Nýja dagblaðið - 01.02.1938, Side 1
ID/s\G»IBIL?MÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 1. febrúar 1938. 25. blað
ANNALL
32. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 9, 12. Sólarlag kl.
4,10. — Árdegisháflæður í Reykjavík
kl. 5,50.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 4,25 síðdegis tll kl. 8,55
að morgni.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Hljómplötur: Söng-
lög úr tónmyndum.. 19,40 Auglýslngar.
19,15 Fréttir. 20,15 Húsmæðratími: Mis-
munandi uppeldi drengsins og stúlk-
unnar, II (frú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir). 20,35 Bindindismálakvöld
(Stórstúka íslands og Samband bind-
indisfélaga í skólum): Ávörp og ræður,
söngur og hljóðfæraleikur.
Tveir bifreiðaárekstrar
urðu á sunnudag árdegis, áður en
tekið var að aka fólki til kjörstaðar.
Verulegar skemmdir urðu þó ekki á
bifreiðunum. Seint um kvöldið varð
kona fyrir bifreið á Vesturgötunnl. Féll
hún á steinlagningu og hlaut meiðsli
af, en þó ekki alvarleg. Önnur slys
hafa ekki hlotizt af hinni miklu um-
ferð, svo að kunnugt sé, enda var
sterkur lögregluvörður allsstaðar þar
sem umferð og slysahætta var mest.
Glímufélagið Ármann
heldur skemmtifund i Iðnó niðri í
kvöld kl. 9. Þar fer fram kappglíma
um Ármannsskjöldinn og útskýrð hin
ágæta skíðakvikmynd í. R., en þá mynd
þurfa allir Ármenningar, sem iðka
skíðaíþrótt, að sjá. Ennfremur ýmis-
legt fleira til skemmtimar.
Afgreiðsla blaðsins
er flutt á Lindargötu 1D.
Fangi sker af sér fingur
með borðhníf.
Magnús Gíslason, strokufanginn al-
kunni, hefir um hrið setið í varðhaldl
í hegningarhúsinu, vegna rannsóknar
í þjófnaðarmáli. Á föstudag var honum
að venju borinn hádegisverður inn
tólfleytið, en er aftur var komið inn
til hans, hafði hann sargað af sér tvo
fremstu köggla annars litla fingurs
með borðhnífnum. Héngu þeir við
fingurinn á skinntaug. Var farið með
fangann á Landsspitalann og búið þar
um áverkann, en síðan var hann flutt-
ur í varðhaldið að nýju. Magnús hefir
tvívegis áður framið svipaðar „aðgerð-
ir“ á sjálfur sér. í fangelsi í Kaup-
mannahöfn ætlaði hann eitt sinn að
skera á slagæðina. í annað skipti skaut
hann í vöðva annars framhandleggsins.
t það sinn var hann staddur suður með
sjó.
Aðalfundur Bátaábirgðafélags
Vestmannaeyja
var haldinn í siðastliðnum desem-
bermánuði, endurgreidd voru 30% af
iðgjöldum öllum, sem endanleg ið-
gjaldagreiðsla félagsmanna varð 3%%
og sparar það Vestmannaeyjaflotanum
yfir 60.000 kr. á árinu, miðað við ið-
gjöld Samábirgðarinnar og Sjóvá-
tryggingarfélagsins. Auk þess að fé-
lagsmenn njóta ýmsra annara hlunn-
inda, þannig fá þeir án aukagreiðslu
tryggðar talsstöðvar í bátunum, öll
brot sem nema 100 krónum eru bætt
og hverjum bát lánaðar kr. 400,00 til
talstöðvakaupa. Skuldlausar eignir
félagsins nema nú kr. 300,000,00.
Aðalfundur Lifrarsamlags
V estmannaey ja
var haldinn 24. janúar s. 1. Greitt var
fyrir hvert kíló lifrar kr. 0,36%. Allt
er hagnýtt, lifrarmjöl unnið úr grútn-
verksmiðju samlagsins á árinu og bætt
um. Nokkuð hefir verið aukið við
við lýsisgeymum, þannig að geymar
verksmiðjunnar taka nú 150 tonn af
lýsi. Fundurinn samþykkti að fela
samlagsstjórninnl undirbúning um að
koma upp fullkominni kaldhreinsun á
lýsi. Einnig að athuga um kaup á
vélum til lýsistimnugerðar.
Frá Akranesi
réru í gær 20 bátar, en hrepptu
versta veður. Þeir bátar, sem komnir
voru að landi laust fyrir miðaftan,
höfðu lítinn afla. FÚ.
Framsóknarílokkurínn í örum vexti
Hann var eini flokkurinn, sem jók at-
kvæðamagn sitt í Reykjavík og á
Akureyri
í Vestmannaeyjum lékk hann um
200 atkvæði og einn iulltrúa kosinn
Úrslit bæjarstjórnarkosn-
inganna í fyrradag stað-
festu þau úrslit alþingis-
kosninganna á síðastliðnu
sumri að Framsóknarflokk-
urinn er í örum vexti. Sam-
anborið við alþingiskosn-
ingarnar stóreykur flokkur-
inn fylgi sitt í þeim kaup-
stöðum, þar sem hann hef-
ir menn í kjöri. Úrslitin í
mörgum kauptúnum sýna
einnig, að flokkurinn hefir
þar orðið öruggt fylgi.
Annað, sem er mjög athyglis-
vert við kosningarnar, er ósigur
„samfylkingarinnar“, þar sem
hún hefir háð baráttu sína und-
ir merkjum kommúnista og
vinstri-socialista, en það er í
Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Það er sönnun þess, að verka-
menn óska ekki eftir þeirri bylt-
ingarpólitík, sem útilokar
vinstra samstarf um stjórn
landsins og eru andvígir því, að
sameinaður flokkur alþýðunnar
sé undir kommúnistiskum á-
hrifum. Hinsvegar virðist „sam-
fylkingin" hafa heppnast betur,
þar sem hún var undir forustu
gætinna Alþýðuflokksmanna
eins og t. d. í Hafnarfirði.
Úrslit í einstökum kjördæm-
um urðu þessi:
Lrslit í Reykjavík.
í Reykjavík voru greidd
18.280 atkv. eða svipað og í vor,
en fleiri voru nú á kjörskrá.
Atkvæði féllu þannig:
Auðir voru 154 seðlar og 50
ógildir.
Litlar breytingar voru gerðar
á listunum, og hafa þær engin
áhrif á sætaskipunina.
í Alþingiskosningunum fengu
íhaldsmenn 10.138 atkv., Alþfl.
4135, kommúnistar 2742, Fram-
sóknarfl. 1047 og Bændafl. 59.
Framsóknarflokkurinn er því
eini flokkurinn, sem hefir aukið
atkvæðamagn sitt í þessum
kosningum. Allir hinir hafa tap-
að, og þó „samfylkingarflokk-
arnir“ mest.
„Samfylkingin“ hefir tvímæla-
laust orðið ihaldinu til ómetan-
legs stuðnings í kosningabarátt-
unni. Hún hefir hjálpað því til
að halda liði sínu saman og
gert andstæðinga þess tortryggi-
legri í augum þeirra, sem voru
orðnir á báðum áttum.
Jón Sveinsson féll
á Akureyri.
Á Akureyri urðu þessi úrslit:
Framsfl.
Alþýðufl.
Sjálfst.fi.
Komm.
708 atkv. 3 fulltr.
230 — 1 —
898 — 4 —
566 — 3 —
Frams.fl. 1442 atkv. 1 fulltr.
Samfylk. 6464 — 5 —
Sjálfst.fl. 9893 — 9 —
Nazistar 277 — 0 —
Á lista íhaldsins á Akureyri
voru gerðar svo miklar breyting-
ar að efsti maður listans, Jón
Sveinsson fyrv. bæjarstjóri, náði
ekki kosningu sem aðalmaður,
og Brynleifur Tobíasson, sem
var þriðji maður, var líka næst-
um fallinn. Munu íhaldsmenn
hafa talið, að Jón sæti á svik-
ráðum við sig og væri líklegur
til samstarfs við kommúnista.
í Alþingiskosningunum í vor
fékk Framsóknarfl. 528 atkv.,
Alþýðufl. 258, Sjálfstæðisfl. 913,
og kommúnistar 639.
Framsóknarflokkurinn hefir
því aukið við sig 180 atkv., en
allir aðrir flokkar tapað. Mest
hefir tapið orðið hjá kommún-
istum.
Fulltrúar Framsóknarfl. í bæj-
arstjórninni eru Vilhjálmur Þór
kaupfélagsstjóri, Jóhann Frí-
mann skólastjóri og Árni Jó-
hannsson gjaldkeri.
Glæsilegur sigur.
í Vestmannaeyjum urðu úr-
listin þessi;
Frams.fl. 195 atkv. 1 fulltr.
Samfylk. 655 — 3 —
Sjálfst.fl. 866 — 5 —
Nazistar 62 — 0 —
í Alþingiskosningunum í vor
fékk íhaldið 879 atkv., Alþfl. 289
og kommúnsistar 487 atkv.
Framsóknarmenn höfðu engan
frambjóðanda, en fengu 40 atkv.
á landlista.
Þegar það er athugað, að
þetta er I fyrsta sinn, sem Fram-
sóknarflokkur bauð fram í bæj-
arstjórnarkosningum í Vest-
mannaeyjum, verður þessi sig-
ur hans þar að teljast einhver sá
glæsilegasti, sem unninn hefir
verið í þessum kosningum.
Fulltrúi Framsóknarflokksins
er Sveinn Guðmundsson kaupm.
Seyðisf jörður.
Á Seyðisfirði urðu þessi úr-
iv. 1 fulltr.
- 3 —
- 4 —
- 1 —
í Alþingiskosningunum í sum-
ar fékk Alþýðufl. 288 atkv. og
Sjálfstæðisfl. 199.
Fulltrúi Framsóknarflokksins
er Karl Finnbogason skólastjóri.
Hann hefir áður átt sæti i bæj-
arstjórninni.
„Samfylkingin“
vann Siglufjörð.
Á Siglufirði urðu úrslistin
þessi:
slit:
Frams.fl. 71
Alþýðufl. 175
íhald 180
Komm. 62
Frams.fl.
Samfylk.
Sjálfst.fl..
253 atkv. 1 fulltr.
672 — 5 —
386 — 3 —
í seinustu bæjarstjórnarkosn-
ingum (1934) fékk Framsókn-
arflokkurinn 210 atkv., íhaldið
366 atkv., Alþfl. 204 atkv. og
kommúnistar 225 atkv.
Framsóknarmenn hafa því
bætt við sig 43 atkv., en það
hefir ekki nægt til að hann
fengi 2 menn kosna eins og
1934.
Fulltrúi Framsóknarflokksins
er Þormóður Eyjólfsson konsúll.
Neskaupstaður.
í Neskaupstað urðu úrslitin
þessi:
Frams.fl.
Samfylk.
Sjálfst.fl.
84 atkv. 1 fulltr.
331 — 6 —
141 — 2 —
Eru þetta svipuð úrslit og í
síðustu bæjarstjórnarkosningum.
Isafjörður og
Hafnarf jörður.
Á ísafirði fékk „Samfylkingin"
727 atkv. og 5 fulltrúa kosna
(4 socaialista og kommúnista)
og Sjálfstæðisfl. 574 atkv. og 4
fulltrúa. Er þetta verri útkoma
en hjá samfylkingunni í vor.
Falsbréf
til áróðurs gegn
B-listanum
Það var sent til ýmsra
Framsóknarmanna á
sunnudagsmorguninn
Snemma morguns á sunnudaginn
varð starfsmaður í pósthúsinu, sem
þar var að vinna, var við bréf til
sín, í gulleitu umslagi, með vélritaðri
utanáskrift. Hann opnar bréfið, og
þykir strax grunsamlegt, að bréfið
muni vera falsað. Efni bréfsins var
það, að fjölmennur hópur frjálslyndra
Framsóknarmanna þættist skora á við-
takendur, að svíkja flokk sinn og
kjósa lista kommúnista og Héðins.
Sá, sem bréfið fékk, sýndi það strax
kunningjum sínum, sem símuðu efni
þess til formanns Framsóknarflokks-
ins. Hann sá undir eins að hér var
um að ræða óvenjulega svívirðilega að-
ferð til að draga fylgi að lista komm-
únista. Lét hann kosningaskrifstofu
flokksins út um land strax vita um
þetta athæfi, og þótti aðferðin lík því,
sem búast má við frá mönnum, sem
leita undir erlent vald.
Um kl. 10 var kæran ásamt fals-
bréfinu komin í hendur lögreglunnar.
Samhliða því var sendur út frá B-list-
anum fregnmiði, þar sem sagt var
frá falsbréfinu og að búlð væri að
kæra til lögreglunnar. Um kl. 2 e. h.
fengu Héðinn Valdimarsson og Bryn-
jólfur Bjarnason að sjá kæruna og
falsbréfið hjá lögreglunni, og sýndu
þeir félagar málefinu þann heiður að
taka afrit af bréfinu. En rúmlega
klukkutíma síðar lét Einar Olgeirsson
mjög dólgslega 1 æsingaræðum utan
við kjörstaðinn og kvað enga kæru
komna til lögreglustjóra. Voru þetta
vísvitandi ósannindi Sendi hann sið-
an út ómerkilegan fregnmiða, en ekki
varð það til að bæta málstað þeirra,
sem falsbréfið átti að hjálpa.
Skrifstofa B-listans fékk í fyrradag
mörg af falsbréfunum, og sendi allan
forðann til lögreglunnar. Auðséð var
að falsararnir hafa lagt stund á að
reyna að lokka unga Framsóknarmenn
til fylgis við erlendu stefnuna á þenn-
an skemmtilega hátt.
í Hafnarfirði fékk „samfylk-
ingin 983 atkv. og 5 fulltrúa
(allir socialistar) og Sjálfstæðis-
flokkurinn 969 atkv. og 4 full-
trúa. í alþingiskosningum fékk
Alþfl. 935 atkv. og íhaldið 996
atkv.
Úrslitm
í kauptúminum
thaldiö geldur afliroö
á Akranesf.
Á Akranesi hlaut Framsóknar-
flokkurinn 145 atkv. og fékk einn
mann kosinn, Sigurð Símonar-
son kaupfélagsstjóra. Alþýðu-
flokkur fékk 277 atkv. og þrjá
Framh. á 4. síðu.