Nýja dagblaðið - 02.07.1938, Síða 1

Nýja dagblaðið - 02.07.1938, Síða 1
SÓLSKIMÐ ER KOMIÐ. ' J Nita crem og Nita olíur veita 11 sólarljósinu inn í húðina og < t (’ hjálpar því til þess að gera húð yðar hrausta, brúna og fagra. ,, 6. ár Reykjavík, laugardaginn 2. júlí 1938. 149. blað ANN ALL 183. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 2.12. Sólarlag kl. 10.48. Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 8.35. Næturlæknir er í nótt Ólafur Þorsteinsson, Landsspítalanum, sími 1774. Nætur- vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn og Reykjavíkur Apóteki. Dagskrá útvarpsins: 10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19.20 Hljómplötur: Kórlög. 19.40 Auglýsing- ar. 19.50 Fréttir. 20.15 Upplestur: „Skógurinn og þjóðin“, eftir Gjerlöff (Guðm. Hannesson próf.). 20.45 Strok- kvartett útvarpsins. 21.05 Hljómplötur: „Galdranornin“, tónverk eftir Max von Schillings. 21.35 Dansíög. Skipafréttir. Gullfoss kom til Vestmannaeyja í nótt. Goðafoss kom til Siglufjarðar í gærmorgun. Brúarfoss er á leið til Grimsby frá Vestmannaeyjum. Detti- foss er í Hamborg. Lagarfoss í Khöfn. Selfoss fór í gærkvöldi frá Antwerpen. Súðin fór frá Búðardal í gær, áleiðis til Flateyjar. Ungbarnavernd Líknar Templarasundi 3, opin hvern þriðju- og föstudag, kl. 3—4. Ráðleggingarstöð fyrir barnshafandi konur opin hvern miðvikudag kl. 3—4. II. flokkur Knattspyrnufélagsins Fram er nú staddur á ísafirði í boði Knattspyrnu- félagsins Harðar. Eru í förinni 14 knattspyrnumenn frá II. flokki, farar- stjórinn, Þráinn Sigurðsson og þjálf- arinn, Peter Petersen. Keppa Fram- menn tvo kappleiki á ísafirði og mun fyrri leilcurinn hafa farið fram 1 gær- kvöldi. Hjónaband. í dag verða gefin saman af séra Bjarna Jónssyni, ungfrú Inga S. Gests- dóttir, sem starfað hefir hjá Nýja dagblaðinu undanfarin ár, og Jón G. S. Jónsson múrari. Heimili þeirra verð- ur á Njarðargötu 61. Hjónaband. í dag fer fram kirkjubrúðkaup á Siglufirði og verða gefin saman Nanna Þormóðs (Eyjólfssonar konsúls) og Sveinn Sigfússon útgerðarmaður á Norðfirði. Á Siglufirði var í gær ágætt veður og eru nú öll skipin farin á veiðar. í gær var þó tals- verð undiralda og vindur úti fyrir, svo ekki varð af veiðum, en sjómenn- irnir voru vongóðir um að veður myndi fara batnandi. Jarffarför frú Ástrósar Sumarliðadóttur frá Dufþaksholti í Borgarfirði, fer fram frá Vesturgötu 40 kl. 1 e. h. í dag. ÚTILEGA F. U. F. á Þíngvöllum Lagt verffur af staff aust- ur frá Prentsm. Eddu kl. 4 og kl. 8 e. h. Þátttakendur eru beffnir aff tilkynna í síma 2353 fyrir kl. 2, meff hvorri ferffinni þeir óska aff fara. Þátttakendur eru áminnt ir um aff hafa með sér teppi effa svefnpoka og búa siff aff öffru leyti vel. ________-_____—_______ Þjóðverjar greíða skuldír Austurríkís Fá í staðimi vaxta- lækkun á ýmsum láuum, sem tekin voru vegna hernað- arskuldanna. LONDON: í gær náðist samkomulag milli þýzku og brezku stjórnanna um greiðslur á skuldum Austurríkis. Bretar voru meðal þeirra þjóða, sem gengið höfðu í ábyrgð fyrir láni, er stjórnin í Austurríki hafði tekið og er vextir af láninu féllu í gjalddaga í vor, neitaði þýzka stjórnin að greiða þá. Nú hefir þýzka stjórnin lofað að endurgreiða Bretum þá fjárhæð, sem þeir greiddu vegna ábyrgðar sinnar, og ennfremur að greiða vexti af öllum skuldabréfum, sem eru í eign brezkra þegna. Þá hefir einnig náðzt samkomulag um að lækkaðir verði vextir á Dawes- Young- og Saarbrucken-lánunum og ennfremur á austurríska 7% láninu frá árinu 1930, Loks hefir náðzt sam- komulag um vöruskipti, er miðar að því, að tryggja Bretum a. m. k. sama markað í Þýzkalandi og þeir hafa nú. — FÚ. Sudetar bera fram nýjar kröfur Tékkneska stjórnin leggur fram nýjar tillögur. Þjóff- verjar reiffir út af gaman- kvæði um Hitler. LONDON: Tékkneska stjórnin tilkynnir, að hún hafi lagt fyrir fulltrúa Sudeta tillögur um nýtt tungumálafrumvarp og enn- fremur tillögur um frumvarp varðandi réttaraðstöðu hinna einstöku þjóð- flokka í landinu. Þingmenn Sudeta hafa lagt fram nýjar kröfur og halda því fram, að mál þeirra verði ekki leyst fyrr en tékkneska stjórnin hefir breytt sínu stjómmálalega viðhorfi. Þýzka stjórnin hefir lagt fram mót- mæli við stjórnina í Tékkoslóvakíu, út af kvæði, er hún telur niðrandi fyrir Hitler, og tékknesk skólabörn séu látin syngja. Ennfremur hafi tékkneskir hermenn heyrzt syngja það á göngu. Þessu hefir tékkneska utanríkisráðu- neytið svarað á þann hátt, að tékk- neskum hersveitum sé bannað að syngja á hergöngu kvæði, er séu stjórn- málalegs eðlis. — FÚ. Deilur Frakka og Tyrkja jafnaðar LONDON: Tyrkir og Fi-akkar komust í gær að samkomulagi varðandi Alexandretta- héraðið í Sýrlandi. Frakkar viður- kenna, að Tyrkir hafi þar séraðstöðu. Aðalatriði samningsins eru sem hér segir: Að undirritaður verði vmáttu- samningur milli Frakklands og Tyrk- lands, að innbyrðis öryggis héraðsins sé gætt að jöfnu af frönskum og tyrk- neskum hersveitum og að Frakkland, héraðsstjórnin í Alexandretta og Tyrk- land skuli sameiginlega semja um allar landamæradeilur, er upp kunna að koma. — FÚ. sem tryggír kírkjunni aukna íhlut un um val guðfræðíkennara við háskólann Nokkrar af ályktunum fundaríns Hinum almenna kirkju- fundi lauk um sjöleytið í gærkvöldi. Hófust fundar- störf kl. 9.30 í gærmorgun og hafði dr. Jóni Helgasyni biskupi verið boðið á fund- inn og flutti Gísli Sveinsson honum þakkir af hálfu fundarmanna, fyrir gott og farsælt starf í þágu kirkj- unnar. Síðan hófust framhaldsum- ræður um kristindóminn og œskuna. Voru afgreiddar um það mál margar merkilegar til- lögur, sem síðar verða birtar hér í blaðinu. Kl. 2 e. h. hófust umræður um dósentsmálið. Nefndin, sem fékk það til athugunar, hafði komið sér saman um að leggja til að samþykkt yrði svohljóðandi til- laga: „Kirkjufundurinn lítur svo á, að veiting embættisins við guð- fræðideild háskólans síðastlið- inn vetur, sé bein móðgun við ki'rkju landsins, og skorar á kirkjuráð, að láta undirbúa lög- gjöf, er tryggi kirkjunni svo mikið sjálfstæði, að svipað geti ekki endurtekizt.“ skemmtanir og samkomur æsku- lýðsins." „Fundurinn væntir mikils. af skáta- og íþróttastarfseminni í landinu, og skorar á presta, kennara og aðra æskulýðsleið- toga, að Ijá henni hiklaust fylgi sitt.“ Síðast á fundinum voru flutt ýms erindi um mál, varðandi kirkju og kristindóm. Til að undirbúa næsta kirkju- fund voru kosnir: Ásmundur Guðmundsson pró- fessor, Gísli Sveinsson, sýslum., sr. Friðrik J. Rafnar, sr. Sigur- geir Sigurðsson, Sigurbjörn Á. Gíslason, Ól. Björnsson kaupm. og Valdemar V. Snævarr skóla- stjóri. Jafnmargir menn voru kosnir til vara. f fundarlok flutti Ásmundur Guðmundsson stutta hugvekju og bæn. Á undan var sunginn nýr kirkjufundarsálmur, eftir sr. Böðvar Bjarnason, en á eftir „Son Guðs ertu með sanni“. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin I Forstjóri S. I. S. I í 15 ár í gær voru liðin 15 ár síðan Sigurður Kristinsson varð for- stjóri Sambands ísl. samvinnu- félaga. í dag á hann 58 ára afmæli. Meira dáður 1 mikilsverðu starfi mun nú enginn maður hér á landi en Sigurður. Hann er staddur á aðalfundi Sambandsins austur á Hallorms- stað. Esja fór frá Glasgow í gær. Með skipinu voru 67 farþegar, flest útlendingar, er fara með því til baka aftur. Þjóðverjar unnu Víkíng með 4 : 1 Tillaga þessi var samþykkt með 78 : 1 atkv. • Áður hafði verið felld, með 52 : 45 atkv. svohljóðandi dag- skrártillaga frá Knud Zimsen: „Þar sem sýnilegt er, að fund- urinn getur ekki orðið á eitt sáttur um afgreiðslu þessa máls, tekur hann fyrir næsta mál á dagskrá.“ Valdemar V. Snævarr og S. Á. Gíslason báru fram eftirfarandi tillögu, sem var samþykkt með 47 : 12 atkv.: „Kirkjufundurinn leyfir sér að skora á sr. Sigurð Einarsson að taka aftur opinberlega allar guð- leysis- og siðleysisfullyrðingar í ýmsum eldri og yngri ritgerðum sínum, — eða segja af sér do- sentsembættinu að öðrum kosti.“ Síðar á fundinum voru m. a. samþykktar eftirfarandi álykt- anir í einu hljóði: „Kirkjufundurinn skorar á presta og kennara og aðra þá, er starfa að trúar- og siðgæðismál- um, að beita sér fyrir því, af öllu megni, að hafa bætandi áhrif á Þjóðverjar kepptu I gærkvöldi við Viking og unnu með 4:1. Veður var gott og hafa Þjóðverjarn- ir ekki fengið hér eins gott leikveður áður. Vindur var litiU og ekki til telj- andi baga. Nokkrar breytingar voru gerðar á liði Víkings frá því sem ákveðið hafði verið. Björgvin Schram átti að keppa sem miðframvörður, en var ekki með í liðinu. í hans stað kom Hrólfur Bene- diktsson inn og keppti hann sem vinstri framvörður, en Brandur Brynjólfsson sem miðframvörður. Útframherji vinstra megin var ákveðinn Ingólfur Isebarn, en varð Ellert Sölvason. Voru því þrír Valsmenn og einn K.R.ingur (markvörður) með í liðinu. Fyrri hálfleikurinn byrjaði skemmti- lega. Bæði liðin náðu allgóðum upp- hlaupum. Það leyndi sér þó ekki, að Þjóðverjarnir báru mjög af i leikni frá byrjun. Sóttu þeir 1 sig veðrið eftir því sem á leið. Þegar 14 mínútur eru liðnar af fyrri hálfleik, ná Víkingar góðu upphlaupi, og verður úr „fríspark" á Þjóðverjana rétt við vítateig. Þorsteinn Ólafsson spyrnir og knötturinn liggur á netinu. Þetta var ágætt skot. Víkingar hafa nú eitt á móti engu. Þeim óx nú ásmegin um stund og náðu þeir fljótt góðu upp- hlaupi aftur. Þorsteinn er frír skammt utan við vitateig Þjóðverjanna vinstra megin og spyrnir góðu skoti, en knött- urinn rennur aðeins yfir stöngina. Of gott skot til að verða að engu. Gengur nú í þófi lengi og virðast Víkingar linast smátt og smátt en Þjóðverjarnir herða sóknina. Þegar eftir er skammt af leik, virðast Víking- arnir vera orðnir óþarflega daufir, enda tekst Þjóðverjum að skora mark, er eftir eru þrjár mínútur. Víkingarnir ná ekki upphiaupi er þeir byrja með knöttinn eítir markið. Þjóðverj- ar ná honum þegar og liggur nú mjög á Víking það sem eftir er leiks og tekst Þjóðverjum aftur að skora mark á síðustu minútu. Eftir hálfleikinn höfðu Þjóðverjar þá tvö mörk á móti einu. Siðari hálfleikur var mun harðari en sá fyrri, þegar frá byrjun. Var hann líka harður til lýta á stundum. Víking- ar virtust þó 1 fyrstu vera nýjir menn eftir hléið, voru nú fjörugir, náðu dágóðum samleik á köflum og voru fljótir. Þegar 4 mínútur eru liðnar af leik, fær Magnús knöttinn við miðju, leikur afarhratt upp með hann og gef- ur vel fyrir. Björgvin Bjarnason er fyr- ir opnu marki, en skallar knöttinn sem næst beint upp í loftið. Hróplega eyði- lagt tækifæri. Þjóðverjar gera nú mörg upphlaup, en ekki tekst þeim enn að skora mark. Víkingar gerðu og nokkur upphlaup framan af hálfleiknum. Þegar 18 mín- útur eru af leik, gera Þjóðverjar mark. Hafa þeir nú þrjú á móti einu. Nú er farið að liggja mjög á Víking og er leikur þeirra kominn í mola. Þjóðverjar fengu nú mörg góð tækifæri, en hætti mjög við að „brenna af“. Það var næstum ergilegt að sjá þá missa hraparlega marks, eftir að þeir höfðu sýnt prýðilegan samleik allt upp að (Framhald á 4. síSu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.