Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 15.07.1938, Blaðsíða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Vandamálin stóru EftirPÉTUR SIGURÐSSON < WO — O — ll — aMO — a — OMDMIIMOMl—l < KHÝJA DAGBLABIB Útgeíandi: Blaffaútgáfan h.f. Ritstjórl: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. Ritstjórnarskrif stof umar: Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingastrifstofa: Lindargötu 1D. Siml 2323. Eftlr kl. 6: Sími 3948. Áskriftarverð kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar 3948 og 3720. Flugsamgöngur Við höfðum að mestu notað hestinn og árabátana til þess að komast leiðar okkar í þúsund ár, þegar ekki beinlínis var treyst á sjálfa fæturna. En á síðasta mannsaldri hafa bætzt allmargir kapitular við sögu samgöngutækjanna. Póstvagnarnir, flóabátar, strandferðaskip, millilandaskip og svo bíllinn. Ungur guðfræðingur, prent- ari og smákaupmaður, allt fá- tækir landar í Canada, réðust í það stórfyrirtæki 1913 að kaupa Pordbíl til þess, eins og Einar Kvaran komst að orði í á- gætri smágrein, að gera tilraun með það hvort hjól gætu snúizt undir vagni á vegum á íslandi. Þegar þetta var sýnt, sóttu þess- ir sömu menn um styrk til Al- þingis, til þess að geta keypt vörubíl. Þingið veitti styrkinn, þótt þá léki mikill vafi á, að þetta væri samgöngutæki, sem við ætti hér á landi. Þó náði vegakerfið frá Reykjavík þegar á þessum tíma austur að Eystri Rangá, upp á Kjalarnes, til Þingvalla og eitthvað suður með sjó. Thomsensbíllinn hafði tekið frá mönnum trúna. Þegar flugvélin kom til sög- unnar, vaknaði fljótt áhugi fyrir flugsamgöngum hér heima. Áhugasamir menn í Reykjavík keyptu flugvél. Flug- vélunum og flugtækninni hefir farið mikið fram síðan. Önnur tilraun og stórfelldari var gjörð síðar, en of kostnað- arsöm til þess að lofthræðslan og skilningsskortur á byrjunar- örðugleikum megnuðu ekki að riða henni að fullu. En nú er til tekið í þriðja sinn. Og nú má það ekki mistakast, að við komumst upp á að hag- nýta hinar sjálfgerðu leiðir loftsins í humátt á eftir öðrum þjóðum. Enda eru nú á þeim hinar beztu horfur. Það, sem að þessu styður, eru fyrst og fremst hinar geysi- miklu framfarir, er átt hafa sér stað á sviði flugtækninnar. Ennfremur sú staðreynd, að nú höfum við eignazt innlendan á- hugamann um flug, sem jafn- framt er hálærður flugmaður sjálfur, og snýst við þessum málum í fylgd með þeim mönn- um, sem fúsir eru að brjótast á- fram eins og landnemar í ný- fundnu landi. Vífilsstaðaflugvélin, stofnun Flugmálafélags íslands, stofn- un og starfræksla Flugfélags Akureyrar, starfsemi Svifflug- félaganna í Reykjavík og á Ak- ureyri, Modelfélagsins og loks heimsókn þýzka flugkennslu- leiðangursins, allt eru þetta undirstöðusteinar í þeirri bygg- ingu, sem flugsamgöngum framtíðarinnar er ætlað að hvíla á hér á landi. Það er vissulega rétt aðferð, að vekja áhuga hinna ungu, beizla orku þeirra til aðstoðar og fórnfýsi fyrir mál, sem get- ur haft jafn hagnýta þýðingu og flugið, fyrst og fremst sem samgöngumál, en einnig sem í- þrótt. Hvílir nú sá vandi, og þá sérstaklega á þeim, sem þegar eru komnir út í hagnýtt flug, að láta enga byrjunarörðug- leika vaxa sér í augum, því nú má saga Thomsensbílsins ekki endurtakast í sögu flugsam- gangna á íslandi. G. M. Greín fijármála- rádherrans í grein, sem fjármálaráðherr- ann skrifaði hér í blaðið á þriðjudaginn, lýsti hann því yfir, að eins og nú horfði við þyrfti áreiðanlega að ganga lengra í því að takmarka innflutninginn en hægt væri að gera með inn- fiutningshöftunum einum sam- an. Þjóðin lifir nú raunverulega um efni fram og þessvegna yrði að gera nýjar ráðstafanir og skapa þeim, sem ættu að fram- kvæma þær, sterka aðstöðu. Grein þessi hefir vakið mikla athygli og öll blað bæjarins hafa gert hana að umtalsefni, án þess þó, að leggja nokkuö til málanna í raun og veru. íhalds- blöðin eru með sinn vanalega skæting um innflutningshöftin, fj ármálaráðherrann, kaupfélög- in og svo fylgir auðvitað með til tilbreytingar gamla klausan um undanfarin „góðæri“, sem fjármálaráðherranum hafi á svo merkilegan hátt tekizt að snúa upp í „illæri“!! Hvað ætli út- gerðarmennirnir í Sjálfstæðis- flokknum segi um þá kenningu t. d. þeir, sem stjórna Kveldúlfi? Morgunblaðið minnist á það í greininni með venjulegri góð- girni, að ein af ástæðunum fyrir því að ráðherrann líti dökkt á framtíöina kynni að vera sú, að ekki hafi enn verið tekið allt gjaldeyrislánið, er fyrirhugað var eða 5 millj. kr. á þessu ári. Þaö er víst óhætt að segja Mbl. það, að það hefir engin úrslitaáhrif á framtíðarhorfur í þessum mál- um, hvort teknar eru að láni 5 milljónir króna á þessu ári eða 2,2 millj. eins og nú þegar hefir verið gert. Um lántökur 1939 og 1940 veit enginn neitt ennþá, þótt heimildir séu fyrir hendi. Morgunblaðið talar um, að lítill hafi orðið árangur inn- flutningshaftanna undanfarin ár. Það er staðreynd, sem þrá- faldlega hefir verið sönnuð með rökum af fjármálaráðherra, að ef innflutningshöftum hefði ekki verið beitt svo sem verið hefir, vœri hér fyrir löngu oröin þurð brýnustu nauðsynjavara í landinu og það hefir vakið mikla athygli þeirra, sem óhlutdrægt líta á þessi mál og fjær standa * Þau eru nú orðin mörg, hin miklu vandamál þjóðanna. Þeim hefir einnig fjölgað á voru landi, og er það ekkert að harma, því vandinn prófar bezt, hvað í mönnum býr. Á erfiðum tímum vekjast oftast upp at- kvæðamiklir menn, fleiri eða færri. í þessum línum vil ég gera aðallega þrjú mikil vandamál að umtalsefni. Þau eru þessi: 1. Hvernig er hægt að útrýma áfengisbölinu? 2. Er hægt að sökkva í „sex- tugt djúp“ sundurlyndisfjand- anum? 3. Getur þjóðin verið mat- vinnungur og borgað skuldir sínar? Orð mín skal ég reyna að hafa skýr og sem fæst um þessi þrjú atriði. Hverju þjóðfélagi má líkja við heimili. í báðum tilfellum verða hin stjórnandi öfl að vera uppalandinn; og til þess er ætl- azt, hvort sem það er heimilis- faðirinn, eða stjórn þjóðarinn- ar, að þá sé hagur barnanna eða þegnanna aðal áhugaefnið. Sá, sem stjórnar, gerir það með velferð heildarinnar fyrir auga. Þessu mega menn ekki gleyma, þegar rætt er um vandamál eins og áfengisbölið. Bakkus verður aldrei gerður að góða barninu, hvaða bönd, sem menn reyna að hafa á hon- um. Fyrr tekur hinn illi djöfull ofstækistrúarmanna sinna- skiftum, en að Bakkus bæti ráð sitt. Fullkomin útrýming er hið eina, sem dugar þar. Og því ekki að fara þá leið því hún er bein og auðfarin. Hvers vegna dettur mönnum í hug, að á- minning og menningarlegur þroski dugi fremur í þessu versta vandamáli, en mörgum öðrum minni? Því banna menn erlendis í stórborgum að hrækja deilunum hér, að þrátt fyrir at- burði síðustu ára skuli hafa tek- izt að standa í skilum meö greiðslur af lánum og komast hjá almennri vöruþurð í land- inu. Annars skal ekki farið lengra út í deilur um þennan skæting íhaldsblaðanna en gert hefir verið, en á það bent að eins og fjármálaráðherrann segir í grein sinni þarf aö lækka innflutning í hlutfalli við útflutning meira en hægt er með beitingu inn- flutningshaftanna einna. Öllum hefir verið það ljóst, aö með þeim einum verður náð vissu marki en heldur ekki lengra. Það er þörf nýrra ráðstafana og Framsóknarflokkurinn mun und irbúa tillögur sínar í þessum málum og vinna þeim fylgi. í þeim tillögum verður ekki sízt að gæta þess að útiloka frá úrslita- áhrifum á þessi mál þá aðila, sem láta viðskiptahagsmuni ein- stakra stofnana eða önnur tillit svipaðrar tegundar ráða meira um afstöðu sína, en tillitið til I greiðslugetu þjóðarinnar. á gangstéttir og leggja við há- j ar fésektir? Því ekki að áminna og tala vingjarnlega til fólks- ins? — Þegar snjór kemur á götur Reykjavíkur og börnin hópast út með sleða sína, því þá ekki að senda til þeirra menn meö áminningar og biðja þau að vera góðu börnin, og segja þeim, að þau megi ekki renna sér í Bankastræti, eða hér og þar? Því þá að banna þetta? Af því, að það er hið eina, sem dugar. Hið sama er að segja um áfengið, ekkert nema bann, og það mjög harövítugt og alvar- legt bann dugar. Áminningar og menningarleg áhrif er aðeins hálmstrá, sem grípa má í i neyð, en á slíku þreytast menn, vegna þess að allur menningarlegur þroski gengur í öldum og hreyf- ingum, og alltaf kemur ný kyn- slóð og manneðlið er hið sama. Þó búið sé að áminna eina kyn- slóð og temja, þá kemur sú næsta óreynd og óþæg og verð- ur heimskunni að bráð, og að halda stöðugt hinum menning- arlega þroska á hámarki, hefir löngum gengið illa, og menn þreytast á því að halda uppi höndum Mósesar, unz fullnað- arsigur er fenginn. Þjóðin verður að borga á hverju ári meira en hálfa millj. króna fyrir innflutt áfengi. Þjóðin stórtapar því á áfengis- viðskiptunum, þótt ríkissjóður fái þar af nokkrar tekjur. Þeir sem slíkt sjá og skilja, að á- fengisviðskiptin eru stórtap fyr- ir þjóðina allavega, verða að hafa vit fyrir óvitunum. Slíkt er ekkert undir vilja fjöldans komið, heldur aðeins hinna uppalandi krafta í þjóðfélaginu. Stjórn hverrar þjóðar er hús- bóndinn á því heimili. Hún hefir marga þjóna við heimilis- störfin og uppeldið — fjölmenn- ar stéttir manna: læknastétt, kennarastétt, prestastétt, sýslu- mannastétt og margskonar embættismenn og stofnanir. Stjórninni ber því að segja: Á- fengið er þjóðarböl, niðurdrep fyrir allan menningarlegan þroska þjóðarinnar. Vér bönn- um sölu þess og notkun. Og við þjóna sína — embættismenn- ina — segir stjórnin: Þið gætið þess vandlega að þessari heim- ilisreglu vorri sé framfylgt, ella munuð þér missa embætti yðar og stöðu. Þetta er opin leið og hin eina skynsamlega og sjálfsagða leið, þótt menn tregðist við að fara hana og telji sér trú um, að ljón sé á veginum. — Áfengis- bölinu þarf að útrýma og þaö er tiltölulega auðvelt hér á landi. Næsta vandamálið er sennilega erfiðara viðfangs. Þetta: að „senda út á sextugt djúp suiídurlyndisfjandann". — Hvílíkt ofurefli. — Er það hægt? Fyrsta sporiö í þá átt er það, að nokkrir ritstjórar og blaða- menn bæti ofurlitið ráð sitt. Ég vil ekki segja neitt slæmt um þessa menn, síður en svo, en þetta verð ég þó að segja: Ég er flokksleysingi og les blöðin á víxl. Les þau auðvitað illa, við það skal kannazt, en oft sé ég foryztugreinar í blöðunum, er sannfæra mig um, að sá, sem skrifar, hallar réttu máli vís- vitandi. Það er kannske ljótt að segja þetta, en ég get ekki ann- að. Þegar menn fara of langt í hvaða máli, sem er, og gleyma sanngirninni, þá eru þeir að tapa. Allur þorri manna hefir jafngóða dómgreind og ég og eins næman smekk, og ég veit fyrir víst, að þetta, sem ég sé, sér líka fjöldinn. Hér þarf að verða breyting til bóta. Mundu ekki vissir menn i gamla daga hafa sagt við þjóð vora: „Takið sinnaskiptum“ — breytið til um hugsunarhátt og líka rithátt. Ef þetta tvennt tækist, aö útrýma áfenginu og útrýma að verulegum mun sundurlynd- inu, þá mundi þriðja vanda- málið leysast auðveldlega. Þá mundi þjóðin geta unnið fyrir mat sínum, án þess að safna skuldum. Áfengið gerir menn að ónytjungum og slæpingjum, og flokkadrátturinn, eins og hann nú er hjá oss, gerir menn að lötum mönnum og landeyð- um. Hið pólitíska dekur flokk- anna við menn, gerir þá að lötum og óþægum börnum. Eng- in verri eða hættulegri plága hefir dunið yfir þessa vora margpíndu þjóð. Annað verra getur hent þjóð en að líða hungur fyrir áhrif elds og ísa. Á ég að eiga það á hættu einu sinni enn að hneyksla menn, og segja: íslenzka þjóðin er eyðslusöm þjóð í meira lagi. Það er andstætt öllum búhygg- indum. íslenzka þjóðin er ekki bindindissöm þjóð, og slíkt er líka andstætt hagsæld hennar. íslenzka þjóðin er óstundvís, og að nokkru leyti löt þjóð. Slíkt gerir menn snauða og enga þjóð ríka. íslenzka þjóðin er enn ó- þrifin og hagnýtir oft tíma sinn og ýms verömæti fávíslega. — Ég hika ekki við að segja þetta um þjóð, sme mér þykir vænna um en allar aörar þjóðir, um þjóð, sem ég óska af heilum hug og hjarta, að verði: Sparsöm, iðin, þrifin, stundvís, hraust, hagsýn og vinnandi þjóð. Sundurlyndið er ógurlegur orkuspillir. Þar fara sálarkraft- ar manna í þref og þjark, en ekki i athafnir og hyggilegar framkvæmdir. Sundurlyndið er mannspillandi. Það sýkir hugs- unarhátt manna, hleypir hita í málin og þá eru þau æfinlega illa hugsuð og einhliða, en róleg athugun kemst síður að. Menn verða ölvaðir af æsingum og eiginlega ónormalir menn. Menn rífa þá niöur hver fyrir öðrum í stað þess að vinna sam- an og byggja upp. Holl og nauö- synleg gagnrýni kemst ekki að fyrir ósanngjörnum sl'eggju- dómum og öfgum. — Með slik- um aðferðum farnast engri þjóð vel. íslenzka þjóðin getur vel ver- (FramhalcL á 4. slðuj

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.