Nýja dagblaðið - 09.11.1937, Blaðsíða 1
AÐAL
ASTASAGA
ársins er
MELEESA
ANN ÁLL
313. dagur ársins.
Sólrauppkoma kl. 8,38. Sólarlag kl.
3,45. — Ardegisháflæður í Reykjavík
kl. 8,55.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 4,20 síðdegis til kl. 8,05 að
morgni.
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjar-
götu 6B, sími 2614. — Nœturvörður
í Ingólfsapöteki og Laugavegsapóteki.
Útvarpið í dag.
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,455 Þýzkukennsla.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir.
19,40 Augl. 19,50 Fréttir. 21,15 Erindi:
„Þekktu sjálfan þig“. I (Jóhann Sæ-
mundsson læknir). 20,40 Hljómplötur:
Létt lög. 20,45 Húsmæðratími: Smit-
unarhætta á heimilum (frú Sigríður
Eiríksdóttir). 21,00 Symfóníu-tónleik-
ar: Ýms tónverk (plötur). 21,15 Dag-
skrárlok.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í Kaupþings-
salnum annað kvöld og hefst hann
kl. 8,30.
U. M. F. Velvakandi
heldur fund í Kaupþingssalnum í
kvöld kr. 9. Skinfaxa verður útbýtt á
fundinum. Félagar eru beðnir að fjöl-
menna og mæta réttstundis,
í dag.
Þeir sem greiða tekju- og eignaskatt
sinn í dag þurfa ekki að greiöa drátt-
arvexti; en þetta er líka síðasti dag-
urinn. Sjá augl. í blaðinu í dag frá
tollstjóra.
Engar samningaumleitanir
hafa enn farið fram á Akureyri.
Hefir Alþýðusambandið enn ekki gefið
nema mjög óljós svör við þvi skilyröi,
sem S. í. S. hefir sett fyrir því að
samningar gætu hafizt.
Öll lielztu blöð
Kaupmannahafnar hafa getið um
hina væntanlegu komu Karlakórs
Reykjavíkur til borgarinnar og telja
sum þeirra hann með beztu kórum á
Norðurlöndum.
60 ára
er í dag Jón Klemensson, Njáls-
götu 50.
Hjónaband.
Síðastliðinn laugardag voru gefín
saman í hjónaband af séra Bjarna
Jónssyni ungfrú Ólína Jónsdóttir og
Stefán Gunnarsson Tyrfingsstöðum í
Innri-Akranesshreppi.
Aflasala.
Línuveiðarinn Eldborg seldi afla sinn
í Grimsby í gær. 1100—1200 vættir.
Áheit
á Strandarkirkju: kr. 500,'frá K. S.
Umferðarslys.
Á laugardagskvöldið var varð kona
fyrir bifreið á Barónssstígnum og
hlaut alvarleg meiðsli. Atvikaðist það
þannig, að Bifreiðin R 1080, sem er
24 manna bifreið var að koma sunnan
úr Hafnarfirði síðla kvölds og ók norð-
ur Barónsstíginn. Er bifreiðarstjóri
kom fram hjá mótum Eiríksgötu og
Barónsstígs sá hann tvær konur á
götunni og ætjaði að hægja ferðina
meðan hann æki fram hjá þeim. En
við það rann bifreiðin til að aftan og
slengdist á konurnar, svo þær féllu
við, og hlaut önnm- þeirra, Guðrún
Pétursdóttir til heimilis á Rauðarár-
stíg 5, stór sár á höfuöið og fékk heila-
hristing og meiddist á fótum. Var hún
flutt mjeðvitundarlaus á Landsspítal-
ann,
Skipafréttír.
Gullfoss er á leið til Hamborgar.
Goðafoss er væntanlegur til Vest-
mannaeyja á morgun. Brúarfoss kom
til ísafjarðar í gærkvöldi. Dettifoss
var á Vopnafirði í gær. Lagarfoss er á
leið til Leith frá Kaupmannahcjfn.
SeJfoss er í Hamborg. — Súðin er í
Oslo. Esja var væntanleg til Seyðis-
fjárðaf í gærkvöldi,
BD/skQ»IBIL?MÐHC)
5. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 9. nóvember 1937. 260. blað.
Vmnudeílurnar á Akureyrí
SígrarJapana
víð Shanghaí
Þeir eru ekki úrslita-
sigur, segir Chíaug-Kaí
Shek, pví þrautseigja
Kínverja verdur meiri
en pol Japana.
LONDON:
Kínverjar hafa látið undan síga í
Pootung, en þa'ð er sá hluti Shanghai-
borgar, sem liggur sunnan Whangpoo-
fljóts. Japanir settu þar her á land
á laugardaginn. Á sunnudagsnóttina
flutti kínverski herinn sig suður fyrir
Pootung.
Ákafar orustur hófust strax við
Shanghai um sólarupprás í gærmorgun
og telja sumir erlendir fréttaritarar í
Shanghai, að þar muni verða hinar
síðustu, sem háðar verða á þessum
vígstöðvum fyrst um sinn. Japanir
beita öllu því liði og öllum þeim her-
gögnum, sem þeir hafa yfir að ráða.
Her þeirra, sem að sunnan sækir til
Shanghai, er sagður hafa komizt yfir
um Whangpoo-fljót, og hafa á valdi
sínu járnbrautarlínuna frá Shanghai
til Hang-chow.
Þúsundir flóttamanna streyma úr
Pootung og Nantao inn i alþjóða-
hverfið. FÚ.
Chiang-Kai-Shek sagði við blaða-
menn í gærmorgun, að sigur sá, sem
Japanir hefðu þegar unnið, væri að-
eins til bráðabirgða. Mótstöðuafl Kín-
verja væri miklu meira en þol Jap-
ana, og þeim mun lengra, sem jap-
anski herinn kæmist inn 1 Kína, þess
erfiðari yrði öll aðstaða hans. FÚ.
HONUM VAR
GLEYMT!
Á sunnudaginn fóru fram mikil há-
tíöahöld i Rússjandi vegna 20 ára af-
mæjis byltingarinnar. í Moskva var
haldin stærsta hersýningin, sem enn
hefir farið fram innan landamæra
Rússlands. En í sambandi við þessa
sýningu og öll hátíðahöldin var vand-
lega aðgætt að minnast ekki afreka
þess manns, sem skapaði rauða herinn
og gerði hann þess megnugan að sigra
allar gagnbyltingartilraunir yfirstétt-
anna. Hér var ekki um gleymsku að
ræða heldur fyrirskipun frá valdhöf-
unum, sem lögðu við dauðarefsingu,
ef frá þessu væri brugðið og sann-
leikurinn sagður. Þannig er frelsið og
lýðræðið í því landi, sem kommúnist-
ar hér segja að hafi „frjálslyndustu
stjórnarskrá heimsins"!
TROTZKI,
maðurinn, sem skipulagði rauða
herinn á sínum tíma.
Eftír Jón Árnason
Eins og kunnugt er orðið, lét |
Alþýðusamband íslands umboðs-
mann sinn á Akureyri fyrirskipa
stjórn S. í. S. og Kaupfélagi Ey-
firðinga nýjan kauptaxta fyrir
starfsfólk í verksmiðjum þessara
stofnana, og þegar ekki var um-
yrðalaust gengið að þessum
„taxta“, þá var fyrirskipuð
vinnustöðvun í verksmiðjunum,
sem hófst þriðjudagsmorguninn
2. þ. m.
Það er mjög vafasamt, að for-
ráðamenn Alþýðusambands ís-
lands hafi vitað nokkuð að ráði
um launakjör verksmiðjufólks-
ins. Að finnsta kosti benda
blaðaskrif ,verkfallsforkólfanna‘
ekki á, að þeim hafi verið um
þau kunnugt.
Engin fyrirspurn hefir stjórn
S. í. S. borizt um launakjör
starfsfólksins áður en vinnu-
stöðvun hófst. En allt síðastliðið
ár hefir verið haldið á lofti lát-
lausum rógi um það, að S. í. S.
færi illa með starfsfólk sitt og
greiddi því svo léleg laun, að við
það væri ekki unandi. Þrátt fyrir
þennan látlausa róg, og þrátt
fyrir það, að Alþýðusambandið
hefir kostað sérstakan fulltrúa á
Akureyri til að reyna að fá
starfsfólk verksmiðjanna í fé-
lagið Iðju, er árangurinn ekki
burðugri en það, að í byrjun
verkfallsins var tæpur þriðjung-
ur verksmiðjufólksins kominn í
félagið.
Stjórn S. í. S. mætti á fundi
síðari hluta mánudags 1. þ. m.
Á þeim fundi gerði stjórnar-
nefnd verksmiðjanna stuttlega
grein fyrir launakjörum í verk-
smiðjunum og fer útdráttur úr
þeirri greinargerð hér á eftir. —
Stjórnarnefnd verksmiðjanna er
skipuð af stjórn S. í. S. og skipa
hana: Böðvar Bjarkan, sem er
formaöur og meðstjórnendur
Vilhjálmur Þór og Jón Árnason.
Verksmiðjur S, í. S. og K. E. A.
sem bannað var að héldu áfram
vinnu, eru þessar;
Gefjun, eign S. í. S.
Iðunn, eign S. í. S.
Sjöfn, eign S. í. S. og K. E. A.
Freyja, eign S. í. S. og K. E. A.
Flóra, eign K. E. A.
Stærstu verksmiðjurnar eru
Gefjun og Iðunn. í þeim
(saumastofur meðtaldar) unnu
241 manns. Við afullun gæra í
skinnaverksmiðjunni unnu 13
menn í fyrravetur, en afullun
var ekki byrjuð nú, vegna hót-
ana um stöðvun verksmiðjanna.
Þegar S. í. S. keypti Gefjun,
unnu þar innan við 30 manns
(29 að meðtöldum verksmiðju-
stjóra og bókhaldara). Nú vinna
þar um 190 manns (saumastofur
framkvæmdastj.
meðtaldar). Flestu fólki varð aö
bæta við á árunum 1936 og 1937,
vegna þess að í árslok 1935 tók
til starfa hin nýja kamgarns-
verksmiðja, og um síðastliðin
áramót var bætt við 6 nýjum vef-
stólum í verksmiðjunni.
Starf skinnaverksmiðjunnar
Iðunn er fjórþætt: 1. Afullun
gœra. 2. Sútun. 3. Skógerð. 4.
Hanskagerð.
Afullunin er gömul starfs-
grein. Hafa gærur verið afullaðar
í verksmiðju S. í. S. á Akureyri
öðrum þræði síðan 1923. Um all-
mörg ár lá þó starfsemi verk-
smiðjunnar niðri, vegna þess að
betur borgaði sig að selja gær-
urnar óunnar úr landi. Hér er
aðeins um vetrarstarf að ræða,
sem því aðeins verður unnið, að
meira verð fáist fyrir ull og bjóra
heldur en óunnar gærur. Þar
unnu síðast 13 menn.
Sútunarverksmiðjan hefir ekki
starfað nema um hálft annað ár.
Þar unnu 15 menn. Skóverk-
smiðjan byrjaði starfsemi sína
um siðastliðin áramót. Þar unnu
32 menn. Hanskagerðin er rúm-
lega ársgömul. Er þar um smá-
framleiöslu að ræða, þar sem að-
eins vinna 5 menn.
Af framansögðu er þaö aug-
ljóst, að mikill hluti af núver-
andi starfsfólki verksmiðjanna
er annaöhvort byrjendur eða að
mikið vantar á að það hafi náð
þeirri leikni og afköstum, sem
viðunandi má telja fyrir þessar
iðngreinar, miðað við það, sem
tiðkast hjá þjóðum með gamlar
og þroskaðar iðjustéttir.
Vegna þess, hve verksmiðjurn-
ar hafa orðið að taka mikið af ó-
vönu fólki á tiltölulega skömm-
um tíma, hefir stjórn þeirra tal-
ið óhjákvæmilegt að endurskoða
launakjörin árlega, og hefir hún
komið á launahækkunum og
kjarabótum, eftir þvi sem rekst-
ur verksmiðjanna hefir þolað og
sanngjarnt hefir mátt teljast,
miðað við afköst starfsfólksins.
Stjórn verksmiðjanna lét byrja
á því í síðastl. ágústmánuði, að
gera enn á ný athugun á kaup-
gjaldsmálum verksmiðjanna. Er
meðal annars verið að undir-
búa ákvæðisvinnusamninga við
starfsfólk skóverksmiðjunnar,
en ákvæðisvinna er algengasta
launafyrirkomulag í skóiðnaði.
Þannig er það t. d. við skóverk-
smiðjur samvinnusambandanna
í Danmörku og Svíþjóð ,
Greinargerð þessari fylgir svo
sundurliðúð skýrsla um laun alls
starfsfólks í verksmiðjum S. í. S.
Rúmið leyfir ekki að hún sé birt
í heild, en síðar í greininni verð-
Framh. á 3. síðu.
Afsftaða Alþýðuff.
ftil sftjórnarsam-
vinnu
Aukaþing Alþýðusambandsins sam-
þykkti á laugardagskvöldið svohljóð-
andi yfirlýsingu um stjórnarsam-
vinnu milli Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins:
„Fjórtánda þing Alþýðusambands
íslands telur samvinnu Alþýðuflokks-
ins og Framsóknarflokksins í rlkis-
stjórn og þingmálum nauðsynlega
eins og nú standa sakir til þess að
hægt verði að bæta kjör alþýðunnar til
sjávar og sveita og afst.ýra kyrstöðu
og afturhaldi. Ennfremur telur sam-
bandsþingið eðlilegt og æskilegt, að
samvinna þessara flokka verði víð-
tækari, þannig, að hún nái einnig til
bæjar- og sveitarstjórnarmála, þar
sem það þykir sérstaklega henta. Þing-
ið telur ,að Alþingiskosningarnar síð-
astliðið vor hafi sýnt mjög ótvírætt
vilja meira hluta kjósenda til slíkrar
vinstri samvinnu.
Þingið ber fullt traust til flokks-
stjórnarinnar og þingflokksins til þess
að ganga svo frá málefnasamning-
um milli flokkanna, að samstarfið
verði til hagsbóta fyrir alla alþýðu,
enda væntir þingið þess, að gagn-
kvæmdrar sanngirni gæti af hálfu
beggja flokkanna í samningunum um
samvinnuna".
Rósftur á danzlesk
í K. R.-húsxnu
Félagsskapur hér í bænum, er nefn-
ist „Eldri danza klúbburinn" efndi síð-
astliðið laugardagskvöld til danzleiks
í K.R.-húsinu. Gerðist þar brátt ákaf-
lega fjölmennt svo húsfyllir varð. Senn
tók að bera á ölvun og drykkjulátum
og gerast óróasamt og það svo, að tveir
menn hlutu veruleg meiðsli af og voru
fluttir á Landsspítalann, þar sem búið
var um áverka þeirra. Var öðrum
þeirra hrint niður stiga og kom hann
niður á höfuðið og hlaut af þessu
talsverð meiðsli. Hinn maðurinn
skarst á hendi með þeim hætti, að
glas, sem hann hélt á brotnaði. —
Ýmsir fleiri hlutu minni meiðsli.
Alls var lögreglan fjórum sinnum
kvödd til þess að lægja róstur í K.R.-
húsinu frá því kl. 10 um kvöldið til
kl. 2 um nóttina, að eigi þótti
amiað ráð vænna, en slíta danzleikn-
um með lögregluvaldi.
ANNÁLL
Lífið,
tímarit um uppeldismál, er nýkomið
út. í því birtist mjög snjöll grein um
próf í barnaskólum eftir Sigurvín Ein-
arsson kennara. Aðrar greinar, sem
ekki verður látið undir höfuð leggjast
að nefna, eru um vandræðabörn, eftir
Björn Jónsson skólastjóra og um
heilsufar íslendinga, eftir Jón Jóns-
son lækni. Ritstjórinn, Jóhannes Birki-
land, skrifar um heimssýninguna í
Paris.