Nýja dagblaðið - 11.04.1937, Side 3
N Y J A
DAGBLAÐIÐ
8
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: Blaöaútgáfan h.f.
Ritstjóri:
pórarinn pórarinsson.
Ritstjórnarskrifstofumar:
*' 'iarstr. 16. Sími 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Rafnarstr. 16. Sími 2323.
Áskrjftargjald kr. 2,00 á mán.
f lausasölu 10 aura eint.
Prentsm. Edda þ.f.
Sími 3948.
»Fórnarlund«
stórútgerðarmanna
Morgunblaðið skammar for-
ingja socialista hatramlega
fyrir það í gær, að þeir hafi
ekki lagt einn einasta eyri
sjálfir til útgerðar, þeir hafi
engu viljað „fórna“ af eigin
fjármunum til að auka atvinn-
una og geti því ekki frómt í
flokki talað.
Eiga lesendurnir bersýnilega
að skilja þessi skrif þannig, að
íiialdsmennirnir, sem nú eru
taldir eigendur flestra útgerð-
arfyrirtækjanna, hafi verið
sósíalistaforingjunum langt um
fremri og fórnað miklu af eigin
fjármunum af einskærri fórn-
arlund og umhyggju fyrir ac-
vinnumöguleikum og lífsaf-
komu verkafólksins.
Þó N. dbl. hafi enga löngun
tíl að blanda sér í deilur and-
stæðinganna til hægri og
vinstri, þykir rétt af þessu
tilefni að taka það til athugun-
ar, hvort það hafi eingöngu
verið af slíkum áhuga fyrir
velgengni verkafólksins, að
stófnuð hafa verið fyrirtæki
eins og Kveldúlfur og Alliance
og hvort eigendur þeirra fyrir-
tækja hafi vegna þvílíkrar
fómarlundar hætt sínu fé til
að auka atvinnuna.
Það þarf ekki að leiða að því
mörg rök, enda mun það hverj-
um meðalgreindum manni ljóst,
að tilgangurinn með stofnun
cg starfrækslu þessara fyrir-
tækja er fyrst og fremst sá,
að eigendumir geti náð rífleg-
um hagnaði á kostnað þeirra
mörgu manna, sem starfa við
fyrirtækin og hafa sitt um-
samda kaup, en fá enga hlut-
deild í arði þeirra, þegar vel
árar. Þá safna eigendur fyrir-
tækjanna miklum fjármunum,
sem einkum hafa farið 'til eigin
eyðslu og óhófslifnaðar, og
enda þótt illa gangi, tryggja
þeir alltaf ríflega sinn hlut af
tekjum fyrirtækisins.
Þessi fyrirtæki eru því fyrst
cg fremst s'tofnuð til þess að
vera nytháar mjólkurkýr
eyðslusamra braskara og eru
rekin með það markmið fyrir
augum.
Um það þarf heldur ekki að
fara mörgum orðum, hvort
þessir menn séu að setja eigið
fé í áhættu með þessum at-
vinnurelcstri. Þeir hafa margir
byrjað bláfátækir og megin-
hlutinn af stofnfé og s’tarfsfé
fyrirtækjanna er frá bönkun-
um. Þegar illa gengur, eru það
Áfstaða Framsóknarflokksins til
socialista
Ræða Bernh. Stefánssonar við 1. umr. frumvarpsins í eirí deild
Frainh.
Því hefir nú verið lýst yfir
af hálfu Framsóknarflokksins,
bæði af síðasta flokksþingi
hans og víðar, að hann er á
móti nýjum lántökum ríkisins
erlendis, nema um sé að ræða
lán til nýrra arðberandi fyrir-
tækja, sem sjálf geta staðið
undir lánunum. En hér er að
mínu áliti ekki um slíkt að
iæða. Hér er ekki einusinni um
nýtt fyrirtæki að ræða í eigin-
legum skilningi, ekki um kaup
a nýjum togurum til að auka
atvinnu manna og tekjur þjóð-
arinnar. Ef svo væri, horfði
málið töluvert öðru vísi við.
Nei, hér er um það eitt að
iæða, að breyta þeirri togara-
útgerð, — sem fyrir er í land-
inu, í ríkisrekstur. Til þess vill
Framsóknarflokkurinn ekki
bæta 2 miljónum króna við
ríkisskuldirnar.
Við þetta bætist svo það, að
Alþýðuflokkurinn hefir í öðr-
um frumvörpum og tillögum,
nú á þessu þingi farið frarn á
stórkostleg fjárframlög og
lánsheimildir til annara fram-
kvæmda. Yrðu allar þessar
kröfur hans samþykktar, hefir
talizt svo til, að ríkið þyrfti að
'taka um 8 miljóna króna ný
lán. Hvort Alþýðuflokkurinn
meinar þessar kröfur alvarlega,
eða hvort þær eru aðeins
„kosningabombuy“ veit ég ekki,
en ég get ekki neitað því, að
mér þykir hið síðara trúlegra.
En hvað sem um það er, þá
er hitt víst, að inn á svo gá-
lausiega fjármálabraut, sem
hér er farið fram á, gengur
Framsóknarflokkurinn aldrei,
og það hefði Alþýðuflokknum
átt að vera ljóst frá upphafi.
En setjum nú svo, að þetta
frumvarp yrði samþykkt og
ekki væri horft í það að leggja
sLofnkos'tnaðinn fram með nýj-
um lántökum, því ekki er öðru
til að dreifa.
Hvaða líkur eru þá til að
fyrirtækið beri sig? Hvaða lík-
ur eru til, að rekstur þess
gangi yfirleitt nokkuð betur
iieldur en rekstur togaraút-
gerðarinnar gengur nú? Ég sé
ekki líkurnar til þess. Alþýðu-
flokksmenn segja, að það eigi
að reka a'tvinnufyrirtækin með
alþjóðarhag fyrir augum, en
ekki til ágóða fyrir fáeina
nrenn. Þessu er Framsóknar-
flokkurinn sammála, það sem
það nær, en hann slær því samt
alveg föstu, að framleiðslan-
verði, þegar til lengdar lætur,
að bera sig fjárhagslega, —
einnig þó hún sé í höndum rík-
isins, annars falli allt í rústir.
En það eru engar minnstu
líkur til þess, að togaraútgerð
bæri sig betur í höndum ríkis-
ins, heldur en hún hefir gert
hingað til.
Það vita allir, að kröfur
manna eru aldrei eins hóflaus-
ar, eins og þegar hið opinbera
á í hlut, — og mótstöðuaflið
gegn óbilgjörnum kröfum, er
hvergi jafn lítið og hjá því op-
inbera. Það gera kjósandaveið-
ar flokkanna og yfirboð þeirra
því bankarnir en ekki eigendur
fyrirtækjanna, sem tapa. Og
þó stundum fari svo, að bönk-
unum þrjóti langlundargeð til
að halda slíkum rekstri uppi,
þá hafa eigendurnir oft og tíð-
um tryggt vel sinn hlut. Sézt
það bezt á því, að núv. eigend-
ur Kveldúlfs hefðu sloppið und-
an með eignir fyrir um eina
millj. kr., ef fyrirtækið hefði
verið gert upp nú og Fram-
sóknarflokkurinn ekki knúið þá
td að skila þessum eignum.
Það er því sannarlega hvorki
fórnarlund eða umhyggja fyrir
afkomu vinnandi fólks, sem er
undirrótin að stofnun og starf-
rækslu flestra þessara fyrir-
tækja. Þeir menn, sem hafa
stjórn þeirra með höndum, eiga
ekkert á hættu sjálfir, þó illa
gangi, og til þess má einmitt
rekja það, hversu lítillar hag-
sýni og ábyrgðartilfinningar
hefir oft gætt í stjórn þessara
fyrirtækja.
Bezta trygging þesr. að at-
vinnurekstri sé vel stjómað, er
einmitt sú, að eigendur at-
vinnufyrirtækjanna, og þeir,
sem við þau vinna, finni að
þeir eigi afkomu sína að veru-
legu leyti undir afkomu fyrir-
tækisins og tap þess sé tap
þeirra. Með því fyrirkomulagi,
sem nú er á stórútgerðinni,
finna hvorki þeir, sem taldir
eru að eiga fyrirtækin, eða
þeir, sem við þau vinna, til
slíkrar ábyrgðar, þar sem öll
töpin lenda á bönkunum, en
„eigendumir“ standa jafnrétt-
ir eftir sem áður, og verkafólk-
ið hefir enga hlutdeild í af-
komu fyrirtækisins. Af þessum
ástæðum er Framsóknarflokk-
urinn mótfallinn núverandi
fyrirkomulagi stórútgerðarinn-
ar og telur það til engra bóta
þó þetta fyrirkomulag sé fært
yfir á ríkið. Þess vegna vill
flokkurinn koma því skipulagi
á útgerðina, að allir þeir, sem
við hana starfa, finni að af-
koma hennar er jafnframt af-
koma þeirra og í stað fjand-
samlegra deilna milli verka-
fólksins og einhvers „eig-
anda“, hvort heldur sem það er
emstaklingur eða ríkið, komi
bróðurleg samvinna og réttlát
hlutdeild allra aðila i stjórn og
afkomu fyrirtækisins.
s'tjórnmálamanna, sem ekki
bera ábyrgðina; þeirra, sem
cru í stjórnarandstöðu. Við vit-
um allir út í hvaða öfgar og
'itleysu þessi ábyrgðarlausu
yfirboð geta komizt, einkum er
þetta ljós't, eftir að kommún-
istar og hinn svokallaði Bænda-
flokkru komu til sögunnar.
Ef tekin væri upp ríkisút-
gerð togara og sjómönnum og
öðrum, sem að henni störfuðu,
væri tryggð a'tvinna og það
kaup, sem félagsskapur þeirra
krefðist, sem mun vera tilgang-
ur flutningsmanna þessa frum-
varps, ætti þá að nema þar
staðar? Ég verð nú að segja,
áð mér fyndist það ekki sann-
gjarnt. Hversvegna á þá smá-
ú'tgerðarmaðurinn að bera alla
áliættuna af atvinnurekstri
sinum? Hversvegna á sjómað-
urinn, sem ráðinn er upp á hlut
á smá-skipi, að bera áhættu?
Hversvegna á bóndinn að bera
alla áhættu af búrekstrinum ?
Hvorki bátaútvegur eða bú-
rekstur eru svo arðvænlegir at-
vinnuvegir nú, að menn vildu
ckki gjarnan vera lausir við
áhættuna af þeim, ef afkoma
þeírra væri eftir sem áður
tryggð. Ég geri því ráð fyrir,
að þeim, sem þessa atvinnu-
vegi stunda, þætti stjúpmóður-
lega með sig farið, eftir að rík-
ið hefði algerlega tekið togara-
útgerðina og alla þá, sem við
hana vinna, upp á sína arma.
Og ég býst við, að frá þeim
mundu fljótt koma kröfur um
það, að þeir yrðu sama réttar
aðnjótandi. Og ég verð að
segja, að mér fyndist það ekki
ósanngjarn't.
En er Alþýðuflokkurinn við
því búinn að sinna, kröfum
þæssara manna? Er hann yfir-
leitt við því búinn að bera
ábyrgð á þessu frumvarpi og
afleiðingum þess, ef það yrði
samþykkt?
Ég er sannfærður um, að svo
er ekki og að frumvarpið er
heldur ekki borið fram í þeim
tilgangi, að það verði sam-
þykkt, heldur í því trausti, að
það verði ekki samþykkt.
Ég hefi nú gert nokkrar a't-
hugasemdir við þetta frum-
varp, sem fyrir liggur, og lýst
andstöðu minni og þess flokks,
sem ég telst til, við það.
En þó Framsóknarflokkurinn
geti ekki falliz't á þetta frum-
varp, þá er þó lang-t frá því, að
hann sé ánægður með það
ástand, sem nú ríkir í útgerð-
armálunum. Þvert á móti, vill
hann beita sér fyrir margvís-
legum umbótum á því sviði,
sem öðrum, og verður síðar í
þessum umræðum nánar vikið
að því efni frá hendi flokksins.
En það vil- ég taka fram nú
begar, að grundvallars'tefna
Framsóknarflokksins í útvegs-
málum er sú sama og komið
hefir fram í landbúnaðarmál-
unum, en hún er sú, að styðja
að því með aðgerðum hins op-
inbera, að einstaklingarnir geti
séð, sjálfum sér og atvinnu-
rekstri sínum borgið. Hann
vill, eftir því sem geta ríkis-
ins leyfir, styðja menn 'til að
koma atvinnutækjunum á fót
cg gera þær ráðstafanir, sem
hægt er, til að tryggja atvinnu-
rekstur einstaklinganna, en
hann vill ekki láta ríkið taka
beinan þátt í atvinnurekstrin-
um.
í landbúnaðarmálunum hefir
þessi stefna flokksins, meðal
annars, komið fram í því, að
beita sér fyrir stofnun nýbýla
með lánum og styrkjum, en
hann væri alveg mótfalinn, að
ríkið færi að reka búskap á ný-
býlunum. Flokkurinn hefir
beitt sér fyrir því, að koma
upp frystihúsum; hann hefir
stofnað Byggingar- og land-
námssjóð; hann telur rétt að
leggja fé ríkisins í jarðabætur,
með jarðræktarstyrknum, sem
er alveg hliðstætt annari hjálp
til að koma upp atvinnutækj-
um. Einnig hefir flokkurinn
beitt sér fyrir afurðasölulögun-
um, t. d. bæði kjötlögunum og
m j ólkurlögunum.
En allt eru þetta framkvæmd
ir til að styrkja einstaklingana
í þeirri viðleitni að bjarga sér
sjálfir.
Og á þeim grundvelli er
flokkurinn alltaf reiðubúinn til
að styðja málefni sjávarútvegs-
ins, en að ríkisútgerð togara-
flotans gengur hann ekki.
I stað þess að fyrirskipa með
lögum, að togaraú’tgerðin verði
gerð gjaldþrota, eins og frum-
varp þetta kveður á um,
vill Framsóknarflokkurinn
stuðla að því að bankarnir
láti gera upp þau félög, sem
Framli. á 4. sífiu.
Dófttir okkar, sysftír og tengdasysftir,
Anna Björnsdóttír,
andadisft laugardaginn 10. apríl að heíin-
ili sínu Ffölnisveg 4.
Halldóra Magnúsdóftftir,
Bförn Gunnlaugsson.
Elín Björnsdóftftir.
Vilborg Björnsdóttir.
Páll Þóroddsson.
Magnús Björnsson.________