Nýja dagblaðið - 28.08.1937, Síða 1
Gerist kaupendur
Nýja dagblaðsins
strax í dag!
5. ár. Reykjavík, laugardaginn 28. ágúst 1937. 198. blað
Frá styrjðldinni í Kína
Frá Yestfjörðum
Viðtal við
Björn Guðmundsson
skólastjóra á Núpi
Björn Guðmundsson skólastjóri
á Núpi við Dýrafjörð hefir verið
gestkomandi hér í bænum. Nýja
aagblaðið hefir átt tal við hann
og leitað frétta af Vestfjörðum og
þá sérstaklega úr Vestur-ísafjarð-
arsýslu.
— Hvernig hefir heyskap reitt
af vestra?
— Sláttur hófst mun seinna
iieldur en venjulega, enda var
grasspretta léleg. Tíðin hefir verið
vætusöm, en með árvekni hefir
l'uiCianlega tekizt að verja heyin
skemmdpm. Sumstaðar er taðan
að mestu komin inn, en víða er
enn talsvert af töðu óhirt. Hey,
gem náðst hafa, eru nokkuð velkt
og hrakin.
Páð hefir komið sér vel í sumar,
að votheysgerð hefir farið hrað-
vaxandi síðari ár.
— Hvernig hafa fiskiveiðarnar
gengið?
— Fiskafli hefir orðið lítill í ár
og telja sjómenn, að fiskigengd í
fjörðum inni sé minni en áður
vegna aukinna dragnótaveiða. Jtó
íara fiskiveiðar á lóðir á vorvertíð
mjög minnkandi, en dragnótaveiði
færist í aukána.
— Hefir verið mikið unnið að
vegabótum á Vestfjörðum?
— Nú er nýlega orðið bílfært
yfir Breiðadaisheiði frá ísafirði til
Gemlufalls í Dýrafirði. Verkstjór-
inn við þá vegagerð var Lýður
Jónsson. Tókst að framkvæma
verkið á skemmri tíma og fyrir
minna fé heldur en upphaflega
hafði verið gert ráð fyrir. Áætlun-
arferðir bifreiða eru nú tvisvar í
viku frá ísafirði að Gemlufalli og
er sú leiö farin á 2% klukkustund.
— Hvaða fregnir getið þér fært
okkur frá Núpsskóla?
— í Núpsskóla voru í fyrra 29
nemendur, en venjulega hafa þeir
verið 30—40 og verða það væntan-
lega á komandi vetri. Umsóknir
oru þegar komnar fleiri heldur en
liægt er að sinna. Húsakynni Núps-
skólans eru ófullnægjandi. íbúð
fyrir 22 nemendur er í nýju húsi,
er byggt var á árunum 1930—31,
en hinir verða að hafast við í
gönjlu timburhúsi, sem alls ekki
er til frambúðar. 40 hestafla raf-
magnsstöð er til afnota fyrir skól-
ann og sundlaug hans er hituð
upp með rafmagni og kolum.
þegar kom til þess að ráða á
iullnægjandi hátt úr húsnæðis-
vandamálum skólans skall krepp-
an yfir og hefir því ekki enn orðið
úr framkvæmdum.
Kennarar við skólann eru, auk
mín, Eiríkur J. Eiríksson guð-
fTæðikandidat, Viggo Natanaelsson
íþróttakennari, Hólmfríður Krist-
insdóttir handavinnukennari og
Haukur Kristinsson söngkennari.
Gistihús hefir verið rekið í sum-
ar í húsakynnum Núpsskólans og
er það í fyrsta skipti, sem það
„Ekki aðeins ráðisl á
brezka sendiherrann,
heldur Evrópu“, segir
franskt blað
LONDON:
Síðustu fregnir frá Shanghai
herma að líðan brezka sendiherr-
ans sé nú nokkru betri en þó hef-
ir það komið í ljós, að hann liefir
auk þeirra sára sem áður er um
getið, fengið kúlu í hægra nýra.
Blöð í Bandaríkjunum og Frakk-
landi verja allmiklu rúmi í gær
til þess að ræða um þennan at-
I>urð. Segir eitt helztu blaðanna
) París að hérmeð hafi eki aðeins
verið ráðizt á brezka sendiherrann,
lieldur hafi verið ráðist á Evrópu.
„Japanir færa það fram sér til af-
sökunar" segir blaðið, „að þeir
liafi ekki verið aðvaraðir um ferð-
ir sendiherrans, og virðist það gefa
til kynna, að þeir telji sig hafa
íétt til þess að ráðast á Kínverja
eins og um reglulega styrjöld væri
að ræða. Fyrir hálfri öld myndi
Evrópa ekki hafa látið bjóða sér
fvo herfilegar móðganir".
Kmverjar mynda nýja
herlínu noröan
Shanghai
Kínverjar eru að koma sér fyrir
á nýrri herlínu nokltru fyrir norð-
an Shanghai og búast við að
stemma þar stigu fyrir framsókn
Japana. í gær urðu harðvítugar
orustur um 30 brézkar mílur norð-
ur af Shanghai og telur kínverska
berstjórnin að henni hafi tekizt að
halda Japönum í skefjum þar og
að Japanir hafi misst 3000 manns,
sem ýmist hafi verið drepnir eða
særðir. Japanir játa, að þeir hafi
mætt mótstöðu á þessum slóðum,
cn segjast þó hafa náð því tak-
marki, sem fyrir þeim vakti.
Japanar gera. loftárás
á Nankíng
Japanskar flugsveitir gerðu loft-
érásir á báða bakka Wangpoo-
fljótsins í gær, og í fyrrinótt gerðu
er gert. Ætti vegasambandið við
ísafjörð að geta orðið þeirri ný-
breytni til styrktar. Frá Núpi má
fara á vélbát inn í botn Dýrafjarð-
ar, en þaðan er 3 klukkustunda
gangur upp á Sjónfríð á Glámu,
en þaðan er víðsýnt mjög. Einnig
er skammt til frægra staða við
Arnarfjörð, Rafnseyrar, þar sem
Jón Sigurðsson er fæddur, og Geir-
þjófsfjarðar, þar sem útlaginn
Gísli Súrsson leyndist og var veg-
inn að lokum.
— Hvernig er skólamálum í
Vestur-ísafjarðarsýslu yfirleitt
háttað?
— í öllum sveitum sýslunnar
eru farskólar, en 'heimangönjgu-
skólar í þorpum.
þeir árás á Nanking. Sendiherrar
erlendra ríkja í Nanging liafa far-
ið þess á leit við japönsku her-
cljórnina, að svæðum, sem ekki
hafa neina hernaðarlcga þýðingu,
yrði lilíft við loftárásum. Kínverj-
ar halda því enn fram, að Japanir
bafi notað eiturgas í bardögunuin
'ið Nankowskarð, en Japanir bera
ákveðið á móti því.
Fulltrúar frá stjórnum Bret-
lands og Bandaríkjanna hafa far-
ið þess á leit við japönsku her-
stjórnina, að hún hlífist við að
efna til bardaga í Tsing-tao, sem
er um 300 mílur enskar fyrir
norðan Shanghai, þar sem svo
mikill fjöldi brezkra og amerískra
þegna eiga heima í borginni.
Japönsk afsökun í ut-
anríkisráðuneyti Breta
- en pað bíður nánari
greínargerðar áður en
pað tekur ákvörðun um
hvernig- snúast skuli
við árásinni á sendi-
herrann
Sendiherra Japana í London
hefir í brezka utanríkismálaráðu-
neytinu látið |í ljós fyrir hörid
'•tjórnar sinnar iað henni þætti
mjög miður að sendiherra Breta
í Nanking skyldi hafa orðið fyrir
árás og japanskra utanríkismála-
ráðuneytið hefir fyrirskipað ná-
kvæma rannsókn á þessuni at-
burðum. Brezka utanríkismála-
ráðuneytið bíður nú eftir nánari
skýrslu um þetta mál í heild áð-
ur en það tekur ákvarðanir um,
bvernig núast skuli við atburðin-
um.
New York Herald Tribune er eitt
meðal þeirra blaða, sem ritar um
þetta mál. Segir blaðið, að hér sé
enn eitt augljóst dæmi um áhrif
styrjaldar, sem eklci hefir verið
lýst yfir opinberlega, á öryggi al-
mennings og þeirra, sem ekki taka
þátt í bardögunum. Með því að
reka slíka styrjöld, segir blaðið,
að búið sé að gera að engu sein-
ustu leifar af þeim lagalegu hindr-
Mussolini skeyti, til þess að þakka
lionura fyrir þá aðstoð sem hann
hafi veitt og sem leiddi til þess
að Santander var tekin. Fer hann
fögrum orðum um þakklæti sitt
til Mussolini og kveðst vera hreyk-
inn af því að hafa ítalska her-
menn í her sínum.
Mussolini hefir svamð þessu
unum, sem hingað til hafi haldið
aftur af einskæru ofbeldinu.
Varað við síglínga*
banni
Frönsk blöð eru sammála um,
að vara Japani við' að þvinga
fram siglingarbann við Kína. Fig-
aro bendir t. d. á það, að sigling-
ar til Kína séu aðallega reknar af
útlendum skipum og hafi Japanir
ekki minnsta rétt til þess að hlut-
ast til um þær.
Ráðast Japanir á bú-
stað rússneska ræðis-
mannsins i Shanghai?
Stjórnarvöldin í Moskva halda
því fram að söguburður Japana
um ljósmerkjasendingar frá rúss-
neska ræðismannsbústaðnum í
Shanghai sýni ljóslega, að þeir
séu að búa sig undir að skjóta
rússneska ræðismannsbústaðinn í
rúst, eins og í Peiping, og séu með
þessu að skapa sér átyllu til þess.
Síðustu fregnir
Seinustu ófriðarfréttirnar frá
Kína eru á þessa leið: Japanir
hafa í gær haldið uppi skipulögð-
um loftárásum á kínverskar jám-
brautir. Tvö japönsk herskip söktu
kínversku herskipi í orustu
slcammt undan Tung Chow. í loft-
árásinni á Nanking féllu fjórar
japanskar sprengikúlur niður á
skýli þar sem hundruð verka-
manna höfðust við, og fórust 40
manns.
1 opinberu skeyti frá Kína, til
kínverska sendiráðsins í London
er sagt, að Kalgan sé enn í hönd-
um Kínverja, en að Japanir hafi
vcrið komnir á f remsta hlunn
með að ná henni þegar liðsauki
kom frá Shansi og rétti bar-
dagann. Loks segir, að hlé hafi
orðið á badögum í Norður-Kína í
gær, en að Japan sé auðsæilega
að búa sig undir langvarandi
styrjöld. þeir flytji óhemju af her-
gögnum og vélknúðum flutninga-
tækjum á vettvang.
Japanskt Rauða Kross spítala-
skip kom til Shanghai í gær. FU.
skeyti og segir í svarinu að það
gleðji sig mjög að ítalskir her-
menn liafi átt sinn þátt í sigrum
síðustu 10 daga. Lætur hann í
ljós þá von að þessi nána sam-
vinna ítölsku stjórnarinnar og
uppreisnarmanna á Spáni megi
vorða til þess að tryggja þeim úr-
slitasigur í baráttunni fyrir því,
að fresla Spán og Miðjarðarhafið
frá öllum hættum, sem vofi yfir
þeirra sameiginlegu menningu. FU.
Ný bók
eðtír Laxness
Viðtal víö höfundinn
Fyi'stu dagana í september kem-
ur út ný bók eftir Ilalldór Lax-
ness og nefnist hún „Dagleið á
fjöllum". Tíðindamaður Nýja dag
blaðsins fór á fund höfundarins
til þess að spyrjast fyrir um þessa
nýju bók,
Skáldið kom sjálft til dyranna
þegar bjallan hringdi.
— Gerið svo vel, ég býð yður
inn í vinnukompuna mína, gerið
svo vel.
Á skrifborðinu liggja vélrituð
blöð og allt ber þess vott að Kilj-
an hefir nóg fyrir stafni.
— pér viljið fá að vita eitthvað
um liina nýju bók mína. Hún heit-
ir „Dagleið á fjöllum", sem betur
fer ekki í þessari rigningu, 380
blaðsíður að lengd. þetta er safn
aí greinum frá síðustu árum, rit-
gerðum, sem birzt hafa í blöðum
og tímaritum, Iðunni, Skátablað
inu, Stúdentablaðinu, kanadiskum
blöðum og víðar, allt, sem mér
fannst hafa almennt gildi, öðrum
greinum er sleppt er snerta
meira pólitískt dægurþras, flestar
eru þessar greinar endurskoðaðar
og breyttar. Aðrar hafa hvergi
birzt. þar eru ritgerðir, sem fjalla
um Stefán frá Hvítadal, Stephan
G. Stephansson og Gunnar Gunn-
arsson. Sumar eru orðnar til á
ferðalögum, bæði innanlands og
utan, í þýzkalandi, Brasilíu,
Argentínu og á Spáni, og herma
frá ýmsum smáæfintýrum og fyrir
brigðum á þessum ferðalögum. Ég
hefi gert tilraun til þess að
skrifa ritgerðir þannig, að léttlæsi
legar væru og byggðar upp sem
„short stories". þetta er allt og
sumt, sérn ég get sagt yður.
— Hvenær má vænta framhalds
á „Ljósi heimsins“?
— í vetur langar mig til að
skrifa aðra bók um Ólaf Kárason
Ljósvíking og koma þar með hann
í nýju umhverfi. Við sjáum hvað
setur.
Togari sektaður
iyrír landhelgísveíðí
Togarinn Minver, sem Hafaldan
hafði tekið að ólöglegum veiðum
austur á þistilfirði og kom með til
Akureyrar fyrir nokkrum dögum
var í gær dæmdur í 25 þús. króna
sekt, og afli og veiðarfæri gerð
upptæk.
Skipstjóri togarans hafði neitað
að mælingar varðbátsins væru
réttar, og bar fyrir sig nákvæm
mið í því efni. Varð það til þess
að farið var með skipstjóra tog-
arans, ásamt siglingafróðum
manni er hann valdi sér til farar-
innar, austur ó þistilfjörð og stað-
urinn mældur upp að nýju. Viðþá
athugun kom í ljós, að varðbótur-
inn hafði liaft algerlega rétt fyrir
sér.
Franco þakkar Mussolíní
Mussolini gieðst ylir þátttöku ítalskra her-
manna í sigrum á Spáni síöustu daga
LONDON:
Franco hershöfðingi hefir sont