Nýja dagblaðið - 04.01.1938, Síða 1
Gleðilegt nýjár! rvrj/\
S»ökk fyrir gamlu árið. | IVt/jíf Dagblaðið. ID/^GflBIL^IÐIHÐ 6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 4. janúar 1938. 1. blað
strætísvagnanna
Bíireiðastjórar hafa
gert verkiall vegna
vangreíðslna
félagsins
Ný stjórn í
Dagsbrún
Héðinn verður
ANN ÁLL
4. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 10,22. Sólarlag kl.
2,44. — Ardegisháflæður í Reykjavík
kl. 6,50.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3 síðdegis til kl. 10 að
morgni.
Næturlæknir
er í nótt Jón Nikulásson, Freyjugötu
42, sími 3003. — Næturvörður er þessa
viku í Ingólfsapóteki og Laugavegs-
apóteki.
Innbrot.
Á sunnudagskvöldið var brotist inn í
búð Þórðar Péturssonar í Bankastræti.
Var tekin úr rúða í glugga á bakhlið
hússins og farið inn í geymsluherbergi
bak við búðina og stolið þaðan nokkr-
um pörum af skóm, en óvíst hve miklu.
Lögreglan hefir málið til rannsóknar.
Trúlofun.
Á gamlársdag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Kristrún V. Jónsdóttir,
Ljósvallagötu 14 og Ásbjörn Jónsson
frá Deildará, Suðurgötu 18, Reykja-
vík.
Jes Zimsen
konsúll andaðist í gær. Banameinið
var lungnabólga.
Fundur í Vestmannaeyjum.
Jónas Jónsson, formaður Framsókn-
arflokksins, og Eysteinn Jónsson fjár-
málaráðherra fóru í gærkvöldi til Vest-
mannaeyja. Munu þeir halda þar
stjórnmálafund i kvöld.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veð-
urfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,40
Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Erindi:
„Þekktu sjálfan sig“, IV (Jóhann Sæ-
mundsson læknir). 20,40 Hljómplötur:
Létt lög. 20,45 Húsmæðratími: Skamm-
degiskvöld í fámenni, II (ungfrú Sigur-
borg Kristjánsdóttir). 21,05 Kantötu-
kór Akureyrar syngur (frá Akureyri).
Söngstjóri: Björgvin Guðmundsson.
21,50 Hljómplötur: Kvartett í F-dúr,
eftir Dvorák. 22,15 Dagskrárlok.
Kappglíma í Vestmannaeyjum.
Hin árlega skjaldarglíma Knatt-
spyrnufélagsins Týs í Vestmannaeyj-
um fór fram á annan dag jóla. Fyrstu
verðlaun hlaut Óskar Einarsson, önn-
ur verðlaun Sigurður Guðjónsson og
þriðju verðlaun Bernódus Þorkels-
son.
Meðal farþega
til útlanda með Gullfossi I gærkvöldi
voru Hermann Jónasson forsætisráð-
herra, Sigurður Jónasson forstjóri og
Guðmundur Hlíðdal póst- og síma-
málastjóri. Fer forsætisráðherra utan
með lög seinasta Alþingis til undir-
skriftar, Sigurður í erindum Tóbaks-
einkasölunnar og Hlíðdal á alþjóðlega
símamálaráðstefnu, sem haldin verður
í Cairo.
Kennsla
hefst að nýju í íþróttaskólanum í
dag.
Bæjarbrut&i
íbúðarhúsið á Ásvelli í Fljótshlíð
brann til kaldra kola á sunnudags-
kvöld. Eldurinn kviknaði út frá olíu-
gasvél, sem verið var að kveikja á.
Bóndinn á Ásvelli, Þorvaldur Kjart-
ansson, brenndist mikið á andliti og
höndum við tilraunir, sem hann gerði
til þess að slökkva eldinn. Var hann
fluttur í sjúkrahúsiö á Stórólfshvoli og
líður honum ekki mjög illa.
Nokkru af innanstokksmunum var
bjargað. Húsið var vátryggt hjá Bruna-
bótafélagi íslands, en lnnanstokks-
munir óvátryggð'ir. FÚ.
Boðskapur
Roosevelts
,,Á vegi lýðræðís-
ins mun heimurínn
ganga inn í ríki
friðarins“
LONDON:
Roosevelt forseti flutti hinn árlega
boðskap sinn til þingsins þegar þing
kom saman i gær, og var ræðu hans
endurvarpað um allar brezkar stöðvar
kl. 6,30 eftir Lundúnatíma.
Forsetinn vék fyrst að ófriðarástandi
því sem ríkti í heiminum ,og sagði
meðal annars að vegna gætni stjórn-
arinnar og sjálfstjórnar þjóðarinnar
hefði tekizt að halda þjóðinni utan
við stríð, enda þótt þau skilyrði hefðu
verið fyrir hendi, sem óhjákvæmilega
hefðu leitt til styrjaldar samkvæmt
hugsunum og venjum fyrri tíma.
Þó taldi hann að of langt mœtti
ganga i því að halda sér utan við þau
mál sem snertu aðrar þjóðir og ef
Bandaríkin œttu að geta haldið áfram
að vera öndvegisþjóð, þá þyrftu þau
að hafa nœgilegt liervald til þess að
tillit vœri tekið til réttar þeirra á al-
þjóðlegum vettvangi.
Á yfirborðinu væri stefnan í dag í
burtu frá lýðræði til einveldis, sagði
forsetinn, en Bandaríkin ætluðu sér
hér eftir sem hingað til að fylgja
lýðræðisstefnunni. Hann taldi það hafa
sýnt sig, að friðinum væri mest hætta
búin af þeim þjóðum, sem annað hvort
hefðu kastað frá sér lýðræðinu eða
aldrei eflt það hjá sér. Hann kvaðst
hafa notað orðin „á yfirborðinu"
vegna þess að hann tryði því ekki að
þær þjóðir, sem byggju við einræði
lytu því nema að nokkru leyti í hjarta
sínu, en myndu fyr eða síðar slíta af
sér höftin. „Vér trúum því“, sagði for-
setinn, „að á vegi lýðræðisins muni
heimurinn í framtíðinni ganga inn í
hið fyrirheitna ríki friðarins." FÚ.
1000 krónum
stolið
Innbrot var framið milli kl.
6—8 síðdegis í gær í íbúðarhús
Runólfs Eiríkissonar rakara á
Njálsgötu 54. Var enginn heima
og hafði þjófurinn komizt inn
í kjallarann og þaðan upp á loft.
Hafði hann tekið peningaskassa
úr ólæstum stofuskáp og auk
þess sparisjóðsbækur með tals-
verðri upphæð. í kassanum voru
um 1000 kr. í peningum.
Lögreglan mun enn ekki hafa
orðið neins vísari um þjófinn.
Bátstrand
Árla á sunnudagsmorgun strandaði
vélbáturinn Þorsteinn úr Reykjavík
framundan Búðum á Snæfellsnesi
innan við Kálfárvallasker. Var bát-
urinn á leið vestur að Arnarstapa að
sækja vikur. Var mjög dimmt er
strandið vildi til, en veður ekki vont.
Skipverjar gengu í land þegar fjara
tók út og hlaut enginn meiðsli. Bát-
urinn er óbrotinn og ekki í mikilli
Stöðvun
F ertugfur
PÁLMl HANNESSON
Pálmi Hannesson rektor átti fertugs-
afmæli í ,gær.
Hann var fæddur 3. jan. 1898 að
Skíðastöðum í Skagafjarðarsýslu. Varð
stúdent 1918 og lauk meistaraprófi
í náttúrufræði við Kaupmannahafn-
arháskóla 1926. Á námsárum sínum
varð hann formaður bæði í dönskum
og íslenzkum stúdentafélögum. Haust-
ið 1926 var hann settur kennari við
gagnfræðaskólann á Akureyri og
haustið 1929 skipaður rektor Mennta-
skólans í Reykjavík. Um nokkur und-
anfarin ár hefir hann átt sæti í út-
varpsráði og Menntaskólaráði. Auk
sinna föstu starfa hefir hann unnið
mikið að ýmiskonar náttúrufræðileg-
um rannsóknum.
Af stjórnmálaum hefir Pálmi haft
lítil afskipti þangað til á síðastliðnu
ári að liann var í kjöri fyrir Fram-
sóknarflokkinn í Skagafirði og hlaut
kosningu sem fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins.
Þegar Pálmi Hannesson, liðlega þrí-
tugur, var skipaður rektor Mennta-
skólans, vakti það mikla andstöðu. En
nú munu flestir á eitt sáttir um, að
sú stjórnarráðstöfun hafi verið vitur-
leg. Svipaðan dóm hefir hann hlotið
fyrir önnur störf, sem hann hefir
tekið sér fyrir hendur.
Landhelgisbrot
Varðskipið Þór tók á gamlaárskvöld
einn Kveldúlfstogaranna, Gulltopp,
að landhelgisveiðum í ísafjaröardjúpi.
Hélt Þór með togarann til ísafjarðar
og játaði skipstjórinn, Halldór Gísla-
son, þegar sekt sína. Var togarinn á
nýársdag dæmdur í 20200 króna sekt
og afli og veiðarfæri gerð upptælc. Afli
togarans var um 200 körfur fiskjar.
Skipstjóri hefir áfrýjað dómnum til
hæstaréttar.
Gulltoppur fór á veiðar að nýju
strax og dómur var fallinn.
hættu, þar eð hann liggur á sandin-
um í hléi við skerið. Er talið líklegt,
að hann náist út, þegar stækka tekur
straum.
Skipverjarnir fimm dveljast enn
vestra.
Á nýársdag hófst verkfall bif-
reiðastjóra hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur h.f. og stendur það
enn yfir. Fyrir tilstuðlan skipu-
lagsnefndar fólksflutninga með
bifreiða er þó ferðum strætis-
vagna haldið upp á þeim leiðum
um, sem sérleyfisbundnar voru,
suður í Skerjafjörð, út á Sel-
tjarnarnes, inn í Sogamýri og
að Kleppi. Lánar Steindór Ein-
arsson vagna til þessara ferða,
en þeim er ekið af sömu bif-
reiðastjórum og áður óku bif-
reiðum Strætisvagnafélagsins á
þessum leiðum.
Samningar stóðu yfir í gær og
í fyrradag milli aðila, stjórnar
Strætisvagnafélagsins annars-
vegar og bifreiðastj órafélagsins
Hreyfils hinsvegar.
Enginn árangur mun þó hafa
orðið af þeim samningaumleit-
unum.
Þetta verkfall mun eiga all-
langa forsögu. Um skeið hefir
starfsfólk félagsins átt við að
búa vanefndir um greiðslu
kaups síns og kom þar að bif-
reiðastjórafélagið Hreyfill skarst
í málið fyrir hönd bifreiðastjór-
anna að beiðni þeirra. Skipti þá
skuldin við þá mörgum þúsund-
um króna. Var þá ákveðið að
setja félaginu þá kosti, að það
skyldi greiða bifreiðastjórum
sínum þúsund krónur á hverjum
föstudegi upp í skuldina og
höfðu tvær greiðslur farið fram
fyrir áramótin. Auk þess skyldi
félagið greiða kaupið vikulega,
þremur bílstjórum á dag fimm
daga vikunnar, en sjö á mánu-
dögum. Síðar fékk félagið, að
sögn, einhverja tilhliðrun hjá
formanni Hreyfils um að þurfa
ekki að borga þúsund krónurn-
ar fyr en á mánudögum. En sú
greiðsla, sem fara skyldi fram
í gær mun ekki hafa verið innt
af höndum.
Á gamlaársdag fór ekki fram
greiðsla á kaupi þeirra þriggja
bifreiðastjóra, sem þá áttu að fá
útborgað. Leiddi það með tilliti
til fyrri dráttar á kaupgreiðslu
til vinnustöðvunar. Jafnframt
kref j ast bifreiðastj órarnir, að
undirritaðir verði nýir samning-
ar, því að hinir gömlu giltu ekki
nema til áramóta og ennfremur
telja þeir ásigkomulag sumra
strætisvagnanna óviðunandi,
enda tók bifreiðaeftirlitsmaður
ríkisins nokkra þeirra úr notkun
(Framhald á 4. síðu.)
formaður
Trúnaðarmannaráð Dagsbrún-
ar mun hafa lokið tillögum sín-
um um skipun manna í stjórn
félagsins á næsta ári og mun
kosning því hefjast næstu daga.
Eftir því, sem blaðið hefir frétt,
munu tillögurnar vera á þessa
leið:
Héðinn Valdimarsson formað-
ur.
Guðjón B. Baldvinsson vara-
formaður.
Þorsteinn Pétursson fjármála-
ritari.
Kristínius Arndal ritari.
Sigurbjörn Björnsson gjald-
keri.
í fráfarandi stjórn voru tveir
þeirra siðastnefndu og Guðm.
Ó. Guðmundsson formaður, Sig-
urður Guðmundsson fjármála-
ritari og Þorlákur Ottesen vara-
formaður.
Eins og þessi listi ber með sér
er hér um fullkomna samfylk-
ingu að ræða milli kommúnista
og vinstra arms socialista og
hægfara j afnaðarmönnum eins
og Sigurði og Þorláki er því
sparkað úr stjórninni og menn
eins og Þorsteinn Pétursson og
Framh. á 4. siðu.
Nýja
neðamnálssagan
Berta Ruck er einn vin-
sælasti skáldsagnarithöf-
undur Englendinga. Bækur
hennar hafa verið prent-
aðar í stærri upplögum, en
flestra annara höfunda,
sem skrifa léttar skáld-
sögur.
Upphaflega var Berta
Ruck málari, en brátt
snerist hugur hennar að
smásagnagerð. Síðar fór
hún að skrifa skáldsögur
og náði þegar feikna vin-
sældum. í sögum hennar
er minna um morð og glæpi
en hjá flestum öðrum hlið-
stæðum rithöfundum.
Festarmey forstjórans,
hin nýja neðanmálssaga
Nýja dagblaðsins, sem
heitir á frummálinu: „His
official fiancée" er talin
hennar bezta saga.