Nýja dagblaðið - 23.03.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 23. MARZ 1938
NYJA DAGBLAÐIÐ
6. ÁRGANGUR — 68. BLAÐ
SMÖKGamla BíóK
í $
5 LÍTILSVIRT :■
KOM
Gullfalleg og
þýzk, mynd,
vel leikin
gerð eftir
leikriti Oscar Wilde’s,
Frau ohne Bedeutung.
Aðalhlutverkin leika
GUSTAF GRUNDGENS
og
KÁTHE DORSCH
V.V.W.V.'.W.VAV.V.V.V.V
SilS
„SKÍRIV,
SEM SEGIR SEX!“
Gamanleikur í 3 þáttum,
eftir OSKAR BRAATEN.
Frumsýning á morgun kl. 8.
AÐGÖN GUMIÐ AR
seldir frá kl. 4—7 í dag og
eftir kl. 1 á morgun.
NB. Allir fráteknir aðgöngu-
miðar verða að sækjast
fyrir kl. 7 í kvöld.
Afstaðan til
ríkisstjórnarinnar
(Frh. af 1. slðu.)
og síðan eins fljótt og unnt er
tilkynna hinu háa Alþingi þær
niðurstöður, sem ég kemst að.“
Eftir að forsætisráðherra
hafði lokið máli sínu, gerði Har-
aldur Guðmundsson þá fyrir-
spurn til forsætisráðherra, hvort
hann áliti að togaradeilan væri
leyst. Forsætisráðherra vísaði
til þess, sem hann hafði áður
sagt, að lausn deilunnar virtist
nálgast.
Fleiri tóku ekki til máls.
Yfir landamærín
Alþýðublaðið skrifar í gær um
ábyrgð Framsóknarflokksins. —
Blaðið ætti frekar að brýna á-
byrgð og kjark fyrir sínum eigin
foringjum. Hvernig hefði t. d.
farið fyrir Framsóknarflokkn-
um, ef hann hefði ekki mætt
„yfirboðum" og rógi Bænda-
flokksins með meiri ábyrgðartil-
finningu og karlmennsku en
raun er á með Alþýðuflokkinn
viðkomandi H. V. og kommúnist-
um?
*
Alþýðublaðið ræðst í gær á Þor-
móð Eyjólfsson fyrir að hafa
hætt samningaumleitunum út af
yfirstandandi vinnudeilu við rík-
isverksmiðjurnar á Siglufirði.
Þetta er ekki rétt. Þormóður og
meirihluti verksmiðjustjórnar-
innar hafa aðeins óskað eftir
milligöngu sáttasemjara. Það
sýnir álit Alþýðublaðsins á mál-
stað verkfallsmanna, þegar það
bregzt illa við slíkum afskiptum
hlutlauss aðila.
*
Alþýðublaðið mætti vita, að um
þrennt var að gera í togaraverk-
fallinu, eins og komið var: Lög-
leiða gerðardóm, skipaðan af
hæstarétti, leysa hluta af deil-
unni með því að lögleiða kaup-
gjald á saltfisksveiðum, eða að-
hafast ekkert, láta þorskvertíð-
ina líða hjá, en hungur og gjald-
eyrisskort eyðileggja þjóðina. —
Lögboðið kaupgjald var verka-
lýðnum hættulegra fordæmi en
afskipti hæstaréttar. Er þetta
fólk öruggt um eilífan meiri-
hluta? Eða er það aðeins hrætt
við Héðinn?
*
Finnbogi Rútur man vel eftir
var í þrjú ár samfleytt í innileg-
um og samningsbundnum fé-
lagsskap við Mbl.menn, í því
eina skyni að gera Framsóknar-
flokknum skaða. Hvenær hafa
Framsóknarmenn sýnt Alþýðu-
flokknum þvílíka framkomu
Ú TBREIÐIÐ
NÝJA DAGBLAÐIÐ!
Árshátíð
samvinnumanna
verður haldið að Hótel Borg laugardaginn 26. marz og
hefst með borðhaldi kl. 7.30 síðdegis.
Til shemmtunar verður:
Ræðnr.
Karlakórssöngur.
Kvartcttsöngur.
Lpplcstur.
D-A-X-S.
Aðgöngumiðar verða seldir í búðum Kaupfélagsins á
Skólavörðustíg 12, Vesturgötu 33 og Grettisgötu 46.
Verð kr. 6.00 með mat, en kr. 3.00 fyrir þá, sem ekki
taka þátt í borðhaldinu.
Sala aðgöngumiða að borðhaldinu hefst kl. 3 e. m. í dag
(miðvikudag), og verða þeir ekki seldir lengur en til föstu-
dagskvölds n.k. Síðarnefndir aðgöngumiðar, á kr. 3.00,
verða seldir á laugardag næstkomandi.
Undirbúníng^snefndín.
Lýsíng á „nýju síldarþrónní"
(Frh. af 3. síðu.)
hlupu út og inn á víxl með
stuttu millibili.
Hér fer á eftir sundurliðaður
kostnaður yfir byggingu þróar-
innar eins og hann er samkv.
bókum verksmiðjanna:
1. Timbur og saumur ............... kr. 42.361,82
2. Steypistyrktar járn og annað járn .... — 38.396,17
3. Sement .................................. — 20.537,23
4. Keðjur og annað efni í flutningabönd — 17.543.83
5. Rafvörur .............................. — 8.134,75
6. Bárujárn og þakpappi ............ — 3.641,85
7. Hurðir og gluggar ....................... — 2.686,61
8. Sandur og möl ........................... — 15.422,83
9. Ákvæðisvinna Einars Jóhannssonar . . — 65.248,28
10. Önnur vinna ............................. — 21.541,88
11. Ýmislegt ................................ — 14.064,55
Hér eru þó ekki taldar með
kr. 4.000,00 aukaþóknun, sem
fyrv. framkvæmdastj. Gísli
Halldórsson, fékk fyrir sér-
fræðilega aðstoð og var eftir
því sem bezt verður séð, greitt
honum eingöngu vegna þróar-
Samtals kr. 249.579,80
byggingarinnar, en um þetta
getur hr. alþingismaður Finn-
ur Jónsson gefið nánari upp-
lýsingar. (í þessu sambandi
má geta þess, að í lið 11. er
innifalin greiðsla fyrir aðra
sérfræðilega aðstoð, að fjárhæð
vw
.V.VJW
Xýja Ríó
V.V.V.'
.VAV.X
I
LLOYDS
r
l
LOXDOX
Framúrskarandi skemmti-
leg og fróðleg mynd, sem
lýsir merkum kafla úr sögu
Englands, er hefst þegar
Nelson, mesta sjóhetja
Englands var barn að aldri
og endar með því að hann
vann hinn fræga sigur við
Trafalgar.
Aðalhlutverkin leika:
MADELAINE CARROLL
TYRONE POWER
o. fl.
í
É
I
v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
6,725,00 krónur). Heldur er ekki
meðtalin samkv. fyrirlagi fyrv.
framkvæmdarstj., j arðstrengur
sem flytur raforku í þróna frá
verksmiðjunum, að fjárhæð ca.
kr. 2.050,00. Einnig er ekki með-
talin af sömu ástæðum snjó-
blásturstæki, sem keypt var
eingöngu vegna þróarinnar, að
fjárhæð kr. 6.124,89. — Ef þess-
ar upphæðir leggjast við aðal-
upphæðina, eins og vera ber,
þá nemur stofnkostnaður þró-
arinnar kr. 261.754,69. Af þessu
hefir erlent efni kostað kr.
141.477,15.
Af stofnkostnaði þróarinnar
hefi ég lagt til, að kr. 70.000,00
færist sem eignaaukning á
efnahagsreikning verksmiðj-
: anna, en afgangurinn af stofn-
kostnaðinum, ca. kr. 191.754,69,
yrði afskrifaður.
|| Það kann að vera að margir
! álíti, að fengnum framan-
greindum upplýsingum, að
l þetta stórkostlega misheppn-
aða mannvirki sé of hátt að
færa til eignaaukningar á kr.
70.000,00, enda mun framtíðin
leiða í ljós, að svo er.
Jafn dýra og ógæfusama til-
raun, gerða út í bláinn, eins og
nýja þróin hefir sýnt sig að
vera, þarf vonandi íslenzkur
síldariðnaður aldrei aftur að
þola.
J. Gunnarsson.
FESTARMEY FORSTJÓRANS 46
inn á fjórum smá líkneskjum af ástargyðjunum, sem
réttu fram blómakörfur. Smám saman rann upp fyrir
mér, hvað þessi skreyting átti að þýða. Hún var ótví-
ræð og áberandi brúðkaupsskreyting.
Og um leið rann upp fyrri mér, hver staðið hafði
fyrir þessu. Það var náttúrlega þetta undrabarn, hún
Theodora, sem sat þarna og Ijómaði öll yfir þessu
snjallræði sínu.
Það munu lika hafa verið hennar saklausu hendur,
sem stungu í hvern pentudúk litlum hálf útsprungn-
um kvisti með hvítri sluafu, og sem höfðu búið til
skeifulíkön úr silfurpappír og stráð þeim yfir allan
dúkinn og sem loks hafði látið hjartalaga krans úr
rósablöðum í kring um diskinn minn.
Reið sópaði ég því síðastnefnda niður í pentudúkinn
í keltu mér. Ég varð að láta sem ég tæki ekki eftir
neinu. Þá var nokkur möguleiki fyrir, að hinir gerðu
það ekki heldur. Andlit forstjórans varð þó skugga-
legra og skuggalegra með hverju augnablikinu, sem
leið.
Þvílíkar vonir.
Þær voru hrundar til grunna, áður en stúlkurnar
komu með súpuna. Hversdagsléga voru þær alvaran
uppmáluð, en nú léku þær við hvern sinn fingur.
„Nei, heyrið þið. Hver hefir komið fyrir öllum þess-
um útbúnaði, mælti frú Waters og skoðaði borðskreyt-
inguna með blíðu en undrandi augnaráði. „Ég hélt,
Blanche, að þú hefðir ætlað að hafa litlu krystals-
glösin, mæðrablómin og venushárið?‘“
„Já, það vildi ég líka. En Theo vildi endilega fá að
láta hvítt ling og sýrenur".
„Já, vegna þess — o, geturðu ekki séð, hvers vegna?“
hvein í þeirri yngstu í fjölskyldunni.
Og áður en nokkur gat svarað eða stöðvað hana, fór
þetta óttalega barn að gefa nákvæmar skýringar á
tiltæki sínu.
„Jú, sjáðu til, sýrenur eru svo ákaflega líkar gull-
eplablómum, og þá fannst mér, að það ætti svo vel við
vegna Billys og Nancy“.
Hún þagnaði snöggvast og greip andann á lofti (það
gerðum við hin líka) og svo hélt hún áfram:
„Já. Svo skreytti ég borðið vegna þess, að ég vildi
hafa það reglulega fallegt og í samræmi vjý tilefnið.
Þess vegna tók ég þessar venjulgu konfektskálar
burtu og lét þessi litlu postulínslíkneski í staðinn. Eru
þau ekki gullfalleg?"
Enginn svaraði, allir störðu á Theo, sem tók það sem
merki þess, að allir væru henni sammála. Hún ljóm-
aði af gleði og gaf nú nánari skýringar á, hvernig hún
hafði komið þessu fyrir.
„Það var líka þess vegna, að ég fékk Nancy til að
fara í hvíta silkikjólinn —“ (Einmitt það.) „— með
kniplingablómunum um hálsinn, svo hún gæti líkst
brúður.
(Ég veit ekki hverju ég líktist á þessu augnabliki.
En forstjórinn var líkastur böðli í skopkvikmynd).
„Og hafið þið séð allar skeifurnar með pappírsögn-
unum í og ljósrauðu rósablöðin i kring um — o, Nancy“
sagði hún í ávítunar róm — „sjáðu, hvað hefir þú
gert af hjartanu. Og það átti að vera hjá hjarta
Billys."
Mér varð litið á Albert frænda, sem sat gegnt mér
við hægri hönd frú Waters.
„Uss“, hélt Theo áfram, „þú skalt ekki vera leið út
af því; ég get búið til annað. Ég myndi hafa gert þetta
allt, fyrsta kveldið, sem þú varst hérna, en við vorum
nú ekki viss um, hvort þér þætti vænt um það —“.
(Vænt um það.)
„— En ég á hugmyndina að því öllu.“
Nú kom hlátursöskrið frá frænda forstjórans, Al-
bert: „Stórkostleg hugmynd, stelpa mín“.
„Þetta er reglulega fallegt, Theo.“
„Já, það finnst mér líka. Finnst þér það ekki líka,
Billy", spurði barnið og horfði hálf þrjózkulega á hús-
bóndann, sem — það þýðir ekki að neita þvi — leit út
fyrir að langa helzt til að sparka i einhvern. Hann
gerði það líka — því nú kom lágt ýlfur undan borðinu.
Hann hafði svalað sér á litla hundinum, sem á nafnið,
er þýðir elskhugi — þetta nafn, sem er komið frá ein-