Nýja dagblaðið - 19.03.1938, Síða 1
tJTSALA
þessa viku.
LoUað
næstu viku vegna viðgerðar
á búðinni.
V-E-S-T-A
Sími 4197. Laugaveg 49.
IWJIA
6. ár. Reykjavík, laugardaginn 19. marz 1938. 65. blað
Framsóknarílokkurínn verður að ráða
í vandamálum útgerðarínnar
Allir flokkar þingsins fallast á frumvarp
Framsóknarmanna um rannsókn á hag og
rekstri togaraútgerðarínnar
ANNÁLL
78. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 6,38. Sólarlag kl.
6,35. — Árdegisháflæður í Reykjavík
kl. 7,15.
Veðurútlit í Reykjavík:
Hægviðri. Úrkomulaust að mestu.
Póstferðir á morgun:
Til Reykjavíkur: Dr. Alexandrine
frá útlöndum og Lagarfoss norðan um
land.
Ljósatími bifreiða
'er frá kl. 6,50 síðdegis tU kl. 6,25
árdegis.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veð-
urfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,40
Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Leik-
rit: „Tímaleysinginn", eftir Holberg
Nemendur Menntaskólans í Rvik). —
21,45 Danslög. 24,00 Dagskrárlok.
Næturlæknir
er í nótt Páll Sigurðsson, Hávalla-
götu 51, sími 4959. — Næturvörður er
í Ingólfsapóteki og Laugavegsapóteki.
Ungir Framsóknarmenn
austan fjalls efndu til samkomu í
skíðaskálanum í Hveradölum í fyrra-
kvöld og fóru um hundrað samherjar
þeirra úr Reykjavík til móts við þá.
Kynnikvöld þetta hófst með kaffi-
drykkju. Guðmundur Ingi Kristjáns-
son skáld frá Kirkjubóli í Önundar-
firði flutti yfir borðum nokkur kvæði
og Lárus Rist sundkennari og Þórar-
inn Þórarinsson héldu stuttar ræður.
Að samdrykkjunni lokinni var spiluð
Framsóknarvist og verðlaunum út-
hlutað. Samvinnuskóla-kvartettinn
söng nokkur lög og að lokum var
danzað fram á nótt. Var þetta hin
ánægjulegasta samkoma.
Nemendur Laugaskóla
og kennarar fóru í gær til Akureyrar
í kynnisför og heimsókn til mennta-
skólans og Kaupfélags Eyfirðinga og
héldu aftur heimleiðis í nótt. Akur-
eyringar tóku á móti þeim með mestu
gestrisni og voru þeim meðal annars
sýndar verksmiðjur kaupfélagsins og
S. í. S. Laugamenn voru áttatíu alls á
fimm bifreiðum. Vaðlaheiði var greið-
fær sem á sumardegi væri.
Stjórn S. í. S.
er komin saman til fundar hér í
bænum. Komu þeir Björn Kristjáns-
son, Jón ívarsson og Þorsteinn Jóns-
son til bæjarins með Esju í fyrrakvöld.
Skólakeppnin
Háskólinn og Samvinnuskólinn
kepptu í handknattleik á þriðjudaginn
var. Háskólinn sigraði. í gær kepptu
menntaskólanemar við nemendur úr
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og sigr-
uðu hinir fyrrnefndu.
Skíðaferðir um helgina.
Skíðafélag Reykjavíkur fer skíða-
för upp á Hellisheiði á morgun, ef
veður og færi leyfir. Lagt af stað kl.
9 árdegis. Farmiðar seldir hjá L. H.
Múller til kl. 6 í kvöld. Engir farmiðar
seldir á morgun. — í. R. efnir til
skiðaferðar að Kolviðarhóli á morgun
og verður lagt af stað frá söluturn-
inum kl. 9 árdegis. Farmiðar verða
seldir í dag í Stálhúsgögn, Lauga-
vegi 11. — K.R.-ingar fara á sunnu-
daginn á skíði kl. 9 f. h. að skíða-
skála félagsins á Skálafelli. Skálafell
er enn alhvítt af snjó og skíðafæri því
ágætt ef veðrið verður gott. Farmiðar
verða seldir hjá Axel Cortes á Lauga-
vegi 10. Farið verður frá K.R.húsinu.
— Ármenningar fara í kvöld og fyrra-
málið í Jósefsdal. Farmiðar seldir i
Brynju (ekki svarað í síma) og á
skrifstofu félagsins kl. 6—9 í kvöld,
sími 3356. Ekki er selt við bílana að
morgni. Snjór er mikill í Ólafsskarði
og í Bláfjöllum sér vart á dökkan díl.
Frá Hornafirði
ganga nú um tuttugu bátar. Gæftir
hafa verið sæmilegar síðustu daga, en
afli minni en nokkuru sinni fyr á
þessum tíma.
Alvarlegar
víðsjár
Vcrður styrjold
mílli Pólverja og
Líthaua?
LONDON og KALUNDBORG:
Sá atburður, að pólskur landamæra-
vörður var skotinn af lithauiskum
landamæravörðum, virðist ætla að hafa
alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Hafa Pólverjar sent Lithauen úr-
slitakosti og krafizt svars fyrir kl 9
í kvöld. Eru kröfur þeirra þessar:
Stjórnmálalegt samband milli þess-
ara ríkja verði tekið upp fyrir 31. þ.
mán.
Samgöngur milli landanna verði
teknar upp fyrir sama tíma.
Allar kröfur Lithauen til Vilna falli
niður.
Llthauen gangi að þessum kröfum
skilyrðislaust.
Pólverjar hafa safnað saman her
við landamærin og er búizt við því,
að þeir ráðizt inn í landið, ef kröfum
þeirra verður ekki fullnægt. Voru mikl-
ar æsingar í Varsjá í gær.
Vilna (Vilnius) er hin forna höfuð-
borg Lithauen. Pólverjar lögðu hana
undir sig 1920 og 1927 úrskurðaði nefnd
á vegum Þjóðabandalagsins að hún
skyldi tilheyra Póllandi. Lithauen hef-
ir aldrei viljað hlýða þeim úrskurði og
því ekki haft neitt stjórnmálasamband
eða samgöngur við Póllandi síðan. FÚ.
Stauning
skrifar um
Jón Baldvinsson
KALUNDBORG og LONDON:
Danska blaðið „Social-Demokraten“
flytur í gær minningargrein um Jón
Baldvinsson eftir Stauning forsætis-
ráðherra. Farast Stauning m. a. orð á
þessa leið:
„Það er tilfinnanlegt tap sem
bræðraflokkur vor á slandi hefir beðið
við fráfall Jóns Baldvinssonar, og það
er líka tap fyrir hið stjórnmálalega og
menningarlega samband milli íslands
og Danmerkur, en á þeim vettvangi
vann Jón Baldvinsson árum saman
stórmerkilegt starf. Hann var maður
sívinnandi, allt frá barnæsku og hinn
mesti afkastamaður til starfa, en jafn-
framt gætinn og forsjáll. Hann var
andvigur því að kommúnisminn yrði
ráðandi stefna meðal jafnaðarmanna
á íslandi og ef til vill hafa deilurnar
innan flokksins átt nokkurn þátt í
því að lama krafta hans og a. m. k.
hafa þær blandið síðustu tíma hans
beizkju. Ég harma mjög það tjón sem
ísland hefir beðið með fráfalli Jóns
Baldvinssonar, en ég vona að aðrir
verði þess megnugir að halda hinu
drengilega starfi hans áfram“. FÚ.
Frumvarp það, er þeir
Gísli Guðmundsson og
Skúli Guðmundsson lögðu
fram á Alþingi fyrir hönd
Framsóknarflokksins, um
kosningu 5 manna nefndar
til að rannsaka hag og
rekstur togaraútgerðarinn-
ar og gera tillögur um það
mál, var til 1. umræðu í
I neðri deid í gr. Við þessa
umræðu geröust þau tíð-
indi, að bæði Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðuflokk-
urinn lýstu fylgi sínu við
frumvarpið og greiddu því
atkvæði við lók umræðunn-
ar. Sama gerðu kommúnist-
ar og Héðinn Valdimarsson.
Umræðurnar hófust á því, að
fyrri flutningsmaður málsins,
Gísli Guðmundsson, gerði grein
fyrir efni frumvarpsins og á-
stæðum þeim, er til þess lægju
að Framsóknarflokkurinn nú
beitti sér fyrir því að þessi leið
yrði farin í vandamálum stór-
útgerðarinnar. Útgerðarmenn
hefðu borið fram óskir um opin-
bera hjálp, sagði hann. Með til-
■liti ttil þass, hvílíka þýðingu
togaraútgferðin hefði haft og
hefði í íslenzku atvinnulífi yrði
ekki hjá því komizt áð taka
slíkar málaleitanir til athugun-
ar og fyrirgreiðslu eftir mála-
vöxtum. En skilyrði til þess að
slíkt mætti verða, væri óhjá-
kvæmilega þau, að ríkisvaldið
fengi aðstöðu til að vita full-
komlega og óvéfengjanlega skil
á því, hversu hag og rekstri
þessara fyrirtækja væri raun-
verulega háttað, og hverjar leið-
ir með eða án raunverulegra
fjárframlaga eða ívilnana, þar
kæmu til greina til úrbóta.
Afstaða
andstæðingaima
Ólafur Thors talaði næstur og
lýsti yfir því að Sjálfstæðisflokk-
urinn myndi fallast á, að frum-
varp þetta yrði að lögum. Hann
kvaðst viðurkenna, að krafa
Framsóknarflokksins um að
rannsókn yrði látin fram fara
af hálfu ríkisvaldsins, væri eðli-
leg. Finnur Jónsson talaði næst-
ur og lýsti fylgi Alþýðuflokks-
ins við frumvarpið. Síðar töluðu
þingmenn kommúnista og Héð-
inn Valdimarsson. Af hálfu
Framsóknarflokksins tóku fjár-
málaráðherra og Skúli Guð-
mundsson einnig þátt í umræð-
um um málið. Enginn greiddi
atkvæði gegn frv. og að lokinni
umræðu, var því vísað til sjáv-
arútvegsnefndar.
Forysta
Framsóknar*
flokksins.
Þar sem þetta frumvarp er,
hefir nú þingið fengið til með-
ferðar eitt af þeim stærstu mál-
um, sem likíegt er að það
fjalli um að þessu sinni. Fram-
sóknarflokkurinn hefir nú jafn-
(Frh. á 4. síOu.)
Sj ómenn láta ekki
kommúmsta hafa
ssgr að leíksoppi
Fundur var haldinn í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur í gærkvöldi.
Björn Bjarnason, bæjarfulltrúi
kommúnista, bar fram tillögu um að
skora á önnur verklýðsfélög að taka
þátt í eins dags mótmælaverkfalli.
Sjómenn tóku þessari æsingatilraun
kommúnista illa og var samþykkt að
vísa henni frá með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða.
Héðinn Valdimarsson var mættur á
fundinum og mælti með þessari tillögu.
Samþykkt var að sjómenn skyldu
ekki skrá sig fyr en úrskurður gerðar-
dómsins, væri fallinn og halda þá fund
í félaginu.
Kommúnistar hóuðu saman fundi og
létu þar samþykkja tillögu um mót-
mælaverkfall. Er gott að þessir menn
opinberi sem bezt sitt rétta innræti
gagnvart þingræðinu.
Tveír menn drukkna
við Stokkseyri
Tveir menn drukknuðu í Stokks-
eyrarsundi síðdegis í fyrradag af vél-
bátnum Ingu, þegar hann ætlaði að
leggja inn.
Mennirnir voru báðir ungir að aldri
og hétu Guðni Eyjólfsson og Karl
Magnús Karlsson.
Forsætísráðheira
gegnír embættí at-
vinnumálaráðherra
Haraldur Guðmunds-
son baðst lausnar
í gær
Áður en gengið var til dagskrár í
neðri deild i gær kvaddi forsætis-
ráðherra sér hljóðs og skýrði frá því
að honum hefði um morguninn bor-
izt bréf frá Haraldi Guðmundssyni
atvinnumálaráðherra, þar sem hann
óskaði lausnar úr ráðuneytinu.
Forsætisráðherra sagðist þegar hafa
símað konungi og óskað eftir að hann
samþykkti þessa beiðni ráðherrans.
Ennfremur hefir hann lagt til við
konung, að sér yrðu falin störf at-
vinnumálaráðherra fyrst um sinn.
Ástæða til þessarar lausnarbeiðni
Haraldar Guðmundsonar, sagði forsæt-
isráðherra, eru þingmönnum kunn.
Hún er í beinu áframhaldi af þeirri
yfirlýsingu, sem hann gaf hér í deild-
inni, þegar gerðardómsfrv. var rætt.
Mér þykir leitt að þannig skuli hafa
farið, en ég taldi þetta mál svo stórt
og mikilsverðandi að ég áleit að ekki
aðeins samningsréttur deiluaðila held-
ur einnig öll önnur sjónarmið yrðu að
víkja fyrir skjótri lausn þess.
Meðan núverandi stjórnarsamvinna
hefir haldizt, sagði ráðherrann enn-
fremur, hefir stjórnarflokkana oft
greint á meira og minna, en þrátt fyr-
ir það hefir samvinnan jafnan verið
mjög góð í ríkisstjórninni. Haraldur
Guðmundsson hefir jafnan sýnt mik-
inn drengskap í þeirri samvinnu og
er mér ljúft að þakka fyrir það.
Engar umræður urðu eftir þessa
tilkynningu forsætisráðherrans.
Gerðardómurínn
iullskipaður
Hann getur lokið störf-
um á mjög skömmum
tíma
Gerðardómurinn er nú fullskipaður.
Útgerðarmenn tilnefndu Kjartan
Thors framkvæmdarstjóra og viku
Ágústi Jósefssyni úr dómnum.
Sjómannafélagið neitaði að tilnefna
og tilnefndi hæstiréttur mann í stað-
inn fyrir það. Valdi hann Kjartan
Ólafsson múrara. Félagiö neitaði einn-
ig að ryðja manni og gerði forsætis-
ráðherra það. Veik hann Birni Steff-
ensen endurskoðanda.
Er gerðardómurinn endanlega þann-
ig skipaður: Hákon Guðmundsson
hæstaréttarrit. (form.), Kjartan Ólafs-
son, Pétur Lárusson starfsmaður Al-
þingis, Kjartan Thors og Þorsteinn
Þorsteinsson hagstofustjóri.
Þar sem gerðardómurinn hefir öll
gögn fyrirliggjandi frá sáttasemjara
og sáttanefnd, þarf hann ekki langan
tíma og ætti vel að geta komið til
mála, að hann lyki störfum í dag.