Nýja dagblaðið - 27.03.1938, Page 1
HtSGÖGN & SKÍÐI.
Fyrirliggfjandi hickoryskíði,
furuskfði frá kr. 4.50, skíðastaf-
ir, margar tegundir, bindingar
(shandahar).
Sími 4551.
6. ár. Reykjavík, sunnudaginn 27. marz 1938. 72. blað
ANNÁLL
86. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 6.12. Sólarlag kl.
6.58. NæturflóS i Reykjavík kl. 2.15.
aldeyrismálin rædd
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 7.10 síðdegis til kl. 6.00 árd.
Næturlæknir
er í nótt Ólafur Helgason, Bárugötu
22, sími 2128. Næturvörður er í Ingólfs-
Apóteki. og Laugavegs Apóteki.
Dagskrá útvarpsins.
9.45 Morguntónl.: Coriolan-forleikur-
inn og fiðlukonsert eftir Beethoven
(plötur). 10.40 Veðurfr. 12.00 Hádegis-
útvarp. 13.00 Enskukennsla, 3. fl. 13.25
ísl.kennsla. 3. fl. 14.00 Guðsþjónusta í
útvarpssal (Ræða: sr. Sv. Víkingur).
15.30 Miðdegistónl.: a) Lúðrasv. Rvík-
ur. b) Hljómpl.: Ýms lög. 17.10 Esper-
antokennsla. 17.40 Útvarp til útlanda
(24.52 m.). 18.30 Barnatími (Barnast.
,,Æskan“). 19.10 Veöurfr. 19.20 Erindi
Búnaöarfél.: Val á útsæði (Rágnar Ás-
geirsson ráðunautur). 19.40 Auglýsing-
ar. 20.00 Fréttir. 20.15 Erindi: Kirkju-
ræknin og útvarpið (sr. Friðrik Hall-
grímsson). 20.40 Hljómpl.: Frægir
söngvarar. 21.05 Ávarp (dr. Niels Niel-
sen). 21.25 Hljómpl.: Lög leikin á alt-
fiðlu. 21.50 Danslög.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Dr. Alexandrine til Vestmanna-
eyja og útlanda.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Grímsness- og Biskupstungna-
póstar.
Meðal farþega
sem komu með Goðafossi frá útlönd-
um í fyrradag, voru Árni Friðriksson
fiskifræðingur, Jónas Þór verksmiðju-
stjóri og frú, Páll Eggert Ólason skrif-
stofustjóri og Jón Kjartansson verk-
stjóri frá Siglufirði.
Togararnir
eru nú nær allir komnir á veiðar. í
gær fóru út Baldur, Þórólfur, Skalla-
grímur og Gyllir. Eru þá ekki eftir inni
nema Hilmir, Hersir og Egill Skalla-
grímsson. Tveir hinir síðasttöldu eru
alveg á förum.
Af ufsaveiðum
komu í gær Kári með 130—140 smá-
lestir og Brimir með 160—170 smálestir.
Aðalfundur Kaupfélagsins
hefst í dag kl. 10 árdegis í Oddfellow
húsinu (ekki síðdegis, eins og misritað-
ist í blaðinu í gær).
Edda
lestaði fisk til útflutnings í Keflavík
og á Akranesi og kom hingað í gær.
Franski sendikennarinn,
M. Haupt, flytur á morgun fyrirlest- '
ur í Háskólanum um franskt þjóðlíf og
bókmenntir á 18. öld. Montesquieu. —
Fyrirlesturinn hefst kl. 8.05 og eru
áheyrendur beðnir að koma stundvís-
lega.
Gróa Jónsdóttir,
móðir Kristjáns Linnets, bæjarfógeta
í Vestmannaeyjum, er nýlátin og var
jarðsett á föstudag. Hafði hún dvalið
síðustu árin hjá Þórði Bjarnasyni end-
urskoðanda, tengdasyni sínum.
Blaðamannafélag íslands
heldur fund að Hótel Borg kl. 3 í dag.
Dulræn fyrirbrigði
í skuggamyndum verða sýnd í dag í
Varðarhúsinu kl. 3. Eru það fyrirbrigði
sem gerzt hafa á fundum miðilsins frú
Láru Ágústsdóttur, bæði hér og meðan
hún dvaldi í London í sumar og haust.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir í kvöld gamanleikinn „Skírn,
sem segir sex“. Hann var sýndur fyrsta
sinn sl. föstudag og hlaut prýðilegar
móttökur. Ásamt „Fyrirvinnunni" er
þetta bezta leikritið, sem Leikfélagið
hefir sýnt lengi.
Fjármálaráðherra gerir greín fyrir nýjum
ráðstöíunum til að tryggja greíðslujöfnuðinn
„Duldu greiðslurnar** á þessu ári
eruáætlaðar 10 mílljóulr króna
í sameinuðu þingi var til
umræðu í gær þingsálykt-
unartillaga Sjálfstæðis-
manna um gjaldeyrismálin.
Er tillagan í 8 liðum, en að-
altilgangur hennar er að
takmarka innflutning til
kaupfélaga, en auka inn-
flutning heildsalanna að
sama skapi.
Vlð þessa umræðu flutti Ey-
steinn Jónsson fjármálaráðherra
alllanga ræðu, þar sem hann
gerði grein fyrir ástandinu í
gjaldeyrismálunum og þeim ráð-
stöfunum, sem þar hefðu verið
gerðar.
Árangur haftanna
Ráðherrann sagði, að fram-
sögumaður tillögunnar hefði
haldið því fram að innflutnings-
höftin hefðu ekki náð tilgangi
sínum. Rök hefði hann þó ekki
fært máli sínu til stuðnings. En
það væri auðvelt að sanna hinn
þýðingarmikla árangur haft-
anna.
Síðustu 10 árin áður en núv.
ríkisstjórn tók við framkvæmd
innflutningshaftanna, árin 1925
—34, hefði innflutningurinn tii
jafnaðar numið 11 millj. kr.
meira en meðalinnflutningur
þriggja undanfarinna ára (1935
—37). Þrátt fyrir það hefði inn-
flutningur á vélum og efni til
starfrækslu nýrra iðnaðarfyrir-
tækja, verið eins mikill á þess-
um þremur árum og öll hin 10
árin til samans.
Til að gera sér ljósan árangur
innflutningshaftanna, geta
menn ímyndað sér hvernig á-
standið í gjaldeyrismálunum
væri nú, ef innflutningur síðustu
þriggja ára hefði verið svipaður
og 10 áranna þar á undan.
Kröfur íhaldsblaðanna
Hinsvegar. yrðu menn að gera
sér ljóst að innflutningshöftin
ein væru ekki nægileg til að ná
hagstæðum árángri í þessum
efnum. Þar þyrfti fleira að koma
til greina, því ekki væri hægt að
takmarka innflutninginn óend-
anlega. Það hefir núverandi rík-
isstjórn gert sér Ijóst og sýnt
það með þeim tilraunum, sem
hún hefir látið gera, til að auka
útflutninginn.
En meini framsögumaður það
alvarlega, að innflutningshöftin
hafi ekki náð tilgangi sínum,
vegna þess að ekki hafi alltaf
náðst fullur greiðslujöfnuður,
þá getur það ekki stafað af öðru
en því, að innflutningurinn hafi
ekki verið nægilega takmarkað-
ur. En það er sannarlega ekki í
samræmi við það, sem flokks-
blöð hans hafa haldið fram, þar
sem þau hafa stöðugt krafizt
aukins innflutnings og stundum
heimtað algert afnám ínnflutn-
ingshaftanna.
Gjaldeyrismáltn á und-
anförnum árum
Ráðherrann vék nokkuð að
gjadleyrismálunum á undan-
förnum árum. Núv. stjórn kom
til valda siðari hluta ársins 1934,
en gat engin veruleg áhrif haft
á innflutningshöftin það ár.
Verzlunarjöfnuðurinn var þá ó-
hagstæður um 4 millj. kr. og
hefir greiðsluhalli þess árs því
verið um 10—11 millj. kr. 1935
var verzlunarjöfnuðurinn hag-
stæður um 2.3 millj. og 1936 um
6.6 millj. kr. Greiðslujöfnuður
hefði því ekki náðzt fyrra árið,
en erlendar lántökur hefðu veg-
ið á móti hallanum.
Síðastl. ár var verzlunarjöfn-
uðurinn hagstæður um 7.2 millj.
kr. og mun því láta nærri að þá
hafi náðzt fullur greiðslujöfn-
uður, þegar lika er reiknað með
því, að innflutningur erlends
lánsfjár var um ein millj. kr.
En af þessari upphæð festust
rúml. 2 millj. kr. í Þýzkalandi,
vegna þess, að við seldum þang-
að á árinu meira af vörum en við
keyptum aftur. Mætti því ætla,
að álíka upphæð hefði safnazt
fyrir hjá bönkunum af erlend-
um verzlunarskuldum, sem ekki
væri hægt að yfirfæra. Væri því
heldur ekki að leyna, að yfir-
færsluörðugleikar bankanna
væru mjög miklir um þessar
mundir.
Það má ef til vill ásaka ríkis-
stjórnina, sagði ráðherrann,
fyrir að hafa leyft of mikla sölu
til Þýzkalands. En því er til að
hærra en annarstaðar og þegar
Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra
hærra en annarstaðan og þegar
sú sala var leyfð, gerðu menn sér
góðar vonir um sölu síldaraf-
urða, er voru óseldar, og að þess
vegna myndu ekki hljótast af
þessu verulegir örðugleikar. En
verðfall þessara afurða hefir
eyðilagt þær vonir.
Nýjar ráðstafunir
Ráðherrann vék næst að því
ástandi, sem nú væri framund-
an. Á þessu ári bættust við af-
borganir á nýjum lánum, t. d.
Sogsláninu. Samkvæmt athug-
un, sem ráðherrann sagðist hafa
gert, þyrfti verzlunarjöfnuður-
inn sennilega að verða hagstæð-
ur um 10 milljónir kr. á þessu
ári, ef fullur greiðslujöfnuður
ætti að nást.
Ríkisstj órninni hefði strax á
sl. ári verið Ijóst, að auknar ráð-
stafanir yrði að gera til þess að
tryggja greiðslujöfnuð á þessu
ári.
Þær ráðstafanir, sem gerðar
hefðu verið, væru m. a. þessar:
1. í fjárlögunum 1938 væri
dregið úr fj árveitingum til verk-
legra framkvæmda, sem kostuðu
erlendan gjaldeyri, en leitast
við að auka aðrar framkvæmdir
í þeirrá stað.
2. Á seinasta Alþingi hefði
ríkinu verið tryggðir nýir tekju-
stofnar, svo rekstur þess yrði
hallalaus. Jafnframt hefði ríkis-
stjórninni verið heimiluð lán-
taka innanlands. Hvorutveggja
þetta miðaði mjög í þá átt, að
létta erfiðleika gjaldeyrisverzl-
unarinnar.
3. Framlag til Fiskimálasjóðs
hefði verið stóraukið með það
fyrir augum, að auka útflutn-
inginn.
4. Fjármálaráðherra hefði lagt
fyrir gjaldeyrisnefnd að draga
á Alþingi
Sókn uppreisnar-
manna heldur áíram
í Aragoniu
Enskir fjármála-
meun bera meira
traust til stjóru-
arinnar.
LONDON:
Spanska stjórnin og uppreisnarmenn
hafa hvorutveggja gefið út opinberar
tilkynningar um viðureignina á Ara-
goniuvígstöðvunum í gær. Af þeim
verður það lielzt ráðið, að her upp-
reistarmanna hefir sótt fram vestur
af Huesca. Her uppreistarmanna, sem
farinn er suður yfir Ebro-fljót, átti
stórar orrustur þar í gær. Hóf hann
nýja sókn í gærmorgun sunnan við
Ebro, og telur sig hafa tekið mikið
herfang. Loftárás hefir verið gerð á
Tarragonaborg í gær og víðsvegar hafa
loftárásir verið gerðar á strendur Ka-
taloniu.
Verkamenn lýsa stuðningi
við stjórnina.
Verkamannasamböndin í Kataloniu
bæði samband jafnaðarmanna og sam-
band anarkista, gera nú víðtækar ráð-
stafanir til þess að skipuleggja varnar-
lið gegn innrásum í Kataloniu. Hafa
bæði samböndin komið sér saman um
skipulag varnarbandalags og tilkynnt
Negrin, forsætisráðherra að þau vinni
saman að þessu marki, og muni styðja
stjórnina eftir fremsta megni.
Stjórnin er skilvísari.
Brezka blaðið, Financial News, skýrir
frá því að spanska stjórnin hafi nýlega
greitt aðra afborgun af ýmsum við-
skiptalánum sínum í Bretlandi með 73
þúsund sterlingspundum, en fyrstu af-
borgunina hafi hún goldið í nóvember-
lok. Segir blaðið að þessi viðleitni
uppreistarmanna við það að greiða
um, standi í mikilli mótsögn við tregðu
uppreistarmanna til þess að greiða
skuldir sínar og telur blaðið að brezkir
bankamenn séu farnir að láta sér detta
i hug, hvort útlendingar sem eiga fé á
Spáni, hafi ekki meiri von um að fá
það goldiö, ef stjórninni tækist að vinna
styrjöldina. — FÚ.
úr innflutningnum eftir megni,
banna algerlega innflutning ó-
þarfra vara og takmarka inn-
flutning á neyzluvörum, eins og
frekast væri unnt. Sömuleiðis
innflutning til ýmissa fram-
kvæmda, sem ekki væru bein-
línis nauðsynlegar.
5. í samráði við bankana, færi
nú fram athugun á öllum samn-
bundnum lánum erlendis,
hvort heldur, sem ríki, bankar
eða einstaklingar ættu i hlut.
Fastar afborganir þessara lána
myndu vera um 5 millj. kr. á
ári. Sum þessi lán væru til óeðli-
lega stutts tíma. Kæmi því til
(Frh. á 4. siðu.)