Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Loftbelgjaverksmiðja í Legi- onowo í Póllandi vinnur nú að smíði stœrsta loftbelgs í heimi. Loftbelgurinn er smíðaður sam- kvœmt fyrirsögn prófessors Pic- cards. Rúmmál loftsbelgsins verður 120 þús. kubikmetrar, en 60 m. verður hann í þvermál. Kvikmyndatökutœki loftbelgs- ins og ýmis annar útbúnaður verður sjálfvirkur. Karfan verð- ur kúlumynduð og af annari gerð en áður hefir þekkzt. Gert er ráð fyrir, að loftbelgn- um verði sleppt í dalverpi einu í grennd við Krakau, kl. 6—7 að morgni. Þegar líður á daginn á hann að vera kominn í 30 þús. metra hœð, ef allt gengur að óskum ,og er það hœr\ra en nokkru sinni hefir áður verið komizt. í körfunni er gert ráð fyrir að verði tveir foringjar í pólska hernum, kapteinarnir Burzynski og Hlynek. Með smiði þesa loftsbelgs er ekki fyrst og fremst hugsað um að setja nýtt hœðarmet, heldur ítarlegri rannsókn á háloftun- um en áður hefir tekizt að fram- kvæma. Hátíðahöld mikil stóðu yfir í smábœ einum i írlandi. Það var erfitt að fá gistingu og varö Pat að gera sér að góðu að vera her- bergisnautur blökkumanns. Kunningjum Pat, fannst fara betur á því, að þeir herbergis- félagarnir hefðu sama lit, og smurðu því andlit hans með skó- svertu, þegar hann var sofnaður. Um morguninn var Pat vak- inn á þeim tíma, sem hann hafði tiltekið. Þegar hann leit í speg- ilinn yfir þvottaskálinni, varð honum að orði: „Ja, hvert í logandi! Hefir hún þá ekki vakið svertingjann í staðinn fyrir mig!“ * Fyrir ekki löngu siðan kom út bók eftir Winston Churchill, sem hann nefndi Great Contem- poraies. Þar segir hann m. a. svo um Bernard Shaw: „Hið andlega heimili Shaw er Rússland, föðurlands hans er írland, en hann dvelur í hinu viðkunnanlega Englandi. Hinar losaralegu skoðanir hans um líf- ir og þjóðfélagið hafa gersam- lega verið bannfœrðar í einka- lífi hans. Enginn maður hefir mótmœlt kenningum hans eins króftuglega og hann hefir sjálf- ur gert með líferni sínu. Hann hœðir hjónabandið, og stundum jafnvel sjálfa ástina. Ég þekki engan, sem lifir í hamingjusam- ana hjónabandi en hann. Fáir breyta fullkomlega eftir orðum sinum. Enginn er fjœr því að gera það en Bernard Shaw. * Frúin: „Gefðu mér tíkall, góði, ég œtla á snyrtistofu.“ Eiginmaðurinn: „Gerðu svo vel. Hérna fœrðu hundraðkall.“ TIL ATHUGUNAR: Bezti grundvöllur hjónabands- ins er gagnkvæmur misskiln- ingur. Oscar Wilde. LÆKKAÐ VERÐ Samband ísl. samvínnuf élaga Sími 108 0. wfctfcifcimfcwwfciwfcifcWfcWfcwmfctfcimmfcWfcUMfcWfcMHfcM* Lögtak. Eftir kröfu Sjúkrasamlags Reykjavíkur og að undangengnum úrskurði, uppkveðnum í dag, og með tilvísan til 88. gr. laga um alþýðutryggingar, nr. 74, 31. des. 1937, sbr. 86. gr. og 42. gr. sömu laga, sbr. lög. nr. 29, 16. des. 1885, verður án frekari fyrirvara lögtak látið fram fara fyrir öllum ógreiddum iðgjöldum til Sjúkrasamlags- ins, þeim er féllu í gjalddaga 1. maí og 1. júní þ. á., að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi greidd innan þess tíma. Lögmaðurinn í Reykjavík, 6. júlí 1938. Býörn I»órðarson. Reykjavík - Akureyrí Næsta Israðferð um Akranes til Ak- ureyrar er á mánudag Bifreiðastöð Steindórs. Sími 1580. Fataefni í úrvali Fataefni tekin til saumaskapar. K LÆMVEBZLim’V GUÐM. B. VIKAR, Laugaveg 17. — Síini 3245. Það er verið að undirbúa stríð með sýklum. Japanir og Þjóð- verjar vinna við þenna undir- búning, og ýmsar aðrar þjóðir eru að minnsta kosti komnar eins langt og þeir. Því er haldið fram, að allt sé leyfilegt til þess að vinna stríð, en hvað þetta allt er, eru þeir ekki reiðubúnir að segja hverjum sem er. Þýzki prófessorinn B a u s e hefir sett þær skoðanir fram í bók sinni um varnarvísindin, að líffræðin muni smátt og smátt verða jafn sjálfsögð og efnafræðin, þegar gera eigi út um næsta ófrið. Og prófessor- inn heldur áfram: „Það kem- ur einnig til greina, að koma taugaveikisgerlum í drykkjar- vatn, og smita á annan hátt með taugaveiki, svo sem með flóm og að láta rottur bera ýmsa pestargerla. Flugvélar munu verða að mestu gagni í þessu tilfelli, þar sem þær geta lent inni í landi og dreift þar út smitberum/ Þýzki herforinginn von Tem- pelhof, hefir gengið frá fræði- r Ófriðarhættan er nú það mál, sem einna mest er rætt í heimsblöðunum. Menn eru yfirleitt á einu máli um að næsta heimsstyrjöld verði stórum ægilegri en sú síðasta. Það fara m. a. fram rannsóknir á því, hvert gagn megi verða að því í ófriði, að útbreiða hættulegar drepsóttir meðal annarra þjóða. í eftirfarandi grein er rætt um þessa nýju tegund vopna. legu kerfi fyrir hernað, þar sem sýklar séu notaðir sem vopn. Það hafa verið gerðar mjög margar og víðtækar tilraunir í rannsókn ardeild þeirri innan herstjórnar- innar er hann stjórnar. Þar hefir verið reynt að finna upp meðal til að geta stráð eyðileggingu yfir heiminn. Þetta er ný hern- aðaraðferð, nýtt hernaðartæki, sem þarf að hagnýta og læra að beita. Þetta nýja tæki á aö geta orðið eins þýðingarmikið eins og skriðdrekar, flugvélar og eiturgas, og í næsta stríði fær þetta tæki það stórbrotna hlut- verk að framkvæma hið vís- indalega hópmorð meðal frið- samra borgara. Þetta vopn er pestin. í þýzka tímaritinu „Deutche Wehr“ hefir einn sérfræðingur skipt í þrjá liði þeim athugun- um, sem unnið er að í sambandi við sýklastríðið: 1) Það verður að athuga hvaða sýklar séu bezt til þess fallnir að verða notaðir í hernaði. 2) Finna þarf flj ótvirkustu aðferð til þess að útbreiða þessa sýklabera. 3) Rannsaka þarf þau, sem fjölda- smitun og landfarssóttir byggj- ast á. Þessi sérfræðingur fullyrðir að kólera, bólusótt og barna- veiki séu ekki heppilegar til útbreiðslu í næsta stríöi, þar sem sýklarnir séu ekki nægilega lif- seigir. Pestargerlarnir eru sérstak- lega vel til þessa fallnir. Pestin j hefir einnig áhrif á sálarlíf ! manna, leiðir af sér hræðlsu, of- r. boð o. fl. Pestina er vitanlega að- eins hægt að nota gegn frið- sömum borgurum óvinaþjóðar- innar eða þjóðanna. Það væri langt of hættulegt að sýkja hermenn andstæðinganna, þar sem þeir geta auðveldlega kom- izt í samband við manns eigin hermenn. Meira verður ekki að sinni sagt um þetta atriði, enda geta lesendur hugsað sér fram- kvæmd þessarar hemaðarað- ferðar. Það er og önnur hætta í þessu sambandi, sem rétt er að taka tillit til. í fyrrahaust var all- mikið skrifað um gin- og klaufaveiki í Þýzkalandi. En þangað átti hún að hafa borizt yfir Frakkland, um Spán, frá Afríku, þaðan sem Franco fékk Márahersveitir sínar. Eftir því sem þýzk blöð skrifuðu á þessum tíma, þá gerði veikin allmikinn usla. Franskur blaðamaður, sem vann í Þýzkalandi, hafði komizt á snoðir um þetta hjá þýzkum embættismanni. En þegar hann sendi blaði sínu í París fregn um þetta, þá var honum vísað úr landi. Það tókst samt sem áður að hefta útbreiðslu sjúk- dómsins og hefir hann gert mun minna tjón en á horfðist. En hvernig íer um Evrópu, ef sýklum verður dreift út á skipu- (Framhald á 4. síðu.J

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.