Nýja dagblaðið - 21.01.1938, Síða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Leíkkvold Menntaskólans
„Tímaleysíngmn“
Tímaleysinginn (Sig. Hannesson) og skrifarar hans.
Sjónleikir Menntaskólans eru
orðnir fastur þáttur í leik-
listarlífi bæjarins. Þessar leik-
sýningar hafa líka oft tekizt svo
vel að undrum hefir sætt, og þess
vegna munu margir sækja þær
með nokkurri tilhlökkun. Það
má t. d. marka vel á því, að að-
göngumiðarnir að frumsýningu
Menntaskólans á þriöjudags-
kvöldið seldust upp á skömmum
tíma og þurfti að vísa mörgum
frá, sem ætluðu að komast þang-
að. —
Að þessu sinni hafa Mennta-
skólanemendur valið eitt af leik-
ritum Holbergs, Tímaleysingj-
ann,til sýningar.Þótt það sé,eins
og flest af verkum Holbergs,
fjarstæðukennt, er hægt að hlæja
að því. Holberg hefir oftast lag á
þvi að koma áhorfendum í gott
skap, og það gerir hann líka 1
þessu leikriti, þó mönnum finn-
ist efni þess annars ómerkilegt.
Meðferð flestra leikendanna
er vel sæmileg, þegar miðað er
við kringumstæðurnar. Bezt
tekst Einari Ingimundarsyni.
Drífa Viðar gerir hlutverki sinu
yfirleitt góð skil og nokkuð svip-
að má segja um leik Sig. Hann-
essonar, Helga Bergs, og Guð-
rúnar Vilmundardóttur. Lökust
eru kærustupörin, Jón M. Árna-
son og Guðrún Havstein; er hún
þó .öllu betri, enda hæfir henni
þetta hlutverk vel, hvað útlit
snertir. ■
í fám orðum sagt, er leiksýn-
ing þessi Menntaskólanemend-
um til sóma og verðskuldar það,
að hljóta góða aðsókn.
BxL.
Hálfrar aldar afmæli
Lögbergs
14. janúar síðastliðinn voru 50
ár liðin siðan Vesturheimsblaðið
Lögberg hóf göngu sína í Winni-
peg. Boðsbréfið að stofnun
blaðsins var dagsett 7. desember
1887 og undirritað af Sigtryggi
Jónassyni, Einari Hjörleifssyni,
Bergvini Jónssyni, Ólafi S. Þor-
geirssyni og Sigurði Júl. Jóhann-
essyni.
Einar Hjörleifsson Kvaran var
fyrsti ritstjóri Lögbergs og hafði
hann það starf með höndum I
sjö ár. Þá, 1895, fluttist hann
heim til íslands.
Sigtryggur Jónasson tók við
ritstjórn af honum og stundaði
hana 1 6 ár. Síðan hafa ritstjórar
verið þessir: Magnús Paulsson,
Stefán Björnsson, nú prófastur
í Eskifirði, Sigurður Júlíus Jó-
hannesson, Kristján Sigurðsson
kandidat, bróðir Ögmundar heit-
ins skólastjóra, Jón J. Bildfell
frá Bíldsfelli í Grafningi, Einar
Páll Jónsson frá Háreksstöðum
i Vopnafirði, Finnur Jónsson frá
Melum í Hrútafirði og Heimir
Þorgrímsson, Adams prests frá
Nesi í Þingeyjarsýslu. Núverandi
ritstjóri Lögbergs er Einar Páll
Jónsson. Meðritstjórar hafa ver-
ið: Jón Ólafsson skáld, Hannes
S. Blöndal skáld, Björn Pálsson,
Ólafssonar skálds, Baldur
Sveinsson blaðamaður og Egill
Erlendsson.
Blaðinu bárust ámaðaróskir
og ávörp víða að, meðal annars
frá forsætisráðherra Kanada,
landstjóranum i Kanada, ríkis-
stjóranum í Norður-Dakota og
Hermanni Jónassyni forsætis-
ráðherra íslands.
Ávarp Hermanns Jónassonar
var á þessa 'leið:
„Á 50 ára afmæli heiðraðs
blaðs yðar flyt ég yður af hálfu
ríkisstjórnar íslands og hinnar
íslenzku þjóðar hugheilar þakk-
ir og hamingjuóskir. Ég þakka
það mikilsverða starf, sem blað
yðar hefir innt af hendi í hálfa
öld til að vernda íslenzka tungu
í Vesturheimi, auðga íslenzka
menningu og treysta bróður-
böndin milli íslendinga austan
hafs og vestan. Fyrir allt þetta
flyt ég yður þakkir vor íslend-
inga og ég get á þessum degi
flutt yður þau gleði-tíðindi, að
nú er fyrir hendi á íslandi meiri
áhugi en nokkru sinni áður fyr-
ir því að auka og efla samstarf-
ið milli heimaþjóðarinnar og ís-
lendinganna vestan hafsins. Ég
hygg að þess verði skammt að
bíða, að raunhæfar ráðstafanir
verði gerðar í samræmi við
þennan vaxandi áhuga. Og um
leið og ég ber fram þá ósk. að
slíkar ráðstafanir megi bera
giftusamlegan árangur, bið ég
yður að flytja íslendingum i
Sporöskjarammar,
Rúnnlr rammar,
Veggmyndfr, Málverk,
í fjölbreyttu úrvali.
Myndir innrammaðar.
Mynda- og ramtnav,
Sími 2105. Freyjugötu 11.
ÚTBREIÐIÐ
NÝJA DAGBLAÐIÐ.
Borgarstjóri
mótmælír
Framh. af 1. síðu.
ganga frá láninu fyrir áramót
og fá nokkurn hluta þess
greiddan í þessum mánuði.
Borgarstjóri svaraði þessu á
þá leið, að sökum annríkis í
enska fjármálaráðuneytinu
væri enn ekki búið að fá leyfi
fyrir láninu. Annars vissi hann
ekki annað en að allt stæði við
það sama og lánið væri enn til
boða „með góðum kjörum, að
ég vona“!
Vegna slúðursagna, sem
gengið höfðu um bæinn, tók
borgarstjóri það fram, að það
væri algerlega rangt, að lán-
veitendurnir vildu ekki veita
lánið sökum bæjarstjórnarkosn-
inganna. Þeir láta úrslit þeirra
sig engu skipta, sagði borgar-
stjórinn. Er þar með kveðinn
niður sá rógur íhaldsmalanna,
að lán þetta" muni ekki fást,
nema íhaldið haldi meirihlut-
anum áfram.
Þá var borgarstjóri spurður
að því, hvort hann hefði gert
bindandi samninga um það við
umræddan lánveitanda, að leita
ekki eftir láni annarsstaðar. Ef
svo væri ekki mætti strax hefja
undirbúning að lántöku annars-
staðar, svo framkvæmd hita-
veitunnar þyrfti ekki að stöðv-
ast, ef þessi lántökuvon brygð-
ist.
Borgarstjóri svaraði þessari
fyrirspurn ekki, en var mjög
órólegur meðan fyrirspyrjandi
talaði. Bitnaði þessi tauga-
óstyrkur hans m. a. á blaða-
manni frá Alþýðublaðinu.
Var þá borin fram tillaga
þess efnis að fela bæjarráði að
athuga nú þegar möguleika til
annarar lántöku, ef þessi skyldi
bregðast.
Jakob Möller lagði til að þess-
ari tillögu yrði vísað til bæjar-
ráðs, en það er hin venjuleg-
asta aðferð íhaldsins til að
drepa mál andstæðinganna.
íhaldið samþykkti þá tillögu
Jakobs. Með seinasta verki sínu
á kjörtímabilinu sýndi það hinn
raunverulega áhuga sinn og
einlægni i hitaveitumálinu.
Vesturheimi kveðju frá heima-
þjóðinni íslenzku og voru sam-
eiginlega ættlandi."
Mjög skrautleg og vönduð út-
gáfa af Lögbergi kom út 22.
desember, i tilefni af afmælinu.
\
ár kambgarni, sem eingöngu er unníð úr beztu
fiyrsta filokks /slenzkri ull, en ekki ítölsku eða
þýzku efini, fiáið pér aðeins hjá G E F J U N.
Ullarverksmíðjan Geijun er eina verk-
smíðjan hér á landí, sem spunnið getur
kambgarn.
i
Hafið hugfast að íslenzk ull hentar
bezt íslenzkri veðráttu.
Verksmiðjuútsalan
Geíjun -- Iðunn
Aðalstræti.
Allir þeir sem viljavinnaiyrir
lista.nn
eru beðnir að gefa upplýsingar á
skrifstofu B-lístans Hafnarstræti 16
Símar 1529
og 1629
Kjarnar — (Essensar)
Höfium birgðir afi ýmiskonar kjörnum til iðnaðar
Áfengisverzlun ríkisins.