Nýja dagblaðið - 09.01.1938, Blaðsíða 1
Kosninyushrifstofa
FrmnsóUnarfl.
er í Hafnarstr. 16
Sími 2323
ID/^GilBIL^ÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, sunnudaginn 9. janúar 1938. 6. blað
Nazistarnir sviku íhaldíð
á síðustu stundu
Fjórir Íramboðslístar
í Reykjavík
ANNÁLL
9. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 10,12. Sólarlag kl.
2,59. — Árdegisháflæður í Reykjavík
kl. 10,10.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 3,20 síðdegis til kl. 9,50 að
morgni.
Næturlæknir
er í nótt Ólafur Helgason, Bárugötu
22, sími 2128. Aðfaranótt mánudags
Ólafur Þorsteinsson D-götu 4, sími
2255. — Næturvörður er þessa viku í
lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavikur-
apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 9,45 Morguntónleikar: Kvartett
í f-moll, eftir Brahms (plötur). 10,40
Veðurfr. 11,00 Messa í Dómkirkjunni
(sr. Pr. H.) 12,15 Hádegisútvarp. 13,00
Enskuk., 3. fl. 13,25 íslenzkuk., 3. fl.
15,30 Miðdegistónleikar frá Hótel Borg
(stj.: B. Monshin). 17,10 Esperantók.
17,40 Útvarp til útlanda (24,52m). 18,30
Barnatími (Fuglavinafélagið „Fönix").
19,10 Veðurfr. 19,20 Hljómplötur:
Danssýningalög. 19,40 Augl. 19,50 Frétt-
ir 20,15 Erindi: Um fjallræðuna, III.
(séra Björn Magnússon). 20,40 Hljóm-
plötur: Slavnesk sönglög. 21,00 Upp-
lestur: Rafn spákarl; smásaga (frú
Unnur Bjarklind). 21,25 Hljómplötur:
Ófullgerða symfónían eftir Schubert.
21,50 Danslög. 24,00 Dagskrárlok.
Félag ungra Framsóknarmanna
heldur fund í Sambandshúsinu
næstk. þriðjudagskvöld. Fundurinn
verður nánar auglýstur í þriðjudags-
blaðinu.
íþróttakennarafélag íslands
heldur aðalfund sinn í dag kl. 3%
og eru félagsmenn beðnir að mæta
við Menntaskólann.
Dósentvísur.
Nýlega er komið út kver, sem hefir
inni að halda um 90 kviðlinga um
dósentsmálið. Eru höfundar ekki nafn-
greindir. Vísur þessar eru undir ýms-
um háttum og harla misjafnar að
bragfimi. Ein hljóðar á þessa leið:
Mannar presta, fráleitt frá
fornum dyggðum víkur,
bannar lesti, aldrei á
útvarps lygðum svíkur.
Sé hinsvegar byrjað á síðasta orð-
inu, er hún þannig:
Svíkur lygðum útvarps á,
aldrei lesti bannar,
víkur dyggðum fornum frá,
fráleitt presta mannar.
Tilkynning
frá Styrktarsjóði sjúklingaáReykja-
hæli. — Dregið var í Happdrætti sjóðs-
ins á skrifstofu sýslumannsins í Ár-
nessýslu 3. jan. s. 1. og komu þessi
númer upp: 5144 Málverk Kjarvals.
6470 Útvarpstæki. 3901 Ljósmyndavél.
3440 Bílferð Rvík—Ak,—Rvík. 2359
Ferð með Eimskip Rvík—Ak. 3701 Pen-
ingar kr. 50,00. 2937 Peningar kr. 25,00.
2070 Peningar kr. 25,00. Munirnir eru
afgreiddir af stjórn sjóðsins gegn
framvísun miðanna.
„Liljur vallarins".
Leikfélagið sýnir söngleikinn Liljur
vallarins í kvöld kl. 8.
Framboð Framsókn-
arilokksíns áSeyðís-
iírðí og Akranesí
Framsóknarflokkurinn hefir lagt
fram lista sinn til næstu bæjarstjórn-
arkosninga á Seyðisfirði. Níu efstu
menn listans eru:
Karl Finnbogason, skólastjóri, Vil-
hjálmur Jónsson fiskverkunarmaður,
Ingimundur Hjálmarssson, bifreiðar-
stjóri, Haraldur Víglundsson löggæzlu-
maður, Sigurður Sigfússon bæjarpóst-
ur, Guðmundur Ólason verkamaður,
Marínó Guðfinnsson, sjómaður, Guð-
mundur Guðmundsson, verkamaður og
Vandræði
Japana
Fjármálaráðherrann
lítur dökkum augum
á ijármálaástandið
KALUNDBORG:
Fjármálaráðherra japönsku stjórn-
arinnar hefir á ráðherrafundi leitt
stjórninni fyrir sjónir að styrjöldin í
Kína hljóti að hafa í för með sér stór-
kostleg útgjöld svo að ekki verði hjá
því komizt, ef styrjöldin heldur áfram,
að taka stór lán. í sambándi við þetta
varar ráðherrann stjórnina við því, að
stórkostlegar lántökur geti vel leitt til
gengishruns, svo að Japan kæmi til að
standa í svipuðum sporum, eins og
Þýzkaland eftir ófriðinn mikla.
Tólf japönsk herskip og flutninga-
skip kom í gær til Tsingtao í Shang-
tungfylki, hlaðin hermönnum og her-
gögnum. Er talið að þarna verði lítið
um varnir, enda hafa Japanir höfuð-
borg fylkisins á valdi sínu.
í Shanghai gerast nú daglega við-
burðir, sem valda miklum æsingum.
í gær eltu japanskir hermenn kín-
verska konu inn í franska hverfið og
misþyrmdu henni, áður en franskur
lögregluvörður kom henni til hjálpar.
Lá við sjálft að í orustu slægi milli
Japana og Frakka.
í alþjóðahverfinu var Bandaríkja-
fáni rifinn niður af japönskum her-
mönnum í gær. Hefir fulltrúi Banda-
ríkjanna mótmælt þessum atburði
harðlega. FÚ.
Ssgur stjórnar-
hersins við Teruel
2000 uppreisnar-
menn teknír til
fanga
LONDON:
Uppreisnarmenn biðu mikinn ósig-
ur við Teruel í fyrrinótt. Tók stjórn-
arherinn 2000 hermenn til fanga eftir
að þeir höfðu gefizt upp í neðan-
jarðarskotgröfum.
Þá tilkynnir stjórnin að her hennar
hafi í orustum sunnan við Madrid
gereyðilagt heila herdeild fyrir Franco.
Voru sprengd í loft upp fjölmörg hús,
þar sem lið þetta hafðist við.
Spanska stjórnin hefir með aðstoð
Rauða krossins flutt 2000 manns, aðal-
lega börn og gamalmenni, frá Teruel.
FÚ.
ífalir fá ekki útgerð*
arleyii x Færeyjum
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Fréttaritari útvarpsins í Kaup-
mannahöfn telur sig hafa orðið þess
vísari í gær, að danska stjórnin hafi
endanlega neitað að gefa samþykki
sitt til þess að ítalski fiskikaupmað-
urinn Gismondi fengi leyfi til þess að
setja upp bækistöð fyrir ítalska tog-
ara í Þórshöfn í Færeyjum. FÚ.
Pétur Sigurðsson, skósmiður.
Á Akranesi er listi Framsóknar-
flokksins þannig skipaður:
Sigurður Símonarson, Svavar Þjóð-
björnsson, Þórhallur Sæmundsson, Jör-
gen Hanson, Sæmundur Eggertsson,
Einar Jónsson og Oddur Sveinsson.
Framboðsfrestur til bæjar-
stjórnarkosninganna var út-
runninn í gær. Höfðu þá komið
fram fjórir listar, frá Framsókn-
arflokknum, nazistum, íhaldinu
og „samfylkingu“ kommúnista
og vinstra arms socialista.
Það fór eins og vænta mátti.,
að hægri foringjar socialista,
sem fengu sæti á samfylkingar-
listanum, létu í minni pokann
fyrir ofurkappi Héðins Valdi-
marssonar og þáðu sætin á list-
anum, nema Jón Baldvinsson,
sem ekki mun hafa neina löng-
un til að sýna sig í þessu „sam-
fylkingarliði“.
Á þeim lista, sem Alþýðuflokk-
urinn ætlaði að leggja fram upp-
Verðlaun til nytja-
bezta kúabúsíns
Samband íslenzkra samvinnufélaga
og firmað A/B Separator í Stokk-
hólmi hafa í félagi heitið verðlaun-
um þeim bónda hér á landi, sem hefði
nytjabezt kúabú samkvæmt skýrslum
eftirlits- og nautgriparæktarfélaganna.
Verðlaunin er Alfa-Laval-skilvinda og
strokkur af beztu gerð.
Hefir ráðunautur Búnaðarfélagsins
í nautgriparækt, Páll Zóphóníasson,
reiknað út hvaða bú, meðal þeirra,
sem eru í nautgriparæktarfélögunum,
hafi nytjabeztar kýr. Síðustu skýrslur
um þetta efni eru frá árinu 1936. Við
útreikninginn var ekki einungis tekið
tillit til nythæðar kúnna, heldur og
kosta mjólkurinnar.
Tíu beztu kúabúin reyndust þessir
menn eiga:
Ágúst Jónsson Auðnum í Eyjafirði, P
Elías Steinsson Oddhól á Rangárvöll- j!
um, Einar Þorsteinsson Hallskoti í
Fljótshlíð, Guðmundur Jónsson Múla
við Reykjavík, Guðmundur Sigurðsson
Kluftum í Hrunamannahreppi, Jón
Þórðarson Miðfelli í Hrunamanna-
hreppi og Vilborg Guðnadóttir
Kjós, Stefán Guðmundsson Skipholti í
Hrunamannahreppi, Valdimar Brynj-
ólfsson Sóleyjarbakka í Hrunamanna-
hreppi og Vilhorg Guðnadóttir
Reykjavöllum í Biskupstungum.
Á langflestum þessara heimila er
aðeins mjög fáar kýr, 3—4, en því
betri gripir. Á einu búinu, sem er hér
í bæjarlandinu, eru þó 11 kýr.
Hefir nú samkvæmt þessum út-
reikningum verið ákveðið, að verð-
launin skuli falla í hlut Vilborgar
Guðnadóttur á Reykjavöllum. Á hún
4 kýr allar fulimjólkandi og var meðal-
nyt þeirra árið 1936 3428 kg. af 4,14%
feitri mjólk eða 14192 fitueiningar eft-
ir kúna. Svarar það sem næst til 169
kg. smjörs eftir kúna á ári.
haflega, voru þeir Jón Baldvins-
son og Ólafur Friðriksson í 5. og
6. sæti. „Samfylkingin“ sparkaði
Ólafi alveg, en færði Jón nið-
ur í 29. sætið. Þessir vinsælu og
þrautreyndustu leiðtogar Al-
þýðuflokksins eru ekki nægilega
óróagjarnir og byltingarsinnað-
ir til þess að vera geðþekkir
þeim mönnum, sem mestu ráða
i „samfylkingunni".
Á lista íhaldsins og nazista
skipa efstu sæti: Guðmundur
Ásbjörnsson, Bjarni Benedikts-
son, Jakob Möller, Guðrún Jón-
asson, Guðmundur Eiríksson,
Valtýr Stefánsson, Helgi Herm.
Eiríksson, Jón Björnsson, Gunn-
ar Thoroddsen og Pétur Hall-
dórsson.
íhaldsmenn höfðu átt í löngu
samningamakki við nazista og
gerðu sér vonir um að þeir væru
búnir að fá þá til þess, eins og
í Alþingiskosningunum, að hafa
ekki sérstakan lista.
En nazistar brugðust þessum
vonum þeirra á síðustu stundu
og lögöu fram lista rétt áður en
framboðsfrestur rann út. Er
Óskar Halldórsson efstur á hon-
um.
Glæsilegar
horlur
Framsóknarmenn á Ak-
ureyri héldu flokksfund í
fyrradag og var hann mjög
fjölsóttur. Gengu um 50
nýir meðlimir í Framsókn-
arfélagið á fundinum og
má af því marka hvílíkur
sóknarhugur er í Fram-
sóknarmönnum á Akureyri.
Hafnargerð
á Þórshöfn
í grein Guðmundar Vil-
hjálmssonar „Ný síldarverk-
smiðja á Norðurlandi“, hefir,
þar sem rætt er um hafnar-
gerðina á Þórshöfn, misprentast
eitt orð. Réttprentuð hljóðar
frásögnin svo:
„Þar (þ. e. á Þórshöfn) er nú
(Framhald á 4. síðu.)
Framkvæmdarstjórí
síldarverksmíðjanna
JÓN GUNNARSSON.
Stjórn síldarverksmiðja ríkisins sam-
þykkti í gær með fjórum atkvæöum
gegn einu að ráða Jón Gunnarsson
verkfræðing sem forstjóra verksmiðj-
anna. Mun öllum, sem þekkja Jón
Gunnarsson og störf hans fyrir verk-
smiðjurnar, koma saman um að val
þetta hafi ekki getað heppnast betur.
Það var Finnur Jónsson, sem
greiddi atkvæði á móti og mun þar
mestu hafa ráðið pólitísk stífni, vegna
þess, að socialistar í verksmiðjustjórn-
inni hafa áður ofsótt Jón ómaklega
og Finni fundizt það vera einskonar
löðrungur á þessa samherja hans, ef
hann breytti í bága við ofsókn þeirra.
Helzt virtist mega skilja það á Finni
að hann óskaði eftir því að lítið
reyndur ihaldsmaöur á Siglufirði yrði
ráðinn forstjóri verksmiðjanna og
mun hann hafa með því ætlað að gefa
íhaldinu kost á „samfylkingu". Og
þó þykist Finnur fylgja reglunni: „Allt
er betra en íhaldið"!
Framsóknarflokks-
íns í Vestm.eyjum
Nokkur breyting hefir orðið á fram-
boðslista Framsóknarflokksins í Vest-
mannaeyjum frá því, sem áður var
ákveðið. Verður listinn þannig skip-
aður:
Sveinn Guðmundsson kaupm., Sig-
urjón Sigurbjörnsson fulltrúi, Guðjón
Brynjólfsson útgerðarmaður, Guðrún
Stefánsdóttir frú, Hálfdán Þorsteins-
son sjómaður, Hannes Sigurðsson
bóndi, Guðmundur Ólafsson útgerð-
armaður, Einar Vilhjálmsson trésmið-
ur, Sigurður Sæmundsson verkstjóri,
Guðmundur Baldvinsson trésmiður,
Ársæll Sigurðsson kennari, Ólafur
Jónsson skipstjóri, Matthías Finnboga-
son skipaskoðunarstjóri, Auður Eiríks-
dóttir ljósmóðir, Stefán Finnbogason
útgerðarmaður, Nanna Magnúsdóttir
frú, Guðjón H. Guðnason tollvörður,
Kristján Linnet bæjarfógeti.
Er ekki neinn vafi um það, að þessi
listi er miklu betur skipaður en aðrir
framboðslistar í Eyjum, enda mun það
líka sjást á úrslitum kosninganna.