Nýja dagblaðið - 23.03.1938, Qupperneq 1
BtÐEV ER LOKlö
nokkra daga, vegna viðgerða, en
vörur frá okkur fást í
----Delfi----
Austurstræti 5.
V-E-S-T-A
Sími 4197. Laugaveg 40.
IDIBIIAJÐII \Ð
6. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 23. marz 1938. 68. blað
ANNÁLL
AistaðantilríkisstjórnarinnaráAlþingi
Nýtt fasteignamat for'
Fjármálaráðherra heíir skípað yíírmats- SætlSraöheiTa
menn og iormenn íasteignanefnda 1 IieOn QeiiQ I
82. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 6.23. Sólarlag kl.
6.48. Árdegisháflæður í Rvík kl. 10.05.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 7.10 síðdegis til kl. 6.00 árd.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir, Ingólfs-
stræti 14, sími 2161. Næturvörður er í
Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur
Apóteki.
Veðurútlit í Reykjavík:
Norðan kaldi og snjóél.
Dagskrá útvarpsins.
8.30 Enskukennsla. 10.00 Veðurfr.
12.00 Hádegisútvarp. 18.45 ísl.kennsla.
19.10 Veðurfr. 19.20 Þingfréttir. 19.40
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.15 Bækur
og menn. 20.30 Kvöldvaka: a) Hallgr.
Jónasson kennari: Vatnaleiðin gegnum
Svíþjóð. b) V. Þ. G.: Úr Vatnsdælu,
VII. c) Jónas Þorbergsson útvarpsstj.:
Ljóð og línur. Ennfremur söng- og
harmonikulög.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes til Akraness. Lyra til
Vestmannaeyja, Færeyja og Bergen.
Lagarfoss til Austfjarða og IChafnar.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes frá Akranesi.
Leikfélag Reykjavíkur
hefir á morgun frumsýningu á gam-
anleiknum „Skírn, sem segir sex“, eftir
norska skáldið Oskar Braaten.
Sænski sendikennarinn
Sven Jansson, heldur næsta fyrir-
lestur sinn í háskólanum miðvikudag
23. marz kl. 8.05. Efni: Nýir sænskir
rithöfundar (Sven Lidman, Harry Mar-
tinsson).
Föstuguðsþjónusta
verður I fríkirkjunni í kvöld kl. 8.15.
Séra Árni Sigurðsson prédikar.
Strandamenn
efna til móts næstk. föstudagskvöld í
Alþýðuhúsinu. Til skemmtunar verða
ræður, söngur og dans. Aðgöngumiðar
kosta kr. 3.00 og verða seldir í verzlun
Þorkels Sigurðssonar, Laugaveg 18. —
Kaffiveitingar eru innifólgnar. Menn
mega taka með sér gesti. Er þetta í
fyrsta sinn, sem Strandamenn efna til
slíks móts hér í Reykjavík, og má vænta
að það verði sótt svo sem húsrúm frek-
ast leyfir.
Hvað er í pokunum?
heitir bæklingur, sem Áburðarsala
ríkisins hefir gefið út eftir Áma G.
Eylands. Er þetta tíunda smáritið, sem
Áburðarsalan gefur út og miðar það,
sem hin fyrri, að því að upplýsa menn
um næringarþörf jurta og gildi áburð-
arins og rétta notkun. M. a. er gerð
grein fyrir mismunandi áburðarþörf
helztu nytjajurtanna islenzku.
Skipafréttir.
Gullfoss kom til Khafnar í nótt.
Goðafoss er á leið til Vestmannaeyja
frá Khöfn. Brúarfoss er í Khöfn. Detti-
foss er á leið til Vestmannaeyja frá
Hull. Lagarfoss er í Rvík. Selfoss er á
leið til útlanda. Esja fer héðan í hring-
ferð annað kvöld. Lyra er væntanleg
hingað í nótt.
Gunnlaugrur Blöndal listmálari
og frú eru nýlega farin til Parísar
og munu dvelja þar um hríð. Mun
Gunnlaugur mála þar nokkrar myndir
og hefir þegar verið ákveðið að hann
haldi stóra sýningu í París, þegar kem-
ur fram á sumarið. — FÚ.
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í hjónaband
af sr. Árna Sigurðssyni ungfrá Ingi-
björg Ásgeirsdóttir, Sigurðssonar skip-
stjóra og Vilhjálmur Vilhjálmsson
verzlunarmaður. Heimili þerria er á
Laugaveg 82.
Bregðasf Bretar
Tékkoslovakiu?
Bollalegglngar inu
yfirlýsingu, sem
Clianihcrlain mun
gefa á morgun.
L.R.P.:
Chamberlain forsætisráðherra Breta
mun gefa yfirlýsingu í neðri málstofu
brezka þingsins á morgun, um stefnu
stjórnarinnar. Er búizt við, að yfirlýs-
ingin verði m. a. á þá leið, að engar
sérstakar tryggingar sé auðið að gefa
fyrir því að Bretland veiti Tékko-Slo-
vakíu vopnaða aðstoð, þó á hana yrði
ráðist af Þýzkalandi.
Þá er búizt við, að hann lýsi yfir því,
að hlutleysisstefnunni gagnvart Spán-
arstyrjöldinni verði haldið áfram, en
engar líkur þykja til þess að hlutleys-
isnefndin verði kölluð saman. Loks er
búizt við, að hann lýsi yfir því, að
brezka stjórnin líti á atburðina í Aust-
urríki og innlimun þess í Þýzkaland
eins og gerðan hlut, sem ekkert sé við
að gera.
Því var lýst yfir í enska þineinu í
gær, að samningum Breta og ítala
miðaði vel áfram. — FÚ.
Sókn Francos
stöðvuð
í Aragoniu
KALUNDBORG:
í Barcelona er haldiö áfram að grafa
upp úr rústunum lík þeirra manna, er
farizt hafa í loftárásum undanfarið.
Er þetta mjög erfitt verk og stórhættu-
legt. Um þúsund lík eru þegar fundin
og taliö sennilegt, að miklu fleiri muni
hafa farizt.
Landvarnarráðherrann í Barcelona
gaf út opinbera tilkynningu um það í
gær, að þrátt fyrir hamröm áhlaup
sem her Francos hafi gert á Aragoniu-
vígstöðvunum, með öllum helztu hern-
aðartækjum nútímans, hefði honum
ekki tekizt að vinna neitt á nú upp á
síðkastið. — FÚ.
Japanír halda því,
sem þeir haia unníð
Yfirlýsiiig Iierinála-
ráðherrans.
KALUNDBORG:
Japanski hermálaráðherrann lét svo
um mælt á þingi Japana í gær, að enn-
þá væri of snemmt að gefa neinar yfir-
lýsingar um það, hve langt Japanir
myndu fara með her sinn inn í Kína,
eða hve mikið af landi Kínaveldis hann
teldi óhjákvæmilegt að leggja undir
sig, en hitt sagði hann, að óhætt væri
að lýsa yfir nú þegar, að Japanir
myndu aldrei gefa eftir einn þumlung
af því landi sem þeir þegar hefðu unn-
ið í Kína og ekki heldur neitt af þeim
réttindum, sem þeir hefðu þannig á-
unnið sér. — FÚ.
Samkvæmt lögum frá haustþinginu,
hefir fjármálaráðherra fyrir nokkru
síðan skipað í yfirmatsnefnd fasteigna
í landinu, þá Bjarna Ásgeirsson, Pál
Zophoniasson og Hannes Pálsson
bónda í Undirfelli. Hefir nefndin þeg-
ar byrjað starf sitt til undirbúnings
matinu, en því á að vera lokið og fast-
eignamatsbók komin út árið 1942.
Núgildandi fasteignamatsbók er frá
1932.
Sýslunefndir og bæjarstjórnir kjósa
tvo menn í undirbúningsnefndir, en
fjármálaráðherra skipar formenn
þeirra. Þessir menn hafa verið skipaðir
formenn:
Gullbringusýsla: Klemenz Jónsson,
kennari, Árnakoti.
Kjósarsýsla: Björn Bjarnarson,
Grafarholti.
Borgarfjarðarsýsla: Jón Hannesson,
bóndi, Deildartungu.
Mýrasýsla: Sverrir Gíslason, bóndi,
Hvammi.
Snæfells- og Hnappadalssýsla: Hall-
ur Kristjánsson, bóndi, Gríshóli.
Dalasýsla: Bjarni Jensson, Ásgarði.
A.-Barðastrandarsýsla: Ingimundúr
Magnússon, bóndi, Bæ.
V.-Barðastrandarsýsla: Guðmundúr
S. Jónsson, bóndi, Sveinseyri.
V.-ísafjarðarsýsla: Jóhannes Dav-
íðsson, bóndi Nyrðri Hjarðardal.
N.-ísafjarðarsýsla: Bergmundur
Sigurðsson, bóndi, Látrum.
Strandasýsla: Gunnar Þórðarson,
bóndi, Grænumýrartungu.
V.-Húnavatnssýsla: Ólafur Björns-
son, bóndi, Núpdálstungu.
A.-Húnavatnssýsla: Bjarni Frí-
mannsson, bóndi, Efri Mýrum.
IVerkfall móti 1
| sjómömium |
; Verkamenn við ríkis- lí
> verksmiðjurnar á Siglu- «
firði heimta kauphækkun. «
; Takist þeim að knýja hana «
fram, lækkar útborgunar- 8
| verð verksmiðjanna og þar s
> með kaup sjómannanna. JZ
( Sl. sumar fengu 165 starfs- »
í menn verksmiðjanna 444 «
\ þús. kr. kaup samanlagt í «
; 71 dag, eða til jafnaðar um
\ 2700 kr. á mann. Þegar það |
| er athugað, að síldarverðið ?>
| er fallið um helming, geta |
> allir séð hversu sanngjam-
> ar þessar kaupkröfur eru á «
> hendur sjómönnum, þar 8
>? sem verðlækkunin bitnar n
| einnig á þeim, en hefir >z
8 engin áhrif á launakjör »
verksmiðjufólks. »
8 Alþbl. ætti ekki að þykj- ?>
8 ast vera málgagn sjó-
8 manna, á meðan það styð- >>
\\ ur slíkar kaupkröfur. \\
Skagafjarðarsýsla: Jón Jónsson,
bóndi, Hofi.
Eyjafjarðarsýsla: Davíð Jónsson,
bóndi, Kroppi.
N.-Þingeyjarsýsla: Sigurður Björns-
son, bóndi, Grjótnesi.
N.-Múlasýsla: Björn Hallsson, bóndi,
Rangá.
S.-Múlasýsla: Benedikt G. Blöndal,
kennari, Hallormsstað.
A.-Skaftafellssýsla: Þorleifur Jóns-
son, bóndi, Hólum.
V.-Skaftafellssýsla: Helgi Jónsson,
bóndi, Seglbúðum.
Rangárvallasýsla: Sigurþór Ólafsson,
bóndi, Kollabæ.
Árnessýsla: Sigurgrímur Jónsson,
bóndi, Holti.
Vestmannaeyjakaupstaður: Páll Þor-
bjarnarson, kaupfélagsstjóri.
ísafjarðarkaupstaður: Jón H. Sig-
mundsson, trésmíðameistari.
Siglufjarðarkaupst.: Hannes Jónas-
son, bóksali.
Akureyrarkaupstaður: Böðvar Bjark-
an, lögfræðingur.
Seyðisfjarðarkaupstaður: Sigfús Pét-
ursson, trésmíðameistari.
Neskaupstaður: Ingvar Pálmason,
alþingismaður.
Hafnarfjarðarkaupstaður: Björn Jó-
hannesson, hafnargjaldkeri.
Reykjavíkurkaupstaður: Magnús
Stefánsson, bóndi.
Togararnir
fara a veiðar
Gengið frá saiiin-
ingum við vél-
stjóra í gær.
Þrír togarar eru þegar farnir á salt-
fiskveiðar. Eru það Patreksfjarðar-
togararnir iOg Hávarður ísfirðingur.
Aðrir eru byrjaðir að búast á veiðar og
má gera ráð fyrir að flestir fari af
stað í þessari viku.
Útgerðarmenn héldu fundi í gær, til
þess að ræða um álýktun sjómannafé-
laganna út af gerðardómnum og á-
kváðu að fylgja þeirri fyrri ákvörðun
sinni, að hlýönast dómsúrskurðinum.
Vélstjórar sömdu í gær við útgerðar-
menn um framlengingu á sama kaup-
taxta og gilti á sl. ári.
Anna og Poul Reumert
koma hingað í maí
Anna Borg og Poul Reumert fara
frá Kaupmannahöfn 7. maí á leið til
íslands og ætla að sýna hér með Leik-
félaginu tvö leikrit, sennilega níu sýn-
ingar alls.
Leiksýningar þessar byrja um 20.
maí. Haraldur Björnsson og Ragnar
Kvaran undirbúa sitt leikritið hvor.
Búast má við feiknamikilli aðsókn
að sýningunum, bæði úr Reykjavík og
jafnvel nálægum héruðum.
Þau hjónin gefa ágóðann af allri
sinni vinnu til Þjóðleikhússjóðsins og
það má telja víst, að allir íslenzkir
leikarar geri slíkt hið sama.
gær
Áður en gengið var til
dagskrár í neðri deild í gær,
kvaddi forsætisráðherra sér
hljóðs og gaf eftirfarandi
yfirlýsingu:
„Það hafa komið fram raddir
um það opinberlega, að vísu ut-
an þingsins, að það væri rangt,
að núverandi stjórn hefir farið
með völd þessa daga síðan Har-
aldur Guðmundsson, fyrrver-
andi atvinnumálaráðherra,
sagði af sér. Segja má, að það sé
ekki allskostar óeðlilegt þótt
þessar raddir hafi komið fram.
En þær byggjast þó á nokkrum
misskilningi, sem ég vil leið-
rétta.
Þau rök, sem hafa legið til
þess, að ríkisstjórnin hefir ekki
sagt af sér, eru þau, að talið var
líklegt af sumum, að gerðar-
dómslögin, sem ég fékk sam-
þykkt hér á Alþingi nú nýlega,
mundu ef til vill verða erfið í
framkvæmd, og þess vegna hefi
ég talið það eðlilegt, að ég segði
ekki af mér né grennslaðist eftir
möguleikum til stjómarmynd-
unar áður en endi yrði bundinn
á það mál, þar sem um svo
stuttan tíma er að ræða. Mér
virðist líka þingmenn úr öllum
flokkum, og fyrir það er ég
þeim þakklátur, hafa sýnt sams-
konar skilning á alvöru timanna
og þessvegna hefir enginn þeirra
kosið að gera fyrirspurnir hér á
Alþingi um þetta atriði, og hafa
þar með komið í veg fyrir að
þrasi um setu stjórnarinnar yrði
blandað inn í lausn þessa máls.
En rökin til þess, að hér hefir
ekki verið rangt að farið, liggja
einmitt í því, að hér á Alþingi
hafa verið haldnir fundir dag-
lega undanfarið og sérhver
háttvirtra alþingismanna því á
þingræðislegan hátt haft tæki-
færi til þess að gera athuga-
semdir við setu stjórnarinnar,
ef þeir töldu hana óeðlilega.
En með því að nú virðist lausn
vinnudeilunnar nálgast, eru
þessar ástæður ekki lengur fyrir
hendi, og þess vegna tilkynni
ég hinni háttvirtu þingdeild það
hér með, að ég mun nú byrja
eftirgrennslanir mínar á hinu
pólitíska ástandi hér á Alþingi
(Frh. á 4. síðu.)
Þúsund lík grafin úr
rústum í Barcelona.