Nýja dagblaðið - 31.12.1937, Blaðsíða 1
Gleðilegt nýjár!
Þöhk fyrir yamla
árið.
Yí/jíi Dagblaðið.
a
ANNÁLL
365. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 10,25. Sólarlag kl.
2,34. — Árdegisháflæður í Reykjavík
kl. 4,30.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3 síðdegis til kl. 10 ár-
degis.
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeídsted, Hverfis-
götu 46, sími 3272.
Áramótaguðsþjónustur.
/ dómkirkjunni: Á gamlárskvöld
Aftansöngur kl. 6, séra Bjarni Jóns-
son, kl. 11%, Sigurbjöm Á. Gíslason
cand. theol. predikar. — Á nýársdag:
Kl. 11, séra Friðrik Hallgrímsson, kl. 5,
séra Bjarni Jónsson, — Á sunnudag:
kl. 11, séra Bjarni Jónsson, kl. 2,
barnaguðsþjónusta, séra Friðrik Hall-
grímsson.
/ fríkirkjunni í Reykjavík: Á gamla-
árskvöld: Aftansöngur, kl. 6. séra Árni
Sigurðsson. Á nýársdag: kl. 2, séra
Árni Sigurðsson. Á sunnudaginn kl.
5, séra Árni Sigurðsson.
/ kaþólsku kirkjunni í Reykjavík:
Á gamlaárskvöld: Þakkarguðsþjónusta
kl. 6. Á nýársdag og sunnudag: Lág-
messa kl. 6% og 8 árd., hámessa kl.
10, og kvöldguðsþjónusta með pré-
dikun kl. 6.
/ Laugarnesskólanum: Á nýársdag
kl. 5, séra Garðar Svafarsson. Á
sunnudag kl. 10,30 árd., barnaguðs-
þjónusta.
/ Aðventkirkjunni: Á nýársdag
kl. 8,30 síðdegis. Á sunnudaginn kl.
8,30 síðdegis.
/ Hafnarfjaröarkirkju: Á gamlaárs-
kvöld: Aftansöngur kl. 11,15, séra
Garðar Þorsteinsson. Á nýársdag kl. 5
séra Garðar Þorsteinsson.
/ fríkirkjunni í Hafnarfirði: Á
gamlaárskvöld: Aftansöngur kl. 11,
séra Jón Auðuns. Á nýársdag: kl. 2,
séra Jón Auðuns.
/ kaþólsku kirkjunni í Hafnarfiröi:
Á nýársdag og sunnudag: Hámessa kl.
9, kvöldguðsþjónusta með prédikun
kí. 6.
/ Bjarnastaðakirkju á Álftanesi: Á
nýársdag kl. 2, séra Garðar Þorsteins-
son.
/ Kálfatjarnarkirkju: Á sunnudag
kl. 2, séra Garðar Þorsteinsson.
Útvarpið.
10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfr. 18.00 Aftansöngur í Dóm-
kirkjunni (sr. Bj. Jónsson). 19.20 Ný-
árskveðjur. 20.00 Fréttir. 20.45 Lúðra-
sveit Rvíkur leikur. 20.45 Karlak. Rvík-
ur syngur. 21.15 Gömul danslög. Þjóð-
sögur (P. Hannesson rektor). Harmon-
íkuleikur. Ýms lög. 23.30 Annáll ársins
1937. 23.55 Sálmasöngur. 24.00
Klukknahringing. 00.05 Áramótakveðja.
00.15 Danslög til kl. 2.
Nýársdagur. 9.45 Morguntónleikar:
a) Árstíðirnar, eftir Glazounow; b)
Lofsöngur, eftir Beethoven (plötur).
10.40 Veðurfr. 11.00 Messa I Dómkirkj-
unni (sr. Fr. Hallgrímsson). 12.15 Há-
degisútvarp. 13.00 Ávarp forsætisráðh.
14.00 Messa í Fríkirkjunni (sr. Árni
Sigurðsson). 15.30 Miðdegistónl. frá
Hótel Borg (stj.: B. Monshin). 19.10
Veðurfr. 19.20 Nýárskveðjur. 19.45 Aug-
lýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Tónl.: Ni-
unda symfonían eftir Beethoven (plöt-
ur). 21.30 Danslög.
Hjónaband.
í gær gaf séra Bjarni Jónsson sam-
an i hjónaband ungfrú Gíslínu Elínu
Eggertsdóttur og Friðrik Guðmunds-
son, bæði til heimilis á Baldursgötu
18.
Hafnarfjarðartogararnir.
Af Hafnarfjarðartogurunum níu eru
sjö farnir á veiðar og fóru þrír þeirra í
gær. Hinir tveir, sem enn eru í höfn,
munu fara út í dag.
Karlakór Reykjavíkur
heldur árshátíð sína í Oddfellow-
húsinu laugardaginn 8. janúar og hefst
hún kl. 8 um kvöldið. Þeir styrktar-
félagar, sem vilja taka þátt í fagn-
aðinum, eru beðnir að snúa sér til
Óskars Gíslasonar c. o. Eimskipafélag-
inu fyrir 5. janúar, og gefur hann all-
ar nauðsynlegar upplýsingar.
Til Strandarkirkju.
Kr. 5,00 frá ónefndum innlagt á
afgreiðsJuna.
rwjiA
ID/^GpIBIL^IÐIMÐ
5. ár. Reykjavík, föstudaginn 31. des. 1937. 304. blað
Framboðslisti FramsóknarUokksíns
víð bæjarstjórnarkosningarn-
ar í Reykjavík 30. jan. 1938
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík hefir
endanlega gengið frá framboðslista Framsóknarflokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar 30. janúar næstkomandi
og verður hann þannig skipaður:
1. Jónas Jónsson, skólastjóri.
2. Sigurður Jónasson, forstjóri.
3. Jón Eyþórsson, veðurfræðingur.
4. Guðm. Kr. Guðmundsson, skrifstofustjóri.
5. Eiríkur Hjartarson, rafvirki.
6. Þórir Baldvinsson, byggingarmeistari.
7. Eysteinn Jónsson, ráðherra.
8. Hilmar Stefánsson, bankastjóri.
9. Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmálastjóri.
10. Björn Rögnvaldsson, húsameistari.
11. Helgi Lárusson, framkvæmdarstjóri.
12. Aðalsteinn Sigmundsson, kennari.
13. Halldór Sigfússon, skattstjóri.
14. Ólafur Þorsteinsson, gjaldkeri.
15. Sigurður Baldvinsson, póstmeistari.
16. Pálmi Loftsson, forstjóri.
17. Stefán Rafnar, skrifstofustjóri.
18. Guðlaugur Rósenkranz, yfirkennari.
19. Edvarð Bjarnason, bakarameistari.
20. Sigfús Halldórs frá Höfnum, fulltrúi.
21. Páll Pálsson, skipasmiður.
22. Jón Þórðarson, prentari.
23. Tryggvi Guðmundsson, bústjóri.
24. Guðmundur Ólafsson, bóndi, Tungu.
25. Gunnlaugur Ólafsson, eftirlitsmaður.
26. Runólfur Sigurðsson, framkvæmdarstjóri.
27. Magnús Stefánsson, afgreiðslumaður.
28. Sigurður Kristinsson, forstjóri.
29. Guðbrandur Magnússon, forstjóri.
30. Hermann Jónasson, forsætisráðherra.
Jónas Jónsson
Sigurffur Jónasson
OKRIÐ
er persónulegt frelsí,
sem ekki má skerða!
Tillaga Bjarna Ben.
á bæjarstjórnarfundi
Fjáhagsáætlun bæjarins var til sið-
ari umræðu á bæjarstjórnarfundi í
gær. Hófst fundurinn kl. 2 e. hád. og
stóðu umræðurnar fram á nótt.
Af hálfu íhaldsmeirihlutans talaði
Bjarni Benediktsson aðallega, en
borgarstjórinn flutti aðeins eina stutta
ræðu um tillögur andstæðinganna.
Gefur það hugmynd um traust íhalds-
ins á borgarstjóranum, að það skuli
frekar velja Bjarna Benediktsson til
að halda uppi svörum fyrir sig.
í ræðum sínum veittist Bjarni eink-
um að tillögum Framsóknarfl. i
fátækramálum. Hélt hann því fram að
sumt af þessum tillögum væri þegar
búið að framkvæma eins og til dæmis
saumastofuna. Hins vegar væri tillag-
an um sameiginleg innkaup á nauð-
synjum handa þurfamönnum bein
árás á persónulegt frelsi manna, því
þeir væru þá sviptir frelsinu til að
verzla við þá kaupmenn, sem þeir
óskuðu helzt að skipta við.
í áframhaldi af þessu lagði Bjarni
fram dagskrátillögu um að vísa þess-
um tillögum frá, með þeim rökstuðn-
ingi að þær væru árás á persónu-
frelsið!
Fulltrúi Framsóknarflokksins sýndi
fram á, að það væri fullkomin fjar-
stæða, að saumastofa sú, sem íhaldiö
hefði komið á fót fullnægði að nema
litlu leyti þeim kröfum, sem gerðar
væru um slíka stofnun í tillögum
Framsóknarmanna, en hún væri þó
spor í rétta átt og virðingarvert af
íhaldinu að taka þar loks upp tillögu,
sem það hefði margoft fellt fyrir
Framsóknarflokknum. En einmitt þessi
vísir til saumastofu afsannaði m. a.
hinar fjarstæðu kenningar Bjarna
Benediktssonar um árás á einstaklings
frelsið, því þurfamenn væru látnir
skipta við hana að svo miklu leyti,
sem hægt væri. Hlyti Bjarni að sjá
sjálfur, að það væri meiri árás á ein-
staklingsfrelsið, að þurfa að kaupa
fatnað á "ákveðinni saumastofu, held-
ur en að fá jafngóðar matvörur á
einum stað frekar en öðrum!
íhaldið samþykkti dagskrártillögu
BJarna elgi að síður og sýndi með því
enn einu sinni, að það vill frekar halda
upp dýru fátækraframfæri en að
skerða að einhverju leyti gróða milli-
liðanna i bænum. Það er eins og
fyrri daginn að okrið og dýrtíðin er
það eina persónulega frelsi, sem
Ihaldið vill vernda.
Guðmundur Kr. Guömundsson
Áramótayfírlít
Ólafs Thors
Hann minnist ekkert
4 ,breiðSylkingu allra
Íslendínga*
Ólafur Thors skrifar í dag
áramótahugleiðingar í Morgun-
blaðið. Er hann óvenjulega
stuttorður og vísar til ræðu
sinnar við eldhúsumræðurnar.
En það var sama ræðan og hann
hefir flutt við eldhúsumræðurn-
ar á öllum þingum síðastl.
fimm ár og látið Morgunblaðið
prenta að mestu leyti upp úr
þingtiðindum við næstliðin
þrjú áramót.
Gefur það góða hugmynd um
frjósemi heilans og að Ólafur
er vel að því kominn að vera
formaður í „neikvæðum" kyrr-
stöðuflokki. En hugsjónavönt-
unin, sem kemur fram í þessum
endurtekningum, lýsir því
mætavel, að til íhaldsins og
formanns þess er engin úrræði
að sækja.
Nokkurn hluta greinar sinnar
helgar Ólafur bæjarstjórnar-
kosningum hér eftir áramótin.
Þakkar hann ihaldinu þar
Prh. á 4. síðu.