Nýja dagblaðið - 11.08.1937, Side 2
2
N t J A
DAGBLAÐIÐ
Vegna jarðarfarar
Jóns Ólafssonar bankastjóra verður skrifstoi-
um vorum lokað frá kl. 12 á hádegi í dag.
Olíuverzlun íslands h.f.
Tíl Akureyrar
alla daga nema mánudaga.
alla miðvikudagai föstuda^a.
1 ir Cttli Vl Ulm lauga daga og suunudaga
2ja daga ferðír þriðjudaga og fimmtudaga.
Áfgreiðsla í Reykjavík: Bifreiðastöð islands, sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
Kjarnar - Essejnsar
Höfum í birgðum ýmsar tegundir kjama til iðnaðar.
BIÐJIÐ UM VERÐSKRA;
Áfeng'ísverzlun ríkísins.
E.s. Lyra
fer héðan fimmtudaginn 12,
þ. m. kl. 7 síðd. til Bergen
um Vestmannaeyjar og
Thorshavn.
Flutningi veitt méttaka til
hádegis á fimmtudag.
Farseðlar sækist fyrir sama
tíma.
P. Smith & Co.
u p i
Vegna jarðarfarar
F
Jóns Olafssonar bankastjóra
verður skrffstofum vorum lokað
frá kl. 12 í dag,
Sölusamband ísl.
íiskframleiðenda.
Næsta hraðferð
tíl Akureyrar
wmm
um Akranes er nk. fímmtudag.
Steíndór, sími 1580.
Smiðir.
Víð höfum til sölu efni tíl gljáníng-
ar (Polenugar) sem eru fljótvirkari
en eldri aðferðir.
Allmargir smiðir eru þegar farnir að nota
þessi efni.
Yélritaðar notkunarreglur fyrir hendi.
Biðjið um þ»r á skrifstofunni.
Áfeugfísverzlun ríkisíns.
(Erlendur blaðamaður sem tel-
ur sig kunnugan í Rússlandi,
hefir nýlega ritað grein um
„rauða herinn“ og vígbúnað
Sovjet-ríkjanna, það, sem hér
fer á eftir er að miklu leyti
tekið eftir frásögn hans).
Síðan 1934 hafa Sovétríkin
vígbúist gífurlega. Síðustu þrjú
árin hefir ca. þriðjungnum af
cllum sköttum til ríkisins, eða
um 30 miljörðum króna, verið
varið til vígbúnaðar. Þessum
vígbúnaði er ekki fyrst og
fremst stefnt gegn Þýzkalandi
eða öðrum facistalöndum í Ev-
rópu. Vígbúnaðurinn er fyrst og
fremst miðaður við komandi
styrjöld í austri.. Þegar rúss-
neskir herforingjar tala um ó-
„vinina“, eiga þeir við Japan.
Þrátt fyrir allt glamur um
hommúnisma og facisma, eru
það hin gömlu lögmál barátt-
unnar, sem mestu ráða, þegar
á reynir.
í júnímánuði í vor var fjöldi
yfirforingja rauða hersins
kvaddur til Moskva. Það var
almennt álit, að þeir væru þar
mættir vegna réttarhaldanna,
sem um það leyti fóru fram í
málum hershöfðingja þeirra, er
af lífi hafa verið teknir í sum-
ar. En svo var raunverulega
ekki. Herforingjarnir hafa ver-
io kvaddir til höfuðborgarinnar
1J
til þess fyrst og fremst að
segja álit sitt um ásigkomulag
„rauða hersins“, og hversu
hann myndi vera við búinn ef
, styrjöld brytist út á næstu vik-
, um. Og svör herforingjanna
i voru yfirleitt mjög á einn veg.
Rauða hernum er ekkert að
, vanbúnaði, sögðu þeir. Einn af
; berforingjunum frá Síberíu lét
I um mælt eitthvað á þessa leið:
; ITin eðlilega þróun í framför-
um Sovétríkjanna verður nú
fyrir tilfinnanlegum töfum
vegna vígbúnaðarins og þess á-
stands sem af honum leiðir.
Hamingjan gæfi að stríðið væri
búið. „Hið yfirvofandi stríð“
er að verða óþolandi.
Það er sagt, að hermálaráð-
herrann Vorosjilof hafi, að
fengnum þessum upplýsingum,
gefið fyrirskipun um að stöðva
friðar-,agitation‘ fyrri ára með-
al hermannanna og taka upp í
þess stað ákveðna stríðs- „agi-
tation“ í því skyni að búa hug-
arfar hersins undir það, sem
koma hlyti.
Ef Karl tólfti eða Napoleon
nssti slyiliM
j mættu líta upp úr gröfum sín-
j um og virða fyrir sér hinn
nýja her Sovét-ríkjanna og
vopnabúnað hans, myndi þeim
áreiðanlega bregða í brún. Jafn-
!
vel hershöfðingjar síðustu
heimsstyrjaldar, sem nú eru
koninir undir græna torfu,
myndu undrast hina nýstárlegu
hernaðartækni. Herkonungar
j fyrri alda myndu naumast geta
; áttað sig á því í svip, að hér
j væri um her að ræða, öflug-
! ssta her heimsins, sem þekkir
I stórfenglegri aðferðir til að
]afna óvinina við jörðu en
mannkynið hefir áður augum
litið.
Fram til þessa dags hefir
fótgönguliðið verið talið kjarni
og meginstyrkur í hverjum her.
En svo er ekki í rauða hem-
um. Brynvagnadeildin er aðal-
styrkur hins nýja Rússlands.
Rauði herinn ræður yfir 4000
brynvögnum. Hin gamla hern-
aðarlega þrenning, fótgöngulið,
stórskotalið og riddaralið, þekk-
ist ekki lengur. Nýjar deildir
innan hersins, svo sem „kem-
iskar“ hersveitir, flutningaher-
sveitir og hjúkrunar- og heil-
brigðiseftirlitssveitir eru í
rauða hernum taldar venjulegar
hersveitir og engu þýðingar-
minni en hinar. Fótgönguliðs-
menn eru látnir æfa flug og
stofnaðar hafa verið svokallað-
ar fallhlífahersveitir. En það
eru fótgönguliðsménn, sem flutt
ir eru með ílugvélum og varpa
sér úr þeim með fallhlífum
til jarðar. Þannig verður t. d.
hægt að láta heilum hersveit-
um „rigna niður“ langt aftan
við varnarlínu óvinanna. Inn-
an lofthersins hefir ekki ein-
göngu verið lögð áherzla á
flugvélar, heldur einnig loft-
skip, og mikill árangur náðst í
því efni. Þrjú slík hernaðar-
loftskip lentu í vor á Pereja-
s’awskervatninu, héldu sér þar
á floti í hálfa aðra klukkustund
og hófu sig síðan aftur hjálpar
laust til flugs. Sá atburður olli
geysilegri eftirtekt um öll Sov-
étríkin.
Hermálaráðherrann, Vorosji-
lof, segir að þrennt sé mikils-
\rerðast af því, sem rauði her-
inn hafi tileinkað sér á allra
síðustu árum: „1 fyrsta lagi
hm erlenda vélamenning, sem
áður hafi verið „framandi hinni
rússnesku þjóðarsál“. í öðru
lagi hafi herinn eignast mennt-
aða og dugandi foringja. Og í
þriðja lagi hefir tekizt að gera
afburða skyttu úr svo að segja
hverjum einasta hermanni." —
Fyrir nokkrum árum gat tæp-
ur helmingur hermannanria
fullnægt þeim þeim kröfum,
sem herstjórnin gerði til skot-
fimi, nú 97%!
Um hina ferlegu rússnesku
brynvagna er sagt, að þeir séu
íurðulega hraðskreiðir og lið-
legir í meðförum, þrátt fyrir
þyngsli og fyrirferð. Höf. áð-
, urnefndrar greinar segist sjálf-
, ur hafa séð slíka brynvagna
j (tanka) fara með 30—40 kíló-
i metra hraða á klukkustund á
mjög ógreiðfæru landi. Hann
segist hafa séð þá brjótast
gegn um skóglendi og kurla
niður stórvaxin tré eins og eld-
spýtur. Stundum hafi þeir ösl-
að yfir stórár eða klifið brattar
hlíðar. En samhliða eru áhafn-
ii brynvagnanna látnar æfa sig
í kappakstri og ýmiskonar öðr-
um „sport“ akstri.
Framh.