Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 15. JÚLÍ 1938. 6. ÁRGANGUR — 160. BLAÐ GAMLA B I Ó Bardaginn um gullnámuna Afar spennandi mynd, eftir Zane Grey. Aðalhlutverk leika: Buster Crabbe, Nlonte Blue, Baymond Hatton. Aukamynd: Skipper Skræk slegiim ííl! «m:mmn«mnn»:nnnnnnnnn:nmi Verða sýklar notaðir sem vopn? (Framhald af 2. síðu.) lagðan hátt? Hvernig fer með kvikfénaðinn, ef farið verður að útbreiða landfarsóttir með vís- idnalegum aðferðum? Landamæravarnirnar, sem mjög vel er gætt á friðartímum, verða þá þýðingarlausar. Þegar stríðsæðið geisar yfir landið, þá verða allar varnir að engu, bæði fyrir menn og skepnur. Ný heimsstyrjöld þýðir ekki aðeins strið á landi og sjó og í lofti. Útbreiðsla drepsótta, sem verið er að undirbúa, mun geta gereytt hinn menntaða heim. Bann gegn beitingu „ómann- úðlegra“ aðferða i hernaði, er aðeins hlálegt orðagjálfur. Við þurfum ekki annað en að líta á Spán, Abessiníu og Kína. Þessvegna verðum við að heyja stríð gegn stríðinu! Borgfirzklr uiigmeunafélagar (Framhald af 1. síðu.) sínum mætavel. Að vísu sáust þarna nokkrir menn undir á- hrifum víns, en þeir voru jafnan fjarlægðir á friðsamlegan hátt og urðu því ekki til neinna vand- ræða, enda voru þeir ekki há- vaðamiklir. Ryskingar, hávaði eða önnur læti ölöðra manna voru engin. Óhætt er að fullyröa að þessari stefnu verður haldið áfram þar til fullum sigri er náð, enda mælist þetta vel fyrir. Vegna mikillar umferðar um vegina þennan dag, voru 2 lög- regluþjónar settir á veginn hjá Ferjukoti, er athuguðu ástand allra bifreiða (og bifreiðastjóra) og sáu yfirhöfuð um, að allur akstur færi fram eftir ströng- ustu reglum. _ Mótið var því ungmennafélög- um í Borgarfirði til hins mesta sóma og ættu aðrir ungmenna- félagar að fylgja fordæmi þeirra. Sókn uppreistarmanna LONDON: Uppreistarmenn á Spáni segjast halda áfram sókn sinni á Teruelvíg- stöðvunum og hafa tekið þar eitt þorp. Viðurkennir stjórnin í Barcelona að þetta sé rétt. Uppreistarmenn tilkynna ennfremur, aö þeir hafi skotið niður 18 flugvélar fyrir stjórnarhernum seinustu daga. — FÚ. NYJA DAGBLAÐIÐ Fy rirli ggjandi í miklu úrvali * káputau, dragtaefni og karlmannafataefni. Verhsnúöjuútsalan GEFJIJN — IÐIJM Aðalstrœti. Kaktuspottar, 30 tegundir Barnaleikföng, mörg liundruö tegundir. Nælur. Armbönd. Hálsbönd. Töskur og ýmiskonar smá- vörur í miklu úrvali. K. EIIVABSSOA & BJÖRNSSON. nnminnmmnnnnmnnnnnnnmnnnmnmnnnnnnnmnnnnnnnnnnnnnnn' THE WORLD#S GOOD NEWS will come to your home every day through THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR An International Daily Newspaper It records for you the world’s clean, constructlve doings. The Monltor does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them, but deals correctively with them Features for busy men and all the famiiy, including the Weekly Magazine Section. The Christian Science Publishing Society One, Norway Street, Boston. Massachusetts Please enter my subscripMon to The Christian Science Monitor for a period of 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 Wednesday issue, tncluding Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25o Name . Sample Copv on Request ummnmmmmmmmmmmmmmnmmmnmnnnmmnmnnnnnnmmmnn Frá flugæSíögunum (Framhald af 1. síðu.) vél, sem er tengiliður milli renni- flugu og svifflugu, ellegar venju- legri svifflugu. Er æfingarstaður valinn þannig, að uppstreymi sé fyrir hendi. Vélin er hafin til flugs ýmist með vírstreng af jafnsléttu, eða teygjum fram af hæð. Hlutverk nemandans er nú að halda flugunni í uppstreym- inu í minnst 5 mínútur, án þess að lækka, eftir að frjálst svif er hafið, og lenda síðan heilu og höldnu á tilsettum stað. Til þess að ná C-prófi þarf nemandinn að hafa náð tölu- verðri leikni, öðlazt þekkingu á eðli loftstrauma, og hefir þetta oft orðið allspennandi viðureign, vegna þess að í loftinu skiptist á uppstreymi og niðurstreymi og uppstreymið oft tiltölulega á takmörkuðu svæði. Meira C-próf. Það er fólgið í 5 flugum, hverju um sig minnst 5 mín., en þó öll til samans ekki minna en ein klukkustund. Silfur-C er fólgið í því, að svif- flugmaðurinn heldur sér á lofti í minnst 5 klst. Ennfremur nái í öðru flugi minnst 1000 m. hæð, eftir að frjálst svif er hafið. í þriðja lagi að hann í enn einu flugi leggi að baki minnst 50 km. vegalengd í beina línu. Svifflugmenn með Silfur-C- prófi munu enn talsvert innan við þúsund, og mestur hluti þeirra er í Þýzkalandi, föður- landi svifflugsins. Fluydayurinn. Á sunnudaginn fer fram á Sandskeiðinu fyrsta fullkomna og fjölbreytta flugsýningin hér á landi. Verður það stór dagur og eft- irmennilegur fyrir alla viðstadda sakir þess, að nú eru hér fyrir hendi hip fullkomnustu tæki, sérstaklega á sviði hinnar undra verðu svifflugtækni, og enn- fremux hreyfiflugur, og þá jafn- framt frægir flugmenn til þess að stjórna þessum tækjum. Fer þarna fram sýning á leikni okkar yngstu nemenda og allt upp í hið ótrúlegasta listflug, bæði á hreyfilflugvélum og svif- flugum. Mega engir, sem vettlingi geta valdið, hvorki úr Reykjavík, Hafnarfirði eða nálægum byggð- arlögum, láta hjá líða, að vera viðstaddir þessa einstöku sýn- ingu, sem því miður getur með engu móti endurtekizt hér á næstu árum. Er þetta mælt af fullkominni ábyrgðartilfinningu, en ekki í fjáröflunarskyni fyrir félög þau, sem fyrir flugsýningunni beit- ast. Hafa þegar verið gerð 6 þús- und aðgöngumerki, og er engin hætta á að þau muni ekki selj- ast, en meira fé, en inn kemur við sölu þeirra, mun tæpast þurfa til að standa undir kostn- aðarhlið þessa máls. Þátttaka áhorfenda í flugsýn- ingunni hefir að sjálfsögðu stór- feld áhrif á afstöðu almennings til flugmálanna hér á landi, og hvílir að því leyti nokkur skylda á mönnum að játa sig ekki vanta á Sandskeiðið á sunnudag. aðeins Loftur. Innflutnmgur sall- fiskjar tll Braziliu. Síðustu ár hefir talsvert verið selt héðan af saltfiski til Brazi- líu. Tvö síðastliðin ár hefir ís- lenzki sáltfiskurinn verið um 5% af öllum innflutningnum þangað. Fimm undanfarin ár hefir inn flutningur saltfiskjar þangað verið sem hér segir: 1933 ....... 26.200 smál. 1934 ....... 18.800 — 1935 ....... 17.200 — 1936 ..........•. 23.000 — 1937 ....... 21.100 — Saltfisksinnflutningurinn á sl. ári skiptist þannig milli ein- stakra landa: Newfoundland . . 10.339 smál. Bretland ....... 6.506 — Noregur..... 2.154 — ísland...... 1.129 — Kanada ........... 723 — Danmörk ....... 96 — Japan......... 45 — Frá öðrum löndum er inn- flutningurinn enn minni. Olympíuleikarnír verða ekki í Japan Sennilegt að þeir verði í Finnlandi. LONDON: Olympisku leikarnir verða ekki í Ja- pan 1940, eins og áður hafði verið á- kveðið. Ráðherra í Japan, sem fer með mál varðandi öryggi og velferð al- mennings, hefir lagt til að leikarnir verði ekki haldnir í Japan. Búizt er við, að tillaga hans verði samþykkt á ráðherrafundi í dag. Alþjóðasýningu, sem halda átti í Ja- pan, hefir einnig verið frestað. Af þesSu er dregin sú ályktun, að Japanir búist við að styrjöldin í Kína kunni að standa yfir í tvö ár enn. í Oslofrétt segir, að sennilega verði leikarnir haldnir í Finnlandi. — FÚ. A V J A B 1 Ó IÁ vængrjum söngsins Unaðsleg söngvakvikmynd amerísk, frá Columbia Film Aðalhlutverkið leikur og syngur hin heimsfræga söngkona Grace Moore Aðrir leikarar eru: MELWYN DOUGLAS, HELEN WESTLEY og fleiri. Hátíðahöld í Frakklandí LONDON: í Frakklandi var mikið um að vera i gær, á Bastilledeginum, sem er há- tíðlegur haldinn um gervallt Frakk- land. í París var stofnað til stórkost- legrar hersýningar, í viðurvist Lebrun, ríkisforseta, og ráðherranna. Herdeild- ir þessar taka þátt í mikilli hersýningu, sem stofnað verður til, er brezku kon- ungshjónin koma í heimsókn sína til Frakklands. — FÚ. Vandamálin stóru (Framhald af 3. síðu.) ið án áfengis, tóbaks og annara eiturnautna. Hún getur unnið saman í bróðurhug til bjargar landi og lýð, og þannig orðið matvinnungur, sjálfstæð og skuldlaus þjóð. Þeir mun reyn- ast þjóð sinni bezt, sem elska hana, sem fúsir eru til að þjóna og fórna. Hinir munu gera lítið annað en heimta. Það sézt oft- ast þegar á reynir, hvað í mönn- unum býr. P. S. Sportblússur og Georgette- hálsklútar. Hattastofa Svönu og Lárettu Hagan. í nesiið iil sumarfevðalaga er ekkert sem síður má vanta en Hólsíjallahangikjöt Fæst í flestum matvðrubúðum. Kj arnar — (Essensar) Höfum birgðir af ýmiskon- ar kjörnnm til iðnaðar. — ÁFENGISVERZLIJN RÍKISINS

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.