Nýja dagblaðið - 08.01.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 08.01.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 8. JANÚAR 1938. NYIA DAGBLAÐIÐ 6. ARGANGUR 5. BLAÐ ívwOKGamla BíóCCvOw :* Drotníng :• írumskóganna í % Bráðskemmtileg og afar í spennandi æfintýramynd. I; I Aðalhlutverkið leikur hin fagra söngkona DOROTHY LAMOUR. Myndin j afnast á við beztu ;■ Tarzanmyndir og dýra- ;■ í myndir er hér hafa verið í; ;■ sýndar. / V.V.V.V.WmV.WmVmVJ'mWnV UKNELU UTUITÍKII 99 66 LILJUR VALLARINS Söngleikur í 3 þáttum eftir John Hastings Turner. Sýning á morgun kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. Vestmannaeyjaferð (Pramh. af 3. síðu.) inn. Gætu nemendur steypt svo einfalda veggi í hjáverkum framan af vetri, og síðan unnið að húsinu, þegar það væri komið undir þak. Bærinn og landið legðu til efnivið eftir lögunum um gagnfræðaskóla. Eftir svo sem aldarfjórðung yrði timbur- húsið rifið og í þess stað risi fram að götunni sú veglega bygging, sem Vestmanneyingar óska að sé bæjarprýði, jafn- framt því, að hún rúmi allar þær núverandi deildir, sem kaupstaðurinn telur sér fært og heppilegt að hafa til að búa borgara framtíðarinnar undir hin daglegu störf og félagslíf samtíðarinnar. Frh. J. J. M.s. Dronning Alexandríne fer mánudaginn 10. þ. m. kl. 6 síðd. til ísafjarðar, Siglufjarð- ar, Akureyrar; þaðan sömu leið til baka. Farþegar sæki farseðla fyrir kl. 3 e. h. í dag, Fylgibréf yfir vörur komi fyrir kl. 3 í dag. Skipaafgreiðsla JES ZIMSEN. Tryggvagötu. Sími 3025. Framboð Framsóknar- ílokksíns Framhald a/ 1. síðu. sýndu hefir Framsóknarflokkur- inn stóraukið fylgi sitt á Akur- eyri síðan 1934. Á Siglufirði voru tveir Fram- sóknarmenn kosnir í bæjar- stjórnina 1934,þrír íhaldsmenn, tveir socialistar og tveir komm- únistar. Mun Framsóknarflokk- urinn fá þar verulega meira fylgi nú en þá og verður það vonandi svo mikið, að hann bæti við sig þriðja manninum. Á Seyðisfirði var haft sameig- inlegt framboð með socialistum 1934 var Karl Finnbogason þá í vissu sæti. í Neskaupstað fékk Fram- sóknarflokkurinn einn mann kosinn, en sosialistar fengu ein- ir meirihluta 1 bæjarstjórninni. Á báðum þessum stöðum mun það koma í ljós, að fylgi and- stæðinganna er i rénun, en Framsóknarflokkurinn vex að sama skapi. Umsóknir um námsstyrk samkvæmt ákvörð- un Menntamálaráðs (kr. ÍO.OOO), sem velttur er á fjárlögum árs- ins 1938, sendlst ritara Mennta- málaráðsins, Ásvallagötu 64, Reykjavík, fyrir 10. febr. 1938. Styrkinn iná veita konum, sem körlum, til hvers þess náms, er Menntamálaráð telur nauðsyn að styrkja. Umsóknir um styrk til skálda og' listamanna sem veittur er á fjárlögum árs- ins 1938 (kr. 5000,00), sendist ritara Menntamálaráðs Ásvalla- götu 64, Reykjavík, fyrir 10. febrúar 1938. Megn andúð Framhald af 1. síðu. Ennfremur skýrir blaðið frá því, að Héðinn Valdimarsson, Þorlákur Otte- sen og kommúnistarnir, sem eru i efstu sætunum, hafi verið kosnir með nær helmingi færri atkvæðum en hinir raunverulegu socialistar. Bendir frásögn blaðsins mjög til þess að mikil óánægja muni vera í Alþýðuflokknum út af „sambræðsl- unni“ við socialista og er það vel skiljanlegt. tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiMiiiiiiiiiiiii*iiiii*ii*iiin ÚTBREIÐIÐ NÝJA DAGBLAÐIÐ. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiin KAI/PI0 aðeins Loftur. Xýy.v: Nýja bíó |: Töfravald :■ tónanna í :: í Mikilfengleg og fögur þýzk V tal- og tónlistarmynd frá í; í Ufa. í; í :; ■; Aðalhlutverkin leika \ / Lil Dagover, Willy Birgel V \ og fleiri. í í ■: w.\w.mwáwftv.\\w Súðin fei* í strandferð vestur og norður (í stað e s. »Esja«) míðvikudag 12. þ. m. kl. 9 síðd. Tekið á móti flutn- íngi á mánudag. Pantaðir farseðlar óskast sóttir degi fyr- ir burtferð. Ódýrar vornr: Matardiskar dj. og; gr. 0,50 Bollapör, postulín 0,65 Matskeiðar og gafflar 0,75 Sykursett, postulín 1,50 Kaffistell, 6 manna 15,00 Kaffistell, 12 manna 23,50 Matarstell, 6 manna 19,50 Ávaxtastell, 6 manna 4,50 Vínstell, 6 manna 6,50 Ölsett, 6 manna 8,50 Vínglös 0,50 o. m. fleira ódýrt. K. Einarsson & Björnsson. Bankastræti 11. FESTARMEY FORSTJÓRANS 4 Ef þér leitið fyrir yður þar sem mannleg vera ræður yfir----■“ „Og ef það verður skammt frá, þá getur hún komið og borðað með okkur, eins og ekkert hefði í skorizt,“ mælti ungfrú Holt. „Hún er nú ekki farin ennþá,“ sagði ungfrú Robin- son hughreystandi. „Hvernig lízt yður á þessar kökur, ungfrú Trant? Takið þá, sem er skárst og ég borga, og verði yður að góðu!“ # Þegar klukkuna vantaði stundarfjórðung í tvö, sner- um við aftur til skrifstofunnar. Ég fór og þvoði mér í búningsherberginu. Ég leysti hár mitt. Hárið er það, sem ég er hreykin af. Það er þétt, silkimjúkt og sítt. „Það er hrafnsvart við hun- angshvítan hörundslitinn," eins og Sidney Vandeleur sagði einu sinni. Hann getur verið svo skáldlegur. (Æ, hvers vegna var ég ekki að búa mig undir að hitta hann, í stað þessa einstrengingslega forstjóra?) Ég set hárið vel upp aftur, næli það vandlega og athuga að allt fari vel að aftan. Þetta var gert án alls tillits til „steingerfingsins", sem myndi tæplega hafa tekið eftir því, þótt allar vélritunarstúlkurnar hefðu verið sköllóttar, svo lengi sem þær voru duglegar, heldur vegna þess, að það gerði mig lítið eitt styrkari, ef ég liti ólastanlega út. Samtímis og klukkan sló tvö, barði ég varlega að dyrum á einkaskrifstofu hr. Waters. „Kom inn!“ kallaði röddin, sem allir óttuðust. Það var rödd forstjórans. Og með áköfum hjartslætti fór ég inn. 2. KAPITULI. Einkennileg uppástunga. Það virtust vera margar milur frá dyrunum í þessu bjarta, stóra og þægilega búna herbergi, að skrifborð- inu með græna leðurdúknum, þar sem hr. Waters sat og rýndi ofan í bréf. Venjulega var ekkert á borðinu nema minnismappa, sem sýndi hvað fyrir lá að gera á hverri klukkustund, og svo dagatal. Mér virtist óraleið yfir þykka, fagurrauða gólfteppið. Þá varð mér litið á minnisblaðið og sá þar: Klukkan tvö og stórt X fyrir framan, sem átti að undirstrika þetta viðtal, sem nú var í vændum. Ég staðnæmdist auðmjúk við hlið hans. Hann leit hvatlega upp. Hann var vel rakaður, hárið mjúkt og gljáandi eins og silkið í hattinum hans. Munnurinn var eins fast lokaður og pyngja hans. Hann var sönn ímynd hins unga, duglega Lundúna- búa, sem einungis hugsar um fyrirtæki sitt. „Ó, það eruð þér, ungfrú Trant?“ sagði hann í hinum snögga, ákveðna viðskiptatón, sem ungfrú Robinson getur hermt svo vel eftir. Hann sneri sér í stólnum og leit framan í mig. „Gerið svo vel að fá yður sæti.“ Ég var þakklát fyrir að fá að setjast. Ég held að vísu, að andlitið á mér hafi ekki ljóstrað neinu upp, en hnén voru blátt áfram farin að skjálfa. Hr. Waters benti mér á gríðar stóran, grænan leðurhægindastól. Ég settist á blábrúnina. Ég beit saman tönnunum og beið þess að heyra, hvað harðstjórinn hefði að segja. En hvað það var skrítið, að hann skyldi vera karl- viaður, alveg eins og Sidney Vandeleur. Bara að hann héldi mér ekki lengi; bara að hann segði mér að fara; svo var það búið------ En ég varð alveg undrandi, er ég heyrði, á hverju hann byrjaði. „Jæja, ungfrú Trant. Ef yður er sama, þá ætla ég að spyrja yður nokkurra spurninga. Þér megið ekki álíta þær ósvífnar, því að það er ekki ætlunin, en þær eru nauðsynlegar, eins og málum er háttað. Og þér megið ekki misskilja þær.“ m Er hér var komið, varð hvatlegi svipurinn enn líkari því, sem nú ætti að ræða viðskiptamál. Hann leit augnablik gráu augunum sínum rólega í undrandi btúnu augun mín. Því næst bætti hann við með á- herzlu: „Það er ekkert í þessum spurningum, sem faðir yðar eða skyldmenni gætu á nokkurn hátt styggzt af. Skilj- ið þér?“

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.