Nýja dagblaðið - 21.04.1938, Page 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Aimæli Væringja
Eftír Aðalsteín Sigmundsson
Skátafélagið Væringjar, fjöl-
mennasta og elzta skátafélag
landsins er 25 ára í dag. Skáta-
félag Reykjavíkur var aö vísu
stofnað fyrr (2. nóv. 1912). En
það starfaði aðeins skamma
stund. Hefir því komið í hlut
Væringja að vera aðalbrautryðj -
endur skátahreyfingarinnar hér
á landi og bera hana fram til
þess sigurs, sem hún hefir þegar
unnið hér. Og af því félagi hafa
íbúar höfuðstaðar vors meginið
af þekkingu sinni á hinni merku
alheimshreyfingu. Og sú þekk-
ing og reynslan af starfi Vær-
ingja hefir aflað þeim og skáta-
hreyfingunni virðingar og vin-
sælda.
Séra Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri K. F. U. M., stofn-
aði Væringjafélagið á sumar-
daginn fyrsta 1913, þá bar þann
dag upp á 23. apríl. Eigi er mér
kunnugt, hvort upphaflega hef-
ir vakað fyrir stofnandanum, að
Fyrstu Vœringjarnir. — Búningunum hefir verið breytt síðan.
það yrði skátafélag, en framan
af var það sérdeild úr K. F. U. M.
og hafði ekki á sér einkenni
skátafélaga fyrstu mánuðina.
Höfðu fyrstu Væringjarnir t. d.
litklæði að fornum sið að ein-
kennisbúningi, en ekki skáta-
búninga. En haustið 1913 fór
séra Friðrik vestur um haf og
var nokkur ár utan. Tók þá Axel
V. Tulinius við stjórn Væringja-
félagsins og breytti því skömmu
síðar í reglulegt skátafélag. Var
hann síðan leiðtogi og yfirmað-
ur Væringja, allt þar til hann
lézt s. 1. haust, fyrst sem félags-
foringi þeirra, en síðan sem
skátahöfðingi íslands og for-
maður Bandalags ísl. skáta, eft-
ir að það var stofnað 1925. Hef-
ir enginn einn maður unnið
Væringjafélaginu né skáta-
hreyfingu íslands neitt viðlíka
mikið gagn og hann. Var það
merkileg og óvenjuleg heppni,
að slíkur maður skyldi veljast
til að leiða aðalskátafélag höf-
uðstaðarins og skátahreyfingu
landsins yfir byrjunarörðug-
leikana.
Gleðilegt
sumar!
Munlð að sumarið er' sá tími, sem
á að uota til þess að vernda hús
yðar og aðrar eignir gegn eyðilegg-
ingu af völdum veðurs og vinds.
Verndið eignir yðar með því að
nÖRPlJ-mála þær!
Lakk-og Málníngar-
verksmíðjan
HARPA,
Freistandi væri, að nefna hér
nöfn allmargra manna, sem
staðið hafa framarlega í Vær-
ingjafélaginu á undanförnum
25 árum. En rúmið leyfir ekki
að geta nema fárra einna. En
óhugsandi er, að drepa á sögu
Væringjafélagsins, án þess að
geta þar Ársæls Gunnarssonar
kaupmanns, svo ríkan þátt átti
hann í tilveru félagsins fyrri
helming æfi þess, eða frá upp-
hafi og þar til hann lézt í árs-
lok 1926. Allt þetta tímabil var
hann lífið og sálin í störfum
félagsins og st’óð við hlið A. V.
T. sem stjórnandi þess, síðast
sem formaður. Af Ársæli tók
Davíð Scheving Thorsteinsson
læknir (d. 1938) við formennsku
i félaginu. Hann var þá mjög
við aldur, en þrátt fyrir það vann
hann félaginu og skátahreyfing-
unni stórmikið gagn, einkum
með kennslu sinni í „hjálp í við-
lögum“. — Af foringjum Vær-
ingja frá fyrri tímum ber eink-
um að nefna Axel Gunnarsson
(bróður Ársæls), og Guðmund H.
Pétursson, en frá seinni árum
Vœringjar á Langjökli.
Jón Oddgeir Jónsson, Hendrik og
Sigurð Ágústssyni og Óskar Pét-
ursson. Núverandi stjórnendur
félagsins eru Leifur Guðmunds-
son (form.), Daníel Gíslason og
Björgvin Þorbjarnarson. — Fé-
lagsmenn eru nú liðug 4 hundr-
uð og fer fjölgandi.
Margt hefir drifið á daga Vær-
ingjafélagsins í 25 ár, og verður
fátt eitt af því talið hér. Aðal-
starf þess öll árin hefir að sjálf-
sögðu verið æfing, tamning og
þroskun þeirra drengja, sem leit-
að hafa sér menningar hjá fé-
laginu. Tvö ár gaf það út skáta-
blað, en Liljan hét (1916 og ’26),
en 10 ár hefir það staðið að út-
gáfu drengjablaðsins Úti. 1920
fékk félagið landblett til umráða
uppi við Lækjabotna, og reisti sér
þar skála, er kostaði 7000 kr. Það
stóð fyrir fyrsta almennu skáta-
móti á íslandi (1925 í Þrasta-
skógi) og mörgum mótum síðar,
bæði íþróttamótum og útilegu-
mótum. Og nú i sumar ætlar það
að halda stórt mót, með þátttöku
frá ýmsum löndum, á Þingvöll-
um. Oft hafa Væringjar farið ut-
an á erlend skátamót, og stund-
um fjölmennir. Á sumardaginn
fyrsta hafa þeir venjulega stað-
ið. fyrir skátaguðsþjónustu 1
dómkirkjunni og farið skrúð-
göngur um bæinn. Loks verður að
geta hinnar margvíslegu og
miklu hjálparþjónustu, er Vær-
ingjar hafa leyst af hendi. Hafa
þeir jafnan verið boðnir og búnir
að rétta hjálparhönd, þegar á
hefir þurft að halda. Er það al-
kunna hér í borg og viðar.
Skátafélagið Væringjar vinnur
mjög merkilegt og þarft verk í
uppeldismálum Reykjavíkur. En
það á við örðugleika að búa og
þröng kjör, húsnæðisleysi og fá-
tækt, eins og títt er um menn-
ingarfélög. Er vert að þess sé
minnzt, nú á 25 ára afmæli fé-
lagsins.
A. S.
Svefnpokar,
Kerrupokar,
Allar stærðir fyrirliggjandi.
SMIPAUTCEWÐ
iniBtíSBMsl
GLEÐILEGT SUMAR!
Óshum öllum viðshiptavinum ohhar
GUEÐILEGS SUMARS.
Jón & Steingrímur.
GLEÐILEGT SUMAR!
Kjötverzlunin Herðubreið,
Fríkirkjuveg 7.
GLEÐILEGT SUMAR!
Bifrei&aeinhasalu ríhisins.
Viðtœhfaverzlun ríhisins.
GLEÐILEGT SUMAR!
Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar.
GLEÐILEGT SUMAR!
Sláturfélag Suðurlands.
GLEÐILEGT SUMAR!
Sápuverhsmiðjan Sjöfn.
MAGTVT h.f.
Sími 2088. Bjargarstíg 2.
Gleðilegt sumurl
Aðalstöðin.
Gleðilegt sumar!
Tóbakseínkasala ríkísíns.