Nýja dagblaðið - 03.04.1938, Blaðsíða 1
Fallegustu og beztu
SKÍÐAPEYSURNAR
fyrir alla fjölskylduna.
V E S T A
Laugaveg 40. Sími 4197.
n*miA
ID/^GrlB 11/^0 IHÐ
6. ár. Reykjavík, sunnudaginn 3. apríl 1938. % 78. blað
ANNÁLL
93. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 5,42. Sólarlag kl.
7,20. — Árdegisháflæður í Reykjavík
kl. 7.
Veðurútlit f Reykjavík:
Þykknar upp með sunnan-átt, þeg-
ar líður á daginn.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 7,30 síðd. til kl. 5,35 árd.
Næturlæknir
er i nótt Bergsveinn Ólafsson, Há-
vallagötu 47, sími 4985. — Næturvörður
er í lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavík-
urapóteki.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, KJósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes til Akraness.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjamar-
nes. Lyra frá útlöndum. Grímsness- og
Blskupstungnapóstar. Fagranes frá
Akranesi.
Bifreið stolið.
í fyrrakvöld var bifreið, eign Ingi-
bergs Þorkelssonar byggingarmeistara,
stolið frá húsinu nr. 5 við Njarðar-
götu. Bifreiðin fannst í gærdag við
Sölvhólsgötu, óskemmd og í góðu ásig-
komulagi. Óvíst er hver valdur hefir
verið að hvarfinu.
Dánarfregn.
Frú Ásthildur Thorstelnsson andað-
ist í fyrrakvöld, eftir alllanga legu.
Garðyrkjuráðunautur
bæjarins hefir verið ráðinn fyrst um
sinn Matthías Ásgeirsson.
Karlakór Akureyrar
syngur hér i siðasta sinn í Gamla
Bíó kl. 3 í dag.
Karlakórinn Fóstbræður
heldur fyrsta samsöng sinn á þess-
um vetri í Gamla Bió næstk. þriðju-
dagskvöld.
Esperanto
breiðist út meir og meir um víða
veröld, eins og sjá má í sýningar-
skemmunni í Austurstræti, sem Har-
aldur Árnason hefir vinsamlegast léð
Esperantó-félaginu í Reykjavík til mn-
ráða þessa dagana. Þar má sjá ofur-
lítið sýnishorn af hinum miklu esper-
anto-bókmenntum, blöðum, leiðarvís-
um landa og ferðamannaskrifstofa
handa ferðafólki, póstkortum o. s. frv.
úr öllum heimsálfum. Og þar gefur
einnig að líta hvað hægt er að gera
fyrir tllstilli Esperantos til þess að
breiða út þekkklngu á íslandi. , A.
Grænmetisverzlunin heíir aistýrt verð-
hækkun kartaílna
Chíang Kai Shek
fær einræðisvald
Verð peírra hefír verið nær óbreytt
Vantraustið
Útvarpsumræðurnar
Kínverjar sækja
Sram til Shanghai
LONDON:
Chiang Kai Shek var 1 gær veitt
einræðisvald af Kuomintangflokknum,
en þing Kuomintang áskilur sér þó
réttinn til að hafa yfirumsjón með
stjórninni innanlands. Þá hefir og þing
Kuomintang samþykkt ályktun, þar
sem það tjáir sig mótfallið kommún-
isma.
Allar líkur benda til þess, að Kín-
verjar hagnýti sér það nú, hve Japanir
hafa veikt aðstöðu sina í nánd við
Shanghai með því að taka varalið úr
herbúðum sínum þar. Er sagt, að Kín-
verjar hafi sótt þarna fram um 70
mílna veg á 10 dögum og eigi nú að-
eins 60 enskar mílur ófarnar til
Shanghai. Hafa ýmsir smáflokkar, sem
héldu þar uppi smáskæruhernaði, sam-
einast aðalhernum.
Á Lunhai vigstöðvunum hefir Jap-
önum ekki tekizt að ná aftur landi því,
er þeir töpuðu fyrri hluta vikunnar.
— FÚ.
Lerída enn á
valdi stjórnar-
ínnar
IONDON:
Stjórnarherinn heldur enn uppi
vörninni við Lerida. Hægri armur upp-
reisnarmanna sækir áfram í áttina til
strandarinnar og er nú sagt, að hann
eigi ekki ófarnar nema 25 enskar míl-
ur til sjávar.
Spánska stjórnin hefir endurskipu-
lagt stjórn hersins á Austur-Spáni.
Posa hershöfðingi, sem hefir haft her-
stjórnina þar, hefir verið vikið frá, en
Perea hershöfðlngi, sem verið hefir
(Frh. á 4. síðu.)
meðan aðrar vörur hafa hækkað
Nyja dagblaðið hefir snú-
ið sér til Árna Eylands, for-
stjóra Grænmetisverzlunar
ríkisins og fengið hjá hon-
um yfirlit um verðlag á kar-
töflum undanfarin ár. Er
það birt á öðrum stað í blað-
inu. Þetta yfirlit gefur full-.
komlega til kynna, að veru-
leg verðhækkun hefði orðið
á kartöflum á s. 1. ári, ef
Grænmetisverzlunarinnar
hefði ekki notið við.
Yfirlitinu fylgdu eftirfar-
andi skýringar frá forstjóra
Grænmetisverzlunarinnar:
ÁRNI G. EYLANDS
Smásöluverð á kartöflum 1934—1937
ií; samkv. skýrslum Hagstofu íslands.
1934: 1935: 1936: 1937:
Janúar 25 au. 30 au. 32 au. 30 au. i|;
« Febrúar 25 — 30 — 38 — 30 — f
» Marz 25 — 30 — 37 — 31 — t
| Apríl 26 — 30 — 36 — 33 — ;j:
| Maí 28 — 30 — 34 — 34 — I
| Júní 29 — 34 — 34 — 35 — :j:
;í: Júlí 42 — 51 — 34 — 42 — :!:
í: Ágúst 45 — 49 — 51 — 52 — |
í: September 35 — 37 — 40 — 43 — $
Október 30 — 33 — 31 — 30 — 1
; Nóvember 29 — 30 — 29 — 31 — |:
Desember 30 — 31 — 29 — 30 — |
Meðaltal jan.-des. 30,7 - co C7I 1 35,4- 35 — jí
:í: Vlsitala matvöruv. 182,4 183,0 186,5 191,6
hefjast kl. 8,15 ann-
ad kvöld
V antrauststillaga Sj álf stæðisflokks-
ins var lögð fram á Alþingi í gær. Til-
lagan er flutt af Ólafi Thors og er
svohljóðandi:
Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á
núverandi ríkisstjórn.
Tillagan kemur til umræðu í sam-
einuðu þingi annað kvöld kl. 8,15 og
tala ræðumenn flokkanna í þessari
röð: SJálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur, Alþýðuflokkur, Kommúnista-
flokkur og Bændaflokkur. Hver flokk-
ur fær 40 mín. og verður ekki nema
ein umferð þetta kvöld.
Á þriðjudagskvöld heldur umræðan
áfram og verða þá tvær umferðir, önn-
ur í 25 mín. og hin í 10 mín. Röð
flokkanna verður önnur. Verður Fram-
sóknarflokkurinn seinastur í fyrri um-
ferðinni, en Sjálfstæðisflokkurinn i
seinni umferðinni.
Vínnulög’gfjöfin
Frv. nefndarinnar
veröur lagt fram
á morgun
Frumvarp um stéttarfélög og vinnu-
deilur mun verða lagt fram á Alþtngi
á morgun. Frv. verður flutt af Gísla
Guðmundssyni, en er samið af nefnd,
sem atvinnumálaráðherra skipaði síð-
astl. haust til þess að undirbúa slíka
löggjöf og hefir efni þess áður verið
getið hér í blaðinu.
Eins og skýrt var frá í yfirlýsingu
forsætisráðherra á Alþingi síðastl.
fimmtudag hefir náðst samkomulag
um það milli Framsóknarflokksins og
Alþýðuflokksins að afgreiða slíka lög-
gjöf á yfirstandandi Alþingi.
Kviknar í Varðarhúsinu.
Klukkan rúmlega 10,30 í gærkvöldi
var slökkviliðð kvatt á vettvang. Hafði
eldur orðið laus í Varðarhúsinu.
Slökkviliðinu tókst eftir nokkurra hríð
að vinna bug á eldinum. Neðri hæð-
in skemmdist þó talsvert, sérstaklega
Hafnfirzku stúkurnar
Morgunstjarnan og Daníelsher, hafa
ákvarðað að halda sameiginlegan fund
i Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði
annað kvöld. Hefst hann kl. 8V4. Á
þennan fund munu sækja embættis-
menn stúkunnar Frón i Reykjavík, og
munu helztu leiðtogar stúknanna
þriggja halda ræður. Stúkan Frón ann-
ast öll skemmtiatriði. Tilgangurinn
með þessum fundi er að auka kynningu
við hafnfirzka bindindismenn, og efla
starfsþrótt þeirra.
Miðstjórn
Framsóknarflokksins held-
ur fund mánudaginn 4.
þ. m. í Edduhúsinu. —
Fundurinn hefst kl. 5 e. h.
Konungur hefir stað-
fest skipun atvinnu-
málaráðherra
Forsætisráðherra skýrði frá því í
sameinuðu þingi í gær, að honum
hefði í gær borizt skeyti frá konungi,
þar sem konungur staðfesti þá tiU-
lögu hans að skipa Skúla Guðmunds-
son atvinnumálaráðherra.
Forsætisráðherra skýrði jafnframt
frá því, að enn væri ekki endanlega
ákveðin verkaskiptingin milli ráð-
herranna.
Slys um borð
í Esju
Póstmaðurinn á Esju fótbrotnaði
síðdegis í fyrradag, er skipið fékk á
sig brotsjó. Þessi atburður gerðist út
af Hornströndum. Var þar þá rok af
norðri.
Því hefir verið haldið fram,
að Grænmetisverzlun ríkisins
hafi orðið til þess að gera aðal-
söluvöru þá, sem hún verzlar
með, kartöflur, dýrari fyrir
neytendur, en þær voru áður,
og væru nú, ef verzlunin væri
frjáls, sem kallað er. Sum blöð
hafa jafnvel reiknað út heild-
söluálagningu Grænmetisverzl-
unar ríkisins og lagt þannig
fram tölulegar „sannanir“ fyrir
þessari skoðun.
Ég hefi lítið gert að þvi að
hnekkja skrifum né tali um
rekstur Grænmetisverzlunar
ríkisins, en nú liggja fyrir frá
Hagstofu íslands skýrslur um
verðlag á kartöflum til neyt-
enda (smásöluverð) til ársloka
1937. Skera þær glöggt úr um
það, hvort rekstur Grænmetis-
verzlunar ríkisins hefir orðið til
þess að hækka vöruna fyrir
neytendum eða ekki.
Tölur Hagstofunnar birtast
hér á öðrum stað í töluformi,
sem auðvelt er að átta sig á.
Hún sýnir verðið mánaðarlega
árin 1934—37. Auk þess er með-
alverð allra mánaða hvers árs.
Neðst er vísitala Hagstofunnar,
er sýnir breytingar á verðlagi á
matvælum yfirleitt þessi sömu
fjögur ár. Grænmetisverzlun
ríkisins tók til starfa 1. maí
1936 og tölurnar eftir þann
tíma settar með feitu letri.
Tölurnar tala sínu máli, en
það sem ég bið menn helzt að
athuga, er þetta: Meðalverðið
sýnir að kartöflur hafa hækk-
að úr 34,5 aura kg. 1935, í 35
aura kg. 1937, eða 1,45%. Á
sama tíma hefir visitala mat-
vöruverðs hækkað úr 183 upp í
191,6 eða 4,7%. Má því heita, að
verð á kartöflum til neytenda
hafi sama og ekkert hækkað og
(Frh. á 4. síðu.)
Róstusamt á fundí
íhaldskvenna
Tvivegís stíllt tíl iriðar
með pví að slökkva
ljosin
íhaldskvennafélagið Hvöt hélt fund
í Oddfellow-húsinu í fyrrakvöld. Mættu
þar yfir 100 konur.
Svo mikil sundurþykkja og upp-
lausn ríkti á fundi þessum, að með
einsdæmum var og hefir þó friðsemd-
inni ekki verið fyrir að fara á fundum
Hvatar í vetur. Kyrlátt fólk, sem stóð
stuggur af ósköpunum, varð tvívegis
til þess að slökkva ljósin í fundar-
salnum, þegar hvað mest gekk á.
Stjórnarkosning fór fram á fund-
inum og olli hún miklum deilum.
Vildu fleiri komast í stjómina en tök
voru á, og munu þær, sem féllu, sízt
ætla sér að vera friðflytjendur í fé-
laginu framvegis. Gengu sumar þess-
ara Hvatar-kvenna af fundi.