Nýja dagblaðið - 13.07.1938, Blaðsíða 1
| ÍVEFMÖUR ofin saman slysagöt
á allskonar fatnað. R.Steindórs Ránargötu 21. ID/^GrBBIL^IÐIHÐ 6. ár Reykjavík, miffvikudaginn 13. júlí 1938. 158. blaff
11100 ÍÉpm I tiiilMg-
nui iuin S.I.S.
Samþykktum S.LS. breytt á aðal-
fundínum
Brottflutningur
sjálfboðaliðanna
hefst í fyrsta lagí
eftír 2-3 mánuðí
ANN ÁLL
194. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 2.38. Sólarlag kl.
10.43. Árdegisháflæður í Rvík kl. 5.45.
Næturlæknir
er i nótt Ólafur Þorsteinsson, Mána-
götu 4, sími 2255. Næturvörður er í
Lyfjabúðinni Iðunni og Reykjavikur
Apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðm-fr. 19.10 Veðurfr. 19.20
Hljómplötur: Lög úr tónfilmum. 19.40
Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Út-
varpssagan („Októberdagur", eftir Sig.
Hoel). 20.45 Útvarpskórinn syngur.
21.10 Hljómplötur: a) Nýtízku tónlist.
b) Lög leikin á strengjahljóðfæri.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes.
Þrastalundur. Ljósafoss. Laugarvatn.
Þingvellir. Þykkvabæjapóstur. Fagra-
nes til Akraness. Laxfoss til Akraness
og Borgarness. Norðanpóstur. Gullfoss
til Vestmannaeyja og útlanda. Lyra til
Vestmannaeyja, Thorshavn og útlanda.
Til Rvíkur: Mosfellssv.-, Kjalamess-,
Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes.
Þrastalundur. Ljósafoss. Laugarvatn.
Þingvellir. Laxfoss frá Akranesi og
Borgarnesi. Breiðafjarðar-, Dala-,
Norðan-, Barðastrandar- og Austan-
póstar. Fagranes frá Akranesi.
Skipafréttir.
Gullfoss er í Reykjavík. Goðafoss fór
frá Leith í fyrrinótt áleiðis til Ham-
borgar. Brúarfoss fór frá Leith í gær,
áleiðis til Vestmannaeyja. Dettifoss fer
vestur og norður í kvöld. Lagarfoss
var á Vopnafirði , gærmorgun. Selfoss
er í Reykjavík.
Á bæjarráðsfundi
sl. föstudag var samþykkt að mæla
með því að bifreiðastæði yrði gert á
svonefndu Bernhöftstúni og Gimlitúni
við Lækjargötu enda samþykki bæjar-
ráð frágang á staðnum, sérstaklega
innkeyrslu frá Lækjargötu og girðingu
um svæðið. Bæjarráð ákvað þó að leyfa
engar byggingar á þessu svæði.
Bifreiðin R 620
ók í fyrrinótt út af veginum hjá
Hólmsá. Slys varð ekki af, en bifreið-
in skemmdist allmikið. Mál þetta er í
rannsókn, en margt er talið benda til
að þetta hafi stafað af ógætilegum
akstri annars bifreiðarstjóra. Mun bif-
reið hafa ekið fram fyrir þá, er út af
ók, en sú þriðja komið eftir veginum úr
gagnstæðri átt.
Sveinn Sæmundsson
var í gær af dómsmálaráðuneytinu
skipaður yfirlögregluþjónn við rann-
sóknarlögregluna. Sveinn Sæmundsson
hefir unnið við lögregluna síðan árið
1930 og hefir hann tíðast haft rann-
sóknir afbrotamála til meðferðar. Hefir
hanrf getið sér ágætan orðstír í starfi
sínu.
Þjóðhátíð Frakka.
í tilefni af þjóðhátíð Frakka, tekur
franski ræðismaðurinn á móti gestum
14. júlí kl. 4—6 síödegis.
Esperantó-félagið í Reykjavík
boðar til fundar miðvikudaginn 13.
júlí, kl. 9 e. h. á Hótel Skjaldbreið.
Búlgarski rithöfundurinn, Ivan Kres-
tanoff, flytur þar kveðjuerindi og síðan
verður tekin ljósmynd af fundarmönn-
um. Ivan Krestanoff fer af landi burt
með Selfossi næstu daga, eftir rúmra
sjö mánaða dvöl hér á landi, og óskar
að geta kvatt sem flesta íslenzka esp-
erantista, bæði eldri og yngri á fundin-
um. Gerið því svo vel að sækja fund-
inn.
Glímufélagið Ármann
gengst fyrir dansleik í Iðnó í kvöld,
fyrir þátttakendur í allsherjarmótinu,
starfsmenn við það og aðra íþrótta-
menn. Dansleikurinn hefst kl. 10 og
verða aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn frá kl. 8 í kvöld.
Tillögisr hlutleysis-
nefudarinnar birtar
LONDON:
Brezku tillögurnar um brottflutning
erlendra sjálfboðaliöa frá Spáni, liafa
verið samþykktar af hlutleysisnefnd-
inni og birtar.
Ef það kemur í ijós við talningu
sjálfboðaliða, að þeir séu fleiri í liði
annars aðila en hins, á að flytja brott
1000 menn á dag úr liði þess, sem telur
færri sjálfboðaliða, en hlutfallslega
fleiri úr liöi hins. Ef báðir aðilar reyn-
ast hafa jafna tölu sjálfboðaliða frá
öðrum löndum í þjónustu sinni, þá á
að flytja burtu 1000 menn úr liði hvors
um sig á degi hverjum. Herréttindi
verða veitt báðum stríðsaðilum, þegar
fluttir hafa verið burtu 10.000 sjálf-
boðaliðar úr liði þess, er hefir færri
erlenda sjálfboðaliða í þjónustu sinni.
Þá eru nánari ákvæði um flutning
sjálfboöaliðanna heim til hinna ýmsu
landa.
Gert er ráð fyrir, að gæzlustarfið
verði hafið á ný, og að eftirlit við
landamæri Spánar annarsvegar, og
Frakklands og Portugals hinsvegar,
verði stundað með flugvélum.
Brottflutningur erlendra sjálfboða-
liða á að hefjast ekki síðar en 46 dög-
um eftir að þessar tillögur hafa verið
endanlega samþykktar, og síðustu
sjálfboðaliðarnir eiga að vera komnir á
brott ekki síðar en 100 dögum eftir
samþykkt tillaganna. Þó er veitt 35
daga undanþága sjúkum og srerðum
og stríðsföngum.
Vegna þess, hve ráðstafanir þessar
eru margbrotnar, er ekki búizt við
fullnaöarsvari við tillögunum, frá
stjórninni í Barcelona og stjórn Fran-
cos fyrr en að mánuði liðnum, í fyrsta
lagi, — FÚ.
Mussolini á bak
við óeirðimar í
Paleslínu?
Æsingarnar og róst-
urnar halda áfram.
LONDON:
Þess sjást enn engin merki, að á-
standið í Palestinu fari batnandi.
Margir menn voru drepnir í óeirðum
í gær, aðallega í norðurhluta landsins.
Þrír Gyðingar voru drepnir í Haifa.
Sprengjum var varpað á götum úti í
Haifa og eru miklar æsingar í borginni.
Sjálfboðaliðar af brezka herskipinu
Repulse, hafa verið á götum borgar-
innar, lögreglunni til aðstoðar. í Je-
rúsalem hafa einnig verið miklar ó-
eirðir. Gamall Arabahöfðingi var drep-
inn þar í gamla borgarhlutanum.
Brezk herdeild frá Egyptalandi kom til
Palestínu í gær. Önnur brezk herdeild
(Framhald á 4. siðu.)
Aðalfundi S. í. S. að Hall-
ormsstað lauk sl. miðviku-
dag. Á fimmtudag var farið
í skemmtiferð að Valþjófs-
stað og Eiðum. Á Valþjófs-
stað var snæddur miðdegis-
verður í boði Kaupfélags
Héraðsbúa. Á Eiðum veitti
sama fél. kaffi. Undir borð-
um voru margar ræður
fluttar og tókst skemmti-
förin hið bezta.
Á aðalfundi S. í. S. mættu alls
59 fulltrúar, auk sambands-
stjórnar, framkvæmdastjórnar,
endurskoðenda o. fl., og var þetta
fjölmennasti' aðalfundur, sem
Sambandið hefir háð. Á fundin-
um voru 4 ný félög tekin í Sam-
bandið. Voru það Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis,
Kaupfélag Rauðasands á Hval-
skeri, Pöntunarfélag verka-
manna á Fatreksfirði og Kaup-
félagið Fram á Norðfirði. í Sam-
bandinu eru nú 46 félög, með
samtals um 14000 félagsmenn.
Hagur Sambandsfélaganna hefir
yfirleitt farið batnandi á árinu.
Aðalmál fundarins voru nýjar
samþykktir fyrir S. í. S., fyrir-
mynd að nýjum samþykktum
fyrir Sambandsfélögin og stofn-
un lífeyrissjóðs fyrir starfsfólk
S. í. S.
Samþykktum S. í. S. var breytt
samkvæmt nýju samvinnulög-
unum. Um kosningu fulltrúa á
aðalfund Sambandsins gilda nú
þessar reglur: Hvert félag á rétt
til að senda einn fulltrúa. Auk
þess má félag senda einn full-
trúa fyrir hverja 400 félagsmenn.
Fyrir hvern fulltrúa, að undan-
skildum fyrsta fulltr., verða við-
skipti félaga við S.Í.S. að nema
meðalviðskiptum Sambandsfél.
fyrir hverja 200 félagsmenn. —
Þessi takmörkun kemur þó ekki
að fullu til framkvæmda fyrr
en eftir fjögur ár.
Ábyrgð Sambandsfélaganna er
nú sem hér segir: Hvert félag ber
ábyrgð á skuldbindingum S. í. S.
með 200 kr. fyrir hvern félags-
mann. Félög, sem hafa takmark-
aða fulltrúatölu á aðalfundi,
(Framhald á 4. siðu.)
Flóabúið
kaupír eignír
Olíusbúsíns
Búnaðarbankinn hefir selt
Mjólkurbúi Flóamanna eignir
Mjólkurbús Ölvesinga, er bank-
anum voru iagðar út á nauðung-
aruppboði sl. laugardag.
Kaupir Flóabúið eignirnar
fyrir 132 þús. kr.
Það mun enn ekki fullkomlega
ákveðið, hvernig rekstri þeim,
sem Ölfusbúið hafði, verður
komið fyrir í framtíðinni.
I. R. íær stór-
frægan skíða-
kennara
í vetur
Í.R.-ingar ákváðu í kærkvöldi
að fá hingað í vetur hinn fræga
skíðakennara, Toni Seelos frá
Tyrol. Er hann talinn meðal allra
fremstu skíðakennara, sem nú
eru uppi. Mun Toni Seelos dvelja
hér í þrjá mánuði og stunda
skíðakennslu að Kolviðarhóli.
Það er ætlan Í.R.-inga, að sem
allra flestir geti notið tilsagnar
þessa ágæta kennara, og verður
kennsla hans því alls ekki bund-
in við félaga í í. R.
Flugkennslan á
Sandskeíðínu
Ráðherrarnir og
rektor Mennta-
skólans í lieim-
sókn þar.
í gærdag var ráðherrunum og
rektor Menntaskólans boðið upp
á Sandskeið til þess að sýna þeim
tæki flugkennaranna þýzku, æf-
ingar svifflugnemenda, flugskýl-
ið og aðra aðstöðu við flug-
kennsluna. Jafnframt var þeim
gerður kostur á að fljúga.
Hermann Jóniasson fór fyrstur með
flugkennaranum Ludwig í tveggja
manna svifflugu, sem vélflugan dró
upp í allmikla hæð, með þeim hætti,
að vírstrengur var festur á milli vél-
flugunnar og svifflugunnar. Þegar
komið var upp í hæfilega hæð, sleppti
svifflugan vírnum, en vélflugan flaug
síðan með hann í eftirdragi og sleppti
þá fyrst, þegar komið var yfir flugvöll-
inn. Sveif svifflugan, undir stjóm Lud-
wigs, með forsætisráðherra í 24 mínút-
ur víðsvegar umhverfis Sandskeiðið,
ýmist í beinum línum eða stærri eða
minni svigum. Bar talsvert á uppbyr og
hækkaði svifið talsvert öðru hvoru,
yfir þá hæð, sem verið var í, þegar
dráttartauginni var sleppt. Komst svif-
flugan hæst í 780 m. hæð.
(Framhald á 4. síðu.)
ALLSH ERJARMÓT Í.S.Í.
Þrjií ný met sett
í gœrhvöldi,
Úrslit á allsherjarmótinu í gærkvöldi
urðu þessi:
200 m. hlaup.
1. Sveinn Ingvarsson, K.R., 22.8 sek.,
og er það nýtt met. 2. Baldur Möller,
Á., 23.4 sek. 3. Haukur Claessen, K.R.,
24.3 sek. Gamla metið átti Sveinn Ing-
varsson og var það 23.3 sek.
Hástökk.
1. Guðjón Sigurjónsson, F.H., 1.60 m.
2. Kristján Vattnes, K.R., 1.55 m. og 3.
Sigurður Norðdahl, Á., 1.55 m. ísl. met
á Sigurður Sigurðsson, 1.82.5 m., sett á
þessu ári.
800 m. hlaup.
1. og 2. Einar S. Guðmundsson, K.R.
og Gunnar Sigurðsson, Í.R., á 2.7.5 mín.
3. og 4. Ólafur Símonarson, Á., og Sig-
urgeir Ársælsson, Á., á 2.7.6 mín. ísl.
met er 2.2.2 mín., sett af Geir Gígja,
1928.
Stangarstökk.
1. Karl Vilmundarson, Á., 3.45 m., og
er það nýtt met. Gamla metið átti
hann sjálfur, en það var 3.40 m. 2.
Bruni
Slökkviliðið var í gær, laust fyrir há-
degið, kvatt að Tjarnargötu 5. Hafði
kviknaö þar í kvistherbergi. Slökkvi-
liðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins,
en kvistherbergið brann þó mjög inn-
an og eyðilagðist allt þar inni. Innan-
stokksmunir í herberginu voru óvá-
tryggðir.
Málið er ekki fullrannsakað, en í
herberginu munu tveir menn hafa
setið að drykkju í fyrrinótt og farið út
um kl. 7 í gærmorgun. Mestar líkur eru
taldar til að íkviknunin hafi stafað frá
ógætilegri meðferð þessarra manna
með eld, sakir ölvunar.
Hallsteinn Hinriksson, F.H., 3.30 m. 3.
Ólafur Erlendsson, K.V., 3.20 m.
10000 m. hlaup.
1. Magnús Guðbjörnsson, K.R., 37.08
mín. 2. Jón H. Jónsson, K.R., 37.53.3
mín. 3. Þorkell Þorkelsson, Á., 38.19.4
m. ísl. met er 34. 6.1 mín., sett af Karli
Sigurhanssyni 1932.
Kringlukast.
1. Ólafur Guðmundsson, Í.R., 41.34.5