Nýja dagblaðið - 27.03.1938, Síða 4
REYKJAVÍK, 27. MARZ 1938
NYJA DAGBLAÐÍÖ
6. ÁRGANGUR — 72. BLAÐ
■•v.v.v,v.’.v.v
av.v.vGaisala BSiov.v.vv
I
Sýnir kl. 9
$VO LENGI MÁ •
LÆRA 8EM LII'IR!
Bráðfjörug og fyndin am-
erísk danz- og söngmynd.
Aðalhlutverkið leikur
„step“-dansmærin
Eleunore Whitney.
Alþýðusýning kl. 7.
Fjörugir
Alþýðusýning kl. 5.
TAYLOR
8K1P8TJÓRI.
með GARY COOPER
Börn íá ekki aðgang.
í
I
!; hveitilfrauðsdagar
með ANNY ONDRA
"■ ------------------ ■"
■» Barnasýning kl. 3.
■; NÝTT SMÁMYNDASAFN !;
í* Ný Skipper Skræk mynd.
■- °
W.B.W.Vi%VAViVAV.,AV.V
§
LEULFJELK inUÍIÍUI
..SKÍRX,
SEM SEGIR SEX!“
Gamanleikur í 3 þáttum,
eftir OSKAR BRAATEN.
Sýning í kvöld kl. 8.
AÐGÖN GUMIÐAR
seldir í Iðnó eftir kl. 1.
- Kaup og sala -
Nokkur hvít kanínuskinn ný-
komin. Hentug í ábreiður yfir
barnavagna o. fl. o. fl.
K. H. Bjarnason, Arnarhváli.
ÚTBREIÐIÐ
NÝJA DAGBLAÐIÐ.
YSír landamærín
Hálfdáni hinum yngra úr
Hnífsdal þykir vonum minni
viðgangur pöntunarfélagsins á
Akranesi. Ýmsir munu þó kunna
þá sögu á annan veg. En víst
er hitt, að hefðu margir tekið
upp háttsemi Hálfdáns í við-
skiptum sínum við félagið, þá
myndi það nú liðið undir lok.
*
Alþýðublaðið hefir það eftir
Haraldi Guðmundssyni, að
hann hafi viljað vanda val á
formönnum sjúkxasamlaganna
í Vestmannaeyjum, á Siglufirði
og ísafirði. Það hefði farið bet-
ur, ef hann hefði haft slíkan
ásetning í huga, þegar hann
valdi eftirmann sinn við Út-
vegsbankann og forstjóra síld-
arbræðslunnar á Seyðisfirði.
*
Kommúnistar þykjast orðnir
hlyntir vinstri stjórn. Þeir hafa
þó frá upphafi reynt að eyði-
leggja Alþýðuflokkinn til þess
að útiloka möguleikana fyrir
vinstri stjórn. Þeir hafa talið í-
haldið betra af tvennu illu (sbr.
kosningarnar 1934). Árangur-
inn hefir orðið vonum framar.
Þori Alþ.fl. ekki framvegis að
bera ábyrgð á stjórnarsam-
vinnu, veldur því hræðslan við
samkeppni og róg kommúnista.
Vilji kommúnistar nú raun-
verulega styðja vinstri stjórn,
geta þeir ekki sýnt það öðru-
vísi i verki en með því að hætta
rógburðinum um Alþýðuflokk-
inn, leggja niður þjónustu við
rússneska glæpavaldið, afneita
byltingarstefnunni, leysa flokk
sinn upp og byrja nýtt líf á
heiðarlegum grundvelli.
*
Gísli vilstjóri á erfiða daga.
Eigendur Laxfoss heimta nýja
vél í skipið eða stórkostlegar
skaðabætur. Rannsókn málsins
sannar rétt eigendanna. Gísli
keypti vélina af firma, sem ekki
hafði smíðað slíkar vélar fyrr.
Hann einn ber ábyrgðina og van-
sæmdina.
VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A
LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ALF-
UNNAR.
Viðtækjaverzlunin veitlr kaupendum viðtækja meiri
tryggingu um hagkvæm viSskipti en nokkur önnur
verzlun mundi gera, þegar bilanir koma fram í tækj-
unum efla óhöpp bera aO höndum.
Ágóða ViOtækjaverzlunarinnar er lögum samkvæmt
eingöngu variO til reksturs útvarpsins, almennrar út-
breiOslu þess og tll hagsbóta útvarpsnotenrium.
Takmarkið er: VÍOtæki inn á hvert helmiii.
Víðtækjaverzlun ríkísíns
Lækjargötu 10 B. Sími 3823.
Skípasmíðarnar og
gj aldeyrí sskoriurínn
Fyrir nokkru síðan er kom-
inn til Húsavíkur nýr vélbát-
ur, sem smíðaður var í Dan-
mörku. Kaupverð hans var um
30 þús. kr. Húsavík og mörg
önnur sjávarþorp þarfnast
slíkra báta, bæði til aukningar
á útgerðinni og í stað gömlu
bátanna, en þröngur efnahag-
ur krefst þess að þeir séu sem
ódýrastir. Þess vegna verða
menn að leita til útlanda, því
þó íslenzkir smiðir geti vel
unnið slík verk, er vinna þeirra
of dýr til þess að vera sam-
keppnisfær.
Þegar jafnframt eru athug-
aðir tveir stærstu örðugleikar
þjóðarinnar, atvinnuleysið inn-
anlands og gjaldeyrisskortur-
inn út á við, hlýtur mönnum að
vera ljós nauðsyn þess að mál-
um þessum sé tafarlaust kippt
í lag. Þjóðin hefir ekki efni á
því að verða þannig af mikilli
atvinnu og erlendum gjaldeyri.
Fyrsta skilyrðið til þess að
koma þessu í kring, er að gera
íslenzka skipasmíði samkeppn-
isfæra, hvað kostnaðinn snert-
ir. Hún er þegar orðin það að
öðru leyti.
Tillaga Jónasar Jónssonar um
skipasmíðastöð á Svalbarðs-
eyri er tvímælalaust hagkvæm-
asta úrræðið, sem bent hefir
verið á til úrlausnar í þessum
efnum. Þar er aðstaðan hin
bezta frá náttúrunnar hendi og
ekki dýrtíð, sem myndi reynast
slikri starfrækslu þungbær í
stærri kaupstöðunum.
Það hefir verið reynt að
skapa andúð gegn þessari hug-
mynd með þeim forsendum, að
hún myndi draga úr vinnu
þeirra skipasmíðastöðva, sem
fyrir eru. En dæmið frá Húsa-
vík sýnir, að þeir smíða yfir-
leitt ekki veiðiskipin fyrir sjó-
þorpin nú og munu ekki gera
það meðan vinna þeirra er ekki
ódýrari. Hér er því annaðhvort
að velja á milli stórrar báta-
smíðastöðvar eða erlendra
skipasmíðastöðva.
.VAVA*
.’.V.V.V
:!
Xýja Bsé
LLOYDS
r
1
LONDON
Söguleg stórmynd frá
FOX-félaginu.
Aðalhlutverkin leika:
MADELEINE CARROLL
og TYRONE POWER
Sýnd kl. 7 (Jækkað verð)
og kl. 9.
LEYNI-
FARÞEGIM
Hin fagra og skemmtilega
kvikmynd, leikin af undra-
barninu
Shirley Femple
verður sýnd fyrir börn
kl. 3 og kl. 5.
Aðgöngumiðar að barna-
sýningunuln verða seldir
frá kl. 11—12 f. h.
Gjaldeyrismálin
(Frh. af 1. siSu.J
athugunar, hvort ekki væri hægt
að breyta einhverjum þeirra í
lengri lán, en um það væri ekk-
ert ákveðið enn.
En þótt það tækist að ná full-
um greiðslujöfnuði á þessu ári,
myndi sú spurning verða í hug-
um margra manna, hvernig
greiða eigi þær kröfur, sem voru
óyfirfærðar um áramót, en eru
þegar fallnar. Það mál, sagði
ráðherrann, er nú til athugunar
hjá ráðuneytinu og bönkunum
og væri ekki tímabært að ræða
það nánar að svo stöddu. En
verði þess gætt, að selja ekki
meira til Þýzkalands á þessu ári
en keypt er þar, fást þar 2 millj.
kr. til greiðslu á þessum skuld-
um, ef greiðslujöfnuður næst að
öðru leyti.
Áður en ráðherrann lauk máli
sinu, rakti hann tillögu Sjálf-
stæðismanna lið fyrir lið og
sýndi fram á að hún væri sum-
part gagnslaus og sumpart til
ógagns.
Umræðum lauk ekki í gær.
FESTARMEY FORSTJÓRANS 49
hefði verið fullorðin, og Albert frændi hafði spáð því
að varla myndu mörg ár líða, unz hún skreytti sitt
eigið brúðkaupsborð, þá horfði hún blóðrjóð af gleði
upp til bróður síns. En hann bauð henni eins kulda-
lega góða nótt og hægt var og snéri við henni bakinu.
* * *
Það var sem steini af mér létti, er ég hélt, að ég
þyrfti ekki meira saman við hann að sælda þann dag.
Guði sé lof, að hann hefir tvo karlmenn til að hugsa
um, svo ég þarf ekki að vera hjá honum í kveld, hugs-
aði ég, er ég stóð upp til að fara með frú Waters. Hann
hlýtur að fara með þá annaðhvort inn í „grenið“ sitt
eða setustofuna. Og þá er ég laus í kvöld. Já. Ég fæ
fríkvöld, alveg eins og vinnustúlkurnar. Munurinn er
aðeins sá, að þær nota fríkvöld sín til þess að hitta
elskhuga sína og dvelja hjá þeim. Það er að segja al-
veg gagnstætt með mig. Ó, húrra fyrir yndislegu
kvöldi með móður hans og Blanche. Ég ætla mér að
njóta hvíldarinnar eftir þennan hræðilega kvöldverð.
En jafnskjótt og ég fór að hrósa happi yfir þessu,
voru vonir mínar rifnar til grunna — í þetta skipti
náttúrlega af Albert frænda.
„Nei, nei,Billy. Við majorinn erum allt of góðir
karlar til þess, að við viljum ekki unna þér lítillar
stundar handa sjálfum þér, er það ekki, Montresor?“
„Jú, vitanlega“, svaraði majórinn glaðlega. En gleði
hans virtist ekki alveg óblandin.
Það er mál út af fyrir sig, þegar maður talar um, að
hann sé af léttasta skeiði og geri sig nokkru eldri en
hann er. En annað mál er, að láta leggja sig að jöfnu
við mann, sem vitanlega er tíu árum eldri en maður
sjálfur!
„Við gömlu hlunkarnir getum séð fyrir okkur sjálf-
ir, drengur minn. Þú þarft ekki að sitja og híma yfir
okkur. Þú átt að fara inn til kærustunnar, lagsmaður.
Og svo ekki fleira um það. Heldur þú, að við skiljum
ekki? Við höfum sjálfir verið ungir einu sinni, ha? —
sínum, og Carriad barinn. Jafnvel Albert frændi hafði
Og mér til ósegjanlegrar gremju lét hann aftur
hurðina á eftir hjónaefnunum, eins og hann var svo
vingjarnlegur að kalla okkur. Og nú höfðu frú Wat-
ers og Blanche lokað að sér.
Það leit ekki út fyrir, að maður ætti að fá að kasta
mæðinni, eftir allt, sem skeð hafði við borðið. — Þessi
kvöldverður, sem allir héldu líklega, að hefði verið
jafn skemmtilegur fyrir okkur og hann hafði verið
fyrir gestina tvo. Já, og hver varð svo endirinn á öllu
saman? Montresor majór móðgaður, Theo grátandi,
stofustúlkurnar atyrtar af hinum öskureiða húsbónda
sínum, og Cariad barinn. Jafnvel Albert frændi hafði
orðið fyrir mótgangi, því að hann hafði ómögulega
getað munað nafnið á myndinni, sem hann hafði ætl-
að að gefa okkur.
Jæja, nú stóð ég þarna, enn einu sinni augliti til
auglitis við reiðan forstjórann. í þetta skipti höfðum
við sameiginlegar endurminningar um þennan vel
hugsaða, en mjög svo óviðeigandi brúðkaupsverð
barnsins.
18. KAPÍTULI.
Fyrsti kossinn.
„Það er víst ekki um annað að gera en fara þangað
inn“, sagði ég og gekk hnarreist að dyrunum.
Fox-stjórinn kom alveg í tæka tíð til að opna þær
fyrir mig. Ég gekk inn, án þess að líta á hann, og beint
að stólnum við pianóið.
Ég settist. Annan fótinn lét ég hvíla á fótstillinum.
Eins og drukknandi maöur grípur í hálmstrá, greip
ég til að slá fyrstu tónana í kröftugum hersöng.
„Syngið“, heyrði ég sjálfa mig segja skipandi við
forstjórann.
Hann söng — en ekki vel.
„Haldið áfram“, sagði ég, er lagið var búið, „Eitt-
hvað kraftmikið".
Án frekara samtals héldum við vel áfram.
Ég vildi alls ekki, að Albert frændi, sem nú sat inni
í setustofunni með Montresor majór, skyldi halda, að
bróðursonur hans og ég værum farin inn í herbergi
hans til þess að — til þess að gera nokkuð annað en
— að leika og syngja allt kvöldið. Látum þá bara
heyra, að við séum við píanóið allan tímann.
Þeir hlytu að heyra það vel í gegn um vegginn.
Ha? nei. Þeir heyrðu það sýnilega ekki vel þar inni.
Því þegar við vorum að ljúka við „La Marseillaise“,
þá laukst hurðin upp og þeir komu báðir inn.
Albert frændi sjálfsagt á undan. Hann þrammaði
beint að flygelnum, sló með krepptri hægri hendi í
lófann á þeirri vinstri, hallaði sér til okkar og mælti