Nýja dagblaðið - 08.01.1938, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 08.01.1938, Blaðsíða 1
Kosningashrifstofa Framsóhnarfl. er í Hafnarstr. 16 Sími 2323 rvrJA ID/^QilBIL^OHC 6. ár. Reykjavík, laugardaginn 8. janúar 1938. 5. blað ANNÁLL 8. dagur ársins. Sólarupprás kl. 10,14. Sólarlag kl. 2,53. — Árdegisháflæður i Reykjavík kl. 9,20. Ljósatími bifreiða er frá kl. 3,20 síðdegis til kl. 9,50 árdegis. Næturlæknir er í nótt Jón Norland, Bankastræti 11, sími 4348.. — Næturvörður er í Ingólfsapóteki og Reykjavíkurapóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður- fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,40 Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Af- mæliskvöld útvarpsins (dagskrá frá 20. des. 1937) : a) Útvarpshljómsveitin. b) Erindi (útvarpsstjórinn). c) Gaman- leikur. d) Syrpa úr plötusafni útvarps- ins o. fl. Danslög. 24,00 Dagskrárlok. Trúlofun. Nýiega liafa opinberað trúlofun sína ungfrú Gunnþórunn Víglundsdóttir frá Höfða og Þorsteinn Gíslason, vélstjóri, Hafnarfirði. Málverkasýning Finns Jónssonar í Kirkjutorgi 4 verður enn opin í dag og á morgun. Verður það síðasta tækifæri til þess að sjá málverk hans að sinni. Aílasala. Reykjaborg seldi í Englandi í fyrra- dag 1577 vættir ísfiskjar á 780 ster- lingspund og 1200 smálestir saltfiskjar á 162 sterlingspund. Framsóknarmenn, sem náð hafa kosningaraldri síðan að kjörskráin var samin í vor eða féllu niður af kjörskránni þá, eru áminntir um að grípa síðasta tæki- færið til þess að fá leiðréttingu mála sinna. Barnaguðsþjónusta í Laugarnesskóla kl. 10,30 á sunnu- dagsmorgun. Ármenningar fara í skíðaferð í kvöld kl. 8 og í fyrramálið kl. 9. Farmiðar verða seldir í verzluninni Brynju og á skrifstofu félagsins. K.R.-ingar efna til skíðaferðar á morgun kl. 9 f. h. Þeir, sem ætla að dvelja í skálan- um í nótt, fara í kvöld kl. 8. Farið verður frá K.R.-húsinu. Upplýsingar í síma 2130 kl. 5—6. Skíðafélag Reykjavíkur ráðgerir að fara skíðaför upp á Hellisheiði á sunnudagsmorgun kl. 9, ef veður og færi leyfir. Skíðasnjór er fremur lítill, en útlit er fyrir meiri snjókomu. Fólki er ráðlagt að fara varlega. — Farmiðar seldir hjá L. H. Múller til kl. 6 í kvöld. Þjófnaður upplýstur Lögreglunni tókst í gærkvöldi að upplýsa það, hver valdur væri að pen- ingahvarfinu á Bergstaðastræti 8 og reyndist það vera annar eigandinn Kristvin Guðbrandsson. Hafði hann tekið peningana með sér, er hann fór til vinnu. Faldi hann þá á milli hlera í svonefndu Flosaporti við Sölvhóls- götu. Voru þeir í þremur umslögum. Hefir lögreglan fundið tvö umslögin, en í þeim voru um 3150 krónur. Hið þriðja, með um 300 krónum í, hefir enn ekki komið í leitirnar. Hafði í gær verið tekið úr portinu spýtnarusl til álfabrennunnar og þá eitthvað ver- ið rótað við felustaðnum. Alvarlegur atburdur í Shanghaí Tveir enskír log- regluþjónar barð ir af japönskum Framboð Framsóknarflokksins í kaupstöðum Hann býður ekki LILJUR VALLARINS Leikfélagið sýnir um þessar mundir leikritið Liljur vall- arins eftir Hastings-Turner. — Á þessari mynd sést Kitty (Alda Möller) og vinstúlkur hennar. Megn andúð hermönnum LONDON: í Shanghai bar það við í gær, að tveir brezkir lögregluhermenn voru barðir af japönskum hermönnum. Hefir atburður þessi vakið stórkost- lega gremju meðal Breta í Shanghai. Sjálfur yfirforingi brezka liðsins, Smollet, fór á fund hermálaráðunauts japönsku stjórnarinnar þar í borginni og tilkynnti honum að ef slíkir at- burðir endurtækju sig oftar, en þetta er í annað sinn sem slíkt hefir skeð, þá mundi það hafa hinir alvarlegustu afleiðingar sem hugsast gæti fyrir sam- búð þessara tveggja ríkja. Hinir brezku lögregluhermenn voru inni á brezku varnarsvæði, þegar þeir voru barðir og var orsökin til árekst- ursins sú, að þeir höfðu fundið að þvi við japanska hermenn hvernig þeir léku Kínverja, sem þeir voru að hand- taka. FÚ. Ítalía eykur flota sinn Kafbátafloti Itaia verður sá stærsti í heimi LONDON: ítalska stjórnin tilkynnir í gær, að hún hafi í hyggju að' láta smíða 2 stór orustuskip, 35 þúsund smálestir hvort. Auk þess 12 stóra tundurspilla og allmarga kafbáta og er hér sam- tals um stórkostlega flotaaukningu að ræða. Segir Lundúnaútvarpið í þessu sam- bandi, að síðan 1934 hafi Mussolini látlaust verið að kenna ítölsku þjóð- inni að flotastyrk hvers ríkis ætti und- antekningarlaust að miða við hvað mikið það hefði á takteinum af or- ustuskipum. Þegar hinir nýju kafbátar hafa verið smíðaðir, en tala þeirra er ekki látin uppi, má gera ráð fyrir, að kafbátafloti ítala sé orðinn hinn stærsti í heimi. Þá hefir ítalska stjórnin ennfrem- ur ákveðið að þegar Hitler fer til Ítalíu í maí í vor til að endurgjalda heimsókn Mussolinis frá því í haust, þá fari fram stórkostlegar hersýningar og flotaæfingar. FÚ. Vínnufríðurínn í Frakklandi LONDON: Chautemps forsætisráðherra Frakka ætlar enn á ný að gera tilraun til þess að koma á friði í verklýðsmálum landsins. Hefir hann kvatt fulltrúa verkamaima og atvinnurekenda á fund sinn á miðvikudaginn kemur, og ætlar þá að eiga viðræður við þá með þaö fyrir augum að finna grundvöll er byggja mætti á varanlegar sættir í þessum málum. FÚ. Kaupmenn mófmæla rógí Morgunblaðsíns Engin verðhækkun vegna nýju tollanna Morgunblaðið hefir undanfarnar vikur birt margar greinar um það, að seinasta Alþingi hafi lagt gífur- legar tollaliækkanir á matvörur og aðrar nauðsynjar almennings og myndu þær þvi stórhækka í verði. í auglýsingu, sem birtist í Morgunbl. í fyrradag, er þessum ósannindum þess mótmælt mjög eindregiö af fé- lagi matvörukaupmanna í bænum. Þar er skýrt frá því að engin verðhækkun veröi vegna tollahækkana þeirra, sem samþykktar hefð.u verið á þinginu. Stafar þetta vitanlega af því, hvað tollahækkunin er lítilfjörleg, og að kaupmenn treysta sér ekki til þess að nota slíkt tækifæri til verðhækkunar nú, vegna samkeppninnar við kaup- félagið. Ætti Morgunblaðið að láta sér þessa auglýsingu kaupmannanna verða hæfi- lega ráðningu og vera gætilegra í árásum sínum á ríkisstjórnina fram- vegis. Aitökur í Berlín í gær er tilkynnt í Berlín, að þrír menn hafi verið líflátnir fyrir land- ráð. Einn var handtekinn í nánd við pólsku landamærin og var honum gef- ið að sök að hafa látiö öðru ríki í té hernaðarleg leyndarmál; var hann dæmdur til dauða fyrir borgaralegum rétti. Hinir tveir voru dæmdir til dauða af herrétti. FÚ. gegn samSylkíngunni meðal Alþýðuílokks- manna Foríngjarnir höfðu ekki airáðið í gær, sagði Aípýðublað- ið, hvort peir yrðu á lista með komm- únistum Alþýðublaðið skýrir frá því, að samþykkt hafi verið í fulítrúaráði verklýðsfélaganna, með litlum at- kvæðamun að hafa sameiginlega lista með kommúnistum. Jafnframt segir blaðið að samþykkt hafi verið að hafa þann lista þannig skipaðan: Stefán Jóh. Stefánsson (A). Ársæll Sigurðsson (K). Soffía Ingvarsdóttir (A). Jón Axel Pétursson (A). Björn Bjarnason (K). Héðinn Valdimarsson (A). Einar Olgeirsson (K). Haraldur Guðmundsson (A). • Þorlákur Ottesen (A). Katrín Pálsdóttir (K). Alls eru nöfn 18 socialista og 12 kommúnista á listanum. Blaðið segir að það sé ekki víst hvort Alþýðuflokksmennirnir, sem séu tilnefndir, muni taka sæti á listanum. (Framhald á 4. síðu.) íram í Haínaríírðí né á Isaiírði Framboðsfrestur til bæjar- stjórnarkosninga rennur út í dag. Af hálfu Framsóknar- flokksins er boðin fram sérstak- ur listi í sex kaupstöðum. í Hafnarfirði og á ísafirði hefir flokkurinn engan lista, þar sem lítil von er um að koma þar að manni, en meirihluti socialista mjög veikur. Listi flokksins i Reykjavík hefir áður verið birtur hér í blaðinu. Á Akureyri er efstu sæti list- ans þannig skipuð: Vilhjálmur Þór framkvæmdarstjóri, Jóhann Frímann skólastjóri, Árni Jó- hannsson gjaldkeri, Þorsteinn Stefánsson lögfræðingur, Jó- hannes Jónasson fiskimatsmað- ur, Ólafur Magnússon sund- kennari, Snorri Sigfússon skóla- stjóri, Bogi Ágústsson ökumað- ur, Haraldur Þorvaldsson sjó- maður, Guðmundur Ólafsson trésmiður. Á Siglufirði skipa efstu sætin á listann: Þormóður Eyjólfsson konsúll, Sigurður Tómasson kaupfélagsstjóri, Hannes Jónas- son kaupmaður, Ragnar Jó- hannesson framkvæmdastjóri, Andrés Hafliðason kaupm., Frið- leifur Jóhannsson útgerðarmað- ur, Snorri Arnfinnsson bústjóri, Páll S. Dalmar fulltrúi. í Neskaupstað eru efstir á listanum Niels Ingvarsson út- gerðarmaður og Guðráður Jóns- son kaupfélagsstjóri. Á Seyðisfirði eru efstir á list- anum Karl Finnbogason skóla- stjóri og Vilhjálmur Jónsson. í Vestmannaeyjum eru efstir á listanum Halldór Guðjónsson kennari, Sveinn Guðmundsson kaupmaður og Guðlaugur Bryn- jólfsson útgerðarmaður. Er þetta í fyrsta sinn, sem Framsóknar- flokkurinn býður fram við bæj- arstjórnarkosningar þar. trslitin seinast. í seinustu bæjarstjórnarkosn- ingum fékk Framsóknarflokk- urinn tvo menn kosna á Akur- eyri, og auk þess var Jóhann Frímann þá kosinn af sérstök- um lista iðnaðarmanna. Alls eru 11 menn þar í bæjarstjórn- inni, 5 ihaldsmenn, 2 kommún- istar og 1 socialisti. Eins og Alþingiskosningarnar í vor Framh. á 4. siðu.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.