Nýja dagblaðið - 20.03.1938, Qupperneq 2
9
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Hans Hartvig Seedorff Pedersen:
Til íslands
(Kvæði þetta flutti Poul Reumert á jólahljómleikum danska
blaðsins „Politiken", í vetur, og hefir það verið birt í sunnu-
dagsútgáfu þess blaðs.)
Þar sem öndvegissúlum eitt sinn skaut
úr öldum við Norðursæ,
sem rak sína fáka um bláa braut
í bjarmann af frónskum snæ,
Þar eggjar saga, þar seiða ljóð,
sem sverða þytur, sem klukkna hljóð,
í samleik þrúðugs og þýðlegs máls,
með þótta eða ástúð — en jafnan frjáls.
Um landnema íslands lýsir vor,
með ljóma yfir stormi og röst.
í mold, þar sem enginn átti spor,
þeir öndvegin gerðu föst.
Þeir juku Norðrið um náttbjart land
með nýgræðingi við jökulsand.
Og Danmörk brosti út í blámans sal,
er bar við loft hennar hvíta val.
En þeim sem fæðist með hauksins hug,
er harmur að þola bönd.
Hann kýs í stormköstum fremur flug
en fjötur við meyjar hönd:
Þótt Danmörk lokkaði, ljós og mild,
sú löngun að fljúga að eigin vild,
um norrænt hvolf, yfir núp og straum,
leið nú sem fyrr gegnum valsins draum.
Svo flaug hann þangað með fjaðrasúg,
sem fjarlæga eyjan skein.
Og aldrei var tryggð okkar traustari en nú,
er tengja okkur hjörtun ein.
Þótt sveifli hann frjáls sínum væng að vild,
með vorum erum við bæði í fylgd.
Því saman eigum við sögu og mið,
og sömu kórónu lyftum við.
Magnús Ásgeirsson íslenzkaði.
Ávarp til ungra Framsóknar-
manna
(Flutt á samkomu í skíðaskálanum í Hveradölum 18. þ. m.)
Unga fólk undir framsóknarmerki!
Hér á framtíðin örugga von.
Hér á ísland það traust sem það trúir,
marga tápmikla dóttur og son.
Eruð þið ekki boðin og búin
til að bindast í verkefni góð,
gera fólkið frá hafi til heiða
eina hagsýna, starfsglaða þjóð?
Það er horft, það er hrópað til ykkar.
Verið hiklausir framsóknarmenn.
Það er alstaðar verk til að vinna,
sem er veglegt og erfitt í senn.
En ef hugsjónum, heitum og djörfum,
fylgja handtökin sterkleg og góð,
þá er manndómsins morgun í vændum
yfir menntaða, vinnandi þjóð.
Eftir störfum og átökum ykkar
bíður ísland og vonar í dag.
Og í æskunnar heitustu hugsjón
á hvert hérað sitt framtíðarlag.
Hvort þið búið við sjó eða í sveitum,
þar á samvinnan hlutverk sitt enn.
Hvaða starf, hvaða veg sem þið veljið,
bíða verkefnin, Framsóknarmenn!
Guðmundur Ingi.
M.s. Dronning
Alexandrine
Burtför skípsins til vestur-
og norðurlandsins er frestað
til þriðjudagsins 22. þessa mán-
aðar kl. 6 síðdegis.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvag. Sími 3025.
Fundur
í Varðarhúsinu mánud.
28. p. m. kl. 9 e. hád.
Fundarefni:
Skíðaskálamálið.
Stjórnin.
Hús tíl sölu
í Skerjaíírði.
Lítil útborgun.
T ækiEæris verð.
Upplýsingar í síma
4970.
Sæbjðrt - Sæbjört
Æfintýraleikurinn
S Æ B J Ö R T
verður leikinn í dag
kl. 5,30 í Iðnó.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
10 f. h. — Drengjahljómsveit
leikur milli þátta.
LÉREFTSTU SKUR
hreinar og heillegar,
(mega vera mislitar),
kaupir Prentsmiðjan
EDDA h.f., Lindar-
götu 1D.
- Kaup ogf sala -
Kjólar og blússur í úrvali. —
Saumastofan Uppsölum, Aðal-
stræti 18.
aðeln» Loftur.
VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A
LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ALF-
UNNAR.
ViBtækjaverzlunln veitlr kaupendum viðtækja meiri
tryggingu um hagkvæm vlðskipti en nokkur önnur
verzlun mundi gera, þegar bilanir koma fram í tækj-
unum eða óhöpp bera að höndum.
Ágóða Viðtækjaverzlunarinnar er lögum aamkvæmt
eingðngu varið til reksturs útvarpsins, almennrar út-
breiðslu þess og til hagsbóta útvarpsnotendum.
Takmarkið er: Viðtæki inn ó hvert heimili.
Víðtækjaverzlun ríkísíns
Lækjargötu 10 B. Sími 3823.
.... og svo umfram allt að senda
mér 1 stykki SAVON DE PARIS,
hún er svo ljómandi góS.
— Já, með ánægju, kæra frö-
ken, enda seljum við langmest
af þeirri handsápu.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
í heildsölu hjá
Samband ísl. samvlnnufélaga
Sími 1080.
V orsalan
byrjar á morgun
DÖMU^Jsápurj^Jrakkar
svaggcrar og dragtir.
Mjög míkíð úrval.
Nýjasta tízka.
Lítið í gluggana á Laugaveg 3.
Klæðaverzl. Andrésar Andréssonar h.f.