Nýja dagblaðið - 24.04.1938, Síða 4

Nýja dagblaðið - 24.04.1938, Síða 4
REYKJAVÍK, 24. APRÍL 1938 NYJA DAGBLAÐIÐ 6. ÁRGANGUR — 92. BLAÐ w.v.vtFansla isio v/.wv. 5 VORDRAUMUR „MAYTIME". Heimfræg og gullfalleg Metro—Godwyn—Mayer söngmynd. Aðalhlutverkin í þessari miklu mynd leika og syngja uppáhaldsleikarar allra, þau Jeanette Mac Donald og Nelson Eddy. Sýnd kl. 6% og kl. 9. (Alþýðusýning kl. 6V2.) Barnasýning kl. 4y2 Smámyudasafn SKIPPER SKRÆK o.fl. V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.’ Reíðhjól. Efni í hin mjög eftirspurðu reið- hjól er nú komið heim. Við höf- um nú hjól til af ölium stærðum. Tökum gömul hjól í skiptum. 0 R N I N N Laugaveg 8. Vesturgötu 5. Sími 4661. Bálfarafélag fslands. Skrifstofa: Hafnarstrœti 5. Félagsskírteini (æfigjald) kosta 10 kr. Skírteini, sem tryggja bálför, kosta 100 krónur, og má greiða þau í fernu lagi, á einu ári. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Sími 4658. K A V P f 9 !,ofíwr. Norðmenn selja Iýsí Sölusamlag norskra hvalveiði- félaga hefir nýlega selt Þjóð- verjum allmikinn hluta árs- framleiðslu sinnar, eða 107000 smálestir af hvalolíu fyrir 12% sterlingspund smálestina. Á síð- astliðnu ári fengust um 20 ster- lingspund fyrir smálestina. Verð þetta er talið undir framleiðslu- verði. Eftir því, sem Sandefjord blað skýrir frá, munu eftirstöðv- arnar af framleiðslunni geymd- ar, í von um að verð hækki. — Finanstidende. iiirMi.n ESJA austur um land |iriðjii- daginn 26. þ. m. Tckið á móti vörum fram til hádegis á mánudag. KVENTÖSKUR, Ferðaáhöld. Seðlaveski. — Buddur. Hanzkar. Láffur. Baðtöskur. Snyrtiveski. Skjalatöskur. Hentugar fermingurgfafir. Hljóðfærahúsið. LÉBEFTSTFSKIJR hreinar og heillegar, (mega vera mislitar), kaupir Prentsmiðjan EDDA h.f., Lindar- 1 götu 1D. Reykjavíkurannáll h.f.: REVYAN í Íí 22. SÝNING í dag kl. 2. Aðgöngum. seldir frá kl. 1. Venjulegt leikhúsverð. 23. SÝNING í kvöld kl. 8. Aðgöngum. seldir frá kl. 1. Eftir kl. 3 venjulegt leik- húsverð. 24. SÝNING á morgun, mánudag, k. 8. Aðgöngumiðar seldir kl. 4 —7 í dag og á morgun eftir kl. 1. Venjulegt leikhúsverð eftir kl. 3 á morgun. Revyan verður að- eins leikin örfá kvöld ennþá. PR ENTMYNDA ST OFÁ N LEIFTUR Hafndrsfræii 17, Cupp0> býr iil 1. flohhs prentmyndir. Sínii 3334 •_ !%j b*;jl AV.V.V »v.w.v í^yja BSsíí .V.V.V,’ í I»í LIFIR AÐESMS J 5 “EINU SEVNI í í :: Stórkostleg amerísk saka- í; málsmynd, gerð undir ;I «: stjórn kvikmynda- \* meistarans Fritz Lang. I; Aðalhlutverkin leika íj l\ Sglvia Sidneg, ;! ;j Henrg Fanda o.fl. !; ;« Sýnd kl. 7 og kl. 9. •' «: Börn fá ekki aðgang. ;. J Fangizm á Zenda í Sýnd kl. 5 (lækkað verð). í; I; Síðasta sinn. ■: í '.’.’.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V n H6»«6i llll Þriggja herbergja íbúð til í húsi við Fjölnisveg. List endur leggi inn tilboð á greiðslu blaðsins. leigu haf- af- Tvö herbergi og eldhús óskast 14. maí. Þrennt í heimili. Skilvís greiðsla. Tilboð merkt Skilvís sendist afgreiðslu blaðsins. (( V3 erðbréfhbanki c 5 sfmi 3652 )anK[nn .Opiö k!.11-12ogS-fo/ annast kaup og sölu ALLSKONAR YERÐBRÉFA. FESTARMEY FORSTJÓRANS 65 áfram elska umhverfið og litlu húsinu — ég bý í því stærra með móður yðar, og Theo og Blanche í hinu, þangað til þér komið — og sandhólana með þistlun- um og kjarrinu og litlu, viltu stjúpmóðurblómunum, sem spretta hér allsstaðar. (Ætti ég að setja stjúpmóðurblóm frá þessum stað, sem honum þykir svo vænt um, inn í bréfið? Nei, það geri ég ekki. Hjá honum er engin Theo til að taka eftir því). Og ég elska skuggana á hæðunum fyrir ofan, þegar skýin þjóta fram hjá — og frú Roberts með pokalér- eftssvuntuna, sem hún er alltaf með, og Blodwen — og allt. Og ég myndi verða eyðilögð ef hér væri mikið samkomulíf. Hér er allt, sem ég þarf til að vera full- komlega hamingjusöm. Nú, þegar heitt er orðið í veðri, er dýrlegt að baða sig. Ég lærði að synda, þegar ég var litil stúka; annars þakka ég fyrir gott boð. (Hann skal ekki ímynda sér, að hann geti kennt mér neitt). Hvernig var hr. Albert Waters? Líklega alltaf hlæj- andi og skríkjandi. Ég hló, er mér varö hugsað til þess, að þér hefðuð verið gabbaður af ungfrú Robinson. — í gær var ég líka göbbuð, svo mér varð hugsað til yðar. Mér heyrð- ist, sem steini hefði verið kastað á svefnherbergis- gluggann. En það var aðeins pattaralegur þröstur, sem kroppaði snígil með goggnum. Það er mikið af þeim í runnunum fyrir utan dyrnar. Frú Roberts bað mig að segja yður, (hún hafði sagt á sinni mjúku keltnesku mállýzku, með hinu ómót- stæðilega brosi: „Segið Cariad yðar-----“. En það skrifa ég náttúrlega ekki), að trékonan — ég var ann- ars lengi að átta mig á, að það var likneskja á klett- inum — þyrfti að málast, og hún vildi vita, hvort þér gætuð gert það, er þér kæmuð hingað. (Nei, þetta bréf er orðið allt annað en auða örkin, sem ég hefði getað lagt í umslagið .... en nú má það ekki verða lengra). Ég ætla að biðja Theo að fara með bréfið á póst- húsið og — Hamingjan hjálpi mér. Nú er erfitt að vita hvem- ig maður á að skrifa undir til ungs manns. Til Sid- neys skrifaði ég alltaf „þín einlæg“. Heimskulegt orðatiltæki, sem ekki hefir neina þýðingu). Með vinarkveðju? (Nei). Virðingarfyllst? (Nei. Byrjun bréfsins sýndi það nægiega). Ætla að biðja Theo að fara með bréfið á pósthúsið, og er yðar (Já, það er ég). opinbera kærasta, Monica Trant. (Einhverju hefi ég gleymt.) PS. „Ég skal muna, að þér fyrirskipuðuð“ (Nei, það hljómar illa. Það strikum við út. — „að þér óskuðuð“? (Nei.) — „að þér báðuð mig að vera glaða yfir að sjá yður á laugardaginn. N.“ Ég get náttúrlega ekki skrifað það, því að það myndi valda misskilningi — en ég hlakka raunverulega til að sjá Billy Waters aftur. — Og nú verð ég að ná í yngstu systur hans og senda hana á pósthúsið með það, sem hún í sakleysi sínu heldur að sé ástarbréf. 22. KAPITULI Trékonan. Ef hugsanlegt er, að maður gæti orðið ástfanginn £ Billy Waters — og ég sé nú, að það er ekki alveg ó- mögulegt — þá yrði það helzt hér i Port Cariad, því að hér nýtur hann sín bezt. í þessu tilfelli hugsa ég ekki um sjálfa mig. Nú, þegar við erum orðnir vinir, fellur slíkt um sjálft sig. Sumir karlmenn — venjulega þeir beztu — kunna bezt við sig, þegar þeir eru komnir út í guðs græna náttúruna. Þannig er því varið með hann. Ég tók eftir því fyrsta daginn, er ég fór til að taka á móti honum á litlu járnbrautarstöðinni. Það þurfti ég að gera vegna fjölskyldu hans! Áður en lestin stöðvaðist, sá ég höfuð hans og herðar út úr klefa- glugganum. Þá sá hann mig á pallinum, tók pípuna út úr sér og veifaði henni yfir höfði sér í kveðjuskyni — hann var eitt bros, vegna þess að sumarleyfið var byrjað hjá honum. Þá staðnæmdist lestin, hann stökk út úr vagninum og hljóp til mín. „Góðan daginn, Nancy,“ sagði hann og greip um hendur mínar. „Þér komuð þá? Ég var að hugsa um, hvort þér mynduð gera það. Það var mjög — rétt gert af yður. Hvernig líður yður? Þér lítið ágætlega út. Sól- hattur, ha?“ — Það var mjög fátæklegur hattur úr baðmullartaui, eins og bændastúlkur nota við upp- skeruvinnu. Ég keypti hann á pósthúsinu og hann fór vel. — „Ég hefi aldrei séð yður með slíkan hatt.“ „Nei, það var varla við að búast í Leadenhallstræti,“ svaraði ég. „Hvernig gengur það á blessaðri skrifstof- unni?“ „Það veit ég ekki og það kæri ég mig heldur ekkert um að vita. Ég er kominn hingað til að gleyma því öllu,“ sagði hann glaðlega. Við fórum af stöðinni og inn á milli sandhólanna. „Ég held, að ég verði sjálfur að fá mér svona hatt.“ Hér gengur hann hversdagslega í hvítri skyrtu með linum flibba, í gráum flónelsbuxum með belti, ber- höfðaður — hárið úfið, svo að enginn af skrifstofu- fólki hans myndi þekkja hann. Augu hans hafa líka fengið annan blæ. Þau eru hlýrri og dýpri og sýnast blárri vegna andlitsins, sem er dökkbrúnt og útitekið. Hann verður yngri með hverjum degi, sem líður. Þeg- ar hann er á gangi út á sendnu vegunum, eða gerir móður sína skelkaða með að reyna að ganga á hönd- unum í djúpum sjó í víkinni, eða þegar hann er að reyna að tala Wales-mállýskuna við frú Roberts og Blodwen, sem auðsýnilega tilbiðja hann — ja, þá gæti ég vel hugsaö mér, að mörgum myndi finnast hann skemmtilegur hér úti í sveitinni. Ég hefi líka altaf heyrt að auðveldara sé að verða ástfanginn úti í sveit en inni í borgum. Borgin virð- ist benda til, með öllum sínum flýti og hávaða, að allt sé undir því komið að afla sér peninga — eða að reyna að fleyta fram lífinu, því það er takmarkið með allri þrælkun margs þessa vesalings fólks. En sveitin. — Hún getur myndað fallegt fjarsvið, þar sem maður og kona mætast, og komið fólki til að halda, að það eina, sem allt ríður á hér í þessum heimi, sé ástin. „Það er gott, að mikið er útsprungið af þyrnirós- um“, sagði Theo við morgunverðarborðið. „Ég hefi alltaf vitað, að trúlofað fólk vildi helzt vera þar sem mikið er af þeim“. Við bróðir hennar litum brosandi hvort á annað yfir borðið. Við skildum hvað barnið var að fara. Látum hana bara halda, að hún geti strítt okkur með gömlu vitleysunni um kossa og þyrniblóm. Við vitum

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.