Nýja dagblaðið - 09.11.1937, Síða 3
NÝJA DAGBLAÐIÐ
3
Vinnudeilurnar
Wja dagblaðið
Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f.
Ritstjóri:
ÞÓRARXNN ÞÓRARINSSON.
Ritstj órnarskrf stof urnar:
Hafnarstræti 16. Sími 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Hafnarstræti 16. Sími 2323.
Áskriftargjald kr. 2.00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eintakið.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Sími 3948.
Alþýðusambands-
þíngið og úrslít þess
AlþýÖusambandsþinginu er nú
lokiö. Það var kallað saman til
þess meðal annars, að gefa úr-
skurð um afstöðuna til komm-
únista. Það er vitað, að flokks-
stjórnin var klofin um þá af-
stöðu. í meirihlutanum var
Jón Baldvinsson og með honum
mestöll flokksstjórnin. í minni-
hlutanum voru tveir menn, Héð-
inn Valdemarsson og Jón Guð-
laugsson.
Þegar flokksþingið kom sam-
an, lagði Héðinn Valdemarsson
fram tillögur til ályktunar um
sameiningu Alþýðuflokksins og
Kommúnistaflokksins, ásamt
stefnuskrá fyrir hinn „samein-
aða flokk“. En flokksþingið féllst
ekki á þær tillögur. Niðurstaðan
varð sú, að samþykktar voru til-
lögur, sem fram höfðu verið
bornar af Jónasi Guðmundssyni,
Emil Jónssyni, Guðmundi Haga-
lín ogVilmundi Jónssyni. Eru
þær annarsvegar um „tilboð“ til
Kommúnistaflokksins um sam-
einingu og hinsvegar um stefnu-
skrá fyrir hinn sameinaða „Al-
þýðuflokk íslands", en svo skyldi
hinn nýi flokkur heita.
í „tilboðinu“ er gert ráð fyrir
að i miðstjórn hins nýja flokks
verði 17 Alþýðuflokksmenn og 8
Kommúnistar og að trúnaðar-
störfum verði að öðru leyti skipt
í hlutfall við atkvæðamagn síð-
ustu kosninga.
í tillögunum um stefnuskrá
fyrir hinn nýja flokk er m. a.
svo að orði kveðið, að flokkurinn
skuli vera „sósíalistiskur lýðræð-
isflokkur“ og að hann vilji vinna
að framgangi mála sinna „við
almennar kosningar í bæjar- og
sveitarstjórnum, á Alþingi og í
ríkisstjórn á þingræðisgrund-
velli“. þá er yfir því lýst, að
„flokkurinn vill hagnýta sér þá
reynslu erlendra stéttarbræðra
og sósíalistiskra flokka, sem
eiga við íslenzka staðhætti, en
vill jafnframt taka það skýrt
fram, að hlutverk íslenzkrar al-
þýðu og flokks hennar er að
skapa sósíalistiskt þjóðfélag á
þeim sögulega og þjóðfélagslega
grundvelli, sem fyrjr hendi er
hér á landi“.
Þá er það fram tekið, að flokk-
urinn skuli standa „utan allra
pólitískra alþjóðasambanda“.
Það virðist að þessu athuguðu
liggi ljóst fyrir, að hinn nýi
flokkur, ef stofnaður væri, yrði
samkvæmt stefnuskrá sinni
þingræðislegur flokkur í and-
stöðu við byltingu og ofbeldi.
Enda hefir blaðið frétt, að
Framh. af 1. síðu.
ur gerð grein fyrir launum fólks-
ins í stórum dráttum.
„Taxti“ Álþýðusambandsins, er
heimtað var að S. í. S. gengi að,
er þannig:
Karlmenn, eldri en 18 ára, kr.
195.00 á mán. fyrstu 3 mán., kr.
235.00 á mán. næstu 3 mán., kr.
285.00 næstu 6 mán. Þar eftir kr.
300 á mánuði.
Karlmenn, yngri en 18 ára;
fyrstu 3 mán. kr. 108.00 á mán.,
næstu 3 mán. kr. 125, næstu 6
mán. kr. 135.00 Þar á eftir kr.
150.00 á mánuði.
Konur, fyrstu 3 mán. kr. 108.00
á mán., næstu 3 mán. kr. 125.00,
næstu 6 mán. kr. 135.00. Þar eftir
kr. 150.00 á mán.
í grein þessari verður aðeins
rætt um ullarverksmiðjuna Gefj-
un og skinnaverksmiðjuna Ið-
unn.
Það sem einkum einkennir
„taxta“ Alþýðusambandsins, er
hið ábyrgðarlausa skilnings-
leysi á greiðslugetu iðnaðarfyr-
irtækjanna og jafnframt órétt-
lætið í garð þess verkafólks, sem
búið er að læra iðngrein þá, sem
það vinnur við, samanborið við
byrjendurna.
í báðum þeim verksmiðjum,
sem hér er rætt um, eru flest
störfin talsvert seinlærð. En Al-
þýðusambandið heimtar, að
verksmiðjurnar greiði verka-
mönnum hámarkslaun strax eft-
ir eins árs starf, en óhætt má
fullyrða að enginn starfsmaður
getur náð fullkominni kunnáttu
og leikni við ullariðnað, sútun
og skógerð, á einu ári:
Laun starfsfólks í verksmiðj-
um S. í. S. eru nú sem hér segir:
Ullarverksmiðjan Gefjun:
Laun karlmanna á 1. starfs-
ári kr. 85,00 fyrsta mánuðinn,
kr. 115,00 á mán. næstu 6 mán.,
kr. 140,00 á mán. síðustu 5
mánuði fyrsta starfsárs. Á öðru
starfsári kr. 180,00 á mán., á
þriðja starfsári kr. 200,00 á mán.
og á fjórða starfsári kr. 220,00.
Ágóðahlutdeild fær starfs-
maður eftir tveggja ára starf,
sem fer hækkandi annaðhvort
ár upp áð 8 ára starfsaldri.
Meðallaun karlmanna í
„stefnuskráin" sé nokkurnveg-
inn orðrétt þýðing á stefnuskrá
verkamannaflokksins norska. En
hann stendur, eins og kunnugt
er, utan alþjóðasambandanna,
en er heima fyrir í málefna- og
stjórnarsamvinnu við norska
bændaflokkinn.
Það virðist hinsvegar ekki
þurfa að gera því skóna, að hinn
nýi flokkur eða stefnuskrá hans
hafi áhrif á gang mála hér á
landi fyrst um sinn, því að
kommúnistar lýsa yfir því með
ótvíræðum orðum í blaði sínu,
Þjóðviljanum, í fyrradag, að
ekki komi til mála að flokkur
þeirra vilji ganga að tilboði Al-
þýðusambandsþingsins um sam-
einingu.
Munu það enn sem fyrr vera
ákvæði „stefnuskrárinnar" um
lýðræði og þingræöi, sem nú
bögglast þeim fyrir brjósti og
sennilega einnig það, að trúin á
Gefjun, sem unniö hafa í 8 ár,
hefir verið kr. 281,00 á mánuöi
að meðtaltali í fyrstu 10 mánuði
yfirstandandi árs.
Laun kvenna sem eru
á 1. starfsári kr. 60,00 fyrsta
mánuðinn, kr. 90,00 á mánuði
fyrir næstu 5 mánuði og kr.
105,00 á mánuði fyrir síðustu 6
mánuði fyrsta árið. Á öðru
starfsári kr. 120,00 á mán., á
þriðja starfsári kr. 125,00 á mán.
og á fjórða starfsári kr. 130,00
á mánuði. Stúlkur, sem unnu við
vefnað og fengu fulla ágóða-
hlutdeild höfðu kr. 184,00 á
mán. að meðaltali fyrstu 10
mán. yfirstandandi árs — eða
34 kr. meira á mánuði en eftir
hámarkstaxta Jóns Sigurðsson-
ar.
„Verkfallsforkólfarnir“ hafa
verið háværir um óánægju starfs
fólksins í Gefjuni. Elzti starfs-
maður verksmiðjunnar hefir
unnið þar um 30 ár og nokkrir
aðrir yfir 20 ár. Það er sjald-
gæft að menn hafi sagt upp
störfum og enn hefir engum
verið sagt upp vinnu vegna ald-
urs.
/ Iðunni gilda svipuð kjör og
í Gefjuni. Skógerðin hefir að-
eins starfað í tæpa 10 mánuði
alls. Sex menn sem þar
vinna hafa nokkru hærri
sem þar vinna nokkru hærri
laun, en þeim ber, vegna starfs-
tíma síns. Höfðu þessir menn
einhverja æfingu í störfum, þeg-
ar þeir réðust í þjónustu verk-
smiðjunnar og voru vitanlega
látnir njóta þess. í þessari
verksmiðju er ráðgert að taka
upp ákvæðisvinnu eins og áður
er sagt.
Sútunin hefir verið starfrækt
aðeins hálft annað ár. Launa-
hæstu mennirnir, sem lengst
hafa unnið, hafa nú kr. 220,00
á mánuði. Tveir hafa kr. 190,00.
Þrír kr. 170,00 Tvær stúlkur kr.
105,00 á mánuði. í verksmiðjunni
vinna auk þess tveir unglingar.
Hefir annar kr. 80,00 á mánuði,
en hinn kr. 135,00.
Vinnutími í verksmiðjunum
er 9 stundir á dag.
Starfsfólkið fær sumarfrí 6
virka daga.
hið „heilaga“ Rússland og ó-
skeikulleika „félaga Stalins“
hefir ekki fengizt viðurkennd af
Alþýðuflokknum, svo að í lagi
geti talizt
Alþýðuflokkurinn sýnist hins-
vegar nú hafa tekið þetta vanda
mál föstum tökum, sem líkleg
eru til að styrkja aöstöðu hans
meðal þeirra sem í vafa hafa
verið, hvorum heillavænlegra
væri að fylgja, honum eða
Kommúnistaflokknum. Enda er
það sýnilegt, að hinir farsælli
menn Alþýðuflokksins hafa hér
reynzt drýgri í viðskiptunum.
En úr því að þessi hríð er af-
staðin, er nú fyllilega tími til
þess kominn, að Alþýðuflokkur-
inn fari að gefa skýr svör og
skjót um afstöðu sína til þeirra
málefna, sem nú bíða úrlausnar
á Alþingi, og úr því munu skera,
hversu háttað verður um stjórn
landsins í nœstu framtið.
Veikist fastráðinn starfsmað-
ur, sem búinn er að vinna hjá
fyrirtækinu í 10 ár eða þar yfir
heldur hann fullum launum í
tvo mánuði. Sé hann enn ó-
vinnufær eftir þessa 2 mánuði,
greiðast honum hálf laun í
næstu 2 mánuði, en úr því fell-
ur launagreiðslan niður. Þeir,
sem hafa unnið meira en 1 ár,
en minna en 10 ár fá fulla launa
greiðslu 1 mánuð. Séu þeir fjar-
verandi annan mánuð, greiðast
þeim hálf laun, en síðan fellur
launagreiðsla niður.
Þeir sem unnið hafa 1 ár eða
minna fá full laun í 15 daga,
hálf laun næstu 15 daga, en síð-
an fellur launagreiðsla niður.
Þess má geta, þó lítils kunni
að þykja um vert, að S. í. S. læt-
ur starfsfólk verksmiðjanna
hafa til fullra umráða, stóran
samkomusal, sem það getur not-
að eftir vild.
Það þarf ekki að taka
það fram, sem flestum mun
kunnugt, að öll vinnuskilyrði í
verksmiðjunum eru mjög góð,
— fyllilega sambærileg við beztu
verksmiðjur nágrannalandanna.
Þegar Jón Sigurðsson rak
fólkið frá vinnunni, var verið
að endurskoða launakjör þau,
sem um getur eins og gert hefir
verið árlega, með það fyrir aug-
um að bæta þau, að svo
miklu leyti sem rekstur verk-
smiðjanna mátti við því.
Jón Sigurðsson erindreki Al-
þýðusambandsins, og Alþýðu-
blaðið, hafa haldið því fram,
að kjarabætur þær, sem starfs-
fólkið í verksmiðjum S. í. S.
hafa fengið undanfarin ár, séu
að þakka áróðri Jóns. Þetta er
hreinn misskilningur. Hitt væri
sönnu nær, að komast svo að
orði, að fólkið hefði fengið
kjarabætur þrátt fyrir áróður og
róg óviðkomandi manna.
Síðan S. í. S. eignaðist verk-
smiðjurnar hefir verið reynt að
koma á launafyrirkomulagi, sem
tryggði starfsfólkinu það, að
hver nyti sem bezt dugnaðar
sins og kunnáttu. Þessvegna
hafa allir vefarar „premíu" auk
fastakaupsins, og ákvæðisvinna
viðhöfð og í undirbúningi þar
sem því veröur viðkomið. Telj-
um við þetta vera í samræmi
við stefnu samvinnumanna í
viðskiptum og fi'amleiðslu og
munum ekki óneyddir hvika
frá þeirx'i stefnu.
Menn geta nú borið saman
launakjör þau sem starfsfólk í
verksmiðjum S. í. S. hefir, og
laun þau, sem Jón Sigurðsson
heimtar. Sézt á þeim saman-
burði, að fólk, sem unnið hefir
nokkur ár í verksmiðjunum,
hefir því nær sömu laun og há-
markslaun Jóns Sigurðssonar, og
sumt hærri laun. Aðalmunur-
inn liggur í því, að eftir taxta
„verkfallsforkólfanna“ komast
allir á sömu laun eftir fyrsta
starfsái'ið. Verður nánar vikið
að þessu síöar.
Þegar S. í. S. hóf verksmiðju-
starfsemi á Akureyri, var það
meöfram gei't vegna þess, að
þar hefir verið tiltölulega ó-
dýrt að lifa, eftir því sem gerist
í bæjum hér á landi. Virðist lít-
il fyrirhyggja í því, að setja iðn-
aðarfyrirtækin aðallega þar, sem
dýrast er að lifa. Þetta er viður-
kennt af flestum. Til sönnunar
má geta þess, að Hið íslenzka
prentarafélag heimilar að greidd
séu 20% lœgri laun á Akureyri
en i Reykjavík. Eftir þessu ætti
hámarkstaxti Jóns Sigurðsson-
ar að vei-a kr,- 240,00 á mánuði,
því hámarkslaun hjá félaginu
Iðja í Reykjavík er kr. 300,00 á
mánuði.
Verkamönnum Akureyrar og
forráðamönnum, hlýtur að vera
það ljóst, að ef bæjarfélagið hef-
ir engin hlunnindi að bjóða til
iðnreksturs umfram dýrustu bæi
á landinu, þá muni ekki þurfa
að vænta mikillar þróunar á iðn-
aðarmálum bæjarins í framtíð-
inni.
Eins og kunnugt er nota um-
ræddar verksmiðjur eingöngu
íslenzkar efnivörur til fram-
leiðslunnar: ull, húðir, skinn og
gærur. Frá viðskiptalegu sjón-
armiði er það bændum, sem
framleiða þessar vörur, enginn
beinn ávinningur að láta vörur
sínar til verksmiðjanna. Vör-
urnar eru ætíð seljanlegar á
heimsmarkaðnum og verksmiðj-
urnar borga heimsmarkað'sverð
fyrir þær á hvei'jum tíma. Bænd
ur, og aðrir samvinnumenn,
sem hafa komið upp þessum
vei’ksmiðjum, eru aðalkaupend-
ur þeirra vara, sem verksmiðj-
urnar framleiða. Það liggur
því í augum uppi, að ef ekki er
hægt að framleiða þessar vörur
það ódýrt, að þær þoli nokkurn-
veginn samanburð við samskon-
ar vörur, sem hægt er að kaupa
frá útlöndum, þá hlýtur þessi
iönaöur að leggjast niður.
Ég held þess verði varla kraf-
izt með neinni sanngirni, að
bændur fari að halda uppi
áhættusömum verksmiðjurekstri
til að vinna úr framleiðsluvör-
um sínum, eingöngu til þess að
tryggja verkafólkinu vissari af-
komu og betri kjör en þeir búa
við sjálfir. En ég vil fullyrða, að
allir miðlungsbændur að efnum,
og þar fyrir neðan hafa meira
erfiði og ótryggari afkomu, en
starfsfólk verksmiðjanna hefir
nú.
Einn af starfsmönnum Gefj-
unar var bóndi. Hann var
sæmilega duglegur maður, en
varð að hætta búskap vegna fá-
tæktar. Hann flutti til Akureyr-
ar, en komst þar í enn meiri
fátækt og varð að þiggja af
sveit. Skömmu síðar, fékk hann
vinnu í Gefjuni og festi kaup í
býli utan við Glerá. Býlinu fylgdi
nokkur grasnyt, svo hann gat
haft eina kú. Þessi maður er nú
búinn að vinna í verksmiðjunni
í 5 ár og á nú býlið því nær
skuldlaust, og hefir enga fjár-
hagslega hjálp fengið aðra en
afi'akstur vinnu sinnar. Get ég
um þetta þeim til athugunar,
sem leggja trúnað á rógmæli
þeirra manna, sem halda því
fram að S. .í. S. greiði verka-
fólki sínu þau sultarlaun, að
ekki sé viðhlítandi.
Verði gengið að því að greiða
hin heimskulega háu byrj-
unarlaun, sem „verkfallsmenn"
fara fram á, er bersýnilegt, að
þessi nýbyrjaði iðnaður verður
lamaður svo, að tvísýnt er að
hann geti haldið áfram, og því
síður eru nokkrar líkur til að
hliðstæður iðnaður muni byrja,
með þeim kjörum, sem búin eru
Framli. á 4. síSu.