Nýja dagblaðið - 17.04.1938, Síða 1
Fallegustu og beztu
SKÍÐAPEYSURNAR
fyrir alla fjölskylduna.
V E S T A
Laugaveg 40. Sími 4197.
rwnA
O/^G-IBU/’MÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, sunnuðaginn 17. apríl 1938. 88. blað
ANN ALL
107. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 4,57. Sólarlag kl.
8,03. Árdegisháflæður i Reykjavík kl.
6.55.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sími 2334, og aðra nótt
Karl S. Jónasson, Sóleyjarg. 13, sími
3925. — Helgidagslæknir í dag er Hall-
dór Stefánsson, og á morgun Ólafur
Þorsteinsson, Mánagötu 4, sími 2255.
Næturvörður er í Reykjavíkur- og
Iðunnar-apóteki.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 8 e. h. til kl. 5 að morgni.
Dagskrá útvarpsins.
(Páskadagur): Kl. 8,00 Messa í Frí-
kirkjunni (sr. Á. S.). 10,40 Veðurfr.
11,00 Messa í Dómkirkjunni (sr. B. J.).
15,30 Miðdegistónleikar: Ýms tónverk
(plötur). 17,40 Útv t. Útl. (24.52m).
20,00 Tónleikar: a) Karlakórinn „Fóst-
bræður' syngur. b) Níunda symfónían,
eftir Beethoven (plötur) (til kl. 21,50).
(Annan í páskum). Kl. 9,45 Morgun-
tónleikar: Kvintett í C-dúr, Op. 163,
eítir Schubert (plötur). 10,40 Veðurfr.
11,00 Messa í Dómkirkjunni (sr. Fr.
H.). 15,30 Miðdegistónleikar frá Hótel
Borg. 18,30 Barnatími (Ungmeyjakór
K.F.U.K.) 19,10 Veðurfr. 19,20 Hljóm-
pl.: Frægir söngvarar. 19,40 Augl. 19,50
Fréttir. 20,15 Kvöld Barnavinafélags-
ins „Sumargjöf': Ávörp og ræður, söng-
ur, hljóðfæraleikur. 22,00 Danslög. 24,00
Dagskrárlok.
Páskamessur.
í dómkirkjunni: Á páskadag kl. 8
árdegis, sr. Fr. H. Kl. 11, sr B. J.
(dönsk messa). — Annan páskadag
kl. 11, sr. Fr. H. Kl. 5 sr B. J. (alt-
arisganga).
í fríkirkjunni á páskadag kl. 8 sr. Á.
S., og kl. 2, sr. Á. S. — Á annan dag
páska: Kl. 2, barnaguðsþjónusta (Á.
S.) og kl. 5, Ragnar Benediktsson, stud.
theol.
Póstferðir á morgun:
(Á annan i páskum).
Frá Rvík: Mosfellflsveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Dr. Alexandrine til Vestmanna-
eyja, Færeyja og Kaupmannahafnar.
Nova norður um land til Bergen.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjöröur. Seltjamar-
nes. Esja austan um úr hringferð. Lyra
frá Bergen, Færeyjum og Vestmanna-
c.yjum. Grímsness- og Biskupstunga-
póstar.
Bítrn,
sem ætla að selja Barnadagsblaðið,
eru beðin að vitja blaðsins á afgreiðsla
Morgunblaðsins og í Grænuborg á
þriðjudaginn kemur, frá kl. 9 árdegis.
Há sölulaun. Verðlaun veitt þeim dug-
legu: :u. — Börn! Verið dugleg að selja.
Bæj. búar! Kaupið Barnadagsblaðið!
Lúörasveit Reykjavíkur
leikur sálmalög kl. 9 árdegis í dag,
eðr um það leyti sem morgunmessun-
um er lokið í kirkjunum.
S’:írn sem segir sex
verður sýnd kl. 8 á morgun.
Málverkasýning
Eyjólfs J. Eyfells verður opin á ann-
an páskadag í síðasta sinn.
F ærey skar skútur
á Hvalfirði
Tvær færeyskar skútur voru að veið-
um inni á Hvalfirði í gær, önnur mest
í Galtavíkurdjúpi, en hin undan Kjal-
arnesi. Er það fátítt, að skútur leiti
þangað til veiða og var með öllu
óþekkt á íslenzka skútu-tímabilinu.
Margir opnir bátar notuðu góða
veðrið og réru og um hríð í gær voru
sjö bátar samtímis með handfæri fram
undan Móum á Kjalarnesi.
Afmælí Menningarsjóðs
Míaja veítt
eínræðísvald
Uppreisnarmenn hafa
tvískipt landi stjórnar-
innar og rofið allar
landsamgöngur milli
Valencia og Barcelona.
KALUNDBORG:
Hersveitir Francos komust í fyrra-
dag alla leið út að Miðjarðarhafi við
Vinaros og er það nálega miðja vega
MIAJA
milli Valencia og Barcelona. Með þessu
móti hefir uppreisnarmönnum tekizt
að hefta járnbrautarsamgöngur milli
Valencia og Barcelona og var járn-
brautin sprengd í loft upp á stóru
svæði og sterkur her settur þar til
varnar.
Eftir að þessir atburður urðu kunn-
ir var Miaja gerður að einræðisherra
yfir þeim hluta Spánar, sem er á valdi
stjómarinnar að undantekinni Kata-
loníu. Hélt hann útvarpsræðu þegar í
fyrrakvöld og skoraði á alla stuðnings-
menn lýðveldisins að duga nú sem
bezt í þessari úrslitaraun. Hann kvaðst
mundi krefjast járnaga af hverjum
manni með því að ástandið væri nú
svo alvarlegt að hvergi mætti neinu
skeika 1 framkvæmdum stjórnarhers-
ins. FÚ.
Brezk-ítalski
sáttmálmn
undírritaður
Jafnframt undirbúa Eng-
lendLngar víðtækara hem
aðarbandalag við Frakka.
KALUNDBORG:
Brezk-ítalski sáttmálinn var undir-
ritaður í Róm í gær kl. 16,30 eftir
íslenzkum tírna og undirritaði Ciano
greifi fyrir hönd Ítalíu, en Perth lá-
varður sendiherra Breta 1 Róm fyrir
þeirra hönd.
Daladier forsætisráðherra Frakka og
fleiri ráðherrar úr frönsku stjórninni
eu boðnlr til London i lok þessa
mán. til viðræðu við brezku stjórnina.
Þeir hafa tekið boðinu og er þetta
almennt talið vottur þess, að Frakk-
Menntamálaiáðíð undirbýr útgáíu á æii-
sögum merkra Islendínga eitir 1874
Nú í vor er 10 ára afmæli
Menntamálaráðs og Menningar-
sjóðs. Hefir þá verið ákveðið að
minnast starfsemi þessa fyrir-
tækis með nokkru yfirliti. Jón
Magnússon málfræðingur frá
Sveinsstöðum mun gera þessa
yfirlitsskýrslu.
Menningarsjóður hefir tiltekin
nokkur verkefni. Hann hefir með
lögum tryggðar 50 þús. kr. árs-
tekjur, sem skiptast í þrjá jafna
hluta. Einn þriðjungurinn geng-
ur til að kaupa íslenzk listaverk
fyrir landið. Annan þriðjunginn
skal nota til bókaútgáfu, og ein-
um þriðja af tekjunum er varið
til rannsókna á náttúru íslands.
Menntamálaráði er auk þess af
Alþingi falin nokkur önnur störf,
svo sem að úthluta nokkrum ó-
keypis farmiðum milli íslands og
útlanda og skipta tilteknum,
litlum fjárhæðum í styrk til
námsmanna, listamanna og rit-
höfunda.
í Menntamálaráði eiga sæti 5
menn, kosnir með hlutfallskosn-
ingu í sameinuðu Alþingi að af-
stöðnum nýjum kosningum. Eft-
ir síðustu kosningar voru kosnir
í Menntamálaráð: Árni Fálsson,
Barði Guðmundsson, Guðmund-
ur Finnbogason, Pálmi rektor og
sá sem þetta ritar. Árni Pálsson
hefir átt sæti í Menntamálaráði
frá því að það var stofnað, en dr.
G. F. var kosinn þangað í fyrsta
sinn í haust sem leið. Hinir hafa
starfað nokkru lengur. Það hefir
þótt einkenna Menntamálaráð,
að þar hefir jafnan verið hið
bezta samkomulag, þó að full-
trúarnir hafi verið valdir úr
stjórnmálaflokkum, sem annars
deila um mörg dægurmál.
Menntamálaráð er nú byrjað á
nýjum viðfangsefnum. Það vinn-
ur að því að koma upp safni af
Starfsemi dönsku
nazistanna
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Enn hafa tveir nazistar verið tekn-
ir fastir £ sambandi við mál Erik Wes-
tergaard, sem skaut á Steincke dóms-
málaráðherra. Westergaard hefir áður
verið kommúnisti.
Social-Demokraten skýrir frá því 1
gær, að fleiri handtökur séu í vændum
og ennfremur að margir nazistar hafi
gert sig seka um hótanir við einstaka
meðlimi ríkisstjórnarinnar, svo að hér
sé sennilega um samtök að ræða. FÚ.
ar og Bretar séu að undirbúa með sér
víðtækari samvinnu um hermál en
verið hefir eða jafnvel fullkomið hern-
aðarbandalag. FÚ.
JÓNAS JÓNSSON
myndum merkra samtíðar-
manna. Það vill minnast Alþing-
is með því að láta gera andlits-
myndir af forsetum þess, sem
lengi hafa starfað fyrir það. Er
nú verið að mála myndir af
Benedikt Sveinssyni og Halldóri
Steinssyni og munu fleiri eftir
fara. Menntamálaráð hefir lagt
• nokkra áherzlu á, að sem flestar
| menningarstofnanir í landinu
j komi upp þvílíku safni af sínum
mönnum, og er nokkur byrjun
gerð í því efni, án þess að Menn-
(Frh. á 3. síðu.)
Fjárdráttur
í Landsbankanum
Brynjólfur Þorsteinsson, fulltrúi í
Landsbankanum, var settur í gæzlu-
varðhald á miðvikudaginn, grunaður
um fjárdrátt. Hefir hann við yfir-
heyrslu síðan játað, að þessi grunur
væri réttur.
Fjárdráttur þessi hefir verið með þeim
hætti, að árið 1927 fékk iðnaðarmaður
hér í bænum lán í bankanum til hús-
byggingar. Var um það samið, að lánið
skyldi greiðast smámsaman, og fól
bankinn Brynjólfi að sjá um innheimt-
una.
Maður þessi hefir síðan borgað
Brynjólfi reglulega hinar umsömdu af-
borganir og fengið kvittanir fyrir. En
Brynjólfur hefir ekki fært inn í bækur
bankans nema nokkurn hluta greiðsl-
anna, en dregið sjálfum sér afganginn.
Brynjólfur hefir verið fjarverandi úr
bankanum undanfarið og var nýlega
búinn að segja upp starfi sínu. Þegar
maðurinn kom seinast í bankann, til
að greiða hina reglulegu afborgun,
grennslaðist hann jafnframt eftir, hvað
mikið væri ógreitt af skuldinni. Reynd-
ist það þá að vera miklu meira en hon-
um taldist til sjálfum og kvittanirnar
sýndu.
Við yfirheyrslurnar hefir Brynjólfur
játað að hafa alls dregið sér um 14
þús. kr. af greiðslum þessa manns.
Hann neitar að hafa gert sig sekan um
þetta, nema í þessu eina tilfelli.
Engar sættír
á Sígluíírði
Sáttasemjari heSir
dvalið par nyrðra
og reynt að miðla
málum. Tilboði firá
stjórn ríkisverksm.
hefiir verið hafinað
Sáttasemjari ríkisins, dr. Bjöm Þórð-
arson lögmaður, hefir dvalið á Siglu-
firði undanfarna daga. Hefir erindi
hans verið að reyna að miðla málum í
kaupdeilu þeirri, sem Verkamannafél.
Þróttur hefir hafið gegn síldarverk-
smiðjum ríkisins.
Hefir sáttasemjari haldið marga
fundi með deiluaðilum og kynnt sér
rök þeirra. Fundirnir hafa þó engan
árangur borið og fór sáttasemjari
heimleiðis frá Siglufirði í gær. Til-
kynnti hann aðilum áður, að hann væri
ekki við því búinn að leggja fram
miðlunartillögur nú þegar, en kvaðst ef
til vill gera það síðar.
Stjórn sildarverksmiðjanna gerði
Þrótti það tilboð i fyrradag, að land-
verkamenn skyldu fá sérstakan ágóða-
hluta, ef útborgað verð til sjómanna
yrði hærra en meðaltal þriggja undan-
farinna ára, en það mun vera kr. 5.77
pr. mál. Virðist það tilboð byggt á full-
kominni sanngirni, því þá er tryggt að
kauphækkun landverkafólksins bitni
ekki ranglega á sjómönnum og útgerð-
armönnum.
Þróttur hefir nýlega gert samning við
stjóm Vinnuveitendafélagsins á Siglu-
firði um nokkra kauphækkun. En at-
vinnurekendur á Siglufirði munu vera
mjög óánægðir með þennan samning
og hafa kvatt saman fund í vinnuveit-
endafélaginu, til að ræða um þessa
framkomu stjómarinnar. Stjórnin und-
irritaði þó samninginn með því skilyrði,
að hann gengi ekki í gildi, án samþykk-
is Vinnuveitendafélags íslands. Það
hefir enn ekki samþykkt samninginn
og er því óvíst um afdrif hans.
Samningur þessi nær ekki til síldar-
verksmiðjanna á Siglufirði, sem eru í
einkaeign.
Samninganefnd Þróttar hefir lýst því
yfir, að hún muni ekki gera frekari
kröfur til rikisverksmiðjanna, en hún
hefir fengið framgengt í þessum nýja
samningi við atvinnurekendur.
Skíðavikan
á ísafirði
Skíðavikan á ísafirði byrjaði í fyrra-
dag. Taka þátt í henni um 250 manns.
Héðan fóru með Súðinni um 120
manns. Kom skipið til ísafjarðar síðd.
á fimmtudaginn. Var þá versta veður
fyrir vestan, en í fyrradag var sæmi-
legt veður og ágætt veður í gær, og lét
skíðafólklð héðan hið bezta af veru
sinni fyrir vestan.
Togararnír
Sjö togarar, Bragi, Tryggvi gamli,
Hilmir, Ólafur, Gyfli, Geir og Otur,
komu af veiðum í fyrradag og gær.
Höfðu þeir haft frá 7—14 daga úti-
vist. Lifrarafli var þá 65—102 tn.
Hefir yfirleitt verið mjög tregur afli
hjá togurunum undanfarið eins og
þessar tölur bera með sér.