Nýja dagblaðið - 04.01.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 04.01.1938, Blaðsíða 2
2 NÝJA DAGBLAÐIÐ •Jarðarför móður minnar Susle Brlem £. Tayior er andaðíst 29» fi. m., fier firam fiöstudag- inn 7. p. m., firá Krists konungs kirkju í Landakoti kl. 10 fi. h. Sigurður H. Briem. Hefii filutt lækninga- stofiu ntína á Skóla- vörðustíg 21 A. Viðíalstími kl. 2—3,30. Sími 2907. Ofeígur J. Ofeigsson læknir. Rafsuða Nokkrar leiðbeiningar um notkun rafimagns- eldavéla, svo og uppiýsíngar um verð á rafi- magni til almennrar heimiiisnotkunar, fiást ó- keypis á skrifistofiu Rafimagnsveitunnar. Rafmagnsveíta Reykjavíkur. VIRGtNIÁ 20 sik Pákkínn í^ostcir Fást i óllum verzlurtum. [Isa Stitúss Nýjustu plöturs | Deu gauilc Sang orn En- | hrer. Paryel og paa Gen- « ayn. Spil en Harmonika- | tango. Tag en lille Rejse. | En Gang. Yi er Yeuner. | Seztu hérna hjá mér. Bí bí | og blaka. Ein sit ég úti á | steini. Rósin. Hyar eru | fugíar. Heiðbláa fjólan a mín fríða, með orkester- | undirloik og fiygel; við | hljóðfærið Axel Arníjörð, | Einnig Greta Iíeller plötur | og fleiri vinsælar nýjungar. | Hljóðfærahúsið. K A U P I Ð Garnir Kaupum saltaðar, vel verkaðar garnir og ianga úr kindum, kálfum, nautum og svínum. Gamastöðán, Reykjavík, Sími 4241. ÚTBREIÐIÐ NÝJA DAGBLAÐIÐ. Sýning Menntamálaráðs (Framhald.) Jón Þorleifsson kemur næstur Kjarval á miðjum norðurvegg. Eftir hann eru nokkrar góðar landlagsmyndir, skemmtileg glíma við fegurð Þingvalla og Hornafjarðarós. Er sú mynd sér- staklega þróttmikil og sönn. Blöndal er næstur í röðinni með sinn franska stíl. Yfir myndum haps er suði-æn birta og léttleiki, og er blær hans frumlegur og sérkennilegur svo að myndir hans eru auðþekktar við fyrstu sýn frá verkum annara lista- manna. Myndin af Sigvalda Kaldalóns er að öllu hin prýði- legasta, og ein hin bezta and- litsmynd, sem íslendingur hefir hefir málað af íslendingi. Tón- skáldið minnir á réttan og eðli- legan hátt á ítalskan kardinála, bæöi vegna andlegra og líkam- legra eiginleika. Enn á Gunn- laugur eina mynd af Ijóshærðri Normandi-stúlku, sem jafnan hefir vakið mikla eftirtekt. Var sú mynd eitt sinn í þinghúsinu og síðar í kennarastofu háskól- ans. Risu þar út af henni meiri háttar deilur milli guðfræðinga og lækna. Geta þeir sem koma á sýninguna dæmt um hver hafi beztan málstað. Þá er komin hringferö í saln- um. En á milliveggjum, sem sett- ir eru til bráðabirgða eru mörg ágæt verk eftir hina yngri mál- ara. Kristín Jónsdóttir á þar stóra mynd af þvottakonum við Laugarnar. Eftir Brynjólf Þórð- arson eru fáeinar myndir, en gefa ekki rétta hugmynd um list hans, því að hann er að sumu leyti í röð fremstu að mála andlitsmyndir, og, er vonandi að á næstu sýningu sjáist þess merki. Gunnlaugur Scheving gerði meðan hann var ungur stóra og að mjög mörgu leyti álitlega mynd af tveim sj ómönn- um í róðrarbát. Vakti meðferð hans við að mála hafiö strax eftirtekt, en andlit og útlit sjó- mannanna eru ekki í samræmi við myndarskap og greind ís- lenzkra sjómanna. Eftir Pinn Jónsson er stór nýfengin mynd úr þeim ómgarði sem honum lætur bezt að yrkja, en það er hafið, með austfirzkum bátum. Hafið á myndum Jóns Stefáns- sonar er úr Sundum Danmerkur, milt, létt og brosandi, en haf Pinns er hinn gretti, síkviki og úfni íslenzki sær. Og sjómaður- inn, sem Finnur sýnir koma er nokkurskonar Stjáni blái, lík- Iegur til að sigla beggja skauta byr, beint inn í himininn. Jón Engilberts og Þorvaldur Skúlason eru báðir búsettir er- lendis. Þeir þykja báðir efnilegir menn og hafa fylgt ráði Goethes að fylla hug og hjarta með hug- sjónum samtíðar sinnar og láta verkin síðan fylgja. En þau sýn- ishorn sem til eru af list þeirra eru ekki nægileg til að af þeim verði spáð um framtíð þeirra. Sveinn Þórarinsson hefir gert handa safninu tröllaukna mynd af Herðubreið, með þungum og sterkum þýzkum blæ. Hann á aðra mynd minni, vorleysing í Ásbyrgi. Eftir Eggert Laxdal eru nokkrar myndir, sumar frá Frakklandi, en aörar frá Þing- völlum og Mývatni. Stærsta og yngsta myndin er af Bláfelli og Mývatnsvogum. Munu verða um hana skiptar skoðanir meðal áhorfenda. Eggert Laxdal hefir sinn einkennilega stíl, suðrænan að vísu, án þess að minna á Gunnlaug Blöndal. Ólafur Tú- bals bóndi í Fljótshlíð tók sér ungur til fyrirmyndar þann sem vel mátti læra af, en það var Ásgrímur. Heldur hann áfram stefnu meistarans, en fer þó sín- ar eigin leiðir um margt sem skiptir máli í meðferðinni. Túbals sýnir á þessari mynd hinn fagra garð móður sinnar, og nokkuð af fegurð ættbyggð- arinnar. Landið á engar höggmyndir til að sýna nema tvær brjóst- myndir eftir Ríkarð Jónsson af skáldunum Stephani G. Step- hanssyni og Einari Kvaran og nokkrar lágmyndir af fáeinum öðrum þekktum mönnum eftir sama listamann. Myndu menn vilja eiga margar fleiri af and- litsmyndum Ríkarðar. Þær eru nú yfir 300 og dreifðar um land allt. — Sýning þessi mun verða til að vekja eftirtekt manna á því hve mikil nauðsyn er á því að listamenn landsins, bæði myndhöggvarar og málarar snúi sér að því að gera myndir af samtíðarmönnum sínum. Hefir Ríkarður riðið þar á vaðið og bjargað frá gleymsku miklu meira af svipmóti landa sinna, heldur en nokkur annar íslend- ing fyr eða síðar. Andspænis hinni miklu Herðu- breiðarmynd er mikið danskt málverk, ný gjöf til landsins frá auömanni í Árósum. Sést þar þokkasælt,danskt landslag,slétt- ur, ósar, sund og gulnaðir stakk- ar á akrinum. Myndin er eðlileg, vel byggð og vel máluð. En vel myndi íslenzkum málurum hafa þótt gert til þeirra, ef 20 þús. kr. hefðu verið greiddar fyrir eina mynd af bleikum ökrum. Næstu daga munu koma á sýninguna allmargar nýjar myndir úr þinghúsinu, ráðherra- bústaðnum, skólum og öðrum opinberum byggingum. Þar mun koma Skógarhöll Kjarvals, Sól- setur í Reykj avík eftir Ásgrím og hinir frægu lómar eftir Jón Stefánsson og vetrarmynd eftir Kristján Magnússon, Gullfoss eftir Kristínu Jónsdóttur, gulli roðin sólsetursmynd eftir Finn Jónsson. Síðustu daga sýning- arinnar verður hægt að sjá í sýningarskálanum sanna en ekki tæmandi mynd af íslenzkri málaralist frá síðustu 40 árum. Allir munu verða að viðurkenna að það sé gleðilegur vottur um vöxt og eflingu íslenzkrar menn- ingar að svo miklu skuli hafa verið áorkað í þessari grein, þar sem byrjað var á berum grunni og erfiðleikarnir meiri en nokk- ursstaðar verður með orðum lýst. í gær barst mér sem formanni menntamálaráös tilkynning um nýja og óvænta gjöf til handa málverkasafni landsins. En það var málverk af stofnanda safns- ins, Birni Björnssyni sýslumanni Dalamanna, gefin af börnum hans. Fer vel á því að hið fá- tæka safn, sem enn á ekki þak yfir höfuð sitt, eigi þó frá byrjun mynd þess manns, sem ruddi veginn og byrjaði að safna mál- verkum handa íslandi, áður en nokkur málari var til í landinu. Mun þessi hin nýja gjöf vænt- anlega skipa hertogasess í ís- lenzku listasafni, þegar sú bygg- ing verður reist. J. J.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.