Nýja dagblaðið - 26.04.1938, Síða 2

Nýja dagblaðið - 26.04.1938, Síða 2
2 DAGBLAÐIÐ N Ý J Vígbúnaður Dana Þeir munu ekkí láta Þjóðverja taka Suður-Jótland mótstöðulaust Frásögn R. Vold Eftir heimsstyrjöldina var Suður-Jótland sameinað Dan- mörku, sem það hafði tilheyrt áður. Áttu Danir kost á, að fá meira land aftur en þeir fengu, en danska stjórnin vildi ekki fá aftur, nema þann landshluta, þar sem atkvæðagreiðsla sýndi greinilega að íbúamir vildu heldur vera danskir þegnar en þýzkir. íbúatala þess landshluta, sem Danir fengu aftur, er nú um 185 þús. Helzti atvinnuvegur þeirra er landbúnaður. Þjóðverjar, sem búa í Suður- Jótlandi, eru innan við 20 þús. Hafa þeir sérstaka skóla og njóta margvíslegrar hjálpar frá Þýzkalandi, einkum siðan naz- istar komust til valda. Krefjast þeir ýmsra sérréttinda, en hafa þó enn ekki borið fram kröfur um að sameina Suður-Jótland aftur Þýzkalandi, þótt vitanlegt sé, að það er hið endanlega markmið nazista. Síðan Austurríki var samein- að Þýzkalandi, hafa nazistar haft sig meira í frammi í Suð- ur-Jótlandi. í blöðum sínum kalla þeir Suður-Jótland orðið „Die Nordmark". ■— Austurríki heitir nú „Die Ostmark“. Norski blaðamaðurinn, Ragn- ar Vold, hefir um nokkurt skeið dvalið í Suður-Jótlandi til að kynna sér þessi mál. Hefir hann síðan skrifað um þau greina- flokk í „Dagbladet“. Fer hér á eftir lauslegur út- dráttur úr einni greininni: Hin mótstöðulausa innrás þýzka hersins í Austurriki get- ur ekki endurtekið sig I Suður- Jótlandi. Ef þýzkar hersveitir ætla að fara yfir landamærin munu þær mæta mótspyrnu. Danmörk er undir það búin að veita hernaðarlegt viðnám með fullkomnum varnartækjum. Hitt er annað mál, að endalok styrjaldar, þar sem svo ójafnir andstæðingar eigast við, eru fyrirfram ráðin. Flestir standa í þeirri trú, að Danmörk sé raunverulega af- vopnuð. Þetta er misskilningur, sem byggist á því, að stjórnin hefir af ýmsum ástæðum tallð heppilegast að láta sem minnst bera á vígbúnaðinum. Á fjárlögum er framlag ríkis- ins til hernaðar 60 millj. kr. á árl. Auk þess eru 22 millj. kr. aukafjárveiting, sem greiðist á 5—6 árum, og nú í vetur hefir þingið bætt 50 millj. kr. nýrri fjárveitingu við þessi framlög. En þessar tölur gefa ófull- nægjandi upplýsingar. Danmörk leggur fram miklu meira fé til landvarna. Eftirlaun her- manna og landfræðimælingaT tilheyra ekki lengur hernaðar- útgjöldum,- svo þannig hefir framlagið til vígbúnaðar raun- verulega verið hækkað. Bæjar- og sveitarfélög bera að verulegu leyti kostnaðinn við undirbún- ing loftvarnanna og byggingu hermannaskála. Þá koma ýms félög, sem leggja fram fé til loftvarna og fleiri þessháttar starfsemi. Á seinustu árum hafa Danir unnið að byggingu tíu fullkom- inna hermannaskála og varnar- virkja. Ekkert af þessum virkj- um hefir verið byggt fyrir það fé, sem áætlað er á fjárlögum tii hermála. þrjú af þeim eru í Suður-Jótlandi, öll nálægt landamærunum. Hermennirnir þar hafa lengri þjálfunartíma en annarsstaðar. Hvað Danmörk veitir saman- lagt mikið fé til hermálanna er almenningi leyndarmál. Það er meira en flesta grunar. En þessi vígbúnaður fer samt ekki fram með neinni leynd. En öll þau hergögn, sem Danir hafa keypt á undanförnum árum, eru mið- uð við varnir. Það eru loftvarn- arbyssur, varnarfallbyssur gegn skriðdrekum o. s. frv. Hinsvegar hafa þeir ekki fengið sér skrið- dreka eða önnur hernaðartæki, sem notuð eru til árásar. Dan- mörk vill þannig sýna erlend- um þjóðum, að hún vigbýst að- eins i varnarskyni. Þegar Hitler kom til valda, vildu sumir foTingjar nazista senda stormsveitir inn í Suður- Jótland og láta taka það með valdi. Það hefði verið auðvelt þá, en er ekki jafn auðvelt nú. Þjóðverjar vita að þeir eiga vlsa talsverða mótstöðu. Þess vegna beina þeir athygli sinni meira í aðrar áttir, þangað sem er meiri fengs von. Exm sem fyr Hr. Kofoed-Hansen fyrv. skóg- ræktarstjóri heldur því miður áfram að vinna neikvætt að skógræktarmálunum, þótt látið hafi hann af störfum sem skóg- ræktarstjóri ríkisins. Hin nýjasta framkvæmd hans í þessa átt er löng grein í dagblaðinu Vísir nú nýlega. Aðalefni greinarinnar er margvíslegt hnjóð um þá landa hans, próf. Weis (dáinn fyrir nokkrum árum) og C. E. Flens- borg forstjóra Heiðafélagsins danska. Bregður hr. Kofoed- Hansen þeim mjög um þekking- arskort og annað verra, og er til- efnið helzt það, sem þeir hafa ritað um íslenzka jarðrækt og skógræktarmöguleikp Ekki þarf ég að s/ara fyrir þessa menn, og þess þarf víst enginn, því það mun hr. Kofoed- Hansen ofraun með öllu að hnekkja áliti þeirra, hvort sem er hér á landi eða í Danmörku. í sömu grein vikur höf. að mér, sem sérstæðu dæmi þess hve menn geti verið heimskir, og sök mín er sú, að ég endursagði i grein í Nýja dagblaðinu í vetur ýms ummæli C. E. Flensborg um | skógræktarmöguleika hér á A ‘4 Reykjavíkurannáll h.f.: REVYAN | fow dmDir 1 ! 25. SÝNING | 4 Zf 4 í KVÖILD kl. 8 í Iðnó. | :;j Aðgöngum. seldir frá kl. 1. 4 :í Eftir kl. 3 venjulegt lelk- 4 húsverð. *; ;• Búast má við að þetta :;■: :■: verði næst síðasta sýning ■ | á revýunni. BRÆÐURNIR irá Ormarslóni endur taka hormonlkuhljóm- leika sína í Nýja Bíó 1 kvöld kl. 7. Aðgöngumiðar fást í Nýja Bló eftir kl. 1 og hjá Viðar. K A U P I Ð aSeÍMX Loftur. landi, eins og þau koma fram í grein, er hann hefir ritað um ferðalag sitt hér á landi 1936. Hin sömu ummæli voru þýdd í Frey, og þeirra einnig getið í Ríkisútvarpinu, án þess þó að þeir aðilar fengju neitt „vits- munavottorð" frá hr. Kofoed- Hansen fyrir, og má það merki- legt heita. Ég sé enga ástæðu til að svara Kofoed-Hansen öðru en því, að það er alger og ástæðulaus mis- skilningur frá hans hendi, að ég hafi í Nýja dagblaðinu eða á annan hátt ásakað hann fyrir aðgerðarleysi í skógræktarmál- inu. Það hefi ég hvergi gert, ég hefi látið störf hans afskipta- laus með öllu og nú eru það vin- samleg tilmæli mín, að hr. Ko- foed-Hansen geri skógræktar- málinu þann einn greiða að láta afskiptalaust þótt Skógræktar- félag íslands geri nokkrar til- raunir með að planta barrtrjám í birkikjörrin, sem friðuð eru. Hversu sem fer með þá tilraun hvort sem hún verður að því gagni, sem ég geri mér von um, eða ekki, þá er ekki miklu til kostað. Skógræktarfél. íslands hefir litlu á að skipa nema áhuga meðlima sinn og velvild annara. Ég trúi því ekki fyr en reynt er til hlýtar, að skógrækt- arstjórinn fyrverandi vilji vinna að þvi að eyða þeim stofni, hvað sem að á milli kann að bera um trú á land og lýð, og þýtt ýmsir velunnarar Skógræktarfélags ís- lands og skógræktarmálsins séu nokkuð annarar trúar en hann. 18. apríl 1938. Árni G. Eylands. K01AVERÐ. Frá degínum í dag verður verð á kolum hjá oss sem hér segir: 1000 kg. 500 — 250 — 200 — 150 — 100 — 50 — Kr. 54.00 — 27.00 — 13.50 — 12.00 — 9.00 — 6.00 — 3.00 Verðið er miðað við staðgreiðslu, og kolin heimkeyrð til kaupenda í Reykjavík. Reykjavik, 24. apríl 1938. H.i. Kol & Salt. S.f. Kolasalan. Kolaverzlun Guðna & Einars. Kolaverzlun Ólafs Ólafssonar. $ Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar. Garnir Kaupum saltaðar, vel verkaðar gamir og langa úr kindum, kálfum, nautum og svínum. Garnastöðin, Reykjavík, Sími 4241. HARVÖTN og ilmvötn fiíA Afengis- VERZim HÍKISIAS FRU MJÖG HENT- UGAR TÆKIFÆRISGJAFIR.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.