Nýja dagblaðið - 02.03.1938, Side 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
tiTLÖND:
Veðurfarið í Noregí
og áhrif þess á fall-
kraft vatnanna
Norski prófessorinn W. We-
renskiold hélt nýlega fyrirlest-
ur um jökla í Noregi og um-
breytingu á veðurfari þar síð-
ustu öldina. Lýsti hann mynd-
un jöklanna, hreyfingum þeirra
o. s. frv.
Þegar þannig árar, að úrkoma
er mikil, stækka jöklarnir, en
minnka, þegar þurrviðri eru tíð.
Fyrir 1700 er talið að jöklarnir
í Noregi hafi verið minni en nú.
Á næsta aldarhelmingi ukust
þeir stórum. Hörðu árin
ráku hvert annað. Komið náði
ekki þroska og hungursneyð
ríkti um allt land. Á seinni ár-
um hafa jöklarnir minnkað á
ný.
Jökulmælingar hafa verið
framkvæmdar árlega síðan
1927. Mælingar þessar hafa
sýnt, að jöklamir hafa minnkað
mjög mikið um allt land. Fyrir
nokkrum árum var jökullínan
um 1850 m. yfir sjávarmál í
Jötunheimi, en nú er hún um
2050 m. yfir sjávarmál.
Á steinaldartímunum var svo
hlýtt i Noregi, að skógur óx á
Harðangursöræfum og í Dofra-
fjöllum. Skógargróðurinn náði
þá 400 metrum lengra upp held-
ur en nú til dags.
Nú á síðustu árum hefir
meðalhitinn farið hækkandi.
Veturnir eru nú mildari en á
öldinni, sem leið, en sumrin eru
þó öllu svalari.
En þessi auknu hlýindi eru
samt ekki einvörðungu gleðiefni.
Vatnsmagn vatnsfallanna aust-
anfjalls fer minnkandi og ýms
iðnver fá ekki næga orku af
þeím sökum. Þanníg er ástatt
sumstaðar í Guðbrandsdal og
Valdres. Af þessari ástæðu
fylgjast iðjuhöldarnir með jök-
ulmælingunum af miklum á-
huga og hafa lagt fram fé til
þeirra.
Menntaður maður
Nokkrir af leiðandi mönnum
Englands gefa mismunandi
skilgreiningu á, hvað sé átt við
með hugtakinu menntaður
maður.
Cecil lávarður af Chelwood
(forseti friðarvinafélagsins
enska):
Maður, sem hefir lært að
vinna og hugsa, og aflað sér
nægjanlegrar þekkingar til að
nota í þágu hins góða.
Sir Roger Keyes aðmiráll(einn
af þingmönnum íhaldsflokks-
ins):
Maður, sem hefir fengið upp-
eldi, er gerir hann að dugnaðar-
manni í hvaða stöðu sem hann
kann að hljóta í lífinu.
Sir James Jeans (vísindamað-
ur):
Sá, sem lætur orð sln, hugs-
anir og athafnir stjórnast af
þekkingunni á stað frumstæðra
eðlishvata og tilfinninga.
Sir Hugh Walpole (skáld-
sagnailthöf.):
Árbók
Norræna félagsins
Árbók norræna félagsins Nor-
dens Kalender fyrir 1938 er ný-
kominn út. Árbókin hefir allt-
af verið fallegt og fróðlegt rit,
en það mun mega fullyrða, að
þessi taki hinum eldri fram að
öllum frágangi. Rit þetta fá
félagsmenn fyrir félagsgjaldið,
sem er kr. 7,00. Bókhlöðuverð
bókarinnar er kr. 10,00.
Efni ritsins er mjög f jölbreytt.
Fremst eru fimm heilsíðumynd-
ir, ein frá hverju landi. Þá
koma „Svanirnir frá norðrinu",
sem er ágætt kvæði eftir danska
skáldið Hans Hartvig Pedersen,
ræða norska biskupsins Eivind
Berggravs, sem hann hélt í
fyrra í útvarpið, þegar Norræni
dagurinn hófst, grein Ronalds
Fangen um Norðurlöndin, grein
um kvikmyndastarfsemi á Norð-
urlöndum eftir Ragnar Allberg.
Þá skrifar prófessor Herbert
Tingsten um lýðræðið á Norður-
löndum. Prófessor E. Wellander
skrifar mjög fróðlega ritgerð
um ávarpsorð á Norðurlöndum
og Holger Wikström skrifar um
Simberg einn merkasta og ein-
kennilegasta listamann Finn-
lendinga.
Frá íslandi er löng grein eftir
Guðmund G. Hagalín um sveita-
líf á íslandi fyr og nú. Hið stór-
brotna kvæði eftir Örn Arnar-
son, Stjáni blái, birtist í ritinu
með teikningum eftir Finn
Jónsson listmálara og Guðlaug-
ur Rosinkranz segir í stuttri
grein frá helztu æfiatriðum
skáldsins. í ritinu eru tæplega
tuttugu myndir frá íslandi.
Margar fleiri ritgerðir eru í
Árbókinni, sem of langt er upp
að telja, auk fjölda mynda og
teikninga. Ritið er 240 síður í
stóru broti, mjög fjölbreytt að
efni og hin skrautlegasta út-
gáfa. í eitt og allt prýðileg bók.
Um ísl. landbúnað
Á 100 ára afmæli Búnaðarfé-
lags íslands síðastl. sumar,
mætti sem gestur þess og full-
trúi aðalbúnaðarfélags Norð-
manna, Det Kongelige Selskab
for Norges Vel, framkv.stjóri
þess félags, Ole Hersoug. Ferð-
aðist hann allmikið um hér á
landi á vegum B. í.
í des. í vetur hélt hann fyr-
irlestur um dvöl sína hér og ísl.
landbúnað, í Selskabet for Nor-
ges Vel, og við nokkur önnur
tækifæri.
Fyrirlestur Hersoug’s birtist í
nýútkomnu j anúarhefti tíma-
ritsins TIDSKRIFT FOR DEN
(Frh. á 4. siSu.)
Sá, sem lært hefir nóg af hinu
liðna til að skilja samtíðina, —
sem þekkir sjálfan sig nógu
vel til að vera umburðarlyndur
við aðra — sem hefir lært nóg
af vísindum til að vera lítillát-
ur og auðmjúkur.
Hr. G. Bernhard Shaw (rit-
höfundur):
Mér þykir það leitt, en ég hefi
aldrei hitt menntaðan mann.
Gracie Fields (leikkona):
Maður, sem veit mikið, en
lætur lítið yfir því.
Happdrætti
Háskóla
Islands.
Sala happdrættismiða fer ört
vaxandi, hér eins og í öðrum
löndum. Hækkunin hefir numið
50% frá því 1934. Eftirspurnin
í ár virðist mjög aukin. Tryggið
yður miða áður en það er um
seinan.
Frá starfsemi
Happdrœttisins:
23. Bjargað frá gjaldþroti.
1934 hlut A. á Norðurlandi 25.000
króna vinning. Hafði hann reist sér í-
búðarhús, lent i vanskilum með
greiðslu byggingarefnis og var ákveðið
að gera hann gjaldþrota um áramót
og taka húsið af honum. Vinningurinn
bjargaði honum meir en að fullu.
24. Óbilandi trú.
Kyndari einn í verksmiðju norðan-
lands barðist við sveit 1934, en hafði
óbilandi trú, að hann myndi bjargast
ef hann gæti spilað i happdrættinu
árið út. í 10. flokki hlaut hann 500
króna vinning og 25 króna á annað
númer. Þótt upphæðin væri ekki stór,
bjargaði hún honum. Hefir hann og
öll árin unnið smávinninga síðan.
25. Fer eftir draumi og vinnur
50,000 krónur.
Konu elna dreymdi snemma á árinu
1937, að henni myndi hlotnast happ,
ef hún keypti miða i happdrættinu.
Hún fór eftir draunmum, miðinn var
valinn af handahófi og kom upp með
50.000 krónur. Var þetta fyrsta árið,
sem hún spilaði í happdrættinu.
26. Ellistyrkur.
1937 í 8. flokkl, vann maður á sjö-
tugsaldri 5000 krónur. Hann sagðist
leggja peninga þessa til hliðar tU þess
að nota þá í ellinni.
Fámn þykir simi sjóð-
íir of Irangur.
Lög um
alþýðutryggingar
Ný útgáfa af lögunum með
skýríngum Tryggíngarstoín-
unar ríkisins fæst á skrifstofu
Tryggingarstofnunar ríkisins
(Eilitryggíiigardeild).
T ryggíngarsiofnun
ríkisíns.
Dömutöskur
úr lefSri á 10.00 og 12.00.
tSamatöslcur á 10.00 og 1.50,
nýkomið.
K. Einarsson & Björnsson
Bankasíræti 11.
Vatnsleðursstígvél
á drengi og karlmenn nýkomin í
Skóverzlun
B. SteSánssonar
Laugavegi 22 A. — Sími 3628.
Bskadansfaflnaðnr
Sundfélagsins Ægis verður haldinn i Odd-
fellowhöllinni á ílskndag klukkan 9,30 slðd.
Allir íprótfannnendur velkomnir.
Aðgöngumiðar seldir á sama stað eftir
klukkan 5 síðdegis á miðvikudag.
Umboðsmenn í Reykjavík:
Prú Anna Ásmundsdóttir og frú
Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupmaður,
Týsgötu 1, simi 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sívertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
síml 3484.
Frú Maren Pétursdóttlr, Lauga-
vegi 66, sími 4010.
Pétur Halldórsson, Alþýðuhús- •
inu. —
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, slmi 3244.
Umboðsmenn f Ilafnarfirði:
Valdemar Long, kaupmaður,
sími 9288.
Verzlun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9310.