Nýja dagblaðið - 15.12.1937, Síða 1
Skrifstofur
IVýja dagblaðslns
Lindargötu 1 D.
Símar: 2353 og 4373.
Afgreiðslan
Hafnarstræti 16. Sfmi 2323.
^D/^QplBIL^iÐIHÐ
5. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 15. desemb. 1937. 291. blaS
Styrkur tíl bænda á fjár-
pestarsvæðinu
150 þús. kr. vaxtahjálp, 110 þús. til vega-
gerðar, þrefaldur jarðabótastyrkur til fram-
ræslu og túnasléttunar, og styrkur til
rjómabúa og gróðurhúsa.
ANNÁLL
349. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 10.21. Sólarlag kl.
2.24. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
3.05.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3.00 síðdegis til kl. 9.10 f. h.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson, Ránar-
götu 12, sími 2234. Næturvörður er í
Lyfjab. Iðunn og Reykjavikur Apoteki.
Dagskrá útvarpsins:
8.30 Enskukennsla. 10.00 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr.
18.45 íslenzkukennsla. 19.10 Veðurfr.
19.20 Þingfr. 19.40 Auglýsingar. 19.50
Préttir. 20.15 Kvöldvaka: a) Jón Bald-
vinsson alþ.fors.: Prá Orkneyjum, II.
b) Jóhannes úr Kötlum les upp úr
hinni nýju kvæðabók sinni „Hrímhvíta
móðir".
Landsfundur bænda
stóð yfir hér í Reykjavík fyrir
nokkru síðan. Aðalmálin, sem fundur-
inn hafði til meðferðar, voru raflýsing-
ar í sveitum og baráttan gegn borg-
firzku sauðfjárpestinni. Lagði fundur-
inn áherzlu á, að ekki yrði kvikað frá
þeirri stefnu, sem upp hefir verið tek-
in, að hamla útbreiðslu hennar svo sem
auðið verður, og reyna jafnframt að
finna meðöl til lækningar við henni.
Jafnframt voru tillögur gerðar um
það, á hvern hátt bezt væri að draga úr
þvl tjóni, sem af henni leiðir í þeim
landshlutum, sem útbreiðsla hennar
verður ekki lengur torvelduð. — t raf-
magnsmálunum samþykkti fundurinn
áskorun þess efnis að rannsaka þyrfti
skilyrði til rafvirkjunar í sem flestum
byggðum landsins og útvega fjármagn
tU framkvæmda, þar sem slík rann-
sókn sýndi álitlega möguleika. Kosið
var í stjórn Landsambandsins og var
öll stjórnin endurkosin, en í henni eiga
sæti Ólafur Bjarnason, Brautarholti,
formaður, Gestur Andrésson, Hálsi,
Jón Hannesson, Deildartungu, Sigur-
grímur Jónsson, Holti, og Hafsteinn
Pétursson, Gunnsteinsstöðum.
Lögreglan
gerði fyrir nokkrum dögum síðan
tUraun til þess að koma á hljóðlátari
umferð heldur en verið hefir. Hið
stöðuga bifreiðaorg, oft jafnt á nótt
sem degi, olli óþörfum og óþolandi há-
vaða. Nú hefir bifreiðastjórum verið
bannað að þeyta horn sitt I því skyni
að gefa viðskiptavinum til kynna komu
sína og yfirleitt alltaf, nema um-
ferðin gefi sérstakt tilefni. Umferðin
hefir líka strax tekið á sig annan blæ
og bifreiðastjórar virðast t. a. m. aka
gætUegar heldur en oft átti sér áður
stað. Svo virðist lika, sem þögla um-
ferðin sé betur fallin til að þroska eft-
irtekt bifreiðarstjórans, í stað þess, að
áður fannst ýmsum nægUeg varúð, ef
hljóðmerki var gefið til viðvörunar
öðrum vegfarendum.
tsfiskssala.
HvassafeU og Max Pemberton hafa
selt ísfisk í Grimsby, Hvassafell 1079
vættir bátafískjar á 805 pund ster-
ling og Max Pemberton 968 vættir fyrir
1199 pund sterling.
„Leynisamningur.“
Alþýðublaðið er alltaf að tala um
einhverja „leynisamninga1 í sambandi
við sUdarverksmiðjumar. Hvað á blað-
lð við? Voru kannske gerðir einhverj-
ir leynilegir samningar milli sósíalista,
kommúnista og íhaldsmanna um að
halda áfram þeirri stefnu, að verk-
smiðjurnar geti haft aðstöðu tU að fé-
fletta sjómenn? En þessir þrir flokkar
hafa hjálpazt til að koma slikum á-
kvæðum inn í lögin.
Þorlákur þreytti
verður leikinn á morgun með lækk-
uðu verði og er þetta næst síðasta sýn-
lng.
Skipafréttir.
Esja var á Þórshöfn í gærkvöldi.
Súðin er á leið til Englands. — Gull-
foss kom frá útlöndum í nótt. Goða-
foss er í Reykjavík. Brúarfoss er á
Siglufirði. Dettifoss fór frá Vestm.-
eyjum í gær. Lagarfoss er á leið tU
Kaupmannahafnar frá Hamborg. Sel-
foss fór frá HuU I gærkvöldi áleiðis tU
Reykjavíkur. — Lyra kom i gær.
Kröíur
Bandaríkja-
stjórnar
Keisariim verðnr
að biðjast í'yrir-
gefningar og Jap-
anir að greiða
fullar skaðabæt-
ur.
KALUNDBORG:
í mótmælaskjali því, sem Banda-
ríkjastjóm hefir sent japönsku stjórn-
inni í tilefni af því að fjórum amerísk-
Franklin D. Roosevelt
um skipum hefir verið sökkt, fer
Bandaríkjastjórn fram á það, að Ja-
panskeisari biðjist sjálfur afsökunar á
þessum atburði og lýsi yfir þvi, að slikt
skuii ekki koma fyrir aftur. Er þetta
mótmælaskjal hið harðorðasta sem
Bandaríkjastjórn hefir nokkra sinni
látið frá sér fara, og þessi krafa á
hendur keisaranum eins dæmi.
Jafnframt ki'efst Bandaríkjastjórn
að greiddar verði fullar skaðabætur og
Japanir gerði ráðstafanir til að vernda
líf og eignir amerískra borgara í Kína.
Blöð í Bandaríkjunum ræða 1 gær
mikið um þetta mál og eru afar gröm
í garð Japana. T. d. segir New York
Times" að mikil ástæða sé til að efast
um að japanska stjórnin geti gefið
neina tryggingu fyrir því að slíkir at-
burðir komi ekki fyrir aftur, og yfir-
leitt séu yfirlýsingar Japana ekki
meira virði en pappirinn sem þær eru
ritaðar á. Loforð þeirra um að ráðast
ekki á skip og þegna annarra þjóða,
séu viölíka eins og þegar að ræningjar
lofa því að skjóta ekki. Önnur blöð í
Bandaríkjunum minna á það, að síð-
ustu dagana hafi japanska stjórnin
mátt biðja Bretland og Bandaríkin
ellefu sinnum afsökunar fyrir móðg-
anir sem hafðar hafa verið i frammi
við skip eða þegna þessara ríkja. PÚ.
Hríðarveður
af norðaustri var norðanlands í gær
og lá Brúarfoss veðurtepptur á Siglu-
firði. — FÚ.
Kaupfélag ísfirðinga
hefir keypt svonefnda Edinborgar-
eign i ísafirði og ætlar að reka þar
kolaverzlun, fiskverkun og slátran. PÚ.
í dag verður lagt fram í neðri
deild frv. til laga um styrk til
bænda, sem orðið hafa fyrir
tjóni af völdum mæðiveikinnar.
Frv. er flutt af landbúnaðar-
nefnd neðri deildar, en það er
undirbúið af landbúnaðarnefnd-
um beggja deildanna og er fullt
samkomulag um afgreiðslu þess.
Aðalefni frv. er á þessa leið:
Rikissjóður leggur fram 150
þús. kr. á næsta ári til að greiða
vexti af veðlánum þeirra bænda,
sem komizt hafa í greiðsluþrot
vegna fjárpestarinnar.
Atvinna sé aukin á fjárpestar-
svæðinu með auknu framlag til
sýslu- og hreppavega. Upphæð
þessi er ákveðin 110 þús. kr.
NýttKínaveldi
undír yfírstjórn
Japana
Mótþrói gegu Jap-
önum í Norður-
Kína.
LONDON:
Konoye prins, forsætisráðherra Jap-
ana, tilkynnti í ræðu í gær, að bráða-
birgðastjórn nýs kínversks lýðveldis
hafi verið sett á stofn í Peiping undir
yfirstjórn Japana.
Hann sagði, að erlendar stjórnir
hlytu að gera sér ljóst, að Japanir gætu
ekki hætt stríðinu fyrr en Kínverjar
legðu niður vopn.
Ýmsar fréttir frá Norður-Kína
benda til að Japanir séu langt frá því
einvaldir á því svæði, sem þeir telja
sig hafa tekið. Bæði kínverskir þjóð-
ernissinnar og kommúnistar virðast
hafa þar stór landsvæði á valdi sínu.
— PÚ.
Stúka stofnuð
Síðastliðinn laugardag var stofnuð í
Biskupstungum stúkan Bláfell nr. 239
og átti stúkan Framtíðin hér í Reykja-
vík mestan þátt í þvi. Stofnendur voru
30 og var æðsti templar hinnar nýju
stúku kosinn Einar Sígurfinnsson
bóndi bóndi að Iðu og varatemplar frú
Sigurlaug Erlendsdóttir að Torfastöð-
um.
Hafa því menn í Biskupstungum,
þar sem um langan aldur var eitt að-
almenningarsetur landsins, riðið á
vaðið og stofnað hina fyrstu undir-
stúku í Árnessýslu.
Bændur, sem orðið hafa fyrir
tjóni af völdum veikinnar, fá
þrefaldan j arðabótastyrk til
framræslu og túnasléttunar.
Veittur sé styrkur til stofnun-
ar eins eða tveggja rjómabúa,
sem fyrirhuguð eru I Húna-
vatnssýslu. Styrkurinn verði
helmingur stofnkostnaðar, eða
10—20 þús. kr.
Veittur sé styrkur til gróður-
húsa, sem félagsskapur bænda i
Reykholtsdal hefir í hyggju að
reisa. Styrkurinn sé þriöjungur
stofnkostnaðar, eða 5 þús. kr.
Landbúnaðarráðherra skipi
þriggj a manna nefnd samkvæmt
tillögum landbúnaðarnefnda
þingsins, til að hafa þessar
framkvæmdir og úthlutun fjár-
ins með höndum. Nefndin skal
ennfremur reyna að semja fyrir
bændur um afborgunarfrest á
lánum.
Fall Nankíng
Mikíð mannfall
LONDON:
í gær bárust engar fréttir frá Nan-
king. En Japanir segjast hafa náð
borginni á vald sitt 1 fyrradag og siglt
nokkrum af herskipum sínum þangað.
Þegar úrslitaorrustunni lauk, segja Ja-
panir að ekki hafi verið nema 3000
manns eftir af hinu kínverska setuliði,
sem upphaflega var 20 þús. manns.
Japanir segjast ennfremur hafa
skotið um þúsund manns, sem reyndu
að flýja yfir fljótið.
Kínverjar óttast að eitthvað af liði
þeirra sé enn imiilukt í Nanking.
í gær var falis Nankingborgar
minnzt hátíðlega í Tokio, m. a. með
stórri skrúðgöngu skólabarna.
Kínverjar viðurkenna að Japanir
hafi tekið Pu-kow. — PÚ.
Hervarnír Breta
LONDON:
í lávarðadeildinni ensku var til ann-
arar umræðu frumvarpið um varnir
gegn loftárásum. í því sambandi var
meðal annars skýrt frá því að búið
væri að framleiða 20 milljón gasgrím-
ur til afnota fyrir brezka borgara, ef
til styrjaldar kæmi og að 10 þús. lækn-
ar og jafnmargar hjúkrunarkonur
hefðu fengið sérstakan undirbúning
undir það að gegna störfum í hernaði.
— FÚ.
á þessu
kjörtímabili
Vaxtabyrðin
hefír aukizt
um þriðjuug
Samkv. reikningum Reykj a-
víkut, fyrir árið 1936, hafa
skuldir bæjarsjóðs hækkað um
næstum 400 þús. kr. á þvi ári.
í árslok 1933 voru skuldir bæj-
arsjóðs 3.366 þús. kr. Síðan hafa
þær verið sem hér segir:
1934 3.909 þús. kr.
1935 4.802 — —
1936 5.174 — —
SkuldiT bæjarsjóðs hafa því
verið 1.808 þús. kr. hærri í árs-
lok 1936 en þær voru í byrjun yf-
irstandandi kjörtímabils, um
áramótin 1933—34. Á þessu ári
er sízt ástæða til þess að búast
við minni skuldahækkun en
undanfarin ár, og sést þá, að
skuldir bæjarins hafa alltaf
hækkað um meira en tvær mill-
jónir króna á yfirstandandi
kjörtímabili.
í þessu sambandi er vert að
athuga vaxtagreiðslur bæjar-
sjóðs. Þær hafa numið síðastl.
fjögur ár eins og hér segir:
1933 218 þús. kr.
1934 235 —- —
1935 251 — —
1936 326 — —
Vaxtagreiðslurnar hafa því numið um 108 þús. kr. meira ár-
ið 1936 en 1933, og verða þó án
efa mun hærri á þessu áTi, vegna
aukinnar skuldabyrði.
Athyglisvert er það einnig í
þessu sambandi, að bæjarsjóður
greiddi 60 þús. kr. minna í af-
borgun lána síðastl. ár en gert
var 1933.
Þessar tölur sýna það Ijóslega,
hversu allt hefir stefnt niður á
við hjá bæjarstjórnarmeirihlut-
anum á yfirstandandi kjörtíma-
bili. ískyggilegastar verða þessar
staðreyndir, þegar þær eru séð-
ar í því ljósi, að ekki einum eyri
af þessari stórfelldu skuldasöfn-
un hefir verið varið til eflingar
gagnlegu atvinnulífi i bænum.
Allt þetta fé hefir orðið að
eyðslueyri, vegna aukins skrif-
stofukostnaðaT bæjarins, aukins
fátækraframfæris og atvinnu-
bótavinnu.
Þeir kjósendur, sem af ein-
hverri alvöru og skilningi hugsa
um framtíð bæjarins, geta ekkl
falið sömu mönnum stjórn hans
áfram.