Nýja dagblaðið - 27.03.1938, Blaðsíða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Svafa Jónasdóttir
frá Syðra-Fjalli
Hver veit, við sólris, hvað
dagur dæmir,
hvað dylur nóttin und
skuggabrá?
— í húmi kvöldsins þín hel-
fregn snart mig
og hljóðlát nóttin mér vakti
þrá.
Til okkar gömlu og góðu dala
ég gekk við andvöku
stjörnublys
um kæra stigu, í land
þess liðna
og lét að baki mér dagsins þys.
Hvar ertu, Svafa?
í æskudalnum
er allt sem forðum og
heilög kyrrð,
und brekkum snjóhvítum
bæir sofa
en brenna stjörnur í órafirrð.
Á milli skara fer óðmild áin,
á ísnum svanfylking
blundar rótt.
En þú ert horfin af sælusetri
og sorg á Fjalli og treganót.
Hjá vinar dufti nú duft
þitt hvílir,
en dalsins börn horfa á
fagurt skin
af ykkar samfylgdar
björtu blysi —
og bera í sálinni vængjadyn
því horfin er nú sú
álftin hvíta,
sem ertir lausninni miklu beið
við störf og umsjá,
er styttu daga
og styrktu vænginn
á draumaleið.
og græddir lund,
er stóðst frost og hríð.
Hið ytra jafnt, sem hið
innra skrýddist
því engu gleymdi þitt
hjartans vor:
i blómreit gæfu þú
börn þín kvaddir,
um bæ þinn lykja
þín gróðrarspor.
Svo far vel, kæra —
hér finnst ei þungi
af fegurð týndri,
af spilltri stund,
né skuggi af óræktum
æfistörfum, —
þú átt með réttu þinn
hvíldarblund.
Og hefjist sól
eftir hinnztu nóttu
í hreinleik vaknar
þín bjarta sál
og tengir eilífar æskutryggðir
við allt, er geymdi
þitt hjartans mál —.
„Hefur þú reynt þvottaduftíð
PERLA, sem allír lofa svo míkíð“
„Já. feg held pað nú, pað er hreint
pað bezta pvottaduft, sem ég nokk>
urntíma hefi notað. Þú ættir að nofa
pað í næsta pvott".
€
Gula bandið
— Sem mergð af gimsteinum
mjöllin glitrar
og mjúkt er snælín
um ykkar beð.
En þaðan hverf ég —
í liðins-lundi
og leita hins fagra,
sem hefur skeð.
Svo margt var sameign
á okkar æfi
frá æskubirting í
kvöldsins lönd.
Upp hyllir atburði:
sárar sorgir
og sælan fögnuð,
við þagnarströnd.
Og, Svafa, allt af þinn
svip ég þekki,
við sorgarfull jafnt
og gleðimót.
Hið bjarta, heiða og
hugumtrúa
var hjartans einkunn og
lífs þíns rót.
Þitt fagra heiti með heiðri
barstu
og hugur valkyrju merkið bar.
Hve gott var hjá þér —
í gleði og raunum.
Hve gróður anda þíns
norrænn var.
Þú varst á bæ þínum
sól og svanur
og sigurbraut var þín æfitíð.
Þú ófst og saumaðir
gull og gæfu
Hulda.
aðeÍHS Loftur.
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
Áukin mjólkurnevzla
í heildsölu hjá
Samband ísl. samvinnufélaga
Sími 1080.
Eltir Jón Eyþórsson
Með „mjólkurlögunum" hafa
verið gerðar ráðstafanir til þess
að jafna verð mjólkur til
framleiðenda,
að draga sem mest úr sölu- og
dreifingarkostnaði, og
að tryggja neytendum hrein-
lega meðferð mjólkurinnar.
Enginn mun nú í alvöru halda
því fram að þessar ráðstafanir
séu ekki nauðsynlegar. Um ein-
stök atriði má lengi þrátta. En
um það skal ekki rætt hér. Það
hefir tekizt að lækka mjög sölu-
kostnað og það hefir líka tekizt
að koma allri mjólkurframleiðsl-
unni í þolanlegt verð fyrir fram-
leiðendur, þrátt fyrir hina gífur-
legu aukningu mjólkur, sem orð-
ið hefir á verðjöfnunarsvæðinu
á síðustu árum.
Árið 1937 er talið að 5.5 millj.
lítrar hafi verið seldir til neyzlu
í Reykjavík. Ef neytendur eru
taldir 35 þús., svarar þetta til
0.4 1. af mjólk á mann daglega.
Frá heilbrigðissjónarmiði er
þetta of lítið. Vegna hagsmuna
framleiðenda er það of lítið.
Mjólkurneyzlan í bænum þarf
að aukast!
Þeir, sem gera sér þetta ljóst,
munu yfirleitt vera á einu máli
um það, að of lítið sé gert til
þess að örfa mjölkurneyzlu í
bænum. Mjólk sézt aldrei auglýst
eins og aðrar matvörur, tæplega
skyr heldur, ostar og smjör
stöku sinnum. Kaffi er auglýst
í stórum stíl og jafnvel verð-
lækkun á því, um líkt leyti og
mjólkin er lítiö eitt hækkuð. —
Allir, sem eitthvað hafa til sölu,
virðast gera sér það ljóst, að það
sé hagur að ýta undir notkun og
eftirspurn á sínum vörum, nema
mj ólkurf ramleiðendur.
Þetta þarf að breytast.
Mjólkursölunefnd þarf að
kveðja sér til liðs dagblöðin,
læknana, húsmæðafélög, kaup-
félög og yfirleitt alla aðila, sem
vilja stuðla að bættum hollustu-
háttum og heilbrigði í bænum,
hvað sem þá kann að greina á í
öðrum málum. Það er enginn efi
á því að hér í bænum er mikill
(Frh. á 3. siöu.)
.... og svo umfram allt aö senda
mér 1 stykki SAVON DE PARIS,
hún er svo ljómandi góð.
J
— Já, með ánœgju, kæra frö-
ken, enda seljum við langmest
af þeirri handsápu.