Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 26.04.1938, Qupperneq 4

Nýja dagblaðið - 26.04.1938, Qupperneq 4
REYKJAVÍK, 26. APRÍL 1938. NYJA DAGBLAÐIÐ ^v/.ý”, fiííiiiilái RiOvúwúv VORDRAUMUR „MAYTIME". Heimfræg og gullfalleg Metro—Godwyn—Mayer söngmynd. Aðalhlutverkin í þessari miklu mynd leika og syngja uppáhaldsleikarar allra, þau Jeanette Mac Donald og ;; Nelson Eddy. v SÍÐASTA SINN. £ W.W.VY.W.WAV.W.W.* I S Fæðuskortur (Frh. af 3. síöu.) sterlingspunda, 1—2% af öllum útgjöldum til landvarna og her- mála. Sannfæringin um það, að hungursneyð vofi ekki yfir, að minnsta kosti fyrsta styrjaldar- árið, myndi vekja þjóðinni mik- ið sjálfstraust. Auk þess gæti sá skipastóll, sem yrði að nota til hveitiflutninga, leyst önnur verkefni. Góð skipulagning um afhendingu og dreifingu vara er til einkis gagns, ef ekkert er til þess að miðla. Svör ríkisstjórn- arinnar eru á þá lund, að all- ar hennar fyrirætlanir byggist á því, að drottinvald Englands á sjónum veröi aldrei brotið á bak aftur og vörnum gegn loftárás- um verði æ komið við. Nú er verið að treysta hervald Eng- j lendinga sem bezt og það, sem allt kapp verður að leggja á, ; er að búast sem bezt til varna. ' í öðru lagi er undan því kvartað, að ríkisstjórnin gæti þess eigi nægilega að hlynna að búnaðinum, þótt England hljóti fyrst og síðast að treysta á sína eigin framleiðslu. Daily Ex- ' press, sem er harla gjarnt á víg- i orðin, hefir meðal annars sagt: | „You can’t eat bombs“. Morri- j son landbúnaðarmálaráðherra ! hefir svarað því, að ekki væri sérlega skynsamlegt að hleypa i neinni óeðlilegri blómgun í i landbúnaðinn, sem óhjákvæmi- j lega myndi leiða til hruns að | ófriðnum enduðum. í stað þess j að þenja ræktarlöndin um all- ar jarðir , gengur viðleitnin meira í þá átt að auka frjósemd og grózku þess lands, er þegar hefir verið lagt undir plóginn og herfið. Á stríðstímum, þegar fyrst og fremst verður spurt um | uppskerumagnið, sem jörðin gefur, en ekki peningagróða, er þess vænzt, að lýðum verði ljóst, að hér hefir verið rétt að farið. Úti á hafinu eiga Englending- ar voldugasta flota heimsins. Heima fyrir er nýr floti í smíð- um. Loftherinn er traustur og flest málefni þjóðarinnar í góðu lagi. Englendingar eru því al- búnir að mæta hverju, sem að j höndum ber, jafnvel betur bún- j ir en nokkru sinni fyrr. Farþegar með vögnum okkar áminnast hér með um að gæfa vel farmiða sinna og sýna pét eftirlits" mönnum félagsins Jjegar pess er krafist. Sá sem ekki getur sýnt farmiða sinn, verður að kaupa miða að nýju. Strætisvagnar Reykjavíkur h.S. Kaupum gamlan kopar hæsta verðí. Landssmíðjan. Húsgagnaáklæði aar..—■ ■ nýkomið. 6. ARGANGUR 93. BLAÐ .V.V.V." «r'• .".V.V.V .v.vv.v Nlyja ■»*«» .-.v.v.v í í l»í LIFIR AÐEIMS KIXl SIXXI Stórkostleg amerísk saka- málsmynd, gerð undir stjórn kvikmynda- meistarans Fritz Lang. Aðalhlutverkin leika Sylvia Sidney, Henry Fonda o.fl. í I í í V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V." Hljómtveit Reykjavikur Bláa kápan verður ennþá leikin annað kvöld kl. 81/2 vegna fjölda áskorana þeirra, sem urðu frá að hverfa við síðustu sýningu. Aðgöngumiðar verða seldir í Iðnó í dág frá kl. 4—7 með hærra verðinu og eftir kl. 1 á morgun með venjulegu verði. Sími 3191. C;A.ustursti\ á sími 5652.Opið kl.11-12oq5-fe/ annast kaup og sölu allsk. verffbréfa. Varnargírðing milli Gullbringu- sýslu og Kjósars. Bergur sýslumaður kvaddi saman á fund síðastl. sunnudag fulltrúa úr öll- um hreppum Gullbringusýslu og frá Hafnarfjarðarkaupstað til að ræða um varnir gegn mæðiveikinni. Á fundinum var samþykkt að setja upp varnargirðingu á milli Gull- bringu- og Kjósarsýslu og mun Gullbringusýsla og Hafnarfjarðar- kaupstaður taka sameiginlegan þátt í kostnaðinum. FESTARMEY FORSTJÓRANS 66 að hana grunar ekki, að eini kossinn, sem okkur hefir farið á milli, er þessi skyldukoss, þegar Albert frændi var í heimsókn. „Þú skalt ekki hlæja, Billy“, bætti Theo við, „þú ert nefnilega hræðilega önugur, vegna þess að þú getur ekki haft Nancy út af fyrir þig í dag, þar sem von er á fólki“. Ég hafði ekki fyrr heyrt um, að von væri á heim- sókn, því að ég fór seint á fætur í morgun. Ég hafði ekki sofið eins vel og venjulega. Fyrir utan gluggann í litla herbexginu mínu fannst mér vera svo mikill hávaði um flóðtímann. Venjulega heyrðist aðeins aðeins daufur niður, þegar öldurnar ultu upp á klapp- irnar. Og svo helti tunglið geislaflóöi sínu yfir rúmið mitt. Það hékk eins og stórt, kringlótt, rautt, kín- verskt ljósker á dökku stjörnuþöktu himinhvolfinu. Ég nennti ekki að rísa á fætur til að draga niður gula gluggatjaldið. Mig langaði til aö finna salt nætur- loftið leika um andlit mér fram og aftur milli grófra en snjóhvítra rekkjuvoðanna og athugaði ferhyrndu ljósrákina, sem læddist lengra og lengra upp á vegg- inn og hugsaði um allt milli himins og jarðar .... Um Cicely í Marconi Mansions .... Um Smithie og kærastann hennar. Þau voru ekki nein sönnun þeirrar kenningar, að fólk verði frekar ástfangið úti í sveit. Ég sá í huga mér vegamótin við bankann, stóru strætisvegnana þjóta í rykinu eins og byrjendur á skautum. Om mitt i þokunni og olíu- stybbunni, og fólksfjöldanum, er var á leið til hádegis- verðar, sá ég þessi tvö fölu borgarbúaandlit ljómandi af gleði eins og eigendurnir væru á göngu á afskekkt- ustu götum aldingarðsins Eden. Og svo datt mér í hug skólasystir mín, sem nú var fyrir löngu gift. Einu sinni sagði hún við mig: „Mo- nica, trúlofun er óeðlileg. Hún er ekki annað en að kveðja þann og bjóða þeim góða nótt, sem maður vill helzt alltaf vera með“. Árangurinn af öllu þessu varð sá, að ég sofnaði aft- ur, þegar Blodwen var búinn að berja á dyrnar hjá mér, og kom svo of seint til að borða. „Hverjir koma, Billy“, spurði ég. „Er það aftur Al- bert frændi?“ „Nei, guði sé lof — ég meina, það er ekki hann“, sagði Billy. „Það er franskt fólk, sem þú þekkir ekki. Það er á bifreið um Norður-Wales, nú sem stendur. Ég hefi haft nokkur viðskipti við hann“. „Og hún--------“, byrjaði Theo, en þagnaði óvenju- lega fljótt, af henni að gera, þegar bróðir hennar hélt áfram og veifaði með bréfi, sem hann hélt á í hend- inni. „Hann skrifaði mér, að þau væru nú í Holyhead og að þau kæmu hingað i heimsókn seinni hluta dags. Það ónýtir áætlun okkar um að mála fyrir frú Ro- berts líkneskið þarna niður frá eftir miðdegisverðinn. Við verðum þá að reyna að gera það strax fyrir há- degið. Það var gott, að ég fékk málningu hjá hjóla- smiðnum í gærkvöldi. Kemurðu með, Nancy? Ef þú ert tilbúin, þá getum við farið strax?“ „Ég held að við Blanche getum ekki komið með. Annars þökkum við gott boð“, sagði Theo snúðugt. „Það var enginn að spyrja ykkur“, sagði bróðir hennar hlæjandi og fór að leita að málningarkrúsun- um undir runna við húsið. Hann rétti mér eina krús og penslana, en hélt sjálfur á hinum tveimur. „Já, verið þið öll blessuð og sæl.“ „Komdu, Cariad. Þú mátt ekki fara með“, hrópaði Blanche, en það hafði ekki minnstu áhrif á litla hundinn, sem þaut skríkjandi af kátínu eftir hnull- ungunum niðri í fjörunni, yfir nokkra sandhóla og upp eftir grasþrepunum upp á klettinn, þar sem Ro- berts hafði sett fánastöngina og trékonuna. Hún hafði verið stafnmynd á Gwladys Pritchard, eftir því sem frú Roberts hafði sagt okkur. Skipið hafði strandað fyrir mörgum árum. „Hún hlýtur að hafa verið mjög falleg“, sagði ég. Það var í fyrsta sinn, sem ég klifraði upp á klettinn. Málningarklessur og krot höfðu ekki getað afmáð eða dulið fegurð þessarar útskornu stúlku. Djúpsett augun, sporöskjulagað andlitið, hökuskarðið og lögun hálsins, sem fór vel við axlirnar, báru þess órækust vitni. Hún var í nærskorinni treyju, hnepptri, með axla- skrauti og náðu aumarnir langt niður á handlegg. Litli, fjaðurskreytti hatturinn var hátt uppi á kollin- um. Hárið hafði síðast verið málað gult eins og þyrniblómin, sem uxu allsstaðar í kring. Treyjan hafði verið hvít með grænum bryddingum. Sami litur var á hattinum og vendinum, sem hún þrýsti að brjósti sér. Þrátt fyrir þessa sterku, grænu og hvítu liti, og þrátt fyrir frumstæða eftirlíkingu, þá var slíkt líf yfir þessari útskornu mynd. Var það vegna þess, að hún hafði eitt sinn verið hluti úr skipi? Ég gat hugsað mér mynd þessaraT grannvöxnu stúlku á framstafninum á skipi unnusta hennar, bjóðandi öldunum byrginn með brjóstum sínum. sínum. Og nú var hún hér sem fangi milli óbifandi kletta.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.