Nýja dagblaðið - 16.10.1937, Qupperneq 4
REYKJAVÍK, 16. OKT. 1937.
5. ÁRGANGUR — 240. BLAÐ
DAGBLAÐIÐ
IGamla BíóS
„Þá ert
mér
alli“
Du bist tnein Gliich
Stórfengleg og fögur
söngmynd frá Bavaria
Film, Miinchen.
Aðalhlutverkið leikur
frægasti söngvari heims-
ins
Benjamino
GIGLI
Hljómsveit og söngkór
ríkisóperunnar í Miinchen
aðstoðuðu við gerð mynd-
arinnar.
§
LEiimu nnuivíui
„þorlAkvr
ÞREYTT I!“
Skopleikur í 3 þáttum
Aðalhlutverkið leikið af
hr. Haraldi Á. Sigurðssyni.
Sýning á morgun kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til
7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Sími 3191.
Orgelkensla. Kristinn Ing-
varsson, Skólavörðustíg 28. —
Sími 4395.
Kenni í vetur íslenzku,
dönsku, ensku og þýzku. —
Garðar Svavarsson. Upplýsingar
í síma 3726, kl. 12—2 og 8—9.
0
Átymaa
Stúlka óskast. Runólfur Sig-
urðsson, Leifsgötu 16.
Góð gi'öh
Þæffir úp sögu Reyk'iavikur
Fæst hjá bóksölum.
ÚTBREIÐIÐ
NÝJA DAGBLAÐIÐ.
‘ssst^ssssmaEss.
Fata- og irakka-
eínin komín.
Andrés Andrésson
Laugaveg 3.
Útboð.
Tilboða er óskað í gröit íyrír tveggja km.
langaa jarðstreng í Hafnarfirði.
Uiboðslýsinga má vitfa á skrifstofu Raf-
magnseftirlits ríkisins þann 16. þ. m. (í dag).
Raímagnseftírlít ríkisíns.
Norðlenzkt diikakjöt
í heildsölu og smásölu.
Lifur, hjörtu og mör
Kjötverzlunin Herðubreíð
Fríkírkjuyeg 7. Símí 4565-
Reykjavík - Akureyrí
Næsta ferð mánudag.
Stemdór, símí 1580.
I
Nýja Bló
Fósturdóltír
vítavarðaríns
(Kaptain January)
fögur og skemmtileg ame-
rísk kvikmynd frá FOX-
félaginu
Aðalhlutv. leikur undra-
barnið:
Shirley Temple
ásamt skopleikurununi
frægu,
Silm Summerwille
og Gny Kibbee.
Sýnd í kvöld kl. 6
(barnasýðing) og kl.9
Aðgm. seldir frá kl. 4.
■
I
3\-
H ’ 4 I
rarftTm
Esja
austnr umtil Sigluf jarð-
ar priðjudaginn 19. okt.
kl. 9 síðd.
Flutningi veittmóttaka
í dag (til hádegis) og
fram til hádegis
á mánudag.
uðeins Loftur.
ÖRLAGAFJÖTRAR 61
svo hófst ráðstefnan. Jacobs hóf mál sitt.
— Ungfrú Cavandish, bróðir þinn hefir sagt mér
alla söguna. Mér skildist að Carew hefði komið með
dálítið einkennilegt tilboð til þín í gærkvöldi. Hefir
þú tekið ákvörðun?
Hún hristi höfuðið.
— Má ég vera svo djarfur, sem gamall vinur fjöl-
skyldunnar að gefa þér ráðleggingu?
— Ja-á.
— Þú ættir að taka því.
— Þú ráðleggur mér að giftast manni sem ég
elska ekki, — og sem býður mér giftingu á þennan
hátt?
— Einmitt sökum þess að giftingin er boðin á
þennan hátt, ráðlegg ég þér þetta. Þú veizt máske
ekki hvernig sakir standa, en hann hefir aðstöðu til
þess að senda Cyril í fangelsi. Svo hefir hann arf-
leiðsluskrá sem veitir honum rétt til allra Cavan-
dish-eignanna, svo þið hafið ekkert handa á milli.
-----Þúþarft ekki að vera kona hans nema rétt að
nafninu til. Hann getur sannarlega ekki gert meiri
kröfu.
— Ætlið þið ekki að verja ykkar mál, og reyna að
halda eignunum?
— Vegna þess, að það væri aðeins til að eyða
tíma, — og peningym.
Jacobs hristi höfuðið ákaft.
— En hversvegna ekki?
Hún laut höfði og var þögul stundarkorn.
— En hvað er hæft í því sem hann sagði,----að
honum hefði verið rænt, og hann settur á geðveikra-
hæli? — Er það satt?
Hún beindi spurningunni til Lukes, og Cyril og
Margaret störðu á hann, og biðu svars. Luke reyndi
að bera sig mannalega og neita þessu, en þegar hann
mætti hinu ákveðna augnaráði þeirra allra, þá
gretti hann sig og hneigði höfuðið til samþykkis því
að ásökun þessi væri sönn.
— En til hvers gerðirðu þetta, — hversvegna?
spurði Blanche reiðilega. Cyril er þjófur, og þú ert
annað verra. Ó, þetta er ómögulegt alltsaman.
— Rannsakaðu bara, urraði í Luke. Kenndu mér
um það alltsaman. Ég gerði þetta fyrir ykkur líka.
Hvernig heldurðu að þér mundi líka að vera þjón-
ustustúlka eða passa krakka. í bezta tilfelli hefðir
þú getað lifað eins og fátæklingur í einu leiguher-
bergi og--------
— Það er ekki satt. Ég hefi eignir, — — eða ég
hafði það að minnsta kosti. En nú er þessi maður
búinn að fá aðstöðu til að taka af okkur hvern eyri.
Séreign okkar verður öll tekin til þess að borga fyr-
ir það sem við höfum eytt af eigninni þennan tíma.
— Ég get máske hjálpað ykkur svolítið, — mælti
Margaret hálfkjökrandi. Ég fæ fimmhundruð pund
á ári.
— Fimm hundruð pund, sagði Luke hæðnislega.
Til hvers er það. Nei, við þurfum ekkert að óttast ef
að Blanche gerir skyldu sína. Ég hata þennan ná-
unga, — en þrátt fyrir það, þá eru það peningar
föður okkar, sem hann er að reyna að krækja í.
Blanche á að giftast honum og gera honum svo líf-
ið eins hábölvað og hægt er, sem endurgjald fyrir
það hvernig hann hefir leikið okkur.
Margaret var hneyksluð yfir því er Luke sagði, og
Cyril virtist ekki falla það meira en svo í geð. En
Blanche var búin að taka ákvörðun.
— Já, ég ætla að ganga að því, mælti hún lágt.
— Það er ágætt, mælti Jacobs brosmildur á svip
og nuddaði hendurnar. Það er án efa það skynsam-
legasta.
Jacobs kvaddi litlu síðar og fór. Stundvíslega
klukkan fjögur kom Kit, — og honum var vísað inn
í stofuna þar sem hin niðurbeygðu systkini biðu
hans ásamt frænku sinni. Luke var auðsjáanlega
ævareiður, en hann hélt sér í skefjum, þar eð hann
fann ósigur sinn.
— Hver er ákvörðunin?
Blanche mætti augnaráði hans örugglega.
— Ég geng að því-------með einu skilyrði.
— Það er alveg skilyrðislaust. Annaðhvort giftist
þú mér eða ekki. Já eða nei.
— Skilyrðið er að þú lofir mér að lifa út af fyrir
mig.
— Það er engin gifting. Ég ætlast til að gifting-
unni fylgi öll réttindi og skyldur fyrir báða aðila.
Annaðhvort það eða ekkert.
Hún beit á vörina og blóðið hljóp fram í kinnar
henni. Luke hélt að hún ætlaði að neita, — en hik
hennar varaði stutt.
— Ég — geng að því. En þú eignast aldrei virð-
ingu mína hvað þá ást
— Kannske ekki.sagði hann stuttaralega. Svo
snérist hann á hæli og gekk út.