Nýja dagblaðið - 08.06.1938, Page 1
Hafið l>ér notað
þvottaduft?
Reynið það í næsta
þvott, og þér sann-
færizt um gæðin.
iwji/v
ID/VGMBILVOHÐ
6. ár Reykjavík, miðvikudaginn 8. júní 1938. 128. blað
ANNÁLL
159. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 2,14. Sólarlag kl.
10,41. Árdegisháflæður i Reykjavík kl.
1,50.
Næturlæknir
er 1 nótt Páll Sigurðsson, Hávalla-
götu 15, sími 4959. Næturvörður er 1
Laugavegs- og Ingólfsapóteki.
Safn Einars Jónssonar
verður opið í dag, og framvegis á
miðvikud. og sunnud. kl. 1—3 e. h.,
þar til öðruvísi verður ákveðið.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
heldur fund í Eddu-húsinu kl. 6 e. h.
i dag.
Skátar,
sem ætla að hýsa erlendu skátana i
sambandi við Landsmótið, gefi sig fram
í Miklagarði í kvöld kl. 8,30,—9,30.
Skipafréttir.
Gullfoss er 1 Reykjavík, Goðafoss
fer í kvöld til Hull og Hamborgar.
Brúarfoss er í Kaupmannahöfn. Detti-
foss kom frá útlöndum í gærkvöldi.
Lagarfoss var á Haganesvík í gær. Sel-
foss er i London. — Súðin var vænt-
anleg til Vopnafjarðar kl. 6 i gær-
kvöldi.
Knattspyrnumót íslands
hófst í gær. Kepptu þá K. R. og Vík-
ingur. og Víkingur vann með einu
marki gegn engu.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádeg-
isútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veð-
urfregnir. 19,20 Hljómplötur: Orgel-
lög. 19,40 Auglýsingar. 19,50 Fréttir.
20,15 Erindi: Risaöspin kemur til ís-
lands (Áskell Löve fil. stud.). 20,40
Hljómplötur: a) Hljómsveitarþættir úr
óperunni „Rósariddarinn", eftir Rich
-ard Strauss. b) (21.15) íslenzk lög.
c) (21,40) Slavnesk lög. 22,00 Dag-
skrárlok.
Ungir Framsóknarmenn
í Vestur-Eyjafjarðarhreppi héldu
fund með sér að Sauðhúsvelli undir
Eyjafjöllum á laugardaginn fyrir hvíta-
sunnu og stofnuðu þar félag ungra
Pramsóknarmanna. í stjóm félagsins
voru kosnir: Ólafur Sveinsson, formað-
ur, Magnús Kristjánsson, ritari og Ing-
ólfur Gíslason gjaldkeri. — Á fund-
inum msettu þrír ungir Framsóknar-
menn úr Reykjavík.
Trúlofun
Nýlega hafa opinberað trúlofun slna
ungfrú Aðalheiður Vilbergsdóttir frá
Breiðdalsvík og Hjalti Gunnarsson frá
Reyðarfirði.
Fyrstu kappreið-
ar Fáks í sumar
Tvö ný met
Kappreiðarnar hófust laust eftir
kl. 3. Veður var gott, en þó ryk til all-
mikils ama. Áhorfendur voru ekki svo
margir sem ætla mætti eftir því, sem
þarna var að sjá.
Fyrst fór fram keppni i skeiði. Tóku
þátt í henni tveir flokkar, alls 7 hestar.
í fyrri flokknum var fyrstur Sindri
Þorláks Bjömssonar í Eyjarhólum. í
öðrum flokki varð fyrstur Þokki Frið-
riks Hannessonar, Kjalarnesi. í úrslit-
unum varð Þokki fyrstur á 24,8 sek.,
en Sindri annar.
í stökki, 300 metra vegalengd, tóku
þátt 3 flokkar alls 12 hestar. í fyrsta
flokkl varð fyrstur Gráni Friðjóns Sig-
urðssonar, Rvík. í öðrum flokki varð
fyrstur Léttfeti Jóhönnum Jónsdóttur,
Sogamýri. í þriðja flokki varð fyrstur
(Framhalcl á 4. síSu.)
Bréi
forsætísráðherra
Hér fer á eftir bréfið, sem
forsætisráðherrann sendi
dagblöðum bæjarins fyrir
skömmu, og rætt er um í
annari ritstjómargrein
blaðsins á 3. síðu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Reykjavík, 1. júní 1938.
Eins og yður, herra ritstjóri,
er kunnugt, hefir ísland lýst
yfir ævarandi hlutleysi. Það hef-
ir engan lofther, landher né
flota, og sem tákn hins ævar-
andi hlutleysis sins hefir það
engan gunnfána. Vörn landsins
er yfirlýst hlutleysi þess. En eins
og gefur að skilja, verður hlut-
leysið að vera meira en yfirlýs-
ingin ein. Það verður jafnframt
að koma fram í verki, orðum og
athöfnum gagnvart öðrum þjóð-
um. En á það telur ráðuneytið
hafa brostið, að þess hafi verið
gætt, að sýna hófsemi í orðum
um erlendar þjóðir og forvígis-
menn þeirra. Hefir í ýmsum slík
um ummælum gætt samskonar
stóryrða og samskonar óvar-
kárni og sumir menn telja að
sé séreinkenni á blaðamennsku
íslendinga um innanlandsmál.
Nú virðist ráðuneytinu það
auðsætt mál, að slík stóryrði,
sem oft eru viðhöfð um erlend-
ar þjóðir og þjóðhöfðingja,
gagni engum flokki og engum
málstað, en séu hinsvegar mjög
líkleg til þess að valda misskiln-
ingi, því að oft eru ummæli þessi
skilin sem óvinátta íslenzku
þjóðarinnar I garð hlutaðeig-
andi þjóðar. Ummæli þessi
snerta á engan hátt til tjóns þá,
sem þau eru viðhöfð um, en eru
hinsvegar líkleg til þess að skaða
sjálfa oss.
Ráðuneytið telur það miklu
skipta, að ísland geti sýnt hlut-
leysi sitt í hvívetna, einnig í
því, að stilla slíkum ummælum
í hóf. Blöð og einstaklingar geta
sett fram sínar skoðanir, fært
fyrir þeim rök, og barizt fyrir
þeim á frjálsmannlegan hátt án
þess að sýna ruddaskap og við-
hafa stóryrði. Ráðuneytið vill
þessvegna æskja þess af yður,
herra ritstjóri, að þér gætið þess,
að framvegis verði ekki í blaði
yðar viðhaft óviðurkvæmilegt
orðbragð um erlendar þjóðir eða
forvígismenn þeirra. En ef slíkt
hendir, mun ráðuneytið hér eftir
þótt það hafi ekki verið venja
undanfarið, láta beita viðeigandi
hegningarlagaákvæði gegn hlut-
aðeigendum. Einnig mun ráðu-
neytið, ef ekki verður hjá þvi
komizt, reyna að gera frekari
ráðstafanir í sambandi við þing-
flokkana til að koma í veg fyrir
áframhald þessa ósiðar.
Hermann Jónasson.
Si ómannadaéurinn
Hátíðaholdín íóru vel íram og
voru aðstandendum til sóma
Þetta var í fyrsta sinn,
að hér var haldinn sjó-
mannadagur. Það var þó
síður en svo að frumbýlings-
háttar gætti við hátíðahöld-
in. Allt fór fram með festu,
myndarskap og glæsileik.
Mun dagurinn skilja eftir
spor í hugum flestra, bæði
þátttakenda og áhorfenda.
Öll skip, sem hér voru í höfn,
voru fánum skreytt strax að
morgni, og einnig voru fánar
dregnir að hún á húsum í bæn-
um.
Eftir hádegið fóru þátttak-
endur i hópgöngu sjómanna að
safnast saman við Stýrimanna-
skólann. Kl. 13,20 lagði svo hóp-
gangan af staö frá Stýrimanna-
skólanum. íslenzki fáninn var
borinn fyrir fylkingunni, en síð-
an komu fánar hinna ýmsu fé-
laga innan sjómannastéttarinn-
ar. Skrúðgangan var mjög
skipuleg og tilkomumikil. Mun
þetta bezt skipulagða skrúð-
ganga, sem hér hefir sézt. Mátti
þar sjá unga, gerfilega menn,
menn framtíðarinnar, við hlið
aldraðra sjómanna með bogin
bök eftir erfiði margra ára. All-
ur svipur skrúðgöngunnar var í
senn frjálsmannlegur og þrótt-
mikill.
Haldið var frá Stýrimanna-
skólanum um miðbæinn að
Leifsstyttu á Skólavörðuholtinu,
en þar fóru aðalhátíðahöldin
fram. Hafði Leifsstyttan verið
fánum skreytt, settur þar upp
ræðupallur, komið fyrir hátölur-
SKÚLI GUÐMUNDSSON
í RÆÐUSTÓLNUM.
um, og auk þess markaður reit-
ur fyrir hvert félag innan sam-
taka sjómanna. Er skrúðgang-
an kom að Leifsstyttunni var
þar fyrir mikill fjöldi áhorfenda.
Fánaberar skipuðu sér í fylkingu
fram með styttunni, en hvert
félag tók stöðu á sínu afmark-
aða svæði. Lúðrasveit Reykja-
víkur lék nokkur lög, en síðan
steig Skúli Guðmundsson at-
vinnumálaráðherra í ræðustól-
inn. Sagði hann frá því, að á
þessari stund væri lagður blóm-
sveigur á leiði óþekkta sjómanns
ins í kirkjugarðinum í Fossvogi.
Bað hann menn síðan að minn-
ast hinna föllnu sjómanna og
FRÁ HÁTÍÐAHÖLDUNUM VIÐ LEIFSSTYTTUNA.
| votta aðstandendum þeirra
i fyllstu samúð. Varð þá einnar
| mínútu þögn og mun flestum
verða það minnisstætt augna-
blik. Karlmenn stóðu allir ber-
höfðaðir, og allur mannfjöldinn,
sem mun hafa nálgast tíu þús-
und, horfði til jarðar í lotningu
við hinar föllnu hetjur.
Að þagnarstundinni lokinni
söng söngflokkur sjómanna
„Þrútið var loft“. Því næst af-
henti Ólafur Thors, fyrir hönd
útgerðarmanna, sjómannadeg-
inum bikar til að keppa um I
björgunarsundi. Höfðu brezkir
útgerðarmenn falið útgerðar-
mönnum hér bikar þenna til
ráðstöfunar 1930.
(Framhald á 4. síðu.)
Umferðaslys
Þrjú bílslys um
hátíðína ollu
stórmeíðslum
í fyrradag laust eftir hádegið varð
10 ára drengur, Sigurður Þórðarson úr
Hafnarfirði, fyrir bifreið á móts við
Múla á Suðurlandsbraut. Móðir
drengsins var þarna á gangi með 3
böm og ætlaði að fara yfir veginn, er
hún sá bifreiðina koma til þess að
forðast rykið. Drengurinn hljóp þá
frá henni og varð fyrir bifreiðinni Var
hann þegar fluttur á Landsspítalann.
Hafði hann fengið áverka nokkurn á
hnakka og heilahristing.
Kl. 3 í fyrradag varð annað um-
ferðaslys á .gatnamótum Ingólfsstrætis
og Hverfisgötu. Bifreið kom eftir Ing-
ólfsstræti og beygði niður á Hverfis-
götuna. Lenti húnninn á aftari hurð
bifreiðarinnar á stúlku, sem var að
leggja út á götuna, og fékk hún sár
mikið á upphandlegginn, en ekki
brotnaði handleggurinn. Var stúlkan
flutt á Landsspítalann og gert þar að
sárinu, en að því loknu fór hún heim
til sín.
Þriðja umferðaslysið varð í fyrra-
kvöld k.l 9% á Þingvallaveginum und-
an Skálabrekku. Bifreið var á leið frá
Þingvöllum með farþega. Sá bifreiðar-
stjórinn stóra fólksflutningabifreið, er
hafði numið staðar hægra megin á
veginum og stóð allmargt fólk um-
hverfis hana. Segist bifreiðarstjóri hafa
gefið hljóðmerki til viðvörunar um leið
og hann ók framhjá eftir vinstri vegar-
brún. Ein kona tók sig þá út úr hópn-
um við hina bifreiðina, ætlaði að kom-
ast yfir veginn, en lenti fyrir bifreið-
inni. Bifreiðarstjóri neytti hemlanna
og beygði út af veginum, en það stoð-
aði ekki og lenti konan á hægri lukt
bifreiðarinar, Konan, Jóhanna Guð-
mundsdóttir húsfreyja að Skálabrekku,
meiddist allmikið og var flutt í sjúkra-
vagni til Reykjavíkur. Kom í ljós að
hún hafði viðbeinsbrotnað auk meiri
meiðsla.