Nýja dagblaðið - 08.03.1938, Blaðsíða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Dr. Jón Ófeigsson andaðist
þann 27. f. m., og er þar á bak
að sjá einum merkasta kennara
og fræðimanni þessa lands.
Hann fæddist að Stóranúpi í
Hreppum 22. apríl 1881. Foreldr-
ar hans voru Ófeigur Guð-
mundsson, síðar útvegsbóndi og
kona hans, Kristín Jónsdóttir,
prests á Stóranúpi, Eiríkssonar.
Nokkra vikna gamall fluttist
hann að Læknisnesi og ólst þar
upp unz hann missti föður sinn
7 ára gamall, en síðan hér í bæn-
um með móður sinni. Haustið
1895 settist hann í 1. bekk Lat-
ínuskólans, lauk stúdentsprófi
með ágætiseinkunn vorið 1901
og sigldi samsumars til Kaup-
mannahafnar. Þar las hann
málfræði, með þýzku sem aðal-
grein, en ensku og frönsku sem
aukagreinar og lauk embættis-
prófi á öndverðu ári 1908, með
I. einkunn. Síðan hvarf hann
heim. Árið 1911 varð hann
stundakennari við Menntaskól-
ann og hlaut skipun í kennara-
embætti þar 1. jan. 1914. Kenndi
hann þýzku og dönsku, unz skól-
inn stækkaði, en þýzku síðan til
síðustu áramóta, er hann lét af
kennslu.
Dr. Jón var frábær starfsmað-
ur og gerðist brátt mikilvirkur
kennari og mikils metinn. Hann
samdi kennslubækur í greinum
sínum og lagði drjúgan skerf til
hinnar miklu orðabókar Sigfús-
ar Blöndals, meðal annars kafl-
ann um íslenzka hljóðfræði, sem
talinn er merkilegt rit. Síðan
samdi hann þýzk-íslenzka orða-
bók, sem út kom árið 1934.
Árið 1924 fór hann utan til að
kynna sér nýungar í kennslu-
málum. Þegar heim kom, tók
hann upp kennsluaðferð, sem ég
veit ekki til, að hér hafi verið
áður höfð, að minnsta kosti í
æðri skólum. Gerði hann þá og
tillögur um skipun skóla hér á
landi, sem voru merkilegar á
marga lund, þó að ekki væri að
þeim horfið. Árið 1936 var hann
sæmdur doktorsnafnbót af Há-
skóla íslands.
Dr. Jón Ófeigsson var hár
maður vexti, virðulegur og vel
farinn. Hann var heilsugóður
með afbrigðum, hversu mjög
sem hann lagði að sér við vinnu,
og virtist líklegur til langra
starfsdaga og; margra. En árið
1934 tók hann að kenna dofa í
hægri hendi. Fór sjúkdómurinn
hægt, en seig jafnt á og létti
ekki, hverra bragða, sem í var
leitað. Var hörmulegt að sjá,
hversu líkami þessa hrausta
manns hrörnaði dag frá degi, að
kalla. En dr. Jón bar mein sitt
með mikilli karlmennsku. Hann
heyrðist aldrei mæla æðruorð og
gekk að starfi meðan kraftarnir
entust og raunar miklu lengur.
Hann var maður skyldurækinn
með afbrigðum og vildi ekki láta
bugast. En nú fyrir skömmu
fékk hann kvef, og elnaði þá
sjúkdómurinn, unz dauðinn kom
til hans, hins örþreytta manns,
líkt og líknsamur svefn.
Hvort sem litið er á störf dr.
Jóns Ófeigssonar sem kennara
eða fræðimanns, skipar hann
virðulegan sess meðal atorku-
og manndómsmanna þjóðarinn-
ar. Og í Menntaskólanum er
mikið skarð fyrir skildi, þar sem
hann var.
Árið 1910 kvæntist hann Rig-
mor Schultz, danskri konu. Þeir,
sem eitthvað þekkja til, vita að
hún hefir jafnan staðið fast við
hlið manns síns, og látið eitt
yfir bæði ganga, en þó einkum
nú, í hinni hinztu, löngu raun.
Fáir munu skilja til fulls, hve
mikils hefir þar með þurft. Við,
sem álengdar stöndum, vitum
aðeins, að þar hafa miklar fórn-
ir verið færðar.
P. H.
Störf Norræna
félagsíns
Félagið gengst fyrir
mörgum inótuni í
sumar og efnir til
norrænnar listsýu-
ingar.
Aðalfundur Norræna félags-
ins var haldinn síðastl. föstu-
dagskvöld. Ritari félagsins gaf
skýrslu um starf þess á síðastl.
ári og fer hér á eftir útdráttur
úr henni:
Félagsmönnum hefir fjölgað
meira á síðastliðnu ári heldur
en nokkru sinni fyrr, eða um 165,
þar af 5 skólar og félög. Skráðir
félagsmenn voru nú um ára-
mótin 650. En síðan um áramót
hafa 80 manns gengið í félagið.
Á siðastl. ári var ekkert nám-
skeið hér á landi en 10 íslend-
ingar tóku þátt í námskeiðum
og mótum félagsins í Danmörku
og Noregi.
Nú í vetur hefir félagið komið
upp dálitlu bókasafni og fengið
10 úrvalsbækur frá hverju af
Norðurlöndunum, gefins frá út-
gefendasambandi Norðurlanda.
Tilgangurinn er að fá þannig
árlega 10 úrvalsbækur af þeim
sem út koma á hverju ári. Þá
gengst félagið fyrir 5 útvarps-
kvöldum, eitt kvöld fyrir hvert
ríki.
í sumar verða mörg mót og
námskeið á vegum félags-
manna, eins og venja er. Hér á
landi er ákveðið að hafa kenn-
aramót á Laugarvatni 11.—17.
júlí og er 10 kennurum boðið frá
hverju af Norðurlöndunum. í
júníbyrjun kemur hingað
sænskur fimleikaflokkur á veg-
um félagsins. Námskeið í hinum
löndunum verða:
í Danmörku fyrir rektora
menntaskólanna á Norðurlönd-
(Frh. á 4. siðu.)
Námskeið fyrír bífreíðastjóra
undir meíra prólið heSst um 16. p. m. eS pátt-
taka verður nægíleg. Umsókuir sendist ekki
síðar en míðvíkudag 9. þ. m. til BiSreiðaeStir-
litsins í Reykjavík.
Happdrætti
Háskóla
Garnir
Kaupum saltaðar, vel verkaðar garnir og
langa úr kindum, kálfum, nautum og
svínum.
Garnastöðin, Reykjavík,
Síml 4241.
Bankarnir verða 1 o k a ð i r
laugardag fyrir páska
Athyglí skal vakin á pví, að víxlar sem Salla
í gjalddaga þriðjudaginn 12. apríl, verða aS-
sagðir miðvikudaginn 13. apríl, séu peir eigi
greíddir eða Sramlengdir Syrir lokunartíma
bankanna pann dag.
Reykjavík, 7. marz 1938.
LANDSBANKl ISLANDS.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS H.F.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS.
IMaður í fastrl stöðu óskar eftir að \
fá leigða íbúð, 2—3 herbergi og eld- S
hús, ásamt góðu geymsluplássi, í nýju #
húsi, frá 14. mai n. k. — Ábyggileg C
greiðsla mánaðarlega fyrirfram. Upp- \
lýsingar í síma 3948 eftir kl. 5 alla S
virka daga. f
Islands.
Fimmti hver miði að meðaltali
fær vinning á ári, 5000 vinningar
af 25000 númerum fá samtals
eina milljón og fimmtíu þúsund
srónur. Hver vill ekki verða þátt-
takandi í þessari stóru vinnings-
upphæð?
Frá starfsemi
happdrœttisins.
39. Vann og gat greitt náms-
kostnaðinn.
Ungur sveitapiltur sótti um
inngöngu á Laugarvatnsskólann
og vann samtímis 1250 kr. á 14-
miða. Var talið að þessir pening-
ar hefðu komið sér mjög vel, því
af miklum efnum var að taka.
Fólk sagði, að þessi upphæð hefði
komið eins og af himnum ofan,
því að hún dugði til þess að pilt-
urinn færi gegnum skólann.
40. Þeim gaf, sem þurfti.
Á sveitabæ einum austanfjalls
hafa búið um skeið bændurnir A.
og B. í tvíbýli. Þeir voru báðir
fátækir barnamenn, þó var fjöl-
skylda B. mun þyngri, enda á-
stæður hans í flestum greinum
þrengri. Er líkt á komið um
menningu þeirra og metnað.
Fyrir tveim árum tæmdist A.
mikill arfur. Hann komst úr
skuldum, jók bú sitt og bætti að-
stöðu sína til eins og annars. Fá-
tækt B. varð nær tilfinnanlegri
við happ A. Munur ástæðna
þeirra varð öllum augljós, hvar
sem á var litið. Þá vildi það til
1936, að B. vann í happdrættinu
7500 krónur. Fjárhagur þeirra A.
og B. og allar ástæður jöfnuðust
við það til mikilla muna. Þótti
öllum vænt um og fögnuðu yfir
happi hans. Hefir þó aldrei
heyrzt öfundarorð hjá neinum
manni yfir velfarnaði og hinni
góðu fjárhagsafkomu A., enda er
hann fullt eins vel látinn í sveit-
arfélaginu sem B. „Þeim gaf,
sem þurfti, sannast hér sem oft-
ar.
Fjórðungsmiðí kost-
ar aðeíns 1.50
á mánuðí
Ekki er nú hundraðið
í hættunni
Umboðsmenn í Reykjavík:
Frú Anna Ásmundsdóttlr og frú
Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupmaður,
Týsgötu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sívertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
simi 3484.
Prú Maren Pétursdóttir, Lauga-
vegi 66, simi 4010.
Pétur Halldórsson, Alþýðuhús-
inu. —
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðjmenn í Hafnarfirði:
Valdemar Long, kaupmaður,
sími 9288.
Verzlun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9310.