Nýja dagblaðið - 15.05.1938, Page 1
FJÖLISREYTT tRVAL
af
V-O-lí-V-Ö-R-U-M
komið.
V E S T A
Langaveg 40 — Sími 4197
fWJIA
ID/^GrlBll/’MÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, sunnudaginn 15. maí 1938. no. blað
w
ANNALL
135. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 3,18. Sólar’ag kl.
9,32. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
5,55.
Arás heíldsala á innlent iðn-
íyrírtæki
Pappírapokagerðin lækkaði verð heildsalanna
um 10°/o pegar hún tók til starfa
Veðurútlit í Reykjavík:
Hægviðri. Úrkomulaust.
Næturlæknir
er í nótt Jón G. Nikulásson, Freyju-
götu 42, sími 3003, og aðra nótt Kjart-
an Ólafsson, Lækjargötu 6B, sími 2614.
— Sunnudagslæknir í dag er Kristján
Grímsson, Hverfisgötu 39, sími 2845. —
Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni
og Reykjavíkurapóteki.
Höfnin.
Af saltfiskveiðum kom í gær togar-
inn Kári með 70 föt lifrar.
Frá Vestmannaeyjum.
Fjórir bátar stunda ennþá þorskveið-
ar í net frá Eyjum og hafa aflað frá
700—1400 á dag. Allmargir bátar eru
að dragnótaveiðum og afla mjög vel,
sumir fyrir allt að þúsund krónum á
dag. Eru annir miklar í Eyjum. Hefir
þar verið úthlutað löndum undir mikið
af nýjum matjurtagörðum, og er nú
verið að vinna að þeim.
Ferðalög skólabarna.
Ferðafélag íslands býður börnum úr
13 ára bekkjum Austurbæjarskólans í
skemmtiferð upp á Hengil. Farið verð-
ur á morgun og lagt af stað frá leik-
velli skólans kl. 8% árd.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir í kvöld í síðasta sinn og með
lækkuðu verði gamanleikinn „Skírn,
sem segir sex“.
Úrskurður gerðardómsins
í deilu skipafélaganna og Stýri-
mannafélagsins verður sennilega felld-
ur á morgun. Starfstíminn sem dóm-
num var settur í lögunum, er útrunn-
inn á þriðjudag.
Jón Loftsson
kaupmaður sýnir, í sýningarskálan-
um í Austurstræti, þessa dagana nýja
gerð húsveggja. Eru þeir hlaðnir úr
vikurplötum, sem eru steinlímdar sam-
an á þann hátt, að samskeyti stand-
ast hvergi á. Er það gert til þess að
styrkja vegginn, einangra betur og
varna því að vatn síist gegnum hann,
því að steinlímslagið er fyllilega vatns-
þétt. Húðin utan á veggnum á einnig
að vera vatnsþétt. Veggjagerð þessi
er uppfynding Jóns Loftssonar Hefir
hann undanfariö gert tilraunir með
ýmsar veggjagerðir úr vikri og reynzt
þessi bezt. Einnig sýnir Jón þarna hið
nýja sænska þéttiefni, Berol, sem er
sagt mjög merkilegt. Má þétta með
því fjölmargt, svo sem veggi, tjalddúk,
skósóla o s frv
Póstferðir á morgun:
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes til Akraness. Nova norð-
ur um til Bergen. Bílpóstur til Garðs-
auka og Víkur.
Til Rvíkur: Mosfellssveltar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
flóapóstar, Hafnarfjörður Seltjamar-
nes. Fagranes frá Akranesi. Gríms-
ness- og Biskupstungnapóstar. Lyra
frá Bergen, Færeyjum og Vestmanna-
eyjum.
Dvöl,
2. hefti, 6. árg., er nýkomið út. Flytur
það eins og venjulega nokkrar stuttar
sögur eftir ýms öndvegisskáld heims-
ins, svo sem Sherwood Anderson, Jo-
hannes V. Jensen og fleiri. Ein saga
er eftir helzta skáld Japana og er víst
fátt eða ekkert til áður á íslenzku, sem
frumsamið er á japönsku. Einnig er
þar saga eftir helzta skáld negranna
og ein eftir Hedin Brú, aðalskáldsagna-
höfund Færeyinga, sem enn er ungur
að aldri, Kvæði eru eftir Magnús Ás-
geirson (þýdd), Guðmund Böðvarsson,
Guðmund Inga o. fl. Ritgerðir og
fræðigreinareru eftir Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum, Steinþór bónda að
Hala, Guðmund Davíðsson, ritstjórann
o.fl. Ennfremur eru bókafregnir, kímni-
sögur og lausavísur eftir marga höf-
unda. Dvöl er ein og venjulega fjöl-
breytt að efni og skemmtileg.
Mussolíni lýsír enn
iylgí víð Franco
Stresabandalaglð
verdur ekki end-
urreist, segir hann
og vafasamt um
samninga við
Frakka
LONDON:
Mussolini flutti ræðu í Genua í gær,
þar sem hann ræddi um afstöðu ítölsku
stjórnarinnar í ýmsum utanríkismál-
um.
Hann byrjaði með því að víkja að
sameiningu Austurríkis og Þýzkalands,
og sagði, að Ítalía hefði ekki getað
gert neitt til þess að koma í veg fyrir
það. „Stresa-bandalagið (þ. e. banda-
lag ítala, Breta og Frakka án Þjóð-
verja) er úr sögunni", sagð.i Mussolini,
„og verður aldrei endurreist".
Þá minntist Mussolini á ensk-ítalska
sáttmálann, sem sáttmála milli tveggja
heimsvelda, sem búast mætti við að
fengju staðizt, um langan aldur.
Þegar Mussolini kom að samningaiun-
leitunum þeim, sem nú ættu sér stað
milli Frakka og ítala, tóku áheyrendur
hans fram í fyrir honum hvað eftir
annaö, og mátti á öllu heyra, að þeir
voru mjög andvígir því, að ítalir
semdu við Frakka. Enda sagði Musso-
lini, að ekki væri ennþá víst, að samn-
ingar tækjust. Frakkar og ítalir væru
á öndverðum rneið um eitt mjög mik-
ilvægt mál, þ. e. Spánarmálið, sagði
hann. „Frakkar óska eftir sigri stjórn-
arinnar í Barcelona", sagði Mussolini,
„en ítalir óska þess, að Franco sigri,
og munu ekkert láta ógert til þess, að
honum megi takast það.“ FÚ.
Haíísínn tálmar
síglíngum iyrír Horn
Hafís er enn mikill við vestanvert
Norðurland. Veðurstofunni barst í gær
skeyti frá flutningaskipinu Heklu svo-
hljóðandi: „Erum 25 sjómílur út af
Horni. Höfum reynt að komast í gegn
allt frá 66 stigi 35 mín. norðlægrar
breiddar upp undir Geirhólma. ísinn
allstaðar þéttur. Hvergi hægt að kom-
ast í gegn“.
Eimskipafélag íslands hefir Heklu á
leigu og barst því síðar í gær skeyti
þess efnis að skipinu hefði tekizt að
komast gegn um ísinn.
Áður hafði vélbáturinn Vébjörn frá
ísafirði lent í ís 45 mílur norðvestur
af Sauðanesvita og tafizt að mun. Varð
þar sem hann hafði reynt að fara gegn
um ísinn. Segist skipstjóra svo frá, að
ísinn sé mestmegnis lagís, en þó sjá-
ist borgarísjakar innan um.
Sæsíminn yfir Reykjarfjörð á Strönd-
um hefir orðið fyrir skemmdum af
hafís, og var ekki þegar síðast frétt-
ist hægt að koma við athugun á
skemmdunum fyrir ís
Frá austanverðu Norðurlandi bárust
engar fregnir um is í gær
Morgunblaðið flutti síðastlið-
inn sunnudag kvartanir mat-
vörukaupmanna undan háu um-
búðaverði síðan innlend papp-
írspokagerð tók til starfa, og
notaði þetta tilefni til óbeinna
árása á Gjaldeyris- og innflutn-
ingsnefnd.
Nýja dagblaðið hefir þess-
vegna talið rétt að afla sér upp-
lýsinga hjá forstjóra Pappírs-
pokagerðarinnar um þetta mál,
og fara hér á eftir upplýsingar
hans:
Þegar Pappírspokagerðin tók
til starfa í ágústmánuði 1936
var verðið hjá henni og heild-
verzlun Garðars Gíslasonar, er
mun hafa haft mesta sölu áður
á þessari vöru, sem hér segir:
Pókag. Garðar
7io kg. kr. 1,95 kr. 2,10
Va — — 2,30 — 2,45
y* — — 3,25 — 3,40
y2 - — 3,65 — 3,80
i — — 5,60 — 5,80
2 — — 8,65 — 8,80
3 — — 16,10 — 16,80
5 — — 21,00 — 22,00
10 — — 30,25 — 38,00
92,75 103,15
Um verðið á 10 kg. pokum
Garðars er það að athuga, að í
höndum Pappírspokagerðarinn-
ar er ekki sönnun fyrir því hvað
það var í ágústmánuði 1936, og
er hér reiknað með verði, sem
hann seldi þessa poka fyrir í
júní 1936.
Samkvæmt þessu lækkaði
Pappírspokagerðin verðlagið um
ca. 10% þegar hún tók til starfa,
frá því, sem það var á sama tíma
hér á markaðnum.
Nú er verðið hjá Pappírspoka-
gerðinni, sem hér segir, sömu
tegundum, með sömu gæðum:
/io kg. kr. 3,30
% — — 3,80
V* — — 4,80
% — — 5,50
1 — — 8,30
2 — — 13,40
3 — — 24,10
5 — — 30,90
10 — — 45,90
140,00
Hækkunin nemur því tæplega
40%.
Orsakir verðhækkunarinnar
eru fyrst og fremst hin mikla
hækkun, sem hefir orðið á pappír
á erlendum markaði.
Til þess að sanna stjórn mat-
vörukaupmannafélagsins, sem ef
til vill er ekki eins vel heima í
þessari vörugrein, eins og sum-
um öðrum, þykir ástæða til að
benda henni á þessa staðreynd.
Hinn 7. ágúst 1936 seldi firm-
að A. J. Bertelsen hér i bænum
hvítan Sulfit-umbúðapappír fyr-
ir verð sem nam 600 krónum pr.
tonn.
Þetta sama firma selur nú
samskonar pappír fyrir verð, sem
nemur 960 krónum pr. tonn.
Hækkunin á umbúðapappír
hjá þessu firma nemur því 60%,
eða 20% meira en verðhækkun-
in á umbúðapokum hjá pappírs-
pokagerðinni. Og áþekk hækkun
hefir átt sér stað hjá öðrum
heildsölum í bænum á umbúða-
pappír.
Eitt höfuðbjargráðið, sem
gripið hefir verið til, og þá ekki
(Frh. á 4. siBu.)
Leiksýníngar
Reumert-hjónanna
Poul Reumert leikari er væntanleg-
ur hingað til bæjarins annað kvöld
með Lyru. Sýningar þeirra hjóna hefj-
ast svo 20. þ. m. Þau hjónin munu
tala dönsku, sem gestir, en aðrir leik-
endur vitanlega íslenzku.
Haraldur Björnsson leikari sér um
sýningu fyrra leikritsins, sem sýnt
verður, „Það er kominn dagur“, eftir
Karl Schltiter, en Ragnar E. Kvaran
landkynnir um það síðara, „Tovaritch“
eftir franska leikritahöfundinn de Val.
Sýningar á því hefjast sennilega þann
29. þ. m.
Leikfélagið biður þess getið, að þar
sem til þess er ætlazt af þessum ágætu
gestum, að ágóða öllum, sem verður
af sýningunum, verði varið til styrktar
leikmenningu íslands í framtiðinni, þá
telur stjórn Leikfélagsins ekki rétt að
bjóða neinum sérstaklega (svo sem
fulltrúum ríkis og bæjar og öðrum,
sem félagið er 'í þakklætisskuld við) á
frumsýningar þessara leikja, svo sem
þó hefir verið venja um sýningar Leik-
félagsins. Væntir Leikfélagsstjórnin
þess, að hlutaðeigendur skilji þessa af-
stöðu hennar og séu henni sammála
um, að slík ráðstöfun sé eðlileg.
A sl. ári höfðu 13 lækn-
ar yfir 11 þús. kr. laun
frá Sjúkrasaml. R.vík-
ur, að frátöldum tekj-
um peirra fyrir vinnu
á sjúkrahúsum og
einkalækningar
Nýja dagblaðið hefir aflað
sér upplýsinga um greiðslur
Sjúkrasamlags Reykjavíkur
til lækna hér í bænum á síð-
astliðnu ári. Fá læknarnir
greitt eftir taxta, sem þeir
þvinguðu sjúkrasamlagið til
að samþykkja eftir
tryggingarlögin gengu
gildi.
1. læknir kr. 21.229,02
2. 20.913,71
3. 19.432,38
4. 18.008,95
5. 17.965,42
6. 16.413,20
7. 16.386,33
8. 13.383,77
9. 12.581,90
10. 12.037,90
11. 11.920,27
12. 11.840,77
13. 11.441,92
Auk þess fá læknarnir sérstaka
greiðslu fyrir vinnu sína á spít-
ölunum, en hún er hér ekki með-
talin. Við þetta bætast svo tekj-
ur þeirra fyrir einkalækningar.
Gefa þessar tölur bezt til
kynna, hversu óhæfilega hár
taxtinn fyrir sjúkrasamlags-
lækningar er nú og hlýtur það
að verða eitt af verkefnum hinn-
ar nýju sjúkrasamlagsstjórnar
að reyna að fá honum breytt
til bóta. Er það ekki undarlegt,
að meðan læknum hélzt uppi að
okra þannig á vinnu sinni hér
í bænum, að illa gangi að fá
lækna í sum erfiðustu læknishér-
uðin úti á landi, þar sem launin
eru margfalt lægri og oft miklir
erfiðleikar og hættur samfara
læknisstarfinu. Væri meira en
athugandi, hvort ekki ætti eitt-
hvað að bæta aðbúnað þeirra
manna, jafnframt því, sem tek-
inn yrði af mesti „kúfurinn"
hjá hinum.
Samkvæmt sérstakri ósk frú Önnu
Borg verður ekki tekið á móti neinum
pöntunum áður en sala aðgöngumiða
hefst, heldur verður öllum gefinn jafn
kostur á að ná sér í aðgöngumiða við
söluna, sem fram fer fyrir fyrra leik-
ritið — þriðjudaginn 17. þ. m. kl. 1.
e. h. í Iðnó. Fer salan fram í áhorf-
endasal hússins samtimis fyrir öll fimm
kvöldin sem leikritið verður sýnt, þ. e.
dagana 20., 22., 23., 24. og 25. maí.