Nýja dagblaðið - 18.05.1938, Síða 3

Nýja dagblaðið - 18.05.1938, Síða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 irtin garðræKt i tapstn&umn: Barnaskólag’ardar Eitír EDVALD B. MALMQUIST ------------------------------T VÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandl: Blaðaútgáfan h.f. Rltstjórl: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. Ritstj ómarskrif stof umar: Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Lindargötu 1D. Sími 2323. Eftir kl. 5: Sími 3948. Áskriftarverð kr. 2,00 á mánuðl. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar 3948 og 3720. Rykíd og gatnagerðín Undanfarna daga hefir um fátt verið meira rætt í bænum, en rykið á götunum. Þegar þurrk- dagar eru, komast bæjarbúar jafnan í sorgleg kynni við ófor- sjálni bæjarstjórnarinnar í gatnagerð og hreinlæti. Hér hefir verið þurrka- og stormasamt undanfama daga. Rykið hefir heldur ekki látið á sér standa. Það hefir þyrlazt eft- ir götunum í þéttum mekki og fyllt nef, munn,. augu og eyru vegfarenda og barnanna, sem verða að hafa götuna fyrir leik- völl. Gluggar hafa ekki mátt standa opnir, a. m. k. ekki á móti vindátt, því þá hafa herbergin fyllzt af ryki. Óhollustan og heilsutjónið, sem af þessu leiðir, verður ekki í tölum talið, en vax- andi sjúkrakostnaður og van- heilsa á ekki hvað sízt rætur sín- ar að rekja til ryksins. Höfuðástæðan til þessa óþrifn- aðar er frágangurinn á götum bæjarins og efnið, sem í þær er notað. Flestar hinar nýju götur eru jafn illa til þess fallnar að þola rigningar og þurrka. í rign- ingum myndast í þær stórar hol- ur, sem valda vegfarendum margvíslegra óþæginda. í þurrk- um losnar um yfirborðið og það verður að hinum hvimleiða og ó- holla rykmekki. Er enn hryggi- legra til þessa að vita, þegar jafnframt er athugað, hversu marga dýra verkfræðinga bær- inn hefir í þjónustu sinni og hversu miklu fé er árlega varið til gatnagerðar. Sérfróðir menn hafa sýnt fram á, að velgerðar malargötur með gangstéttum væru verulega ódýrari en hinar „púkkuðu" götur, sem mest tíðkast hér, og væru líka miklu ódýrari í viðhaldi. Slíkum götum væri líka hægt að halda að mestu ryklausum með því að bera á þær vegolíu einu sinni á ári. En hinir vísu verkfræðingar bæjarins hafa skotið við þessu skolleyrum, og ekki talið það vert athugunar. Þeim hefir þótt mestu skipta að fá sín ríflegu laun fyrir sem minnsta fyrir- höfn. Vegfarendurnir, börnin á götunni og útgjöld bæjarins hafa verið þeim f jarlægari umhugsun- arefni. Þetta sorglega skeytingarleysi sést t. d. glöggt á því, að ekki skuli vera til tæki til að bleyta göturnar í mestu þurrkunum og rykhríðunum. Slíkt myndi geta dregið talsvert úr þessum ófögn- uði. Að vísu mun bærinn eiga til einn vatnsbíl, en bæjarbúar hafa yfirleitt orðið hans litið varir og alls ekki nú undanfarna daga, fyrr en seinni hluta dags í gær, að bleyttar voru með honum nokkrar götur í Austurbænum. Sagt er að hann hafi undanfar- ið verið í lamasessi, sakir vönt- unar á varahlutum. Bær og ríki verja árlega millj. kr. í sjúkrakostnað og sjúkra- varnir. Allt bendir til, að þessi kostnaður gæti orðið mun lægri ef meiri þrifnaðar væri gætt á götunni og í sambandi við gatna- gerðina. Sparnaður bæjarstjórn- armeirihlutans í þeim efnum eins og ýmsum fleirum, krefst áreiðanlega síðar meiri útgjalda en hinar nauðsynlegu aðgerðir myndu kosta. Hvar enda árásírnar? Morgunblaðið birtir í gær skrá yfir verðlag á pappírspokum, sem unnt væri að kaupa frá út- löndum. Slík tilboð hafa verið hér áður á ferð, frá erlendum firmum í ýmsum þeim iðngreinum, sem hér hafa risið á fót. Eru þau í mörgum tilfellum tilraun erlendra iðnfyrirtækja til þess að freista að halda sér í söðlinum hér á markaðinum og jafnvel stundum til þess ætluð, að sliga hin innlendu iðnfyrir- tæki áður en þeim vex fiskur um hrygg. Bendir ýmislegt til þess, að umboðsmenn og þá stundum hérlendir umboðsmenn, séu með í ráðum um það, hvað lág þessi tilboð þurfi að vera, og hvenær hentugast sé að þau komi fram. Annars er það svo, bæði sakir þess, að margt er hér kostnaðar- samara en í nágrannalöndunum sem til iðjureksturs þarf, og enn- fremur af því, að öll byrjun er erfiðust, þá hefir það orðið reyndin, að íslenzkur iðnaður hefir yfirleitt orðið æði dýr. Morgunblaðið telur, að mat- vörukaupmenn myndu geta fengið pappírspoka frá útlönd- um fyrir miklu lægra verð en þeir eigi völ á frá hinu innlenda iðnfyrirtæki í þessari grein. En myndi Morgunblaðið vilja upplýsa hverskonar tilboð væri hægt að fá frá erlendum firm- um t. d. í kex, kvenskó, snyrti- vörur, hurðir, glugga og segjum t. d. hverskonar húsgögn, og þá alveg sérstaklega, ef hinum er- lendu firmum væri talin trú um að þau gætu, með því að gera nógu hagstæð verðtilboð, fengið einskonar frambúðar ábúð á is- lenzka markaðinum, þótt hann sé ekki stór. Annars kemur það dálítið ein- kennilega fyrir, að matvöru- kaupmenn bera sig upp við heildsalana út af verðlagi á pappírspokum, en aldrei hefir heyrzt nokkur kvörtun frá þeim, t. d. undan verðlaginu á kexinu, sem í pokana er látið. Getur þetta stafað af því, að þeir selja ekki pappírspokana, og telji að verðlag þeirra mæði á sér en ekki neytendunum? En hvernig stendur þá á því, að þeir kveinka sér ekkert undan varðlaginu á umbúðapappír, sem dæmi eru til að heildsalar í Rvík selji allt að 80% dýrari nú, en árið 1936? x. y. Það er orðið langt síðan að byrjað var að ræða og rita um garðrækt heima, og margt hefir verið reynt að segja og gera til þess að fá almenning til að skilja það, hve holt það er mönnum og nauðsynlegt að nota sem mest grænmeti og aðra jarðarávexti til matar. Og með sanni má segja, að garðræktin hefir tekið stór- kostlegum framförum, einkum á síðustu árum. Þó er hún enn þá meira tengd við nokkra ein- stakinga heldur en allan fjöld- ann, og eins er um notkun af- raksturs hennar. Kveður svo ramt að því, að enn fer mikill þorri þjóðarinnar á mis við þessar hollu fæðutegundir, af því bæði að menn þekkja þær ekki, að of lítið er til af þeim, og loks að þær eru of dýrar. Geta menn því ekki veitt sér þær nema þá kannske á helgum eða jafnvel aðeins á stórhátíð- um. En það er alls ekki nóg. Grænmeti og aðrir jarðarávext- ir eiga að vera á borði hvers ein- asta manns, alla daga samhliða öðrum mat. Þá er spurningin: Hvað er hægt að gera til þess að svo megi verða? Hvað getur fljót- ast hrint garðræktinni í það horf, að verða almennings eign, og um leið kennt öllum að skilja og meta hollustu garðávaxt- anna? Og þá jafnframt stuðlað að því að jafnt bæjarbúar og sveitamenn geti verðsins vegna veitt sér þessar hollu fæðuteg- undir? Vildi ég hér með nokkrum orð- um benda á eina aðferð, sem mikið er orðið notuð hér úti I nágrannalöndum okkar, til að vekja áhuga fólksins fyrir garð- ræktinni og kenna mönnum að meta hana og nota sér hana, þótt þessi fáu orð mín verði líklega ekki þess megnug að verka nokkuð verulega í þá átt, að vekja menn úr þeirri kyrr- stöðu, sem lengi hefir ríkt í þessum málum. Barnaskólagarðar. Þessi aðferð, sem ég vil hér benda á, er Barnaskólagarð- arnir. Því væri efalaust hægt að koma við heima, að minnsta kosti í kaupstöðum og þétt- byggðum sveitum, að hafa slíka skólagarða. Og að því er mér skilst, mun þegar vera eitthvað lítilsháttar byrjað á því við ein- stöku skóla, en aðallega sem trjáplöntun. En hún er til minna gagns bæði fyrir börnin sjálf og svo fyrir heimili þeirra, þótt auðvitað sé skóggræðsla og sú vinna, sem henni fylgir, lærdómsrik fyrir börnin. Þau frá með því áhuga fyrir því að rækta jurtir og að hafa snyrti- legt og fallega útlítandi í kring um sig. Það getur líka vakið hjá þeim löngun til að planta í kring um bæinn sinn og húsið, þegar þau sjá og skilja hve miklu heilnæmara og fallegra það er, að hafa þar tré og blóm, heldur en hið miður þrifalega svað, sem svo oft og víða hefir þekkst. Víða heima mun vera hægt að fá mjög ódýrt land til afnota fyrir barnaskólana. Og moldin bíður eftir samstarfi við menn- ina, samstarfi, sem meðal ann- ars fæst með vinnu barna í skólagörðum. Þar sem komið er upp skóla- garði, verður auðvitað að ganga út frá því sem sjálfsögðu, að kennari sé alltaf með börnun- um og leiðbeini þeim og hafi alla yfirumsjón með garðinum. Sé garðurinn stór og bömin mörg, er of mikið verk fyrir einn mann að kenna þeim og sjá um að allt verði vel útlítandi í garðinum. Fyrirkomnlag garðsins. Skólagarður þarf að vera rúmgóður, með breiðum gang- stígum og skipuega lagaður. Honum á að skifta i hæfilega stóra reiti handa 4 til 6 börn- um að rækta og sjá um eftir fyrirmælum kennarans. Ef reit- irnir eru hafðir stærri og fleiri börn um hvern reit, verða þau ekki eins áhugasöm við verk sitt í honum. Þegar aftur reitirnir eru minni og færri börn um hvern, myndast meira kapp á milli barnanna um að vinna sem bezt að sínum reit og láta hann vera fallegri og betur útlítandi heldur en nágrannanna. Einnig er þægilegra fyrir kennarann að leiðbeina því barni og dæma um verk þess, sem vinnur sama starfið dag eftir dag, heldur en hinu, sem vinnur sitt verkið hvern daginn. Æskilegt er að hafa leikvöll í garðinum, svo að börnin geti leikið sér þar í frístundum sín- um; og í kring um leikv'öllinn þarf að hafa gras-legubekki og stalla, þar sem börnunum og foreldrum þeirra sé frjálst að vera á sunnudögum, þegar veð- ur leyfir, svo þau geti notið þar útivistar og glaðst við náttúr- una, svo og fylgst með garðin- um sinum. — Þetta á sérstak- lega við 1 bæjunum, þar sem erfitt er að komast út úr bæjar- rykinu. Það, sem helzt ætti að rækta í Barnaskólagörðunum, er fyrst og fremst ýmsar nytjajurtir eins og t. d. grænkál, rauðkál, spínat, salat, hreðkur o. fl. Síarf kennarans. Eins og áður er getið verður kennarinn að hafa alla stjórn á garðinum og því, sem hann snertir. Hann þarf að annast um öll innkaup fyrir garðinn: viðeigandi áburð, fræ og plönt- ur, allt eftir því sem hentugast er og bezt á við jarðlagið í garð- inum. Hann þarf einnig að gæta þess að velja öll verkfæri sem léttust og liðlegust og bezt við hæfi barnanna. Loks verður hann að vinna með þeim, svo þau þreytist síður við vinnuna og fái meiri áhuga fyrir henni. Nú munu margir vilja álíta að þetta sé ekkert nauðsynja- mál og að börn fái víðast hvar að njóta náttúrunnar í ríkum mæli. Og víst má það satt vera, að í festum sveitum landsins fái börnin að njóta náttúrunnar. En hitt er annað, að þau læra mjög óvíða að vinna sig inn í samræmi við náttúruna, læra ekki að meta náttúrugæðin, og áhugi þeira á að rækta jörðina er ekki vakin og sízt svo sem skyldi. Þau læra yfirleitt ekki að þekkja algengustu blóm og grös og vita nöfn á þeim, og þvi sjaldgæfara er að þeim sé kennt nokkuð það, er verulega getur vakið hjá þeim löngun eða vilja til að hjálpa jurtum og blóm- um til að vaxa. — Hvað er það þá við Barna- skólagarðana, sem gerir þá og starfið í þeim, svo miklu meira virði heldur en þá þekkingu, sem börn nú fá yfirleitt á nátt- úrunni? Það er eins og orðtækið segir: „Snemma verður að beygja krók- inn til þess, sem verða á.“ Vanalegur barnaskólalær- dómur verður börnunum oftast nær daufur og þurr, en með starfinu í skólagarðinum kemst barnið í beint samband við jörðina, við jurtirnar, fuglana, skorkvikindin, í stuttu máli: það kemst í beint, lifandi samband við náttúruna sjálfa. Auðvitað verður barnið samhliða að fá sína bóklegu kennslu í skólan- um, einnig í þessum greinum. Með skólagarðsstarfseminni verða margföld not að bóklega náminu, það verður ekki lengur dauður bókstafur, heldur lif- andi orð og starf; með hvoru- tveggju samanlögðu verður það traustur grundvöllur fyrir barn- ið til að byggja á síðar meir. Kostir skóla- garðanna. Þetta er ein af grundvallar- hugsununum fyrir barnaskóla- garða-starfseminni. En fleira mælir með henni og mikilsvert. Eitt höfuðatriðið er að bæta með því uppeldi barnanna, svo sem skólanum er unt. Börnum fellur yfirleitt vel skólagarða- starfið. Þeim þykir varið í að vera úti undir beru lofti, að vinna og að sjá árangur af vinnu sinni. Þeim • þykir. vænt um vel hirtan garð, þar sem blómin vaxa og lífið dafnar í ró og friði. En allt þetta þarf góða um- hugsun, útsjónarsemi og um- hyggju, ef ná á góðum árangri. En svo er líka með alla aðra vinnu. Það þýðir ekkert að kasta höndum til þeirra verka, sem vel eiga að standa. Allt (Framhald á 4. síOu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.