Nýja dagblaðið - 04.01.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 04.01.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 4. JANÚAR 1938. 6. ÁRGANGUR 1. BLAÐ NYJA DAGBLAÐIÐ ‘.v.v.ViGamla Bíó (v.v.v Drotning :■ frumskóganna í Bráðskemmtileg og afar í spennandi æfintýramynd. Aðalhlutverkið leikur \ hin fagra söngkona ;! DOROTHY LAMOUR. |l Myndin jafnast á við beztu í Tarzanmyndir og dýra- I; myndir er hér hafa verið I; sýndar. ■; .v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v Gleðilegs nýjárs óskar öllum lesendum sínum og velunnurum Tímaritið Lífið. aðeins Loftur. T rúarbar áttan (Framh. af 3. síðu.) andi valdi sínu til að uppræta kristindóminn og það með því- líkum hætti að sérhver mótstaða mætir harðri refsingu". „Vér vottum yður innilega hluttekningu“, ávarpa austur- risku biskuparnir ennfremur hina þýzku trúbræður sína, „ekki sízt af þeirri ástæðu að margir munu reyna að skapa samskonar stjórnarfar hérlend- is. Vér treystum því að slíkar til- raunir muni ekki heppnast og vér getum því áfram verið yður til hjálpar". — y- Stærsta mál síðasta Alþíngís (Framh. af 3. síðu.) sinn fyrri trúnað í stjórn síldar- verksmiðjanna. Aðstaða mín til málsins er skýrð með því, sem að framan segir. Undir eins og Jón Sigurðs- son og Páll Þorbjarnarson byrj- uðu að halda leynifundi í stjórn verksmiöjanna á bak við for- manninn, og ákváðu þar að flæma burtu forstöðumann, af því, að hann var reglusamur, duglegur og hugsaði fyrst og fremst um hag verksmiðjanna, þá sá ég, að hér var á ferðinni nýtt „kollumál", að socialistar ætluðu að hefja tvöfalda sókn: Annarsvegar á verksmiðjuna, sem öruggt og vel rekið fyrirr tæki, hinsvegar á einstakan flokksmann, til þess að lama hann fyrst persónulega og síðan landsflokkinn í heild sinni. Ef ég hefði hugsað um það sér í lagi, að koma mér vel við for- ráðamenn socialista, þá var ekk- ert auðveldara en að þegja og láta ranglætið gerast. Það var hægt fyrir mig að segja, að þetta kæmi 1 hæsta lagi við þingmönn- um Eyfiröinga, og ef til vill hin- um fastráðnu starfsmönnum við blöð flokksins. En ég sá enga á- stæðu til að láta þetta ranglæti gerast án mótmæla. Ég hafði í 20 ár átt þátt í að verja aðra flokksmenn, sem að ósekju höfðu verið ofsóttir af öfundar- mönnum og andstæðingum. Ég hafði á þann hátt orðið í augum andstæðinganna einskonar eld- ingavari fyrir flokkinn. Auk þeirra ásakana sem andstæðing- ar beindu að mér sérstaklega, fékk ég venjulega bróðurpartinn af gremju andstæöinganna út af misheppnuðum árásum á mik- inn fjölda af samherjum mínum, oft marga úr hverju kjördæmi. Óvild þeirra manna, sem standa að Alþfl. og nokkurra af for- ráðamönnum Alþfl. til mín er þess vegna auðsæ, því að þrátt fyrir það, að ég hefi oftar en nokkur Alþýðuflokksmaður, greitt götu góðra mála, sem verða máttu til gagns verka- mönnum og sjómönnum, þá hefi ég ekki hikað við, undir neinum kringumstæðum, að verja sam- herja mína fyrir óréttmætum á- rásum, líka frá socialistum. Þess vegna hefir síldarbræðslumálið, vegna ofstopa Finns Jónssonar og Alþbl. snúizt frá því að vera almennt útgerðarmál, upp í að vera frá hálfu þessara manna, einskonar almenn hernaðar- áskorun á mig persónulega. En þetta er algerlega rangt. Það er Framsóknarflokkurinn allur, er hefir barizt og unnið þennan sigur, bæði út af málefnum og mönnum. Og sjálft málefnið er eins stórt og sigurinn. f staö glannalegrar óforsjállar flokks- stjórnar á þjóðnýtingargrund- velli, kemur nú föst, óháð og sterk stjórn á grundvelli sjálfs- bjargar einstaklingsins, sem styðst við lögbundið og þroskað ríkisvald. (Niðurl. næst.) J.J. Stöðvun. strætisvagua Framhald af 1. síðu. fyrir fáum dögum síðan og kærði til lögreglunnar yfir ásigkomu- lagi þeirra. Loks setja þeir það skilyrði fyrir því að vinna hefjist að nýju, að framvegis fari út- borganir vinnulauna fram viku- lega og vangoldin vinnulaun verði tryggð þeim með veði. í stjórn h.f. Strætisvagnar Reykjavíkur eru Ólafur Þor- grímsson lögfræðingur, sem jafn framt er framkvæmdarstjóri, Ólafur H. Jónsson forstjóri h.f. Alliance og Helgi Jónatansson bifreiðarstjóri. Ný Dagsbrúnarstjórn Framhald af 1. síðu. Guðjón Baldvinsson teknir í staðinn. Er nú af sú tíð, sem var fyrir ári síðan, þegar Héð- inn lét breyta lögum Dagsbrún- ar til að útiloka áhrif kommún- ista, og kommúnistar fullyrtu að verið væri „að afsala stærsta verklýðsfélagi landsins í hendur ófyrirleitnum æfintýramönnum undir forystu eins stærsta gróða- brallsmanns landsins". (Þjóð- viljinn 14. jan. 1937). Snæfellingamótið verður haldið að Hótel Borg, laugard. 8. ýan. og hefst með borðhaldi kl. 7 e. m. Listar til áskrifta liggja frammi í Skóbúð Reykjavíkur, Aðalstræti 8, og Tóbaksverzlun- inni London, Austurstræti 14. Aðgöngumiðar seldir á sömu stöðum. íwXw Nýja Bíó X.v.v’.v ■: TöSravald :j tónanna |j í Mikilfengleg og fögur þýzk í; I; tal- og tónlistarmynd frá '\ jj ufa. j: j: Aðalhlutverkin leika ;! \ Lil Dagover, Willy Birgel ;« og fleiri. :■ v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v' OIE?yC3~ h lHi óskast keypt, má vera notað. Tilboð meö tilgreindu verði og tegund leggisr inn á afgreiðslu Nýja dagblaðsins merkt „Orgelu Spoi'öskjurammar, Rúnnir rammar, Veggmyndir, Málverk, í f jölbreyttu úrvali. Myndir innrammaðar. Mynda- og rammav. Sími 2105. Freyjugötu 11. ÚTBREIÐIÐ NÝJA DAGBLAÐIÐ. TERUEL LONDON: Miklar orustur hafa staðið við Teruel undanfama daga. Virðist eins og uppreisnarmönnum hafi veitt öllu betur, en þó viðurkennir stjórn þeirra, að þeir hafi ekki enn náð Teruel á vald sitt. Mikið mannfall hefir orðið í liði beggja. Miklar snjókomur og hörku- frost hafa verið á þessum slóðum. FÚ. BERTA RUCKs Festarmey forstjórans I. KAPITULI. Skilaboðin. „Stúlka, sem á engan unnusta — stúlkur, ég var að lesa um það einmitt í morgun á leiðinni með neðan- jarðarbrautinni,“ sagði ungfrú Holt yfir vinnu sinni — „stúlka, sem á engan unnusta, er eins og skip út í rúmsjó, sem ekki veit hvar það á að leita hafnar —“ „Já, og flestar virðast velja sér unnusta eftir regl- unni: „Að halda í fyrstu höfn, þegar stormur er!“ sagði ungfrú Roþinson og saug lítið eitt upp í nefið að vanda. „Jæja þá! Mér finnst nú vera töluvert vit í því, að lakur eiginmaður sé betri en enginn,“ sagði ungfrú Holt heimspekilega. Hún sat bogin eins og banan yfir ritvélarborðið og brúna hárið var klesst eins og súkku- laði undir hárnetinu. „Þegar öllu er á botninn hvolft, góða mín, þá eruð þér gift, ef þér náið í mann og þá getur enginn sagt annað. En takið þér ekki þeim, sem býðst, þá eruð þér ekki gift!“ „En sá sannleikur!“ sagði ungfrú Robinson, eins og í draumi. „Skilið þér þetta, ungfrú Trant?“ Og hún leit hæðnislega yfir til mín, til þess að sjá, hvort ég skildi þetta algerlega. Ég lézt ekki gera það. Suðan utan úr borginni, sem sífellt heyrðist allan daginn í skuggalega skrifstofuherberginu okkar, var farin að fara í taugarnar á mér, næstum eins og fyrstu vikuna, sem ég vann á skipamiðlunarskrifstofum Vest- ur-Asíufélagsins. Ég leit ekki upp, en þá heyrðist sagt, hvellri röddu, sem yfirgnæfði suðuna úti og inni: „Ungfrú Trant, vlijið þér gera svo vel og finna mig?“ Fingurnir á mér duttu ofan af ritvélinni og ég leit hissa framan í skarplega andlitið á minnsta vika- drengnum, sem við höfðum. „Já, hvað er það, Harold?“ „Ungfrú Trant, herra Waters óskar eftir, að þér komið inn á einkastofu sína klukkan tvö.“ „Ég?“ Ég spurði í mesta fáti; vonaði, að þetta gæti ekki verið satt, að heyrnin hefði til allrar hamingju brugðizt mér. En svo var ekki. „Já, á slaginu tvö, ungfrú." i.Jæja, Harold,“ heyrði ég sjálfa mig segja ótta- blandinni röddu. Þá heyrði ég að dyrnar lokuðust á eftir drengnum. Er ég sneri mér við, mætti ég augnaráði ungfrú Ro- binson. Hún horfði á mig skarplegum, brúnum augum yfir ritvélina sína. „Sendi forstjórinn eftir yður?“ Ég kinnkaði kolli óttaslegin. „Hafið þér nokkra hugmynd um, hvers vegna?“ „O — það gæti verið út af hverju sem er nú í vik- unni,“ andvarpaði ég. „Það gæti verið vegna þess, að ég gleymdi að setja fylgiskjölin í bréfin, sem ég sendi verzlunarsambandinu. Eða vegna þess, að ég sleppti Snúið við! neðst á bréfinu til Budapest. Eða að ég ritaði Belgaí fyrir Belgía, og svo margt annað. Ég vissi, að hr. Dundonald ætlaði að kvarta undan mér. Ég hefi átt það yfir höfði mér síðustu þrjá dagana. Ég býst við að heyra hið versta í dag.“ „Hann gefur yður ef til vill tækifæri, vina mín,“ sagði ungfrú Holt. „Það er ólíklegt,“ mælti ég. „Hann er sjálfur eins og óskeikul vél, að hann líður engan á þessari skrifstofu, mann eða konu, sem ekki er eins og vél líka.“ „Ég býst varla við, að forstjórinn viti einu sinni hvort við erum karlar eða konur,“ skaut ungfrú Ro- binson inn í. „Ég skal veðja að hann----“ „Ekki samtal!“ heyrðist hr. Dundonald segja með sínum óþægilega, skozka hreim, um leið og hann kom inn og gekk inn á skrifstofu forstjórans. Ó, þangað átti ég, Monica Trant, bráðum að fara. Nú varð dauðakyrrð í stofunni, sem aðeins var rofin af tifinu í ritvélunum. En ég er alveg viss um, að það sem ég vann fram á hádegisverðinn, var harla litils virði. Þetta skuggalega vélritunarherbergi, sem sneri út að stórbyggingunum í Leadenhallstræti, — þetta her- bergi, sem var svo dimmt, að við urðum að láta loga á rafmagnslömpum allan daginn yfir ritvélunum, hvarf sjónum mínum. Ég heyrði ekki lengur suð borgarlífsins fyrir utan og hið kveljandi „klikk—klikk —a—klikk—pring—pring —“ í ritvélunum. Ég fann ekki lengur til drungans og ryksins, því ég sökkti mér niður í hugsanir mínar. Kvíðin athugaði ég kringumstæðurnar. Ég var einmana í London. Allir mínir litlu pen- ingar voru farnir í leit að stöðu, sem ég vongóð hélt, að gæti veitt mér að minnsta kosti tveggja punda tekjur á viku. Það myndi verða nóg fyrir mig. Hjá Skipamiðlunarfélagi William Waters & Co., fékk ég stöðu, eftir margra vikna leit, þar sem launin voru É

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.