Nýja dagblaðið - 21.01.1938, Blaðsíða 1
B-lístinn
Símar:
1529 og 1629.
IDA.Q>EHi5\C)IHÐ
6. ár. Reykjavík, föstudaginn 21. janúar 1938. 16. blaö
ANNALL
21. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 9.44. Sólarlag kl. 3.41.
Árdegisháflæður í Rvík kl. 8.50.
Ljósatími bifreiffa
er frá kl. 4 síðdegis til kl. 9.15 árdegis.
Næturlæknir
er í nótt Eyþór Gunnarsson, Lauga-
vegi 98, sími 2111. Næturvörður er i
Ingólfs Apóteki og Laugavegs Apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
8.30 Enskukennsla. 10.00 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr.
18.45 ísl.kennsla. 19.10 Veðurfr. 19.20
Hljómplötur: Sónötur eftir Scarlatti.
19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15
Erindi: Höfuðstefnur í bókmenntum á
18. og 19. öld, I: Fræðslustefnan (Jón
Magnússon, fil. kand.). 20.40 Tónl. Tón-
listarskólans. 21.20 Útvarpssagan: „Ka-
trín“, eftir Sally Salminen (IX.). 21.50
Danslög.
Póstferðir á morgun:
Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar (Ölfusárbrú,
Eyrarbakki og Stokkseyri), Hafnar-
fjörður (2 á dag), Seltjamarnes.
Fagranes frá Akranesi.
Ftól 'Reykjavik: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar (Ölfusárbrú,
Eyrarbakki og Stokkseyri). Hafnar-
fjörður (2 á dag), Seltjarnarnes.
Fagranes til Akraness. Grímsnes og
Biskupstungur.
Dómur í lögreglurétti.
Kjartan Ólafsson, augnlæknir, var í
fyrradag dæmdur í lögreglurétti
Reykjavíkur í 200 kr. sekt og sviptur
ökuleyfi æfilangt fyrir ógætilegan
akstur og ölvun við stjórn bifreiðar,
en eins og áður hefir verið frá skýrt,
ók hann bifreið sinni, á aðra bifreið
á Fríkirkjuvegi í növember í haust.
Súffin
lá veðurteppt við Vatnsnes á Húna-
flóa síðdegis í gær.
Félag ungra Framsóknarmanna
hefir skemmtisamkomu á Hótel ís-
land í kvöld. Skemmtunin hefst kl.
8,15. Byrjað verður á því að spila hina
fjörugu Framsóknarvist, en síðan
munu verða fluttar ræður og sungið.
Að síðustu verður dansað fram eftir
nóttu. — Aðgöngumiðar eru seldir á
kosningaskrifstofu B-listans, Hafnar-
stræti 16, símar 1529 og 1629.
Vélbáturinn Þráinn,
frá Norðfirði, sem lýst hafði verið
feftir, kom til Hornafjarðar í fyrra-
kvöld í góðu ásigkomulagi.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins
er í Hafnarstræti 16, símar 1529
og 1629.
Messa
á Kálfatjörn kl. 2 á sunnudag. Séra
Garðar Þorsteinsson predikar.
ísfisksala.
Tryggvi gamli seldi 1206 vættir fiskj-
ar í Grimsby i gær á 1255 pund sterling.
Septíma
heldur fund í kvöld kl. 9. Grétar
Fells flytur erindi.
Stefán Jóh. Stefánsson
hefir ekki enn svarað fyr-
irspurn J. J. um það, hvers-
vegna það þótti réttmætt
1916 að sjómenn fengu
sannvirði fyrir lifrarhlut
sinn, én blað hans telur
þaff nú svik við sjómenn,
að tryggja þeim fullvirði
hrásíldarinnar, sem þeir
Ieggja inn f ríkisverksmíðj-
urnar.
Þolír íhaldið samanburð á stjórn ríkís
og Reykjavíkur?! Fundurinn í
Skuldír Reykjavíkur hafa hækkað um 55°|0
meðan skuldír ríkissjóðs hafa staðíð í stað
Hræðsla íhaldsblaðanna við
steSnuskrá Framsóknarflokksins
í blöðum íhaldsins, Vísi
og Morgunbl., hefir komið
fram mikil hræðsla við
stefnuskrá Framsóknarfl. í
bæjarmálum. í fyrradag var
aðalritstjórnargrein Vísis
helguð henni og í gær er
hún helzta umtalsefni Mbl.
Jafnframt er sagt í Mbl. að
hún hafi verið rædd sér-
staklega á fundi Sjálfstæð-
iskvennafélagsins í fyrra-
kvöld. Og í Vísi í gærkveldi
heldur Kristján Guðlaugs-
son áfram þessum harmtöl-
um íhaldsins út af stefnu-
skránni.
Þessi ótti, sem stefnuskrá
Framsóknarflokksins hefir vakið
í herbúðum íhaldsins er heldur
ekki ástæðulaus. íhaldið hefir
verið dáðlaust og úrræðalaust i
stjórn bæjarins. Allsstaðar blasa
við vanrækslusyndir þess og ó-
nytjungsháttur. Vaxandi bæjar-
útgjöld, hækkandi skattabyrði
og fátækraframfæri, hrörnandi
atvinnulíf og bágborin verzlun
eru verk, sem tala svo rækilega
á móti því, að það hefði átt að
vegna er von að stefnuskrá
Framsóknarflokksins valdi tals-
verðum ruglingi hjá ritstjórum
íhaldsblaðanna og sanntrúuðum
ihaldskonum. Þeim er ljóst, að
það er stefna og úrræði Fram-
sóknarflokksins er verða íhald-
inu hættulegust í bæjarmálun-
um, alveg eins og í landsmálun-
um.
Blekkingar Vísis.
í hræðslufáti sínu grípur Vísir
einkum til þess úrræðis, að reyna
að telja lesendum sínum trú um,
að ihaldið sé raunverulega bú-
ið að framkvæma allt saman,
sem talið er upp í stefnuskrá
Framsóknarflokksins! Það þarf
ekki að nefna, nema örfá dæmi,
til að afsanna slíka fjarstæðu.
Er bærinn t. d. rekinn tekju-
hallalaust? Hvar er ráðhús bæj-
arins? Hvað hefir bæjarstjórnin
gert til að hjálpa útgerðinni og
iðnaðinum i bænum? Er búið að
lækka rafmagnsverðið? Er búið
að koma þvi skipulagi á fátækra-
framfærið, sem krafizt er í
stefnuskrá Framsóknarflokks-
ins? Hvað hefir bæjarstjórnin
gert til að koma skipulagi á fisk-
söluna? Hvað hefir bæjarstjórn-
K.R.-húsínu
Glæsileg fundarsókn
Stuðnlngsmenn B-listans héldu fund
í K.R.-húsinu í fyrrakvöld. Fundurinn
hófst klukkan hálf níu og var þá
þegar hvert sæti skipað. Bættist þó
enn við margt manna og varð alveg
húsfyllir. Munu yfir fjögur hundruð
manns hafa verið á fundinum.
Fundarstjóri var Vigfús Guðmunds-
son. Fyrstu ræðuna flutti formaður
Framsóknarflokksins og efsti maður
B-listans, Jónas Jónsson, við hinar
beztu undirtektir. Aðrir ræðumenn
voru Jón Eyþórsson, Guðm. Kr. Guð-
mundsson, Jón Árnason, Þórir Bald-
vinsson, Þórarinn Þórarinsson, Guð-
brandur Magnússon, Steingrímur
Steinþórsson og Eysteinn Jónsson. Var
góður rómur gerður að ræðum þeirra.
Yfirleitt sýndi þessi fundur, að þær
vonir, sem Framsóknarmenn hafa
gert sér um glæsilegan árangur kosn-
ingabaráttunnar, eru sizt of djarfar.
Borgarstjórí mótmæl
ír söguburðí íhalds-
smalanna
Hítaveitumálíð
rœtt á bæjar-
stjórnarSundi
Seinasti bæjarstjórnarfund-
urinn á þessu kjörtímabili var
haldinn í gær.
Á fundinum kom fram fyrir-
spurn um það til borgarstjóra,
hversvegna væri ekki búið að
ganga enn frá lántöku til hita-
sem Framsóknarmenn hafa
skemmtisamkomu að Hótel ís-
land. Þangað verða allir áhuga-
samir Framsóknarmenn að
koma, jafnt eldri sem yngri.
Mitt í önnum kosningabarátt-
unnar er gott að koma saman
og skemmta sér og ræða áhuga-
málin. Við það skapast nýr
þróttur til starfa, og nú er mikil
þörf á því, að allir Framsóknar-
menn vinni óskiptir og einhuga
að sigri B-listans í bæjarstjórn-
arkosningunum 30. jan. n. k.
Munið að tryggja ykkur að-
göngumiða í tæka tíð.
Munið, að þeir fást á kosn-
ingaskrifstofu B-listans, Hafn-
arstræti 16. Símar 1529 og 1629
Munið að mæta stundvíslega
og FJÖLMENNA.
Verkamenn linna
lík við Örlirisey
Um kl. 2 í gær fundu verkamenn
lík rekið við Örfirisey, norðaustan til.
Lá það i miðju fjöruborðinu, alklætt
og óskaddað.
Við athugun hefir þetta reynzt vera
lík Jóns Pálssonar, sem kenndur er
við Hlíð undir Eyjafjöllum. Líkskoðun
hafði eigi farið fram í gær og verður
eigi fullyrt um dauðaorsökina.
Eigi hafði Jóns verið saknað fyrri
en líkið fannst þarna. Stúlka, sem bjó
í sama húsi og hann, nr. 38 við Skóla-
vörðustíg, heyrði mannamál í herbergi
hans snemma i fyrrinótt.
Jón heitinn var ókvæntur maður,
fæddur 1892 og hafði lengi verið bú-
settur hér.
vera búið' að missa völd sín í
bænum fyrir löngu. Það, sem
hefir hjálpað því, þrátt fyrir
þetta allt, er fyrst og fremst slæ-
leg sókn þeirra flokka, sem verið
hafa aðalandstæðingar þess í
bæjarmálunum, socialista og
kommúnista. Þeir hafa ekki sýnt
það í verki eða stefnumálum, að
þeir væru hæfari til að stjórna
bænum en íhaldið. Þess vegna
hefir það getað haldið meiri-
hluta sínum þrátt fyrir allt.
Þess vegna er líka eðlilegt að
íhaldinu bregði í brún, eftir að
hafa barizt við slíka andstæð-
in gert í húsnæðismálunum?
Hvernig er það með byggingu
gagnfræðaskóla og iðnskóla?
Þannig mætti telja lengi áfram
til að afsanna þær blekkingar
Vísis, að íhaldið sé búið að fram-
kvæma stefnuskrá Framsóknar-
flokksins!
En það sannar einna bezt, að
íhaldið sjálft neyðist til að við-
urkenna að stefnuskrá Fram-
sóknarflokksins feli í sér hin
réttu úrræði, þar sem annað að-
alblað íhaldsins reynlr að eigna
því þessi mál!
veitunnar, þar sem borgarstjóri
hafði áður tilkynnt, að ekkert
væri því til fyrirstöðu, að full-
Framh. á 2. síðu.
Brúðkaup
Egíptalandskonungs
Sjálf brúðuria var ekkí
viðstödd
LONDON:
Ægileg loít-
árás á Barce-
lona
LONDON:
Barcelona og Valencia urðu fyrir
stórkostlegum loftárásum í fyrradag.
Það er opinberlega tilkynnt, að í loft-
árásinni, sem gerð var á Barcelona
hafi 220 manns farizt og rúmlega 400
særzt. Fréttaritari Reuters, sem stadd-
ur var í borginni er árásin átti sér
inga, þegar Framsóknarflokkur-
inn, sem háð hefir sigursæla bar-
áttu við það úti á landinu, tekur
upp hér í bænum aðalforystuna
í baráttunni gegn meirihluta-
valdi þess í Reykjavík og sýnir
fram á það með sterkum og ó-
yggjandi rökum, hvernig hægt sé
að stjórna bænum betur og öðru
vísi en íhaldið hefir gert. Þess
Heppilegur saniau-
burður.
Ekki tekst Morgunblaðinu þó
fimlegar vopnaburðurinn, enda
er það almennt viðurkennt að
Valtýr sé ógáfaðri en Jakob.
Aðalröksemd Morgunblaðsins
er sú, að hvað sem stefnuskránni
Framh. á 3. síðu.
Faruk Egyptalandskonungur og heit-
mey hans voru gefln saman i hjóna-
band í gær. Athöfnin fór fram í kyr-
þey í höllinni, að sið Múhameðstrúar-
manna, og var enginn kvenmaður við-
staddur — ekki einu sinni brúðurin —
en faðir hennar koma fram fyrir henn-
ar hönd. í gær voru mikil hátíðahöld í
Egyptalandi í tilefni af giftingu kon-
ungsins. FÚ.
stað, segir, að ein sprengikúla, sem kom
niður á fjölfama götu í miðri borg-
inni, hafi á svipstundu breytt alfara-
vegi, sem var iðandi af lifi, í auðn, þar
sem ekkert heyrðist nema stunur deyj-
andi manna, en brot úr bifreiðum og
kerrum lágu um allt, og dauðir hestar
innan um kerrubrotin. Sex sprengi-
flugvélar tóku þátt í árásinni, en hún
var gerð á miðja borgina. FÚ.