Nýja dagblaðið - 18.05.1938, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 18.05.1938, Blaðsíða 1
FJÖLBREYTT ÚRVAL af V—Ö—R—V—<5-It—1J—M komið. V E S T A Laugaveg 40 — Sími 4197 ID/5V3IBILflMDIHÐ 6. ár Reykjavík, miðvikudaginn 18. maí 1938. 112. blað ANN ÁLL 138. dagur ársins. Sólaruprás kl. 3.09. Sólarlag kl. 9.41. Árdegisháflæður íp Reykjavík kl. 7.45. Ljósatími bifreiða er frá kl. 10.25 að kvöldi, til kl. 2.55 að morgni. Næturlæknir er í nótt Kristján Grímsson, Hverfis- götu 39. Sími 2849. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur Apóteki. Dagskrá útvarpsins: 10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19.20 Þing- fréttir. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Jurtakynbæturnar í Sva- löf á Skáni (Áskell Löve fil. stud.). 20.45 Hljómpl.: a) „Helgi vorsins", eft- ir Stravinsky. b) (21.20) ísl. lög. c) Lög leikin á Bíó-orgel. Póstferðir á morgun: Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar- ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjamar- nes. Fagranes til Akraness. Lyra til Vestmannaeyja, Færeyja og Bergen. Nova vestur og norður til útlanda. Dettifoss til Vestmannaeyja, Hull og Hamborgar. Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar- ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og flóapóstar, Hafnarfjörður Seltjamar- nes. Fagranes frá Akranesi. Höfnin. Af veiðum komu í fyrradag togararn- ir Max Femberton með 119 föt lifrar, Egill Skallagrímsson með 37 föt, Gyllir með 17 föt. í gær komu togararnir Gull- topur með 85 föt, Arinbjöm hersir með 40 föt, Geir með 70 föt, Skallagrímur með 85 föt, Snorri goði með 110 föt og Hannes ráðherra með 100 föt. Togar- arnir munu flestir hætta veiðum. Irma Weile Barkany söngkona, heldur söngskemmtun í kvöld kl. 7 í Gamla Bíó. Söngkonan kann afar mörg mál og hefir sungið á 7—10 tungumálum á sömu söng- skemmtuninni. Heftir söngur hennar vakið mikla athygli. Fimleikaflokkur stúlkna úr Glímufélaginu Ármanni, fer með Lyru á fimmtudaginn til Noregs. Sækir hann íþróttamót, sem haldið verður í Oslo 26.—28. þ. m. Fimleikaflokkum frá öllum Norðurlöndum var boðið að taka þátt í móti þessu, en sakir fjárskorts leit út fyrir það um tíma, að ekki yrði hægt að senda flokk héðan á mótið. Norðmenn lögðu mikla áherzlu á að fá flokk héðan og buðu að kosta dvöl hans meðan á mótinu stæði. Var þá ákveðið að senda flokk stúlkna út, og var keppt um það sl. laugardag, hvort sendur yrði stúlknaflokkur Ármanns eða K.R. Að þeirri kepni afstaðinni var afráðið að senda stúlknaflokk Ármanns. Jón Þorsteinsson íþróttakennari, sem verið hefir kennari flokksins, verður stjóm- andi flokksins og fararstjóri. Fimleika- sýning verður haidin i kvöld kl. 9 í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og rennur ágóðinn í ferðasjóð flokksins. Sýnir þar úrvalsflokkur karla og svo stúlkurnar 15, sem utan fara. Aðgöngu- miðar kosta kr. 2.00 og verða seldir við innganginn. Lauge Koch flaug í gær kring um Peary-land og eftir athugunum hans að dæma eru engar eyjar áður óþekktar á þessu svæði milli Grænlands og Spitzbergen. Var Lauge Koch 11% klst. á flugi og varð mikill fræðilegur árangur af þess- ari för hans. IF rlðrík Jónsson I kaupmaður Friðrik Jónsson andaðist hér í bæn- um í gær, 78 ára, eftir skamma legu. Hann var sonur Jóns Péturssonar há- yfirdómara, en bróðir Sturlu Jónssonar. Var mikil og kunn frændsemi með þeim bræðrum. „Gott leikhús þvðingarmeira fvrir mennin® þjóðarinnar en maður íetur imvndað sér“ Vídtal við POUL REUMERT w Urskurður gerðardómsins Slýrimenn lengn sama og cnght hlunnindi umíram það, sem skipa- eigendur höfðn boðíð „Þetta er í fjórða skiptið, sem ég kem til íslands. Tvis- var hefi ég komið áður til þess að leika hér, í þriðja sinnið til þess að gifta mig og nú loks í fjórða sinn til þess að leika,“ sagði Poul Reumert í gær, þegar tíð- indamaður blaðsins átti við- tal við hann, þar sem hann býr á hinu einkar vistlega heimili systkina konu sinn- ar. Hann kom með Lyru í gærmorgun. — Hvenær komuð þér hingað síðast? — Það var 1932, og það var að- eins af því að um ísland var að ræða, að ég kom hingað nú, því ég var, þegar ég fór, að leika að- alhlutverkið í hinu merka leik- riti Kaj Munks, „Idealist", og var það í fullum gangi. Þetta leikrit hefir verið leikið fyrir fullu húsi í allan vetur, frá því í janúar og til þessa, alltaf með hækkuðu verði. Það var því ekki Súðín komst íyrír Horn í gær Skipaútgerð ríkisins barst í gærmorg- un svohljóðandi skeyti frá skipstjóran- um á Súðinni: „Vorum að. leggjast á Hornvík. Höfum reynt í 14 klst. að komast gegn um ísinn, en árangurs- laust. Þokusúld og dimmviðri hamlar einnig. ísinn virðist mjög mikill og spöng afar þétt saman, landföst og til hafs.“ Um kl. 4 í gær barst Veðurstofunni svohljóðandi skeyti frá skipstjóra: „ís- inn laus við land og á hraðri ferð norð- vestur. Siglingaleiðin austur með er að verða íslaus.“ Súðin hélt áustur með Ströndum síðar í gær, og virtist ísinn þá vera óð- um að fjarlægjast land. íslaust var í gær orðið á flestum fjörðum á Ströndum, og engar ísfregn- ir bárust frá Norðurlandi. Virðist ísinn því horfinn annarstaðar en undan Horni. Veður var kaldara í gær á Norður- og Vesturlandi en verið hefir undanfarna daga. Var hitinn aðeins 1 stig á Horni, en 3 stig í Grímsey. ■t) POUL REUMERT sem furstinn í Tovaritch. svo auðvelt að komast frá. En okkur langaði til þess að koma til íslands, til þess að reyna að afla nokkurs fjár fyrir Þjóðleik- húsið hér, og jafnframt að vekja áhuga fyrir því, að byggingu þess verði hraðað, svo það geti sem allra fyrst orðið tilbúið til notk- unar. Það skal ég fullvissa yður um, segir Reumert, með sann- færingu í röddinni, að gott leik- hús hefir meiri þýðingu fyrir hið andlega líf og menningu þjóðar- innar, heldur en maður getur í- myndað sér. Nú skulum við hjálpast að og vinna að því að Þjóðleikhúsið verði, sem fyrst, fullgert. Skemmtanaskatturinn þarf allur að renna til Þjóðleik- hússins og við gerum það sem við getum gert. Við verðum að gefa þessari fallegu byggingu líf, svo hún geti orðið að því gagni, sem henni er ætlað að verða. — Hafið þið nýlega leikið í þessum leikritum í Kaupmanna- höfn? — Fyrra leikritið, sem við leik- um, „Það er kominn dagur“, lék- um við 1934 á Dagmarleikhúsinu fyrir fullti húsi í tvo mánuði. Það er alvarlegs efnis. Það er fyrir fólk, sem vill leggja á sig að (Framhald á 4. síðu.) Gerðardómurinn í stýrimanna deilunni felldi úrskurð sinn f gær. Var meirihlutinn, Hákon Guðmundsson, Gunnl. Briem og Þorsteinn Þorsteinsson, sammála um allan úrskurðinn, en Stefán Jóh. Stefánsson og Eggert Claes- sen, lýstu sig mótfallna sumum atriöum - hans, einkum þó sá fyrrnefndi. Aðaldeiluatriði milli aðila var, að stýrimenn kröfðust yfirvinnukaups. Skipaútgerð Ríkisins og Eimskipafélag íslands buðu fram að setja í samning það, sem verið hafði í framkvæmd á skipunum undanfarin ár, að vaktir skyldu vera þrískiptar og var tilboðið svohljóðandi: „Á skipum félagsins, sem hafa 3 stýrimenn, skulu vera þrískiptar vaktir eftir því, sem skipstjóri telur að við verði komið. Þegar lagt er að bryggjum eða farið frá bryggjum, skal eigi kalla til starfa nema tvo stýrimenn, svo framarlega sem skipstjóri telur þess ekki sérstak- lega þörf.“ Þessu neituðu stýrimenn að ganga að. Þetta aðaldeiluatriði úrskurðaði gerðardómurinn á þessa leið: „Á skipum félagsins, sem hafa 3 stýrimenn, skulu vera þrískitar vaktir, nema þegar skipstjóri telur, að nauð- syn beri til þess að víkja frá þessari reglu, vegna öryggis skipsins. Þegar lagt er að bryggjum eða frá bryggjum, skal eigi kalla tU starfa nema tvo stýrimenn, nema skipstjóri telji að brýna nauðsyn beri til þess. Nú eru tveir stýrimenn, þegar svo stendur á, kallaðir til starfs á frívakt, og skal þá, ef lagt er að bryggju, sá þeirra, sem styttra hefir verið á frívakt, fá Tékkneska stjórnín semur víð Henleín Churchill spáir Srið- samlegri lausn LONDON: í frétt frá Prag segir, að stjómin í Tékkoslóvakíu hafi ákveðið að semja við Heinlein sjálfan um kjör Súdeta í Tékkoslóvakíu og að samningaumleit- anir muni hefjast innan skamms. Winston ChurchUl sagði í ræðu, sem hann flutti i gærkvöldi í London, að lausn deilunnar milli Súdeta og tékk- nesku stjórnarinnar væri nær en hann hefði grunað og væri fjarstæða að ætla, að Súdetar myndu aðhafast nokk- uð það, er valdið gæti friðarrofum, þar sem þeir væru þannig í sveit settir, að ef tU ófriðar kæmi, mUli Þýzkalands og Tékkoslóvakiu, þá myndi hann bitna mest á þeim. — FÚ. eina krónu fyrir hverja byrjaða hálfa klukkustund, sem tekin er af frívakt hans. Þegar lagt er frá bryggju, skulu stýrimenn, sem hafa frívakt og kallaðir eru til starfa, fá sömu aukagreiðslu, sem að ofan greinir. Aukagreiðslur þessar greiðast samkvæmt skýrslu skip- stjóra." Mismunurinn á tilboði skipaeigenda og úrskurði gerðardómsins er, eins og sést á ofanrituðu, sá, að þegar lagt er að bryggju og skipstjóri kallar tU starfs báða stýrimenn, sem eru á frívakt, þá skal annar þeirra, sá sem styttri hefir haft hvíldina, fá kr. 1.00 fyrir hverja byrjaða hálfa klukkustund, sem hann starfar í frítíma sínum, og þegar lagt er frá bryggju og skipstjóri telur ekki nægilegt að hafa uppi þann stýrimann, sem er á verði, þá skiUu hinir stýri- mennirnir, ef skipstjóri kallar þá til starfa, fá sömu aukagreiðslu. En fara skal eftir skýrslu skipstjóra um þessar aukagreiðslur. Þessi ákvæði eru sér- staklega sett með tilliti til þess, að í strandferðum, þegar stutt er mUli við- komu á hafnir, er talið rétt að tryggja stýrimönnum svefntíma eftir því sem við verður komið og í þessum tUfeUum er hægt að koma við eftirliti skistjóra, að því er snertir aukagreiðslur tU stýri- manna. Aftur á móti neitaði gerðardómurinn að taka til greina hina almennu kröfu Stýrimannafélagsins um yfirvinnukaup fyrir stýrimenn. Að öðru leyti staðfestir dómurinn miðlunartiUögur sáttasemjara, sem skipaeigendur samþykktu 29. aprU sl„ en stýrimennirnir höfnuðu. Aðalatriði þeirra var að hækka mánaðarkaup 3. stýrimanna um 15 kr. á mánuði og greiða þeim stýrimönnum, sem selja farseðla, 10 kr. mánaðarlega í mistaln- ingarfé. Tílraunailug tíl Is- lands og Grænlands EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN: Yfirmaður danska loftflotans skýrir svo frá, að í sumar sé fyrirhugað að danski loftflotinn fari ýmsar merkUeg- ar æfingaflugferðir til Færeyja, íslands og Grænlands. — FÚ. Fátítt slys í London London: Hið stórkostlegasta slys, sem átt hef- ir sér stað við neðanjarðarjárnbrautir í London, vildi þar tU í gær. Hafði lest hægt á sér, og önnur, sem kom á eftir á fullri ferð, rakst á hana, og lögðust öftustu vagnar hennar saman. Sex manns biðu bana, en 29 slösuðust, sum- ir þeirra mjög hættulega. Slys á neðanjarðarjárnbrautunum í London eru mjög fátið, og eru nú liðin meira en 30 ár, síðan þau hafa valdið manntjóni. — FÚ.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.