensön.
Það er maður, sem vert er að þekkja! En nú skal
ég skýra ykkur frá.
Ilann sagði frá ráðagerð brezku leynistarfseminn-
ar og amerísku stjórnarinnar — nefnilega notfæra
sér, hvað þeir Stevenson væru líkir og láta þá taka
upp hvors annars nafn. „Ég var aldrei mjög hrifinn