Nýja dagblaðið - 27.01.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 27. JANÚAR 1938
6. ÁRGANGUR — 21. BLAÐ
NYJA DAGBLAÐIÐ
,V.V.Wr„mi„ n'' .V.V.V.
'.w.vAwamla 1*10 w.v.v
l Kvikmynda jj
\ stjarnan \
% Fjörug Ogr afar spennandi I;
amerísk gamanmynd. !'
■í
Aðalhlutverkin leika jj
■Í MAE WEST, ■:
WARREN WILLIAMS OG í
■: RANDOLPH SCOTT. í
í :■
V.V.V.V.,.V.VAWAVA,.V.V
Umbætur
í iátækramálunum
Framh. af 1. slðu.
tækraframfærið aukizt eins gíf-
urlega og raun ber vitni, án
nokkurra tilrauna til úrbóta af
þess hálfu.
Frá sósíalistum og kommún-
istum er heldur ekki viðreisnar
að vænta. Þeir hafa ekki borið
fram aðrar kröfur í þessu máli
en að hækka framlög bæjarins
til fátækraframfæris og at-
vinnubótavinnu, svo vinnufær-
um þurfalingum geti fjölgað
sem auðveldlegast. Nú seinast
gera þeir kröfu um það í sam-
eiginlegri stefnuskrá, að þurfa-
lingarnir fái útborgað frá bæn-
um eftir föstum taxta, svo þeir
þurfi ekki annað en að fara á
bæjarskrifstofuna og heimta
peningana samkvæmt honum.
Öllum hlýtur að vera Ijóst, að
af slíku fyrirkomulagi hlyti að
leiða stórfelda aukningu fá-
tækraframfærslunnar. Fá-
tækrastjórnin gæti í greiðslum
til þurfalinganna ekki tekið til-
lit til hinnar mismunandi að-
stöðu þeirra og þurfalingum
væri gert lífið algerlega á-
hyggjulaust með því að tryggja
þeim fast framfæri, hversu bág-
lega, sem þeim stéttum vegnaði,
er vinna að framleiðslunni og
skapa þjóðartekjurnar. Undir
slíku fyrirkomulagi færu at-
orkulitlir menn beinlínis að ger-
ast þurfalingar af ásettu ráði
til að geta lifað áhyggjulitlu og
fyrirhafnarlausu lífi.
Þessi ábyrgðarlausa afstaða f-
haldsins og „samfylkingarinn-
ar“ á rætur sínar í því, að
þurfamennirnir eru orðnir svo
stór hluti kjósendanna, að
meirihlutinn í bæjarstjórninni
getur oltið á atkvæðum þeirra.
Þessvegna meta þessir flokkar
meira að geta „boðið í“ atkvæði
þurfamannanna en að berjast
fyrir viðreisn í fjárhagslífi bæj-
arins, sem alltaf hlýtur að
skapa talsverða óánægju hjá
hinum vinnufæru þurfamönn-
um, vegna þess hversu þessum
málum er nú komið.
Framsóknarflokk-
urinn einn getnr
haft forystuna.
Það hefir sýnt sig ljóslega í
kosningabaráttunni, að Fram-
sóknarflokknum einum er
treystandi til forystu í þessum
Funcflur
fyrír stuðníngsmenn B-lístans verður í K.R.-húsínuíkvöldkL8,30
Margir ræðumenn! Mætið stundvíslega!
B-listÍnn.
Skemmtiiundur
fyrir stuðningsmenn B-listans verður a® SIó-
tel Borg' aiiiiaó kvöld og Iiefst liann kl. S.1S
stundvíslega.
Shemmtiatri&i verða:
1. FRAMSÓKAARVIST spiluð.
2. RÆÐIIR. IVokkrir af beztu ræðumönniim
flokksins flytja stuttar ræður.
3. SKEGGAMYNDIR. „Gamla og nýja and-
Iitið.“
4. SÖNGER. Rjóðsöngur Reykjavíkur o. fl.
5. BAYS.
Aðgöngumíðar kosta ema krónu.
og eru seldir á skrifstofu B-listans í Ilafnar-
stræti 16. Aauðsynlegt er að menn tryggi
sér miða í dag og tímanlega á morgun, því
aðsóknin verður mikil.
Mœtið stundvíslegu!
KOSAIAGANÍEFADIA.
málum. Hann er eini flokkur-
inn, sem ekki hefir látið at-
kvæði þurfamannanna ráða
neinu um afstöðu sína til þess-
ara mála.
Hann hefir krafizt þess, að
það yrði opinbert með útgáfu
prentaðra skýrslna, hverjir nytu
fátækraframfæris og atvinnu-
bótavinnu. Þannig yrði mönnum
gert ókleift að misnota þessa
hjálp bæjarins vegna leyndar-
innar, sem nú ríkir í þessum
málum og hvergi þekkist á land-
inu nema í Reykjavík. í öllum.
sveitum, kauptúnum og öðrum
bæj arf élögum, er skattgreið-
endum kunnugt, hverjir njóta
sveitarstyrks og með því er
skapað sterkt aðhald.
Hann hefir krafizt þess, að
sett yrði upp innkaupastofnun,
sem . keypti. nauðsynjar fyrir
þurfamenn. Með því myndi nást
mikill sparna.ður eins og sam-
eiginleg innkaup ríkisstofnan-
anna hafa bezt sannað.
Hann hefir krafizt þess að
komið yrði upp saumastofu, þar
sem unnin yrðu föt á þurfalinga
og þeir gætu fengið vinnu. Jafn-
framt hefir hann barizt fyrir
almenningseldhúsi og mötu-
neyti, þar sem styrkþegar geta
fengið ódýrar máltíðir.
Hann hefir krafizt þess að
bærinn reyndi eftir megni að út-
vega vinnufærum þurfalingum
vinnu í stað þess að veita þeim
beina styrki. Og megináherzlu
hefir hann lagt á það, að fátæk-
um og vinnusömum fjölskyld-
um, sem sýnt hafa áhuga fyrir
því að vera sjálfbjarga og þurfa
ekki að þiggja af sveit, sé hjálp-
að eftir megni til að rétta við
fjárhag sinn með því að útvega
þeim arðbæra atvinnu. Það á að
verðlauna sjálfsbjargarviðleitni
þessa fólks, og hjálpa því til að
sigrast á örðugleikunum.
Reykvíkingar! thugið þessi
mál vel fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar og afstöðu flokk-
anna til þeirra. Og þið munuð
komast að þeirri niðurstöðu,
að það er ekki nema ein leið til
viðréttingar í þessum efnum.
Hún er sú, að hnekkja meira-
hluta íhaldsins og fela Fram-
sóknarflokknum úrslitavaldið í
bæjarstjórn Reykjavíkur.
X við IS-lisiaim.
K AU PIB
Landbúnaður í
V estmanna eyjum
Framh. af 1. slðu.
í samvinnu við Búnaðarfélag íslands
og ríkið, sem er jarðeigandinn.
Einn af stjórnendum Búnaðarfélags-
ins, Hannes Sigurðsson bóndi í Brim-
hólum, hefir fundið upp nýja gerð af
jötuútbúnaði í fjós. Hreyfanlegar jötur,
sem gerir það að verkum, að kýrnar
óhreinka ekki básana, heldur haldast
þeir alltaf þurrir og hreinir.
Ég hefi aldrei séð eins fallega um-
gengið fjós og hjá Hannesi. Kýrnar
hreinar niður á klaufir, básarnir
minntu mest á fallega hirt gólf í göml-
um bæjum, sem stráð er hvítum spón-
um. Hannes hefir tekið einkaleyfi á
uppfinningu sinni. Nú er verið að reyna
þennan nýja útbúnað á Vífilsstöðum
að tilhlutun Búnaðarfélags íslands.
Mér kæmi ekki á óvart, þótt reynslan
kunni að leiða það í ljós, að Hannes
Sigurðsson hafi fundið þarna merki-
lega en einfalda lausn á því að bæta
hreinlæti 1 fjósum til stórra muna og
um leið fá hreinni og heilnæmari mjólk.
Ef svo reyndist, verður hið opinbera að
launa honum ríflega.
Á fundi sem ég hélt með stjórn bún-
aðarfélagsins og nokkrum öðrum á-
hugamönnum, var rætt um þessi mál,
sem ég hefi hér nefnt. Auk þess var
talað um stofnun nautgriparæktarfé-
lags og fóðurbirgðafélags. Búnaðarfé-
lagið hefir að undanförnu haft með
höndum útvegun á fóðurbæti fyrir fé-
lagsmenn sína og á þann hátt fengið
fóðurbætinn við vægara verði en ella.
Eru líkur til þess að þeir hið bráðasta
breyti þessum þætti starfs búnaðarfé-
lagsins í algjört fóðurbirgðafélag.
Rúmið leyfir ekki, að fleira sé sagt
frá búnaðarháttum í Vestmannaeyjum,
þótt margt sé til. Mikið var rætt um
bæjarstjórnarkosningarnar á sunnu-
daginn kemur. Það sem þótti mestum
tíðindum sæta í sambandi við þær, var
hið mikla fylgi sem listi Framsóknar-
flokksins, sem ekki hefir fyrr haft í
kjöri í Vestmannaeyjum, virtist hafa
þar. Var auðfundið, að bændur og aðr-
ir þeir, er einhverskonar landbúnað
stunda í Eyjum, hnigu nær óskiptir til
fylgis við lista Framsóknarflokksins,
en auk þess virtist Framsóknarflokk-
urinn hafa allmikið fylgi meðal út-
gerðarmanna og verkamanna, enda er
slíkt sízt að undra, þegar þess er gætt,
að útgerðarmenn i Eyjum hafa tekið
upp hætti samvinnumanna í mörgum
félagsmálum sínum og yfirleitt gefizt
vel.
Steingr. Steinþórsson.
Bæjarlan díd
Framh. af 1. slðu.
illa staddir, ef þeir ættu að treysta að
miklu leyti á sína eigin mjólkurfram-
leiðslu.
Margt bendir til þess, að svo sé dýrt
að framleiða mjólk á bæjarlandinu, að
hyggilegra væri að nota það til garð-
ræktar heldur en grasræktar. Skal ég
bregða upp dálitlu dæmi því til skýr-
ingar.
Það er mjög gott, fáist fóður fyrir
eina kú yfir árið af einum hektara
lands. Mjólki svo kýrin 3000 lítra yfir
árið, sem er nálægt því að vera meðal
kýrnyt, og fái eigandi hennar 30 aura
íyrir líterinn, þá er það kr. 900.00
brúttó yfir árið.
Sé aftur á móti sáð kartöílum í einn
hektara lands, er mjög sæmilegt að fá
250 tunnur af kartöflum úr honum og
væri tunnan reiknuð á 20 kr., þá eru
það 5000 kr. brúttó, sem hektarinn
gæfi af sér.
Þó að tilkostnaðurinn við að rækta
kartöflur á sama lnadi sé talsvert
meiri heldur en að rækta þar gras, þá
er hann mestur í vinnu og ætti það
wav Aýja ISio AVAW.
Hæltulegj
kona
í Mikilfengleg amerísk kvik-
;■ mynd. Aðalhlutverkin leika í
;■ FRANCHOTT TONE :■
:■ og ;i
■: BETTE DAVIES,
■; leikkonan fræga, sem Am- \
;í eríkumenn dáðst að sem
jí sinni fremstu karakter- ;í
leikkonum.
I; Aukamynd: í
:• Rorah Mmevilcli
!; hinn heimsfrægi munn- ;■
í; hörpusnillingur og hljóm- J;
;: sveit hans leika nokkur í;
;! fögur lög. í;
í Börn fá ekki aðgang. £
WAV.WAVAVAVAVAV.V
LÉREFTSTESKER
hreinar og heillegar,
(mega vera mislitar),
kaupir Prentsmiðjan
EDDA h.f., Lindar-
götu 1D.
Flugsamgongur
Afköst Waco-flugvéla.
Bj örgvinjarbúar eiga m. a. eina sams
konar flugvél og Akureyringamir hafa
nú keypt. Á fjórum mánuðum í sumar
flaug hún með samtals 4250 farþega,
mestmegnis skemmtiflug með ferða-
menn af erlendum ferðamannaskipum,
en auk þess 23 langferðir og 3 ferðir tli
sjúkraflutninga. Má af þessu marka
afköst þessara véla, þar sem aðstaða
til flugs er fullkomin.
Fyrir fjórum árum.
Hollenzkt félag hafði fyrir fjórum ár-
um ákveðið farþegaflug til íslands með
hraðskreiðri landflugvél. Farmiðarnir
runnu út, en þá barst símskeyti frá
íslandi:
„Ekki hægt að lenda landflugvél í
Reykjavík."
Og enn er svarið sama.
Enskur maður, Lord Davies að nafni,
hefir nýlega snúið sér til hollenzks
flugfélags um upplýsingar um fram-
kvæmd á einkaflugi til íslands í júní-
mánuði næstkomandi, fyrir sig og þrjá
förunauta sína. Hefir flugmálaráðu-
nautnum íslenzka, Agnar Kofoed-Han-
sen verið skrifað um máliö. Svar hans
hlýtur að verða eitthvað á þessa leið:
„Nothæfur flugvöllur ekki fyrir hendi
og sjóflugskýli sem kostaði á sínum
tíma 80 þús. kr. hefir ekki verið haldið
við.“
ekki að koma sér illa í atvinnuleysinu..
Síðan Framsóknarmenn beittu sér
fyrir kartöfluverðlaununum, byggingu
markaðsskála, hefting á aðflutningi á
kartöflum og öðrum garðávöxtum, ligg-
ur beint við fyrir Reykvíkinga að auka
garðrækt sína og þar með auka stór-
kostlega atvinnu bæjarbúa.
En til þess að það verði gert, þarf
athafnamenn í bæjarstjórn, en ekki
hálfsofandi íhald eða „yfirspennta"
Moskvadýrkendur.
Kári.